Þjóðviljinn - 16.02.1975, Side 24
Sunnudagur 16. febrúar 1975
Jafnvel þótt oft andi
köldu frá okkur íslending-
um í garð dana, sem er
arf leifð frá gamalli tíð, er
það nú einu sinni svo að ef
eitthvað bjátar á hjá þess-
um frændum okkar, fylgj-
umst við mjög náið með
því sem þar gerist, mun
nánar en með öðrum þjóð-
um. Svo sterk eru tengslin
milli þessara þjóða enn í
dag. Það fer ekki á milli
mála að fáar þjóðir, og
sennilega engin Evrópu-
þjóð hef ur átt við aðra eins
ef nahagserf iðleika að
stríða sl. ár og danir.
Þegar svo frétta er leitað af
málum koma þær alltaf að ofan.
Það er að segja frá stjórnmála-
mönnunum eða forsvarsmönnum
einhverra samtaka. En hvernig
lita þessi mál öll út i augum al-
mennings i Danmörku? Um það
langaði okkur að fá að heyra.
Fréttamaður Þjóðviljans var á
ferð i Danmörku fyrir nokkrum
dögum og ræddi þá um þessi mál
við dansk-islensk hjón sem búið
hafa i Danmörku um árabil, Finn
Sveinsson og Sigrúnu Káradóttur.
Þau bjuggu i mörg ár hér á
tslandi og þekkja þvi vel til allra
mála hér og geta þvi gert saman-
burð á afkomu og stöðu almenn-
ings á Islandi og i Danmörku.
Finn er dahskur, heitir raunar
Rasmunsen en gerðist islenskur
rikisborgari meðan hann bjó á
tslandi og varð þá að breyta um
efntirnafn og nefndi sig Sveins-
son. tslenska rikisborgararétt-
inum heldur hann enn þótt hann
sé búinn að búa i Danmörku i 6 ár.
Þau hjónin búa i Tastrup, sem
er ein af útborgum Kaupmanna-
hafnar og er i um það bil 17 km.
fjarlægð frá miðborg
Kaupmannahafnar. Finn vinnur
hjá danska sjónvarpinu sem
tæknimaður en Sigrún vinnur hjá
Kodak-verksmiðju i næsta bæ við
TSstrup, Albertslund. Þau hjónin
eiga tvær dætur Annettu og
Mariönnu, 15 og 13 ára gamlar.
Þetta er sem sagt meðal-fjöl-
skylda samkvæmt tölfræðinni.og
við byrjuðum á að spyrja þau
hvernig afkoman væri hjá
fjölskyldu af þessari stærð i Dan-
mörku.
— Það fer auðvitað eftir þvi við
hvað er miðað. Þó hygg ég að full-
yrða megi, að ef bæði hjónin
vinna úti þá sé afkoman nokkuð
góð, sagði Finn. Auðvitað er ekki
sama við hvað fólk vinnur. Senni-
lega leyfir ekki af kaupinu hjá
verkamanni þótt kona hans vinni
úti. Hinsvegar kemst iðnaðar-
maður af þótt eiginmaðurinn
vinni einn, en það er ekkert lúxus-
lff, fjarri þvi. Allt verðlag hefur
hækkað mjög hér sl. ár, verðbólg-
an hefur verið meiri en nokkru
sinni áður, þannig að þetta hefur
allt sigið á verri hliðina. Hér eins
og viða annarsstaðar er það að
verða almennt að bæði hjónin
vinni fyrir heimilinu, annað dugir
ekki.
— Finnst þér afkoma ykkar
betri en meðan þið bjugguð á
tslandi?
— Já, hún hefur verið það. Við
vorum á tslandi milli 1960 og 1969
að við fluttum hingað. Þá vorum
við að flýja kreppuna sem við-
reisnarstjórnin kom á, eins og svo
margir aðrir á Islandi. Mér
bauðst óvænt starf sem tækni-
maður við danska sjónvarpið sem
var mun betur launað en tækni-
manns-starf við islenska sjón-
varpið og við slógum til.
