Þjóðviljinn - 04.03.1975, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Qupperneq 16
WOÐVIUINN Þriðjudagur 4. mars 1975 Stans- laus veiði Stanslaus loðnuveiði hefur verið siðan á miðvikudaginn i siðustu viku, og á laugardag og sunnudag veiddust 25 þús- und tonn af loðnu. Um fjögurleytið i gær höfðu 23 bátar tilkynnt um afla til loðnunefndar, samtals um 6500 tonn. Var þetta afli frá miðnætti sunnudags. Afla- hæstur var Sigurður með 900 tonn. Löndunarbið er nú á öllum höfnum við Faxaflóa og við suðurströndina. Eitthvert þró- arplass er nú að losna á Austfjarðahöfnum. Loðnan veiðist nú aðallega við Hjör- leifshöfða og vestan hans þó, og út af Garðskaga. —úþ 800 á kvenna- sýningu Mikil aðsókn var á sýninguna i kjallara Norræna hússins um helgina en þar eru nú sýnd Iista- verk eftir 42 islenskar listakonur. Rúmlega 800 manns komu á sýninguna á laugardag og sunnu- dag. t gær og i dag var boðið að skoða sýninguna nemendum Myndlistarskólans og annarra skóla sem lánuðu myndir á hana. En vitaskuld er hún einnig opin almenningi. Verður sýningin opin daglega kl. 14-22 til 11. þm. Sagt var frá sýningunni i frétt hér i blaðinu á laugardaginn. Með fréttinni fylgdi mynd eftir Bar- böru Árnason og hún sögð vera á sýningunni. Þetta er ekki rétt. Barbara á að visu myndir á sýningunni en sú sem fylgdi frétt- inni er af korti sem Menningar- og friðarsamtök islenskra kvenna gáfu út i tilefni kvennaárs. Biður blaðið velvirðingar á þessum mistökum. Blönduósdeilan á alþingi í gcer Samkomulagið í óþökk íbúa útgerðarstaðanna Matthías og Pálmi á Akri í hár saman //Ég hef fengið ýmislegt á baukinn í sambandi við þetta mál/ ekki síst í grein- um í Morgunblaðinu/" sagði Matthías Bjarnason/ sjávarútvegsráðherra er hann rakti gang mála varðandi deiluna um rækjuvinnslu á Blönduósi á alþingi í gær við framhald 2. umræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um samræmda vinnslu sjávar- afla. Matthias benti jafnframt á, að þrátt fyrir öll þau ósköp, sem skrifuð hefðu verið i Morgunblað- ið um málið, hefði blaðið sjálft aldrei treyst sér til að hafa á þvi nokkra skoðun. Ráðherrann sagði, að Blöndu- ósbáturinn Nökkvi myndi nú fá veiðileyfi og heimild til að veiða allt að 30 tonnum á þessari vertið samkvæmt samkomulagi við sjávarútvegsráðuneytið, en Matt- hias tók fram að þetta samkomu- lag ráðuneytisins við útgerð Nökkva væri gert i fullkominni óþökk forsvarsmanna hinna byggðarlaganna, sem aðild hafa átt að deilunni, þ.e. Skagastrand- ar, Hvammstanga, Hólmavikur og Drangsness. Pálmi Jónsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norður- land vestra réðist mjög að sjáv- arútvegsráðherra, og kvaðst al- gerlega andvigur frumvarpinu um samræmda vinnslu sjávar- afla er hann taldi brjóta gegn grundvallarstefnu flokksins. „Varst þú ekki búinn að sam- þykkja frumvarpið i þingflokki Sjálfstæðismanna?” var kallað úr þingsalnum til Pálma og virt- ist spurningin koma honum i opna skjöldu, — játaði hann að hafa engum athugasemdum hreyft við frumvarpið er það var rætt i þing- flokknum, en kvaðst þó vilja fylgja sannfæringu sinni nú. Pálmi sagði þaö eitt meginmark- mið i stefnu Sjálfstæðisflokksins Alþýðubandalagið Miðstjórnarfundur Fundur er boðaður i miðstjórn Alþýðubandalagsins i kvöld þriðjudag- inn 4. mars 1975. Fundurinn verður haldinn á Grettisgötu 