Þjóðviljinn - 04.03.1975, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. mars 1975
Samkeppni
í samleik
Á þessu ári verður efnt til norrænnar sam-
keppni i samleik 2-5 hljóðfæraleikara.
Efnisskrá skal vera 60-70 minútur með
verkum norrænna tónskálda frá a.m.k.
þremur Norðurlandanna. Þátttaka
tilkynnist fyrir 1. júni n.k. Lokakeppnin
fer fram i Helsinki i nóv/des. 1975 Þrenn
verðlaun verða veitt að upphæð samtals
80.000 d. kr. Nánari upplýsingar veitir
Tónlistarnefnd c/o Rikisútvarpið.
Einstaklingar, félög eða stofnanir, sem óska eftir nýju
tónverki frá hendi norræns tónskáids utan tslands geta
sótt um styrk til NOMUS. Tónakáldafélag íslands, Laufs-
ásvegi 40, sem er fulltrúi Nordisk Komponistrad mun fá
nöfn þeirra tónskálda, sem áhuga hafa á að semja verk
eftirpöntun. Nánari upplýsingar veitir Tónlistarnefnd c/o
Rikisútvarpið. Þangaö þurfa umsóknir að berast fyrir 31.
mars, 1975.
Tónlistarnefnd alþjóðasamvinnu.
Atvinna ■ Atvinna
LAUSSTAÐA
Staða skjalavarðar i Þjóðskjaiasafni tslands er laus til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi i sagnfræði
eða skyldum greinum.
Umsóknir um starf þetta með upplýsingum um nám og
starfsferil skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 25.
mars næstkomandi.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ 28. FEBRUAR 1975.
LAUSSTAÐA
Starf í Þjóöskjalasafni tslands er laust til umsóknar.
Starfið er einkum fólgið í þvf að sinna afgreiðsiu og vörslu
á lestrarsal.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil
skulu sendar menntamálaráöuneytinu fyrir 25., mars
næstkomandi.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ 28. FEBRUAR 1975.
VERKAMENN
vanir byggingarvinnu óskast
til að rífa og hreinsa mót.
Upplýsingar gefur Magnús K.
Jónsson í síma 7-49-80.
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki,
óskar að ráða
s j úkr aþ j álf ar a
Upplýsingar gefur sjúkrahúslæknir i sima
95-5270.
Sjúkrahússtjórnin.
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki,
óskar að ráða
hjúkrunarkonur
Upplýsingar gefur forstöðukona i sima
95-5270.
Sjúkrahússtjórnin.
SVR:
Breyting á ferðum í
Fella- og Hólahverfi
Akveðið hefur verið, að mið-
vikudaginn 5. mars verði gerð
nokkur breyting á ferðumstrætis-
vagna Reykjavikur i Breiðholts-
hverfi, fjölmennasta hverfi
borgarinnar. Breytingin verður á
leið tólf i efra Breiðholti. Hún er
fólgin í þvf, að fjórir vagnar, sem
þar hafa ekið sömu leið munu nú
aka hvorir á móti öðrum.
A timabilinu á milli klukkan
07:00 á morgnana og 19.: 00 á
kvöldin verður ekið eftir tima-
töflu leiðar 12. En breytingin
verður þessi:
Vagnar, sem fara frá Helmmi 8
minútur yfir heila og hálfa tim-
ann aka um Vesturberg og til
baka um Austurberg. Þessir
vagnar fara frá endastöð, Suður-
hólum, 11 minútur yfir heila og
hálfa timann, aka eftir Norður-
felli og Austurbergi að endastöð i
Suðurhólum. Þaðan fara þeir
samkvæmt skráðum tima i leiða-
bók SVR 4 minutur fyrir heila og
hálfa timann og aka þá Vestur-
berg til baka.
A morgnana klukkan 07:26 og
08:26fer aukavagn frá gatnamót-
um Norðurfells og Austurbergs
og ekur Norðurfell að Hlemmi.
Við gatnamót Vesturbergs og
Norðurfells verður farþegum
hleypt út og inn, ef þeir óska þess,
Teheran 3/3 reuter — íranskeis-
ari, Resa Shah Pehlevi, lýsti þvi
yfir i gær að héreftir yrði aðeins
einn stjórnmálaflokkur leyfður i
riki hans sem státar af þvi að
vera elsta keisaradæmi heims.
Flokkurinn á að heita Hinn
þjóðlegi viðreisnarflokkur Irans
og leiðtogi hans verður Abbas
Hoveyda forsætisrá ðherra.
Keisarinn mælti svo fyrir að aðrir
flokkar skyldu leysa sjálfa sig
upp og ganga i nýja flokkinn. Nú
eru til i landinu tveir flokkar,
stjórnarflokkurinn Nýi Iranski
flokkurinn og andstöðuflokkur
sem kennir sig við alþýðu.
