Þjóðviljinn - 02.03.1975, Side 20
Rætt viö
Pétur
Bjarnason
fisksala
Ein pylsa með túmat/
sinnepi og lauk kostar nú í
sjoppum 85 krónur. Kilóið
af ýsunni út úr fiskbúð
kostar lika 85 krónur.
Sjálfsagt er enginn í vafa
um hvort eru betri kaup.
Vestur á Sörlaskjóli 42 rekur
Pétur Bjarnason fiskbúð ásamt
félaga sinum Stefáni Stephen-
sen. Þeir reka einnig aðra fisk-
búð hér i bænum og er hún i
Skaftahlið 24. Búðirnar hafa
þeir félagar rekið i fjóran og
hálfan mánuö.
Við Þjóðviljamenn litum inn i
fiskbúðina að Sörlaskjóli 42 og
hittum þar fyrir Pétur Bjarna-
son. Sagði hann að viðskiptin
væru að aukast, en gifurlega
vinnu þyrfti að leggja fram til
þess að hafa eitthvað upp úr
fisksölu. Álagninguna sagði
Pétur alit of lága. Ýsukilóið
kaupa þeir til dæmis á 52 krónur
suður i Keflavik og Njarðvikum.
Eftir að búið væri að hausa
hana, og létta hana þar með um
25% er hún seld á 85 krónur kiló-
ið, eða sama og pylsa á sjoppu,
sagði Pétur. Ýsukilóið dugir
fjögurra manna fjölskyldu i
máltið, en pylsan dugir engan
veginn til þess að seðja einn
mann i þeirri sömu fjölskyldu.
Eins og áður segir sækja þeir
félagar fiskinn til Keflavikur
eða til Njarðvikur. Fara þeir þá
klukkan 5 til 6 á morgnana eða á
kvöldin, þvi engan fisk er að fá
hjá Reykjavikurbátum, eða i
það minnsta ekki nóg fyrir
Innskot
Hér skulum við aðeins
vikja okkur til hliöar og lita
á fiskverðið. Pétur segir að
Pétur Bjarnason i fiskbúðinni að Sörlaskjóli 42
PYLSAN
OG ÝSAN
þeir kaupi ýsuna á 52 krónur hjá
frystihúsum syðra. Þá eru húsin
búin að láta aka ýsunni frá
höfninni. Annan kostnað hafa
þau ekki i lagt. Hins vegar
greiða þeir sömu frystihúsaeig-
endur aðeins 32 krónur eftir
nýja fiskverðinu fyrir ýsu stærri
en 54 sentimetra. Þetta gæti
meira að segja gerst á sama
klukkutímanum.
Þarna næla verkendur sér i 20
krónur af hverju kilói án þess að
leggja i nokkurn kostnað og að
sjálfsögðu fá sjómenríirnir eng-
an iiluta i þessum auðfengnu 20
krónum.
Dregið úr
kúttmagaáti
En vikjum aftur að Pétri og
fisksölunni á Sörlaskjólinu.
Nú er kútmagatið. Magi
þorsksins er nú á þvi stigi að
hann er hin kræsilegasta fæða
sé rétt með hann farið og fylltur
með góðgæti.
Ekki hafði Pétur neinn sam-
anburð á þvi hvort kútmagaát
færi minnkandi eða vaxandi.
Hitt vissi hann, að litið væri
keypt af kútmögum, þrátt fyrir
það, að matargerðarfólki er
leiðbeint um það hvernig að kút-
magaeldamennsku skuli staðið.
Pétur sagði, að fólk velti þvi
nú mun meira fyrir sér en áður
hvað það væri, að kaupa, hvað
það kostaði og hvort ekki væri
hægt að fá eitthvað annað fyrir
lægra verð en það, sem upp væri
gefið á þessum eða hinum fisk-
inum. Samt er enn þá ekki
komir. nein hækkun á útseldan
fisk, þrátt fyrir fiskverðshækk-
unina, sem ákveðin var nýverið,
en hins vegar sagði Pétur að
stuttu eftir að þeir byrjuðu að
höndla hefði fiskverð veriö
lækkað út úr búð.
Hvaö er
á boðstólum?
Er svo nokkuð annað en ýsa i
fiskbúð?
Það er öðru nær, þó svo að
Pétur segi að fólki finnist enginn
fiskur vera til ef ekki er til ýsa.
í fiskbúðum þeirra félaga
kennir margra grasa, og munu
þeir t.d. vera einu fisksalarnir i
höfuðborginni, sem selja bein-
lausan saltfisk. Hann fá þeir frá
Keflavik.
Þá er þarna hægt að fá síld.
saltaða og kryddaða, hrogn, lif-
ur og kútmaga, signa og salta
grásleppu, ýsu, þorsk og flök af
hvoru tveggja þessum góðfisk-
um, steinbit og rauðsprettu,
lúðu, kinnar og gellur, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þá selja þeir einnig bútungs-
saltaðan fisk að norðan, en hann
er heilsaltaður i tunnum. Af og
til er hægt að fá hákarl.og skötu
er hægt að fá, salta eða kæsta að
vestfirskri fyrirmynd, enda að
vestan, grafin i kamb og kæst
þannig, borðuð með versfirsk-
um hnoðmör, sem þeir félagar
selja einnig.
Og svo kemur rauðmaginn
eftir viku til tiu daga alla leið
norðan frá Húsavik. — úþ
Hún er að visu ekki stór fiskbúðin að Sörlaskjóli 42, en þar kennir margra grasa
Ibökkum og kössum.
Séð inn I búðarborðið. Fremst eru flök I bakka, efst sild, krydduð og söltuð, en
niðurundan henni sést meðal annars I signa grásleppu.
Alþýðubandalagið:
ALMENNUR FELAGS
FUNDURí DAG
Almennur félagsfundur Alþýðubandalagsins
i Reykjavik verður haldinn á Hótel Borg i
dag 2. mars kiukkan 4 síðdegis.
Ræöu
menn
Fundarefni: Árásir rikisstjórnarinnar og
kjarabaráttan.
Ræðumenn:
Magnús Kjartansson, alþingismaður.
Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar.
Jón Snorri Þorleifsson, form. Trésmiðafél.
Rvikur.
Fundurinn er opinn stuðningsmönnum
Alþýðubandalagsins meðan húsrúm leyfir. —
Stjórnin.