Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.03.1975, Blaðsíða 9
^,*, r \ ,f,1. ,‘V » f,v,V*Y . _ / 't\f> Sunnudagur 2. marz 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 I — Samskipti karls og konu eru það mikilvægasta. — Lagði mig allan fram við að kópera Jack Bruce. Það er ef laust að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að kynna Jóhann G. Jóhannsson fyrir lesendum Þjóðviljans. Hann hefur þegar tryggt sér öruggan sess bæði meðal myndlistar- og tónlistarmanna, og með útkomu síðustu plötu hans „LANGSPIL”, hefur hann sýnt fram á, að hann er einn af okkar bestu popplistarmönnum, Klásúlur brugðu sér í heimsókn til Jóhanns, einn f agran góðviðrisdag, nú f yrir skömmu og lögðu nokkrar spurningar fyrir pilt. — Hvað og hvenær var upphafið á tónlistarferli þinum? — Það er ekki gott að segja, en sennilega hefur þetta verið einhver þörf á tjáningu sem hefur ekki fengið Utrás i venju- legu umhverfi. Fyrsta vetur minn i Samvinnuskólanum var ég fenginn til þess að spila með skólahljómsveitinni þar, þvi að ég var sá eini sem kunni þrjú grip. Reyndar hafði það verið takmark hjá mér lengi að komast i hljómsveit, þvi ég hafði mikinn áhuga á tónlist. Þessi hljómsveit fór siðan að spila á almennum dansleikjum og kölluðum við okkur Strauma. Ég og Eirikur bróðir minn vorum ákveðnir i að stofna hljómsveit þegar skólagöng unni lyki ásamt Kalla Hermanns og Val Emils. Þetta breyttist svo þannig að Engil- bert Jensen kom inn og Kalli hætti. Þetta voru hinir fyrstu Óðmenn, og störfuðu i tvö ár, frá 1966 til 1969. — Hvað tók rvo við? — Ég fór i Þjóðleikhúskjall- arann og spilaði þar i hljómsveit sem hét Musica Prima með Pétri östlund o.fl. Pétur hafði reyndar verið kominn i Óðmenn og við fórum saman i þessa hljómsveit. Slðan endurreistum við Óðmenn, Finnur Torfi, óli Garðars og ég. Þetta var áriö 1969. — Var þetta ekki erfitt aö vera aðeins þrir i hljómsveit? — Jú, þessi samsetning gerir mjög miklar kröfur til hljóð- færaleikaranna og við reyndum virkilega að þjálfa okkur sem slikir. Persónulega finnst mér það mesta afrekið að okkur tókst að skapa eigin tónlist. Reyndar gerðum við i þvi að stæla Cream og ég lagði mig allan fram við að kópiera Jack Bruce þangað til ég fékk leiða á Jóhann G. Jóhannsson. „Myndlistin var númer eitt hjá mér áöur fyrr” þvi. Þá varð ég að fara i sjálfan mig og finna út hver ég væri, hvers lags rödd ég heföi og hvað ég hefði yfirleitt að segja. Ég hafði kópierað allt fram að þessu og tel ég það alveg nauð- synlegan þátt I minum tónlistarferli. Þetta er eins og að fara i skóla og læra að til- einka sér vissa teknik sem aðrir hafa. Þegar svo skólinn er búinn, nýtir maður þessa þekkingu til þess að skapa eigin karakter. Óðmenn hættu siðan haustið ’70 eftir viðburðarrikt timabil. — Byrjaðirðu þá að mála að ráði eftir að seinni Óðmenn hættu? — Jú, það er satt. Reyndar varmyndlistnúmereitthjá mér áður fyrr og hafði ég hugsað mér að verða málari þegar ég var yngri. Tónlistaráhuginn vaknaði ekki fyrr en mamma fékk orgel i afmælisgjöf og ég byrjaði að reyna að spila sjálfur. — Hvort finnst þér betra að tjá þig á léreftið eða á gitarinn? — Það fer eftir þvi i hvaða ástandi ég er hverju sinni, stundum á betur við mig að gripa til penslanna, stundum á betur við mig að semja lag. Ég var orðinn töluvert þreyttur á spilamennskunni þvi að þegar maður er i hljómsveit þarf að deila hugmyndum sinum við marga aðila og kannski nær maður ekki fram nema 1/3 af upphaflegu hugmyndinni eða jafnvel engu. En sem málari hefur þú allt i hendi þér sjálfur. Ef þú ert i leit að einveru og hvild er ágætt að vera málari. — Hættirðu spilamennskunni eftir að Óðmenn lögðu upp laupana? — Nei, ég lék um skeið i popp- leiknum óla og málaði jafn- framt. Ég ætlaði að fara i hljómsveit með Gunna Jökli, Kalla, Þórði og Jóhanni Helga- syni, en það varð ekkert úr þvi þegar Gunni og Kalli fóru i Trúbrot. Þá sneri ég mér töluvert mikið að málaralistinni og hélt m.a. sýningu i Hamragörðum. — Ef Klásúlur muna rétt, þá fékkstu neitun á sýningarað- Jóhann G. Jóhannsson segir frá viöburöaríkum tónlistar- og