Hörður
Framhald af bls. 10.
tveimur siðustu leikjum. Eftir að
vera þess i 1. deild virtist orðin
trygg, slappaði liðið af og hefur
tapað hverjum leik með miklum
mun.
Auk Harðar átti Elias Jónasson
mjög góðan leik með Haukum, en
hann hefur farið vaxandi sem
leikmaður I allan vetur og er
kominn i hóp betri leikmanna
okkar, einkum er hann snjall I að
halda uppi góðu spili og miklum
hraða.
Hjá Gróttu var það helst Björn
Pétursson sem eitthvað kvað að,
en hann er jafnan erfiður hverri
vörn og markverði.
Mörk Hauka: Hörður 14 (5),
Elias 6, Frosti 2, Ingimar 2, Þor-
geir 2, Hilmar 2 og Arnór 1.
Mörk Gróttu: Björn 10 (3), Arni
3, Atli 2, Halldór 1 og Magnús 1
mark.
—S.dór
Ræða Magnúsar
Framhald af bls. 6.
láta reyna á kerfið: við skulum
láta hrikta i þvi: við skulum láta
koma greinilega I ljós hvort það
megnar að uppfylla þær þarfir
sem við vitum öll að islenskt þjóð-
félag getur uppfyllt.
Af þessum ástæðum verður
barátta verklýðshreyfingarinnar
ævinlega að vera i senn fagleg og
pólitisk ef hún á að ná varanleg-
um árangri. Hin faglegu verk-
lýðssamtök eru langsterkasta
þjóðfélagsaflið á íslandi: ef þau
beita sér fær ekkert staðist. En
okkur hefur ekki enn tekist að
gera stjórnmálasamtök launa-
fólks jafnöflug. Aö visu hefur
reynslan á undanförnum árum
sannað það að samtök launafólks
eiga sér aðeins einn raunveruleg-
an stjórnmálaflokk, Alþýðu-
þótt ekki sé um fastan viðkomu-
stað að ræða.
Eftir klukkan 19:00 á kvöldin
fækkar vögnunum um einn á
þessari leið. Vagnar, sem fara frá
Hiemmi eftir klukkan 19:00 og
leggja af stað 13 og 53 minútur yf-
ir heila timann, aka um Vestur-
berg og til baka frá Suðurhólum
um Austurberg. Þeir leggja af
stað frá Suðurhólum 26 og 46
minútur yfir heila timann. Einn
vagn, sem fer frá Hlemmi 33
minútur yfir heila timann, ekur
eftir Austurbergi að Suðurhólum,
og fer þaðan 6 minútur yfir heila
timann og ekur Vesturberg til
baka. Þessi áætlun gildir frá
klukkan I9:00á virkum dögum, —
eftir klukkan 13:00 á laugardög-
um, — á sunnudögum og aðra
helgidaga.
Þessi breyting getur orðið til
mikils hagræðis, og er einkum
gerð vegna ibúa i austurhluta
efra Breiðholts. Við miðhluta
bandalagið: kjósendur hafa sjálf-
ir tekið af skarið um það efni: það
var aðeins tilviljun sem olli þvi að
Alþýðuflokkurinn og Samtökin
fengu nokkurn fulltrúa á þing i
kosningunum i fyrra. En Alþýðu-
bandalagið hefur samt ekki nema
rúmlega fimmta hvern kjósanda
hér I Reykjavik: tæpan fimmtung
ef litiö er á landið allt. Stjórn-
málamöguleikar okkar eru miklu
meiri, jarðvegur okkar mun vlð-
tækari. Kjósendur hinna svoköll-
uðu vinstriflokka allra binda nú
fyrst og fremst vonir sinar við
baráttu okkar: sama máli gegnir
um launamenn sem kusu Sjálf-
stæðisflokkinn af skammsýni i
fyrra en eru nú reynslunni rikari.
Menn binda traust sitt við Alþýðu
bandalagið og þvi trausti megum
við ekki bregðast. Við verðum að
gera flokk okkar að raunveruleg-
um fjöldaflokki, ekki aðeins i
kosningum heldur dag hvern,
með lifandi, virku starfi hvar-
vetna i þjóðfélaginu, i hagsmuna-
samtökum launamanna, á hverj-
um vinnustað. Við verðum að
stefna að þvi marki að gera
stjórnmálasamtök okkar jafn
öflug og hin faglegu stéttarsam-
tök. Þá fyrst er hægt að tryggja
það að sigrar þeir sem verklýðs-
félögin vinna verði ekki teknir
aftur með pólitfsku valdi forrétt-
indastéttanna. Þá fyrst er hægt
að tryggja það að ef kerfið getur
ekki fullnægt mannlegum og sið-
feröilegum kröfum verklýðs-
hrefyingarinnar, verði kerfinu
breytt en ekki kröfunum.
