Þjóðviljinn - 16.02.1975, Síða 20

Þjóðviljinn - 16.02.1975, Síða 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. febrúar 1975 cTVIyndir úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka ÚR ÝMSUM ÁTTUM Myndirnar i þættinum i dag eru allar úr safni Dagsbrúnar, en úr ýmsum áttum.allar þó frá sama tima, fyrrihluta fjórða áratugsins og allar tengdar verkalýðsbaráttunni og lifi al- þýðunnar. Kröfugöngur fyrir noröan og sunnan Mynd nr. 41 sýnir kröfugöngu 1. mai á Akureyri, en ekki er skráð hvaða ár, þó er vitað, að þetta er einhver af fyrstu göngunum þar. A borðunum má lesa: Oreigar allra landa sameinist — og Samfylking verkalýðsins, og þeir eru skreyttir hamri og sigð. Hin myndin, nr. 42, sýnir hluta af 1. maigöngu Kommún- istaflokks Islands i Reykjavik 1934 og þekkjast á henni Ketill Gislason (fánaberinn ), Áki Jakobsson, Jón Bjarnason, Loftur Þorsteinsson, Sigurður Guðmundsson i Skálholti og Jens Figved. Kannski þekkja iesendur fleiri? Á planinu Þá er það myndin á sildar- planinu, nr. 43. Hún er tekin á Siglufirði 1930 og það er plan Sildareinkasölu rikisins, sem fólkið var að vinna á. Myndin er sennilega tekin i kaffihléi. Á henni þekkjum við Eyjóif Árna- son 2. frá vinstri og Hallgrim Hallgrimsson 3. frá vinstri, en vonandi geta einhverjir lesend- ur sagt okkur nöfn hinna. Fulltrúar sendir út i heim Sumarið 1931 fór fram fjár- söfnun meðal verkamanna og bænda til að gera út sendinefnd til Sovétrikjanna i fyrsta sinn, og skyldi nú kynnast verklýðs- rikinu al eigin raun. Ferðin var i október sama ár, og völdust til hennar þau sem sjást á mynd nr. 44 og tveir til viðbótar. Þarna standa i aftari röð frá vinstri: Kristján Júliusson verkamaður, Húsavik, Jón Jónsson landbúnaðarverka- ! i I I i t I maður, Suður-Þingeyjarsýslu, Isleifur Sigurjónsson verka- maður, Reykjavik, Gisli Sigurðsson verkamaður, Siglu- firði, og Marteinn Björnsson járnsmiður, Reykjavik. Sitjandi frá vinstri: Kjartan Jóhannsson sjómaður, Reykjavik, Elin Guð- mundsdóttir verkakona, Reykjavik, og Jens Hólmgeirs- son bústjóri, Isafirði. Á myndina vantar þá Baldvin Björnsson iðnaðarmann og Þórð Benediktsson verslunarmann, báða frá Vestmannaeyjum. Að lokum mynd af ræðu- manni.sem við getum ekki stillt okkur um að birta, þótt hún hafi birst i Þjóðviljanum fyrr og allir þekki manninn, Ásgeir Blöndal Magnússon, sem þarna talar á útifundi Kommúnistaflokksins á Stokkseyri 1932 (i sama skipti og myndin var tekin þar af Karlakór verkamanna nr. 8 i þættinum 3. nóv. sl.). En hver sem á nú heiðurinn af mynda- tökunni, þá hefur það verið lista- maður, svo frábær er myndræn uppbygging, þar sem hæst ber rauðan fánann og ungan, falleg- an fullhugann, talandi af eld- móði með félagana sitjandi sér við hlið, en á móti vegur róman- tikin i grónum, islenskum grjót- vegg i forgrunninum. Man annars nokkur hver var ljósmyndarinn i þessari ferð? Það eru fleiri ágætis myndir i safninu teknar við sama tæki- færi. 1 næsta þætti verða myndir úr öðru ferðalagi og öðru verks- félagssafni. ferð prentara til Hóla i tilefni 500 ára afmælis prentlistarinnar. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.