3, og hefst stundvislega kl. 20.30. Dagskrá: 1. Afgreiðsla á breytingatillögum við stefnuskrá Alþýðubandalagsins 2. Efnahagsmálin 3. Starf Alþýðubaridalagsins og kjarabarátta verklýðshreyfingarinn ar. Ragnar Arnalds. Umræðufundur um Þjóðviljann Fyrsti almenni umræðufundur Alþýðubandá- lagsins i röð sex funda verður haldinn annað kvöld, miðvikudag kl. 20.30. Fundurinn verður að Grettisgötu 3. Að þessu sinni verður umræðu- efnið: Þjóðviljinn. Mun Svavar Gestsson, rit- stjóri, hafa framsögu og svara fyrirspurnum. \ jB—IH1 Svavar Almennur fundur um umhverfismál Alþýðubandalagið i Borgarnesi heldur almenn- an fund um umhverfismál i Snorrabúð kl. 8.30 á miðvikudagskvöld. Haukur Hafstað fram- kvæmdastjóri Landverndar flytur framsögu- ræðu. Jón Viðar Jónmundsson, Hvanneyri, verð- ur umræðustjóri. Haukur Félagsfundur Borgarnesi Alþýðubandalagið i Borgarnesi heldur félagsfund i Snorrabúð kl. 2 eh. á laugardag. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. — Hreppsmál. — Þegn- skyldu- og útgáfunefnd skilar áliti. — Ráðstöfun Hamarslands. — önn- ur mál. að styðja frelsi til atvinnurekst- urs, en frumvarpið gengi þvert á þá stefnu, og kvaðst þingmaður- inn telja afstöðuna til þessa máls prófstein á það, hversu mikill „málefnalegur bakfiskur” væri til staðar hjá þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins. Pálmi sakaði Matthias Bjarnason um að vera „af gráleik” að rifja upp við- kvæm mál varðandi Blönduós- deiluna, en fagnaði þvi sam- komulagi sem gert hefur verið varðandi Nökkva. Hann fullyrti að með frumvarpinu væri vegið að „frelsi fyrirtækja” og ein- staklinga og skoraði á ráðherrann að draga frumvarpið til baka. Þetta var framhald annarrár um- ræðu, sem hófst fyrir jól og var umræðunni enn frestað. Hjálmar varð tvö- faldur meistari Hjálmar Aðalsteinsson KR varð tvöfaldur Reykja- víkurmeistari í borðtennis á nýafstöðnu Rvíkurmóti. Hann sigraði af öryggi í bæði einliða- og tvíliðaleik en þar lék hann með Finni Snorrasyni. Nánar er sagt f rá mótinu á íþróttasíðu. Myndina af Hjálmari tók S.dór. Rolls Royee í Kína London 3/3 reuter — Það hefur kvisast í Bretlandi að i bigerð sé að Rolls Royce verksmiðjurnar reisi verksmiðju i Kina. Sagt er að þetta mál verði rætt er breskur ráðherra fer i opinbera heimsókn til Kina siðar i þessum mánuði. Kinverjar hafa þegar keypt af verksmiðjunum hreyfla i Trident flugvélar sem þeir hafa pantað fráHawker-Siddeley flugvéla- verksmiðjunum i Bretlandi. Nú er verið að semja um að Rolls Royce reisi samsetningarverk- smiðju fyrir þessa hreyfla i Kina og stefnt er að þvi að kinverjar yfirtaki önnur framleiðslustig smám saman. Áreiðanlegar heimildir herma að stjórnir Bandarikjanna og Sovétrikjanna hafi mótmælt þessum samningum við breta^en talsmenn bresku stjórnarinnar harðneita þeirri fullyrðingu. Rœningjar Lorenz Fengu 5 lausa Frankfurt og viðar 3/3 reuter — Ræningjar Peter Lorenz fengu þvi framgengt um helgina að fimm pólitiskir fangar i vestur- þýskum fangeisum voru fluttir til Frankfurt þar sem þeir stigu um borð i flugvél sem beið þeirra og flugu siðan I átt til Rauðahafsins. Ræningjarnir segjast vera fé- lagar i 2. júni hreyfingunni en hún er kennd við atburði sem urðu i Berlin 2. júni 1967 er lögreglan drap einn þátttakenda i mót- mælagöngu i borginni og fangels- aði fleiri. Voru