FH
Framhald af bls. 10.
Leikur FH og Armanns var
mjög jafn og skemmtilegur á að
horfa. I fyrri hálfleik hafði FH
oftastfrumkvæðið,5:3, 7:4, 9:6 og
I leikhléi 9:7.
Strax I byrjun siðari hálfleiks
snerist dæmið við. Armann jafn-
aði 9:9 og komst svo yfir 11:9 sið-
Vesturbergs verður þó sú breyt-
ing, að þar verður strætisvagn á
30 minútna fresti i stað 15 áður.
Ibúar þar eiga þó auðvelt með að
ná vagni á 15 minútna fresti með
þvi að ganga nokkrummetrum
lengra en áður. Hins vegar stytt-
ist sú vegalengd, sem ibúar aust-
asta hluta Breiðholts, eða austan
endastöðvar við KRON, verða að
ganga, en hún hefur verið mun
lengri en sú vegalengd, sem
ibúðar miðhluta Vesturbergs
þurfa nú að fara. A þennan hátt
næst verulegur jöfnuður á vega-
lengdum.
Rétt er að taka fram, að vagn-
inn Miðbær/Breiðholt gengur
áfram eins og verið hefur.
Reynt verður að kynna þessa
breytingu eftir megni, enda
snertir hún mikinn fjölda fólks.
Skýringar á þessum breytingum
eiga að liggja frammi hjá vagns-
stjórum, og þar geta farþegar
fengið þær.
an var jafnt 13:13 þegar 15 min.
voru eftir af leiknum, enn varð
jafnt 14:14 og 15:15, 16:16, 17:17
og 18:18.
Þá gerðist það að Ólafur
Einarsson misnotaði vitakast
þegar rétt rúm ein minúta var
eftir af leiktimanum. Armenning-
arnir léku mjög skynsamlega það
sem eftir var og rétt áður en leik-
urinn var flautaður af, braust
hinn kornungi og efnilegi leik-
miaður Pétur Ingólfsson i gegn og
skoraði sigurmarkið fyrir Ár-
mann, en það er einmitt þessi
skemmtilegi leikmaður sem Val-
ur kærði leikinn við Armann útaf.
FH náði vart að hefja leikinn á
ný, flautan gall til merkis um
leikslok og möguieikar FH til sig-
urs I þessari 1. deildarkeppni
voru þar með úr sögunni.
Ármanns-liðið var mjög jafnt I
þessum leik. Þó má segja að Jens
Jensson og Hörður Harðarson
hafi skorið sig nokkuð úr i sókn-
inni en þeir Pétur Hafstein og
Hörður Kristinsson I vörninni.
Okkur vantar tilfinnanlega
hornamann i landsliðið, hvers
vegna þá að ganga framhjá Jens
Jenssyni, þar virðist kominn sá
hornamaðurinn sem landsliðið
vantar, það kostar að minnsta
kosti ekkert að gefa honum tæki-
færi.
Hjá FH var Viðar Simonarson
sá eini sem ekki lék undir getu.
Hann barðist allan timann en
fékk lítinn stuðning frá félögum
sinum nema þá helst Þórarni
Ragnarssyni. Aðrir léku undir
getu og hefur sennilega álagið að
verða að vinna þennan leik til
þess að vera áfram með i topp-
baráttunni átt þar mestan þátt.
Mörk Armanns: Hörður H. 7
(4), Jens 4, Pétur 3, Björn 2,
Hörður K, Jón, og Kristinn 1
mark hver.
Mörk FH: Þórarinn 5 (2), Ólaf-
ur 3, Guðmundur 2, Gunnar 2(1),
Geir 2, Arni 2, Viðar og Jón G. 1
mark hvor.
Hœkkun söluskattsins
Hækkar vöru og
þjónustu 0,8%
Þann 1. mars bættist enn eitt
stig við söluskattinn, eða sölu-
gjaldið, eins og það er nefnt i
fjármálaráðuneytinu, og er
þetta gjald þar með orðið 20% af
seldri vöru og þjónustu.
Sölugjaldið skiptist i nokkra
liði. Af þessum 20% renna 2% i
viðlagasjóð og 1% I oliusjóð.
17% af sölugjaldinu er svo sölu-
skattur.
Reiknað hefur verið með, að
þetta eina söluskattsstig gefi af
sér 80 miljónir á mánuði, eð 800
miljónir það sem eftir er þessa
árs. Þetta er þvi 960 miljón
króna tekjustofn á ársgrund-
velli. Þvi gefur 20% sölugald
19 miljarða og 200 miljónir af
sér á ári hverju.
Þessi siðasta söluskattshækk-
un hefur i för með sér 0,8%
hækkun á vöru og þjónustu. —úþ
S.dór