— Skattar hér eru mun hærri
en á Islandi. Við borgum fast að
50% af launum okkar i skatta hér
en á móti kemur svo margfalt
meira öryggi hvað viðkemur al-
mannatryggingum og atvinnu-
leysisbótum svo dæmi sé nefnt.
— Já, þegar þú minnist á at-
vinnuleysisstyrk, nú er atvinnu-
leysi meira i Danmörku en
nokkru sinni um margra ára bil,
hvernig er afkoman hjá atvinnu-
leysingjunum?
— Hún er auðvitað fjarri þvi að
Hjónin Finn Sveinsson og Sigrún Káradóttir.
Atvinnuleysiö er
það alvarlegasta
hér í Danmörku
Rætt við dansk-íslensk hjón um ástandið
í Danmörku frá sjónarhóli almennings
vera góð. Menn fá greitt i
atvinnuleysisbætur 90% af
meðallaunum og ég þekki til þess,
vegna þess að bróðir minn sem er
múrari er atvinnulaus, eins og
svo margir byggingariðnaðar-
menn, að þeir liða ekki skort. Að
visu er kerfið hér mjög flókið og
margar smugur á þvi. Þeir sem
kunna á það út i æsar komast
sæmilega af, en hinir sem ekki
kunna á það og þeir eru margir,
semgeraekki meiraen skrimta
af hinum venjulegu atvinnuleysis-
bótum.
— Þar sem ég veit að islend-
ingar standa mikið i allskonar
fjárfestingum, bætir Sigrún við,
þá er rétt að taka það fram að
þeir sem hafa fjárfest hér, til að
mynda keypt sér ibúð eða annað
þvi um likt, þeir standa óskaplega
illa að vigi verði þeir atvinnulaus-
ir. Þá má auk þess bæta þvi við að
margar húsmæðuir sem vinna úti
eru ekki i neinu verkalýðsfélagi
og þær fá auðvitað engar bætur
þegar þær missa atvinnuna. Á
móti þessu kemur svo, að bæjar-
félögin veita atvinnulausu fólki
hagstæð lán ef illa horfir fyrir þvi.
— Hverju kennið þið um þessa
kreppu sem skollin er á i Dan-
mörku? Er það inngangan i EBE
eða oliukreppan sem eiga höfuð-
sökina?
Þrátt fyrir efnahagskreppu i Danmörku er nú verið að reisa þar stærstu versiunarmiðstöð landsins á
vegum samvinnuhreyfingarinnar. Miðstöðin er reist i Tðstrup. (Ljósm. S.dór).
— Bæði þessi atriði eiga stóran,
já, lang-stærsta þáttinn i þvi
hvernig komið er, segir Finn.
Segja má að það hafi byrjað að
halla undan strax i byrjun oliu-
hækkunarinnar i fyrra haust.
Fólk trúði þessu þó ekki strax
meðan atvinna var nóg og fannst
allt vera i lagi. En svo um leið og
menn fóru að missa atvinnuna þá
sá fólk alvöruna i málinu. Ofan á
allt þetta bættist hin auma rikis-
stjórn Hartlings. Hún gerði alls
ekki neitt til að koma i veg fyrir
atvinnuleysið sem er auðvitað
það alvarlegasta sem fyrir getur
komið i einu landi. Hartling lét
allt reka á reiðanum, meðan til að
mynda sviar gerðu ráðstafanir til
að koma i veg fyrir atvinnuleysi
hjá sér og tókst það nokkurn veg-
inn.
— Hvernig skýrir þú þá kosn-
ingasigur Hartlings við siðustu
kosningar?