málaraferli stöðu i Norræna húsinu um svipað leyti? — Ég sótti um eins og lög gera ráð fyrir og var neitað, án þess að ég væri beðinn að leggja fram verk. Þetta fannst mér ákaflega ólýðræðislegt, þvi að ég vissi að þeir höfðu ekki séð mikið eftir mig, jafnvel ekki neitt. Ég bað um skýringu á neituninni og þá fór ýmislegt skrýtið að koma i ljós, en best er að við sleppum þvi. Svo þegar forstöðumannsskipti urðu hjá Norræna húsinu reyndi ég aftur og fékk þá Sverri Haraldsson og Hring Jóhannesson til þess að mæla með mér, eins og beðið hafði verið um. Þetta mál varð enn leiðinlegra en hið fyrra og neitunina fékk ég aftur i andlitið eftir nokkur átök. „Voriö cr komið, og grund- irnar gróa”, jú, þctta lag kannast allir viö, og er ekki langt aö bíða, þar til viö getum fariö aö syngja þaö fullum hálsi, án þess aö vera að segja einhveja vitleysu. En þegar vorið steypir Vetri konungi af stóli, þá hefjast yfirleitt próf i skólum landsins. Umsjðnarmenn Klásúlna eru meðal þeirra mörgu náms- — Hvað hefurðu haldið margar sýningar? — Ég hef haldið eina I Casa Nova, tvær i Hamragörðum, eina i Keflavik og eina i Grinda- vik. Svo hef ég gefið út þrjár myndir i litlu upplagi sem plaköt, Ast, Lifsbaráttu og Jimi Hendrix. — Hvað var að gerast i tónlistarmálunum hjá þér, á þessum tima? — Ég fór i Náttúru, mest vegna peningaleysis, þvi að ég hafði komist að ákveðinni niður- stöðu um þennan bransa. — Hver var niðurstaðan? — Niðurstaðan var sú að með þvi að spila i hljómsveit á dans- leikjum þar sem fólk gerir ákveðnar kröfur og er ekki móttækilegt nema fyrir vissri tegund tónlistar, þá fer það mikill timi i það að fullnægja þessari eftirspurn að enginn timi verður afgangs til að sinna eigin hugðarefnum þ,e, að skapa eitthvað nýtt, orginal. Að vera i hljómsveit er eins og að vera i hjónabandi og þar sem við vorum mjög ólik, hlaut að koma að skilnaðinum fyrr eða seinna. Við Askell hættum, en hljómsveitin hélt áfram að starfa. Siðan gaf ég út litlar plötur m.a. Don’t Try To Fool Me o.fl. — Þá erum við komnir að Langspilinu. Ertu ánægður með útkomuna? — Já, annars hefði ég ekki látið hana fara frá mér. Mig manna, sem setjast að prófum i vor, og liggur fyrir þeim, að þreyta stúdentspróf. Það veitir ekki af, að byrja undirbúninginn snemma, sérstaklega ef samviskan er ekki i fullkomnu lagi eftir veturinn, og þvi hafa Klásúlumenn ákveðið að hætta öllu stússi og snúa sér eingöngu að skólabókunum. Þetta verða þvi siðustu Klá- súlur i okkar umsjón, en hafði lengi dreymt um að vinna við fullkomnustu aðstæður, sem ég hafði aðeins fengið nasasjón af áður. Ég stefndi að þvi að gera góða plötu sem yrði gjald- geng á erlendum markaði þvi að erfitt er að lifa á tónlistinni hérna án þess að spila i hljóm- sveit. — Mjög sterkt kemur fram I textum þinum áhugi þinn á samskiptum karls og konu og jafnvel konum yfirleitt. Hvers vegna velurðu þér þetta tema? — Ég tel að það þýðingar- mesta i heiminum sé samband manns og konu. Þó að sama temað sé i flestum textunum, koma fram ýmsar hliðar og sama lifsskoðunin kemur fram i öllum textunum. Þannig tel ég mig vera sjálfum mér sam- kvæman. Þetta efni er mér hug- stætt og yrki ég þvi um það. — Hvað liggur fyrir hjá þér á næstunni? — Ég fer til Bretlands nú um mánaðamótin til viðræðna og hugsanlega samningagerða við mina umboðsaðila þarna úti. Þetta er aðal verkefnið, að fylgja þessu eftir, koma plötunni á markað og reyna að fá einhverja festu eða grundvöll sem maður getur starfað á. Klásúlur hefðu helst viljað að sá starfsgrundvöllur sem Jóhann talar um, væri til staðar hér á tslandi. Þar sem svo virðist ekki vera óskum við Jóhanni G. Jóhannssyni góðrar ferðar og velfarnaðar i popp- heiminum. einhversstaðar stendur að maður komi i manns stað, svo að Klásúlum ætti að verða fleiri lifdaga auðið. Vonandi hafa þessi skrif okkar orðið einhverjum til gagns og gamans, og vissulega hefði verið gaman að fylgja eftir öllum þeim, hugmyndum sem ætlunin var, en timinn segir hingað og ekki lengra, svo við segjum bara bless, og takk fyrir samstarfið. KVEÐJA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.