Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 2. marz 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Afrikumönnum fjölgar hraöast. Mannkyniö að fylla fjóröa miljarðinn ( skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum kemur fram að fólksfjölgun er meiri í Afríku en nokkurri heimsálfu annarri. í þrjátiu og níu af f jörutíu og fimm Afríkuríkjum, sem upplýsingar hafa borist frá, nam f jölgunin yfir tveimur af hundraði siðastliðið ár. ( níu ríkj- um var f jölgunin þrír af hundraði og þar yfir. Aftur á möti er fjölgunin i tuttugu og tveimur af þrjátlu og fjórum rlkjum og svæðum I Evrópu undir einu prósenti á ári. I árbók Sameinuöu þjóö- anna um fólksfjölda i heiminum er þvl spáð aö áriö 2007 muni mannkyninu hafa fjölgaö um helming frá þvi sem nú er, miö- aö viö núverandi árlega fjölgun yfir heiminn allan, sem er 2.1%. — Hér á landi mun fjölgunin meö mesta móti eftir því sem gerist I Evrópu. En sá böggull fylgir skamm- rifi fyrir Afrfku að þótt fleiri fæöist þar tiltölulega en annars- staöar, þá eiga menn þar minni möguleika á langlifi en I öörum heimsáflum. I flestum Afriku- rikjum er meöallifslengdin und- ir fimmtíu árutn. I tuttugu og einu landi aö minnsta kosti nær hún ekki fjörutiu árum. Samkvæmt árbókinni geta sænskir karlmenn vænst þess aö veröa sjötiu og tveggja ára, eh aöeins i sex löndum öörum er meðalllfslengdin yfir sjö tiu árum — I Danmörku, Noregi, Hollandi, tslandi, Japan og ísrael. Allt mannkyniö er nú um þaö bil 3860 miljónir aö tölu og eiga þar af 2204 miljónir eöa 57.1%, heima I Asíu. Hlutfallslegur fjöldi barna undir fimmtán ára aldri gefur verulega vísbendingu um fólks- fjölgun komandi ára. Sé þessi aldursflokkur tiltölulega fá- mennur I einhverju rlki, má gera ráö fyrir að fólksfjölgunin næstu árin veröi þar aö sama skapi litil. Lægsta rikiö hvaö þetta snertir mun vera Mónakó, þar sem aðeins 13% Ibúanna eru undir fimmtán ára aldri. Hins- vegar er rúmur helmingur ibú- anna á Cookseyjum og Vestur- Samóa I Kyrrahafi af þessum aldursflokki. 1 Afrlkurikjum eru að meöaltali fjörutiu af hundr- aöi ibúanna eöa meira undir fimmtán ára aldri, en I Evrópu er hlutdeild þess aldursflokks i heildaribúafjöldanum undir þrjátiu af hundraði — reuter. Bókamárkaðurinn i * I HUSI IÐNAÐARINS VIÐ INGÓLFSSTR/ETI Kvikmynda- bálkur um andspyrnu- hreyfingar í nokkrum löndum Austur- Evrópu er verið aö gera stór- mynd i mörgum hlutum undir stjórn sovéska kvikmyndastjór- ans Júrl Oserofs. Myndin heitir Kommúnistar og sýnir atburöi úr sögu andspyrnuhreyfingarinnar gegn nasistum og þýsku hernámi. Þar er sýndur skæruhernaður Titos I Júgóslaviu, eyðing gettós- ins I Varjá, andóf vinstrimanna i Búdapest og Sofiu, þar eru leiknir þekktir kommúnistaforingjar eins og Fogliatti og Maurice Thorez, Wilhelm Pieck hinn þýski, Kadar og Laslo Fajk og margir maðrir. Kvikmynd þessa mun eiga að Leikstjórinn, Júri Oserof, lagfærir búnaö þýsks riddarakrossmanns frumsýna þegar sett verður 25ta þing Kommúnistaflokks Sovét- rikjanna vorið 1976. Oserof hefur meöal annars stjórnað stórmynd i fjórum hlut- um um heimsstyrjöldina siðari og framgöngu sovéska hersins i henni, heitir sú mynd Frelsun. Hefur hún fariö um nær hundraö þjóölönd. Námsvist í félagsráðgjöf Fyrirhugað er að fimm íslendingum veröi gefinn kostur á námi i félagsráðgjöf I Noregi skólaárið 1975—76, þ.e. að hver eftirtalinna skóla veiti inngöngu einum nemanda: Norges kommunal- og sosialskole, ósló Norske Kvinners Nasjonalráds Sosialskole, ósló Sosiaiskolen, Stafangri Sosialskolen, Þrándheimi og Det Norske Diakonhjem, Sosialskolen, ósló. Til inngöngu I framangreinda skóla er krafist stúdents- Prófs eða sambærilegrar menntunar. islenskir umsækj- endur, sem ekki hefðu lokið stúdentsprófi mundu ef þeir að öðru leyti kæmu til greina þurfa aö þreyta sérstakt inn- tökupróf, hliðstætt stúdentsprófi stærðfræ'ðideildar I skrif- legri Islensku, ensku og mannkynssögu. Lágmarksaldur til inngöngu er 19 ár og ætlast er til þess að umsækjendur hafi hlotið nokkra starfsreynslu. Þeir sem hafa hug á að sækja um námsvist samkvæmt framansögðu skulu senda unisókn til menntamálaráöu- neytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 1. april n.k. á sérstöku eyðublaöi.sem fæst i ráðuneytinu. Reynist nauðsynlegt að einhverjir umsækjendur þreyti sérstök próf i þeim greinum. sem að framan greinir, inunu þau próf fara fram hérlendis i vor. Menntamálaráðuneytio, 26. febrúar 1975. Handknattleikslandsleikur í Laugardalshöll þriðjudagskvöld kl. 20.30 ÍSLAND—TÉKKÓSLÓVAKÍA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.