Þjóðviljinn - 16.02.1975, Page 11
Sunnudagur 16. febrúar 1975 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 11
klasulni
jón: Ingólfur Hannesson og Sverrir Sverrisson.
Þau eru glæsileg tilþrifin hjá
Magnúsi Kjartanssyni, stjórn-
anda og „primus motor” upp-
færslunnar.
Mikið fjör var á æfingunni hjá Verslunarskólakórnum og Júdasi. Sungið var af gifurlegri innlifun, og allir virtust leggja
eftir mætti.
sig fram
UPPLÍFGANDI TÓNLISTAR-
FLUTNINGUR í SKAMMDEGI
Nemendamót Verslun-
arskóla Islands verður
haldið í Sigtúni um miðja
vikuna. Mikið verður um
dýrðir á hátíðinni, m.a.
flytur Verslunarskóla-
kórinn tíu lög eftir Brian
Wilson, fyrrum meðlim
bandarísku hljómsveitar-
innar Beach Boys. í til-
efni af flutningi þessum
buðu verslingar blaða-
mönnum að hlýða á kór-
inn.
A nemendamótinu verður
flutt leikrit eftir Peter Oheye-
vich sem leikstýrt er af Hrafni
Gunnlaugssyni, jassballett
stjórnað af Iben Sonne, en ball-
ett þessi er ádeila á verðbólgu,
og annáll skólaársins verður
fluttur. Margt fleira verður til
skemmtunar, en það verður
ekki tiundað hér.
Þá er komið að flutningi
Verslunarskólakórsins á lögum
Brians Wilsons. Þetta eru tiu
lög, flest frá árunum 1961 til
1964, að tveimur undanskildum.
Meðal annars verða flutt God
Only Knows, Oh Darling, Mar-
chella, Good Vibrations, Sail On
Sailor, Dance Dance Dance o.fl.
Það var I nóvembermánuði að
forráðamenn þeirra Verslunar-
skólamanna komu að máli við
Magnús Kjartansson, pianóleik-
ara hljómsveitarinnar Júdas.og
báðu hann um að taka að sér að
æfa verk með kórnum fyrir
nemendamótið. Magnús var
strax til og ákvað að kórinn og
Júdas skyldu flytja I samein-
ingu gömul Beach Boys lög, en
þau henta mjög vel til kórflutn-
ings. Siðan hefur verið æft
sleitulaust og siðasta mánuðinn
var æft á hverjum degi.
Beach Boys hafa verið starf-
andi allt frá þvi á árinu 1962.
Reyndar stofnuðu þeir Wilson
bræður Brian, Carl og Dennis
1961 hljómsveitina The Pencle
Tons, en sú hljómsveit varð að
Beach Boys árinu seinna er
Verslunarskólakórinn
og hljómsveitin
Júdas flytja lög eftir
Brian Wilson
Mike Love og Alan Jardine
bættust i hópinn. A þessum
þrettán árum hefur hljómsveit-
in átt gifurlegum vinsældum að
fagna, einkum i heimalandi
þeirra, Bandarikjunum.
Hver man ekki eftir lögum
eins og Surfin’ USA, Fun Fun
Fun, Heroes And Willains, Help
Me Ronda, California Girls,
Sloop John B, Wouldn’t It Be
Nice og Cotton Fields. Þessi lög
og mörg önnur eru orðin sigild I
hugum margra. Klásúlur hafa
alltaf haft mikið álit á Beach
Boys og dáð þá fyrir frábæran
flutning skemmtilegra laga,
einkum er það röddunin sem
Klásúlum hefur þótt gaman að.
I dag eru i hljómsveitinni Ricky
Fataar, Alan Jardine, Carl Wil-
son, Denis Wilson, Mike Love og
Blondie Chaplin. Þeir eru starf-
andi á fullu i dag og eins og
kanar segja „still going
strong”.
Flutningur Verslunarskóla-
kórsins á verkum Brians Wilson
er að mörgu leyti ágætur. Ung-
lingarnir hafa greinilega gaman
af þvi sem þeir eru að gera og
leggja sig fram um að ná sem
DEMANT
GRÓSKUMIKIÐ
UMBOÐSFYRIRTÆKI
Á aefingunni hjá Versl-
unarskólakórnum hittu
Klásúlur Helga Stein-
grímsson, fyrrverandi
Haukameðlim, að máli.
Helgi er einn af stof nend-
um fyrirtækisins Demant
ásamt Ingibergi Þorkels-
syni, Jóni Ólafssyni,
Jakobi AAagnússyni og
Change.
Helgi tjáði okkur, að Demant
hefði einkaumboð fyrir sjö
hljómsveitir, þ.e. Change,
Júdas, Dögg, Erni, Námfúsu
Fjólu, Stuðlatrió ( og vantar
annað trió vegna þorrablóta- og
árshátiðavertiðar) og hljóm-
sveit sem samanstendur af
þremur fyrrverandi Birtulim-
Helgi Stcingrlmsson — lék á gitar og sprellaði ineð Haukum i mörg
ár. Hann hefur lagt gltarinn til hliðar og sprangar nú um bæinn með
skjalatösku i hendi.
bestum árangri og Maggi
stjórnar flutningnum eins og
hershöfðingi.
Athygli Klásúlna vakti
prýðisgóður pianóleikur Ingva
Steins, sem leikur með hljóm-
sveitinni I stað Magga. Framtak
þeirra Verslunarskólamanna og
Júdasar er allra góðra gjalda
vert og Klásúlum finnst að starf
þeirra undanfarna mánuði hafi
borið rikulegan ávöxt.
Aformað er að kórinn komi
fram á miðnæturskemmtun, á
fimmtudegi i Sigtúni og e.t.v.
viðar. Þá kemur það til greiná
að sjónvarpið geri hálftima þátt
með kórnum. Klásúlur vona að
af þvi verði og sem flestir fái að
njóta hins ágæta flutnings.
um og Ara Jónssyni úr Roof
Tops. Sú hljómsveit er nafnlaus
enn sem komið er, en strákarnir
eru hressir og með mikið af nýju
efni, aðallega eftir Atla, bróður
Ara.
Helgi sagði ennfremur að
Júdas myndi fara i breiðskifu-
upptöku um miðjan júni og væri
kominn timi til að þeir sýndu
getur sina á plötu, þvi allt of
langur timi væri liðinn siðan
fyrsta platan kom út. Júdas
hafa fengið til liðs við sig banda-
riskan gitarleikara, Clyd að
nafni. Sá starfaði i hljómsveit
vestan hafs með þeim Axel
Einarssyni, og Shady Owens.
Klásúlur sáu Júdas i Klúbbnum
fyrir stuttu og sannfærðust enn
betur um að Júdas væri besta
starfandi popphljómsveitin á ts-
landi i dag.
Að lokum sagði Helgi
Steingrimsson okkur að fremur
litið væri af Change að frétta.
Þeir væru að ihuga samning við
Polydor, en ekkert hefði verið
ákveðið og engar undirskriftir
farið fram.
Spjallað við Helga Steingrímsson, einn af stofnendunum