Þjóðviljinn - 04.03.1975, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 4. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
af erlendum vettvangi
Vélarnar þrjár sem um er deilt.
Flugvélakaup
aldarinnar
Erfitt reynist að sœtta sjónarmið
auðstétta landanna fjögurra
Senn líður að því að
Nató-löndin fjögur, Dan-
mörk, Noregur, Belgía og
Holland, taki lokaákvörð-
un um „flugvélakaup
aldarinnar". Þau ætla að
hafa samflot við endur-
nýjun árásarf lugf lota
síns en hún felst í kaupum
350 nýrra flugvéla i stað
Starfighterþotanna sem
notaðar hafa verið und-
anfarin ár með vafasöm-
um árangri.
En þaö hefur ekki gengið á-
takalaust að komast að niður-
stöðu um hvers konar flugvélar
best sé að kaupa. I rúmlega ár
hafa hermálaráðherrar rikj-
anna brotið heilann og jafnlengi
eða lengur hafa fulltrúar
þriggja flugvélaverksmiðja og
rikisstjórna framleiösluland-
anna smjaðrað fyrir þeim, boðið
þeim i heimsókn og skoöunar-
ferðir og hanastél á eftir.
ólíkir hagsmunir
Fyrirtækin þrjú sem bjóða
fram vöru sina eru þessi: Dass-
ault Aviation hið franska sem
býður upp á Mirage F-l, Gener-
al Dynamics hiö bandariska
með YF-16 og SAAB-verksmiöj-
urnar i Sviþjóð með J-37E Euro-
fighter sem i daglegu tali nefn-
ist Viggen. Auk þessara verk-
smiðja buðu Northrop-verk-
smiðjurnar i Bandarikjunum
upp á vélar sinar YF-17 en þær
drógust aftur úr löndum sinum
og hættu.
Og nú er makkað um þessar
þrjár vélar. Að þvi er best verð-
ur séð hallast flestir að YF-16.
Hollendingar eru blendnir en
eru taldir vilja þær einna helst
og sama máli gegnir um norð-
menn. Danir eru hins vegar
klofnir milli YF-16 og Viggen en
belgar vilja eindregiö kaupa
Mirage.
Góö kjör
Seljendur vélanna bjóða
kaupendunum vildarkjör við
kaupin en þó misgóð. Allir bjóða
svonefnda endurkaupasamn-
inga sem gera ráð fyrir að
kaupendurnir geti tekið þátt i
framleiðslu einstakra hluta vél-
anna og auk þess skuldbinda
seljendur sig til að kaupa til
baka framleðsluvöru kaupland-
anna.
Þannig bjóða frakkar upp á aö
kaupa vörur fyrir upphæð sem
samsvarar 70% af kaupverði
vélanna, þar af 20% hluti i vél-
arnar, bandarikjamenn bjóða
88% endurkaup, þar af 40% i
flugvélahlutum og sviar bjóöa
155% endurkaup.
Nú slást framleiðendur
vopna- og rafeindabúnaðar i
löndunum fjórum um að keypt-
ar verði þær vélar sem þeir
græða mest á. Það eru þessir
hagsmunir m.a. sem deilt er um
á ráðherrafundunum og eiga
ráðherrarnir ekki sjö dagana
sæla við að sætta deiluaöila.
Litli og stóri
Sem dæmi um þetta hags-
munastrið skulum við taka
Danmörku en hlutur dana i
kaupunum er 2.5—3 miljarðar
danskra króna.
Danir eiga nokkuð fullkominn
rafeindaiðnað og selja slikar af-
urðir úr landi fyrir 1.7 miljarða
d.kr. á ári. En eins og alltaf
verður eru fyrirtækin misstór
og afstöðumunurinn liggur ein-
mitt i stærð fyrirtækjanna.
Stóru fyrirtækin eru sameinuð
i svonefndu Iðnaðarráði, þau
hafa náð tangarhaldi á skrif-
stofustjóra einum i danska
varnarmálaráðuneytinu sem
rær að þvi öllum árum að keypt-
ar veröi bandarisku vélarnar.
Astæöan er fyrst og fremst sú að
stóru fyrirtækin vilja komast
inn á Bandarikjamarkað. Með
aðstoö utanrikisráðuneytisins
hafa þau reynt mikið að komast
inn i rafeinda- og geimferðaiön-
aðinn i vesturrlkjum Bandarikj-
anna en þar er stór hluti alls
rafeindaiðnaðar Bandarikjanna
staðsettur. Eins og er nemur út-
flutningurinn til Bandaríkjanna
100 miljónum d.kr. en fyrirtækin
vonast til að auka hann að mun
með þvi að komast inn á mark-
aðinn sem undirverktakar stór-
fyrirtækjanna.
Minni fyrirtækin eru hins veg-
ar mun áfjáöari i að keyptar
verði sænskar vélar. Astæöan er
sú að þau eru hagvön i Sviþjóð
og hafa góða reynslu af sam-
skiptum við SAAB frá fyrri flug-
vélakaupum dana. SAAB býður
mun meiri endurkaup og fyrir-
tækin hafa spáð þvi að veröi
Viggen fyrir valinu muni skap-
ast atvinna fyrir 2.500 dani i tiu
ár.
