Þjóðviljinn - 04.03.1975, Side 7

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Side 7
Þriðjudagur 4. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Eðvarð Sigurðsson á fundi Alþýðubandalagsins á Hótel Borg á sunnudag: V erkalýðshreyfingin tygi sig til átaka og verkfalla þyngri en sl. ár, bæði útsvörin og tekjuskatturinn. Svör rlkis- stjórnarinnar hafa verið mjög al- menn og óljós: sagt að skattar lækki kannski um 700 milj. kr. En á sama tlma og þessar viðræður standa sem hæst gerir rikis- stjórnin ráöstafanir til að þyngja skattana stórum og miklu meira en þessari upphæð nemur. Þannig hefur skattheimta rikissjóðs með hækkunum á tóbaki og áfengi aukist um 300 milj. kr., og siðan bætist við dæmalaus hækkun á söluskatti um 1%’ hækkun sem var fráleit og algerlega óþörf. Svo er gengið fellt á ný sem ég tel að muni valda um 10% hækkun framfærslukostnaðar þegar allt kemur til alls. í þessu ástandi hafa engin til- boð komið frá atvinnurekendum varðandi kaupgjaldið og hafa að- geröir rikisstjórnarinnar mjög truflaö samningaviðræður. Miklu meiri kjarðaskerðing Fyrir viku var samningavið- ræðum slitið og var þá málið fengið sáttasemjara. Hófust við- ræöur fyrst á laugardag á nýjan leik, enn er fundur I dag og siðan hefur Alþýðusambandið boðað til ráðstefnu um kjaramálin á morg- un, mánudag. Ég minnti áðan á að fram- færsluvisitalan hefði hækkað um 25%, en I rauninni er kjaraskerð- ingin orðin miklu meiri i tölum Rakin ræða Eðvarðs Sigurðssonar talin. Engar verölagsbætur á laun hafa komið frá 1 . mars i fyrra, og þá varð kaupgjaldsvisitalan 106,18 stig. Nú er þessi visitala enn 106,18 stig, en þyrfti að hækka i 155 stig eða um 46% til þess að jafna muninn. Krafa verkalýðs- hreyfingarinnar nú er um að samningarnir frá i fyrra fái að halda gildi sinu. Kaup verkamanna er nú komið niöur fyrir það sem var meðaltal- ið árið 1971, og liklega þarf að fara allt aftur til ársins 1959 til þess að finna sama kaupmátt. Samningsstaðan nú Samningsstaðan nú er i stuttu máli þannig: Rikisstjómin hefur lagt fram tillögur um „launajöfn- unarbætur”. Miðast þær við að greiddar verði 3.600 kr. á dag- vinnukaup sem væri allt að 60 þúsund krónum á mánuði. Al- mennir taxtar verkafólks eru svo lágir að fólk verður að fleyta sér áfram á yfirvinnunni, en launin fyrir hana hafa verið einskonar umframgreiðssla. Yrði fallist á þessar tillögur stjórnarinnar um að dagvinnutekjur undir 60 þús. kr. á mánuði hækkuðu um 3.600 kr. en yfirvinnan ekkert myndi það hafa i för með sér lækkun á- lags á yfirvinnu úr 40 i 29% og lækkun álags á nætur- og helgi- dagavinnu úr 80 i 65%. Er miðað við 6. taxta Dagsbrúnar. En hvað eru þessar bætur mið- að við það sem er að skella yfir, svo hinu sé sleppt sem áður hefur gerst? Landbúnaðarvörur munu hækka um 10%, það hækkar fram færsluvisitölu um 2%. Söluskatts- hækkunin hækkar f-visitölu um 0,7%, hitaveita og rafmagn hækka heildarframfærslukostn- aðinn um 1% og gengisfellingin hækkar framfærslukostnað um 5%, að minnsta kosti fram að 1. mai. tJt úr þessu koma 9% fram til 1. mai eða mun meira en það sem rikisstjórnin er að tala um sem dýrtiðarbætur. Bráðabirgða- samningar A sáttafundinum i gær kom ekkert fram, en I dag er haldinn fundur i rikisstjórninni og siðan annar samningafundur. Málin snúast nú um