Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. marz 1975 af eiiendum vettvangi Brottrekstur farandverkafólks: Vanþakklæti velferöarríkja Það hefur margoft verið tekið fram í yfirlitsskrif- um siðustu mánaða, hve mjög velf erðarþróun í Vestur-Evrópu eftir stríð hefur veriðtengd við ódýra olíu. Færri hafa veitt því athygli, hve mjög velmeg- unin hef ur verið tengd arð- ráni á ódýru og á margan hátt ,,þægilegu" vinnuafli f arandverkamanna frá Suður-Evrópu, Tyrklandi og Norður-Afríku., I mörg- um iðnríkjum Vestur- Evrópu hefur það ástand skapast að um tíundi hver launþegi er farandverka- maður. í Vestur-Þýska- landi voru í fyrra 2,3 mil- jónir farandverkamanna, og hafði þeim þó fækkað um 10% á árinu. AAeð þeim voru tæpar tvær miljónir f jölskyldumeðlima. Það er þetta fólk sem verður mest fyrir barðinu á hverskyns þjóðfélagslegri mismunun, húsa- leiguokri og öðru svindli, og þeg- ar eitthvað bjátar á er þvi þakkað framlagið til velferðarinnar með þvi að senda það heim til að tryggja „okkar mönnum” vinnu. Við skulum skoða aðeins nánar hvernig þetta dæmi litur út, og halda okkur þá við það dæmi- gerða farandverkamannaland Vestur-Þýskaland. Hæpin gisti- vinátta Hlutur júgóslava, itala og þá ekki sist tyrkja, sem mest hefur fjölgað á siðustu árum, i þýskum iðnaði og þjónustugreinum er af- ar mikill. Þetta fólk er kalláð gistiverkafólk á þýsku, en hlut- skipti þess á i reynd næsta litið sameiginlegt við gistivináttu. Þetta verkafólk hefur unnið þau störf sem eru erfiðust, óþrifleg- ust, einhæfust — og þá oftast um leið verst borguð. Störf sem þjóð- verjar vilja ekki vinna nema i neyð. Hátt i miljón útlendinga hafa svitnað við málmbræðslu- ofna og staðið við sálardrepandi færibönd bilaverksmiðjanna og unnið annað það sem óvinsælt er i málmvinnslu og vélsmiðum. Þeir eru mjög fjölmennir i byggingar- iðnaði og svo fjölmennir i sorp- hreinsun og götuhreinsun að án þeirra hefðu borgirnar drukknað i óþverra. Konur þeirra eru fjöl- mennar á saumastofum, við diskaþvott og fatahreinsun. Hlutskipti farandverkamann- anna er um margt hliðstætt við hlutskipti kvenna á vinnumark- aði. 1 helstu stórfyrirtækjum á svo að heita að þeir fái sama kaup greitt og þýskir starfsbræður. En þeir eru yfirleitt hafðir i lægstu launaflokkum. Þeir eiga erfiðara með að auka við starfsþekkingu sina en innbornir vegna tungu- málaerfiðleika og svo vegna þess, að þeim er haldið i fáfræði um þá möguleika sem i boði eru. Helm- ingur þeirra vinnur á fremur smáum vinnustöðvum, þar sem kaup er lægra en i stóriðju, kjör öli ótryggari og auðveldara að halda þeim á lágmarkskaupi. Þetta á ekki hvað sist við um þá sem hafa komið til landsins á vafasömum pappirum — eins og margir hafa gert i neyð sinni.eða þá sem fáfróð fórnarlömb óprútt- inna braskara af eigin þjóð, sem eins vel mætti kalla þrælasala. Arðránið flutt norður Arðrán á fátækum þjóðum er hægt að stunda með ýmsu móti. T.d. með þvi að setja niður vinnu- aflsfrek útibú auðhringa iðnrikj- anna á láglaunasvæðum þar sem „vinnufriður” rikir vegna þess að verklýðshreyfing er bönnuð. En það er lika hægt að flytja aröránið norður með þvi að flytja þangað verkafólk. Af þessu er margvis- legt hagræði fyrir iðnaðinn. Hann fær menn á besta aldri heim að verksmiðjudyrum og þarf varla að gera annað fyrir þá en að reisa nokkra bragga. Og hin riku iðn- aðarsamfélög hafa engan kostnað haft af því, að koma þessu fólki á legg, greiða útgjöld af hinum ,,ó- arðbæra” tima bernskunnar. Þessir menn taka að sér verstu verkin og leggja einatt harðar að sér en t.d. vestur-þýskir starfs- bræður af ótta við brottrekstur. Þeir vita að heiman fátt um verk- lýðsfélög, enda er liklegast að þau séu bönnuð þar, og þar með vita þeir fátt um eigin rétt. Þegar hagvöxtur gengur greitt fylla þeir upp i allar eyður i framleiðslu- kerfinu, en þegar afturkippur kemur er þeim sagt upp fyrstum. Þetta gerðist árið 1967 og þetta er að gerast nú i stórum sttl, eins og siðar verður rakið. Reikningar í fyrra vann farandverkafólkið fyrir þrjátiu miljðrðum þýskra