a.m.k. tveir þeirra sem látnir voru lausir um helgina úr þeim hópi. Upphaflega kröfð- ust ræningjarnir þess að fá sex manns látna lausa en sjötti fang- inn neitaði að fara úr fangelsinu. Hinir þrir sátu inni ákærðir fyrir aðild að Rote Armee Fraktion sem i fréttum er kenndur við leið- toga hans þau Baader og Mein- hof. Með föngunum fimm fór Hein- rich Albertz fyrrverandi borgar- stjóri Berlinar en hann hafði samþykkt að gerast gisl að beiðni ræningjanna. Flugvélin lagði upp frá Frank- furt um hádegisbilið i dag og hélt suður á bóginn. Siðdegis var hún á sveimi yfir Rauðahafinu. Hafði hún fengið lendingarleyfi i Addis Kissinger Bœtt sambúð við Kúbu? Washington 3/3 reuter — Ræða sem Kissinger utanrikisráðherra Bandarikjanna hélt i Houston i Texas á laugardag er sögð benda til gerbreyttra viðhorfa Banda- rikjastjórnar til Kúbu. Kissinger kvað stjórn sina vera reiðubúna að fallast á að aflétta viðskipta- banni þvi sem sett var á Kúbu fyrir tiu árum. Kissinger kvaðst mundu ræða þessi mál við forystumenn rikja i Suður-Ameriku er hann færi i ferðalag um álfuna i næsta mán- uði. Viðskiptabanninu er viðhald- ið af Samtökum Amerikurikja, OAS, en Kúba var rekin úr þeim samtökum eftir að stjórn Castros komst til valda. Að undanförnu hafa verið uppi sterkar raddir innan samtakanna um að aflétta viðskiptabanninu og æ fleiri þjóðir álfunnar komast á þá skoðun. Hingað til hefur Bandarikjastjórn komið I veg fyrir að banninu verði aflétt með þvi að krefjast samþykkis 2/3 að- ildarrikjanna. Kúbustjórn hefur margoft lýst þvi yfir að hún muni ekki stiga neitt skref til bættrar sambúðar við Bandarikin fyrr en viðskipta- banninu verður aflétt, það sé al- gjört frumskilyrði. Kissinger sagði i ræðu sinni að frekari þróun i átt til bættrar sambúðar rikjanna væri háð ut- anrikisstefnu Kúbustjórnar og bætti þvi við að stjórn hans hefði áhyggjur af hernaðarsamvinnu Kúbu við „önnur lönd” eins og hann orðaði það. 1 beinu framhaldi af ræðu Kissingers lagði Edward KennJ edy fram lagafrumvarp á Banda- rikjaþingi sem gerir m.a. ráð fyr- ir afnámi banns við viðskiptum við Kúbu, banns við viöskiptum við lönd sem skipta við Kúbu og létti af hömlum á ferðafrelsi bandarikjamanna til Kúbu. Hins vegar gerir frumvarpið ráð fyrir þvi að áfram verði i gildi bann við efnahagsaðstoð við Kúbu. Ababa i Eþiópiu og i Norður- Jemen en fangarnir vildu á hvor- ugum staðnum lenda. Þess i stað stefndu þeir til Aden en flugvall- aryfirvöld þar neituðu þeim um lendingarleyfi. Þegar siðast frétt- ist höfðu þau látið undan og leyft vélinni að lenda en óvist var um framhald ferðarinnar. Peter Lorenz stóð i miðri kosn- ingabaráttu er honum var rænt en hann var borgarstjóraefni kristi- legra demókrata i Vestur-Berlin. Kosningarnar fóru fram á sunnu- dag og unnu kristilegir mikinn sigur I þeim. Brutu þeir á bak aft- ur 30 ára veldi sósialdemókrata i borginni og urðu stærsti flokkur- inn þótt ekki tækist þeim að ná hreinum meirihluta. Fengu kristilegir 43,9% atkvæða og bættu við sig 5,7% en kratar hröp- uðu úr 50,4% i 42,7%. Frjálslyndir fengu 7,2% og þar með oddaað- stöðu. BLAÐ- BURÐUR Þjóðviljann vantar blað- bera í eftirtalin hverfi: Fossvog Kleppsveg Skipasund Múlahverfi A Iftamýri Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsl- una. ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.