— Já, sá sigur er einkennilegur
og hefur mjög verið rætt um hann
hér. Sú helsta skýring sem menn
hafa fundið er sú, að þegar miklir
erfiðleikar hafa skollið yfir er allt
af viss ótti hjá fólki að breyta til,
óttinn við ringulreið. Ég hef þá
trú að einmitt þessi ótti hjá fólki
hafi orðið til þess að fólk kaus
Hartling.
— En hver er þá þin skýring á
þvi fylgishruni sem orðið hefur
hjá dönskum krötum á liðnum ár-
um?
— Skýringin er fyrst og fremst
sú að fólki isem hefur fylgt þeim
hefur fundist þeir vikja i hverju
málinu á fætur öðru, sem þeir og
hafa gert. Til að mynda var af-
staða þeirra til inngöngunnar i
EBE til þess að margir snéru
baki við þeim. Ég veit til að
mynda nokkur dæmi um þetta.
Nágranni minn einn hafði alltaf
kosið kratana, en hann var á móti
inngöngu dana i EBE og hann
kaus þá ekki siðast bara vegna
þessa máls.
— Hefurðu trú á þvi að enn sé
fyrir hendi meirihluti meðal
þjóðarinnar um að danir eigi að
vera i EBE?
— Nei, ég tel það vist, og það
hefur raunar komið fram i skoð-
anakönnunum,að meirihluti fyrir
þvi er ekki lengur fyrir hendi. Og
ég tel einnig að stjórnmálamenn-
irnir sem voru þvi fylgjandi aö
danir gengju i EBE séu búnir að
sjá að það var skakkt, og ég er
einnig viss um það að ef englend-
ingar ganga úr EBE þá gera dan-
ir það lika.
— En hver er þin skýring á
fylgi Glistrups?
— Hún er i rauninni mjög ein-
föld, þetta ér óánægt ihaldsfólk
sem kýs hann, enda hefur fylgi
hinna ihaldsflokkanna hrað-
minnkað, að sama skapi og flokk-
ur Glistrups hefur vaxið. Ég hef
enga trú á þvi að það fyrirbæri
sem flokkur Glistrups er, lifi
lengi. Slikir flokkar hafa skotið
upp kollinum i mörgum löndum
en aldrei lifað lengi.
— Nú er talað um að i Dan-
mörku sé mikil „sósialséring”
hvað segir þú um það?
— Ja, frá sjónarmiði ihaldsins
er það sjálfsasgt, fólk gerir mikl-
ar kröfur til hins opinbera en vill
svo ekkert leggja á móti. Mér
finnst sósialséring hér alls ekki
mikil. Að visu skal ég viðurkenna
að margt hefur breyst til batnað-
ar undir kratastjórn frá þvi sem
var þegar ég var að alast hér upp,
en mér finnst fjarri lagi að tala
um sósialséringu. 1 dag er til að
mynda auðveldara fyrir börn
verkamanna og iðhaðarmanna að
ganga menntaveginn en áður var
og munurinn á rikum og fátækum
hefur vissulega minnkað þótt
hann mætti vera mun minni. Hér
hafa átt sér stað þjóðfélagsbreyt-
ingar og þær til batnaðar þótt
mörgum þyki þær of litlar og
ganga of hægt.
— Er mikill stjórnmálaáhugi
meðal almennings i Danmörku?
— Já, mjög mikill. Fólk hér
lætur sig stjórnmálin miklu
skipta og er ekki nærri þvi eins
fastheldið á flokkinn sinn og
heima átslandi.þar sem það jaðr-
ar við dauðasynd að kjósa annan
flokk en þann sem maður ramb-
aði á að kjósa i fyrsta skipti,
hvernig svo sem hann stendur
sig.
— Að lokum: nú er mikil
stjórnarkreppa i Danmörku, vilj-
ið þið nokkru spá um hver það
verður sem myndar stjórn?
— Það er mjög erfitt að spá
nokkru um það, en ætli það verði
ekki Anker Jörgensen; flestir bú-
ast við þvi. — S.dór