marka. Það greiddi sex miljarði i skatt — tók þar með þátt i að endurbæta vegakerfi og skóla- kerfi þýska rikisins. Það greiddi fimm miljarði marka til al- mannatrygginga og lifeyrissjóða, sem það mun siðarmeir njóta harla litils af sjálft, þetta fólk er að búa i haginn fyrir þýzka starfsbræður. Þá er ótalinn þátt- ur húsnæðisbraskara, sem hafa mjög lagt stund á það að siá upp kojum i allskonar hreysum og leigja út á hundrað mörk kojuna á mánuði eða meir. Talið er að tyrkir borgi t.d. að meðaltali helmingi meiri húsaleigu en hægt væri að hafa af þjóðverjum, og italir, sem eru allmiklu betur settir þar i landi vegna þess að þeir eru i Efnahagsbandalaginu, greiða að meðaltali 30% hærri leigu en þjóðverjar. Með þessu móti saxast fljótt á verkalaunin: 13 miljarðir marka leita aftur á hinn þýska markað, halda uppi vöruhúsum og þjón- ustu ýmiss konar, en sex miljarði tókst fólkinu að spara og senda heim. Það má heita búbót fyrir stóra hópa atvinnulitilla ættingja heima fyrir, en er liklega þegar á heildina er litið, hæpinn ávinning- ur fyrir Tyrkland, Sikiley eða Andalúsiu sem missa mikið af sinu dugmesta fólki einmitt með- an það er á besta aldri. Vítahringir Félagsleg vandamál farand- verkafólks eru fleiri en talin verða. Þeir koma með sérstæða siði og venjur inn i framandlegt umhverfi sem oftar en ekki er þeim fjandsamlegt. Einkum eru tyrkir illa settir. Þeir mæta mjög eindregnum fordómum heima- manna sem halda þá óþrifalega og þjófótta (skýrslur segja reynd- ar litinn sem engan mun á af- brotatiðni meðal þessa fólks og þjóðverja sjálfra). Þessi fjand- skapur og svo hjálparleysi tyrkja sjálfra verður til þess, að þeir þyrpast saman i vissar götur og hverfi til að hafa traust og hald hver af öðrum — en þessi myndun „gettóa” verður siðan til að magna fjandskap nágranna, sem kvarta um að fasteignir þeirra lækki i verði við þessa þróun. Börn útlendinganna eiga erfitt með að fylgjast með þýskum börnum i skólum vegna minni undirbúnings og málaörðugleika, og þeim finnst þau vera hornrek- ur og þvi forðast þau skólann sem mest þau mega. Niðurstaðan verður svo einatt sú, að þau verða ólæs og óskrifandi á tveim málum — rótlaus i ótryggu umhverfi. Vandamál júgóslava og þó eink- um itala eru mildari, en að flestu hliðstæð. Hreyfanlegur varaforði Vestur-Þýskaland hefur til þessa haft mjög litil útgjöld af fé- lagslegum þörfum hins erlenda verkafólks. Það er hagkvæmast að geta gjörnýtt vinnuafl þess eft- ir þörfum án þess að þurfa að kosta miklu til að tryggja þvi menntun, varanlegt húsnæði eða ellilifeyri. Stefnan hefur i raun verið sú, að koma þvi svo fyrir að hver verkamaður standi ekki mjög lengi við; að sem fæstir setj- ist að. Um þessa stefnu er venju- lega ekki farið mörgum orðum, en með kreppunni eykst hrein- skilni manna. Forstjóri Ford i Köln segir blátt áfram að útlend- ingarnir eigi að vera „hreyfan- legt varavinnuafl” og þvi eigi að gera samninga við þá til mjög stutts tima í senn. Ýmsir atvinnu- málaráðherrar sambandsrikja Vestur-Þýskalands taka i sama streng. Og frá þvi i nóvember 1973 hefur verið hert mjög á ákvæðum um ráðningar, og endurnýjanir á atvinnuleyfum hafa verið stór- lega skornar niður. Þeir verða nú fyrst fyrir barðinu á uppsögnum sem siðast komu og eru þvi fá- tækastir — 10% fækkun á farand- verkafólki i fyrra kom fyrst og fremst niður á þeim. Þeir eru best settir sem hafa verið lengur en fimm ár i Vestur-Þýskalandi, þá eiga þeir að hafra-étt til þriggja ára framlengingar á atvinnuleyfi. Eða þeir sem eiga þýskan maka. Eða þeir sem hafa komið sér upp eigin smárekstri. Alls eru þetta um 700 þúsund manns. En þeir eru ekki öruggir heldur; það stoð- ar litið að hafa rétt til að fram- lengja atvinnuleyfi ef að þessi rétthafi verður sem útlendingur allavega fyrst fyrir barðinu á uppsögnum. Arni Bergmann tók saman. Tyrkinn Ahmet Ippekan borgar sem svarar 19 þúsund krónum á mán- uði fyrir 14 fermetra herbergi; eigendur gamaila húskofa hafa heidur betur matað krókinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.