bráðabirgðasam- komulag til þriggja mánaða eða út maimánuð. Fundurinn I gær bar engan árangur, atvinnurek- endur stóðu i nákvæmlega sömu sporunum og rikisstjórnin hafði ekki enn gert upp við sig hvenær og hvernig hún ætti að hafa af- skipti af kjaradeilunni. Hafði raunar áður komið fram hjá henni aö áður en hún kæmi fram með sínar hugmyndir yrði að sjást hvort „aðilar vinnumarkað- arins” gætu komist að samkomu- lagi. Ég reikna ekki með miklum breytingum á samningafundinum I dag. A morgun kemur kjaramála- ráöstefna ASÍ saman til fundar. Ég sé ekki betur en að óbreyttu ástandi verði verkalýðshreyfing- in að fara að tygja sig til átaka og til undirbúnings verkfalla. Það er enguni ljúft að taka svona ákvörðun þegar kjörum launa- fólks er komið svo sem raun ber vitni um, en það er alveg útiiokað að verkalýöshreyfingin geti leng- ur frestað þvi að efna til aðgerða. Kristinn Jón Jónsson, vegaverkstjóri: Svar til Indriða á Skjaldfönn Eðvarð Sigurðsson var fyrstur ræðumanna á fundinum á Hótel Borg. Verður ræða hans rakin hér á eftir efnislega. Öllu velt yfir á launafólk Verkalýðsstéttin er ekki óvön þvi að að henni sé ráðist og þrengt sé að hennar kjörum. Er I þvi sambandi skemmst að minnast viöreisnartimans með látlausum árásum á lifskjörin. En engin rik- isstjórn hefur þó gengið lengra en núverandi rikisstjórn I þvi að skerða lifskjör verkafólks og sú sem nú er við völd. Mörg „rök” hafa verið flutt um nauðsyn þess aö skerða lifskjörin og enginn neitar þvi að viðskiptakjörin hafa versnað. En rikisstjórnin hefur æ ofan i æ gripið til þess einfalda ráðs að svara þessum vanda með þvi að velta öllum byrðunum yfir á herðar almennings. Hefur nú á stuttum tima átt sér stað meiri skerðing en dæmi eru til um áður. Þvi auk beins niðurskurðar kaup- máttar launanna hefur átt sér staö stórfelldur samdráttur I at- vinnunni. Og atvinnuleysi virðist fyrirsjáanlegt eftir nýjustu sam- dráttaraðgerðir bankakerfisins, stöðvun útlánaaukningar og auk- innar bindingar hjá Seðlabankan- um. Þessar aðgerðir koma vafa- laust hart niður á byggingariðn- aðinum. Slikt hlýtur að leiða til atvinnuleysis. Það sem hefur gerst Frá þvi að núverandi rikis- stjórn kom til valda hefur visitala framfærslukostnaðar hækkað um 25%, en visitala brýnustu lifs- nauösynja, matvörunnar, hefur hækkað um 42%. Einu bæturnar sem hafa komið á móti þessum glfurlegu hækkunum eru svokall- aðar launajöfnunarbætur. Með þeim hefur lægsta mánaðarkaup, undir 50.000 kr., hækkað um 3.500 kr. en það þýðir um 10% á lægstu taxta verkafólks. Lausir samningar Siðan rikisstjórnin felldi gengið i fyrra skiptið hafa verkalýðsfé- lögin verið með lausa samninga. Viðræður hafa nú staðið yfir I 2 mánuði og hafa þær verið tviþætt- ar. í fyrsta lagi við atvinnurek- endur um kaupið og i annan stað viö rikisstjórnina um félagsleg úrræði sem meta mætti til kaups. 