— Kaupið evrópskt
Danir eru litt hrifnir af Mir-
age þótt Dassault-verksmiðj-
urnar bjóði vissa verðbólgu-
tryggingu og aðgang að öllum
skjölum og teikningum varð-
andi vélarnar. Frakkar og
reyndar fleiri aöilar innan EBE
höfða mikið til samstööu EBE-
rikjanna og segja: — Kaupið
evrópskt. Benda þeir á að kaup
á Mirage muni styrkja flugvéla-
iðnaðinn i bandalaginu og gera
hann óháöan þeim bandariska
sem ber höfuð og herðar yfir
flugvélaframleiðendur heims.
Einnig muni það auka sjálfstæði
Evrópu gagnvart Bandarikjun-
um á hinum pólitiska leikvangi.
Bandarikin eru hins vegar
ekki á þvi aö láta kasta sér út úr
Evrópu á þessu sviði og beita
þvi löndin f jögur miklum þrýst-
ingi gegnum Nató. Er þá visað
til Nató-bræðralagsins og eftir
fylgja hótanir um efnahags-
þvinganir. Danskir auðmenn
eru ekkert áfjáðir I að troða
bandarikjamönnum um tær og
þvi er mjög óliklegt að þeir velji
Mirage.
Belgar eru mjög haröir á að
kaupa Mirage og eins og er
bendir allt til þess að samstaða
náist ekki um kaupin og keyptar
veröi bæði bandariskar og
franskar vélar.
Lausn á
kreppunni?
En það má lita á þessi mál i
viðara samhengi. Bandariska
blaðið Newsweek bendir á að
ekki sé einasta um að ræða
þessar 350 vélar. Mjög lik-
legt sé að sú verksmiðja sem
verður fyrir valinu nái varan-
legri einokun á markaðnum
fyrir orrustuvélar og þá opn-
ast viðari sýn. Bandariski
flugherinn hyggur lika á end-
urnýjun og hefur tilkynnt að
hann ætli aö kaupa 650 nýjar
vélar i þvi skyni. Þá eru vestur-
þjóðverjar, Iranskeisari og
fleiri aðilar aö þreifa fyrir sér á
sömu miðum. Getur blaöið sér
þess til að markaðurinn geti alls
orðið 2—4.000 vélar. Þessar vél-
ar munu kosta 15—20 miljarða
dollara og veita u.þ.b. 75 þúsund
manns vinnu.
Þessar bollaleggingar blaðs-
ins ásamt þvi að ýmis lönd, ekki
sist ollulöndin, hyggja á stór-
kostleg vopnakaup á næstunni
gefur auðstéttum Vesturlanda
nýtt tækifæri á að finna sér leið
út úr kreppunni sem hrjáir þær
um þessar mundir. Þarna opn-
ast ný framtiðarsýn og nýir út-
þenslumöguleikar. Þaö var jú
þessi leið sem Hitler fór á sinum
tima með góðum árangri, ekki
satt? —ÞH tók saman .
Danmörk
140 þúsund
atvinnulausir
Kaupmannahöfn 28/2 ntb —Sam-
kvæmt tölum sem gilda fyrir 12.
febrúar voru þann dag 107.866
skráöir atvinnulausir i Dan-
mörku. Þar við bætast uþb. 30
þúsund sem ekki eiga rétt á at-
vinnuleysisbótuin þannig aö nú
cru hartnær 140 þúsund danir at-
vinnulausir.
Opinbera talan, 107.866, sam-
svarar þvi að 12.3% þeirra sem
rétt eiga á atvinnuleysisbótum
séu atvinnulausir. Mun fleiri
karlmenn eru atvinnulausir eða
83.292 en konur eru 24.594. Telja
má þó liklegt að hlutfall kvenna
sé mun hærra I hópi þeirra sem
engra bóta njóta.
Eins og áður er atvinnuleysi
mest i byggingariðnaði og jókst
það litið eitt i þeirri iðngrein frá
þvi siðast var talið.
6-700 tonnmn af loðnu
landað á Akranesi
Síldar- og fiskimjölsverksmiöj-
an á Akranesi hefur nú tekið viö
6-700 tonnum af loðnu, en i fyrra
var sú verksmiöja 5. hæsta verk-
smiöja landsins og bræddi 30 þús-
und tonn.
Heyrst hafði að verksmiðjan
hefði ekki gert upp við loðnubáta
frá þvi á loðnuvertiðinni 1973 og
þvi höfðum við samband við
framkvæmdastjóra hennar
Valdimar Indriðason, og sagði
hann, að ekki væri fótur fyrir
þeirri fregn.
Þá sagði Valdimar að búið væri
að gera upp við báta fyrir vertið-
ina 1974 og hefði það verið gert
fyrir áramót, en þó kynnu að vera
eftir einn eða tveir bátar, en það
væri þá vegna annarra viðskipta.
Enn eru ófarin frá verksmiðj-
unni 6-700 tonn af mjöli frá þvi i
fyrra, en það magn er þó selt.
—úþ
Bókamarkaðurinn
I HUSI IÐNAÐARINS VID
INGÓLFSSTRÆTI