1 siðarnefnda þættinum hefur verið rætt um skattamálin og húsnæðismál. Og hefur þó aðal- lega verið rætt um skattamálin, þvi skattabyrðin i ár verður í Þjóðviljanum 14. febrúars.l. ritar Indriði Aðalsteinsson Skjaldfönn pistil um ýmis mál er angra ibúa norðan Djúps. Meðal annars vetrarsamgöngur á landi. Þar er vegaverkstjórinn Jón Kristinn Jónsson borinn þungum sökum, og kennt um „mistök i vegagerð” eins og það er orðað. Undirrituðum finnst sennilegt að átt sé við sig i umræddri grein, og gerir þvi nokkrar athugasemdir. I fyrsta lagi hef ég ekki annað en tillögurétt um staðarval og legu vega á þessu svæði. Og i öðru lagi var ég hættur vega- verkstjórn þegar umrætt verk var unnið, þó svo ég hefði umsjón með þessu verki. Ef ég þrátt fyrir þetta á að taka umrædda ádeilu til min þá vil ég byrja á þvi að mótmæla að um nokkur mistök hafi verið að ræða, og bæði undirbúningur, staöarval vegarins og fram- kvæmd verksins, fyllilega i samræmi við þær hugmyndir sem ég hafði gert mér um þetta mál. Svo hagar til að vegurinn liggur þarna undir hjalla, en uppi á hjallanum er vegslóöi sem I einstaka árum er opinn vegna snjóa nokkrum vikum lengur en aðalvegurinn, en eins og fram kemur i grein Indriða lokast hann lika, og við þvi er þvi miöur litið hægt að gera. Töluverður kostnaður yrði við breytingar, á brekkunum þar sem farið er upp á hjallann og niður af honum aftur, og undir hælinn lagt, hvort þær breyt- ingar yrðu að gagni. Við athugun úm hvað hægt væri að gera fyrir vetrarveginn kom i ljós að Rafveita Snæfjalla (Indriði er i stjórn rafveitunnar, i hreppsnefnd m.m.) var nýlega búinn að leggja raflinu eftir hjallanum, og var staurastööin á eina svæðinu sem hægt hefði verið að gera tilraun með að fá vetrarfæran veg á. Ef nú hefði átt að fara eftir tillögum um að eyða þessu fjár- magni i „tilraunaveg” (fjár- veitingin var kr. 1.000.000,-), hefði orðið að áætla verulegan kostnað við flutning raf- linunnar, og eftirstöðvar fjár- magnsins orðnar það litlar að ekki tæki þvi að fara með verk- færi á staðinn, hvað þá að hæ^t væri að gera þarna vetrarfæran veg fyrir afganginn. Eftir stæði þjóðvegurinn óhreifður, mjór, með tvær blindhæðir, krappar beygjur, og ræsalaus, en „miljónin” hefði horfið þarna i hjallann, engum til gagns. Ef þetta hefði verið gert, væri hægt að tala um mistök i vega- gerð. Kristinn Jón Jónsson frá Vonarlandi Jón M. Baldvinsson sýnir að Kjarvalsstöðum Jón M. Baldvinsson opnaði máiverkasýningu að Kjarvals- stöðum 1. mars og stendur hún til 11. mars. Sýningin er opin frá kiukkan 4 á daginn til 10 á kvöldin. Sýnir Jón 91 verk. Jón M. Baldvinsson listmálari erfæddur 1927 i Reykjavik. Arið 1945 fluttist hann til Kaup- mannahafnar til náms og dval- ar og bjó hjá móður sinni, sem þar er búsett. 1 upphafi lagði hann stund á söngnám hjá Immanuel Franksen, og siðar hér heima hjá ýmsum söng- kennurum, — ennfremur nam hann teikningu. Jón hætti siðan söngnámi en héltáfram myndlistariðkunum i fristundum. Málaði hann aðal- lega oliumyndir. Arið 1971 hóf hann nám við Myndsýn og naut aðallega kennslu Einars Hákonarsonar. Einnig fór hann námsferðir til Hollands og Frakklands. Árið 1972 hóf Jón nám við Det Jyske Kunstakademi i Arósum og lagði þar einkum stund á model- teikningu. Fyrsta sýningu sina hélt Jón M. Baldvinsson hjá Guðmundi á Mokka skömmu eftir opnun þess staðar. Siðan varð hlé á sýningum fram til ársins 1972 að Jón hélt Jón M. Baldvinsson franian viö eitt verk sitt sýningu i húsi Guðspekifélags tslands við Ingólfsstræti. Þá hélt Jón sýningu 1973 i sýningar- sal bókasafnsins i Horsens og hlaut þar góða dóma. Jón á nú nokkur verk á sam- sýningu jóskra íistmálara, sem haldin er á vegum danskra fræðsluyfirvalda.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.