Þjóðviljinn - 19.03.1975, Page 12
DJÖÐVIUINN
Miðvikudagur 19. marz 1975.
Flokkar
bannaðir
í Portúgal
Réttarhöldum yfir
gagn byltingarm.
mönnum hraðað
■ Lissabon 18/3 —
Samkvæmt reutersfrétt er
búist við því að innan 48
klukkustunda gef i
portúgalska byltingarráðið
út tilkynningu um bann við
starfsemi íhaldsflokkanna
og nokkurra stjórnmála-
samtaka til vinstri, sem
að dómi herforingjanna
eru óþægilega róttæk.
íhaldsflokkarnir, sem hér
um ræðir, eru kristilegir
demókratar og miðdemó-
kratar, en gengið er að því
sem gefnu að forustumenn
beggja þessara flokka hafi
verið viðriðnir gagnbylt-
ingarsamsærið á dögun-
um. Francisco da Costa
Comes, forseti, komst svo
að orði í gærkvöldi að portú
galska þjóðin væri ennþá
ekki ,,nægilega upplýst um
stjórnmál" til að vara sig á
áróðri öfgaflokka.
Talið er vist að Endurskipu-
lagningarhreyfing öreigaflokks-
ins (MRPP), sem sögð er maóisk,
verði á bannlistanum, og stofnaði
sú hreyfing til mótmælaaðgerða á
Rossio-torgi i Lissabon i gær-
kvöldi. — Eftir Spinola-sinna
nokkrum, sem er flúinn til Spán-
ar, höfðu fréttamenn i dag að
hann hefði gefið upp alla von um
að vinstriþróuninni i Portúgal
yrði hnekkt, og væri hann þvi á
leið til Brasiliu.
Blöð i Lissabon skýrðu i dag svo
frá að sex háttsettir portúgalskir
kaupsýslumenn, sem handteknir
voru i siðustu viku, hefðu verið
látnir lausir, en talsmenn hersins
kváðu þær fréttir uppspuna og
fóru hörðum orðum um þá, sem
hefðu borið þetta út. Einnig var af
hálfu hersins tilkynnt að frum-
kvöðlar valdaránstilraunarinnar
yrðu dæmdir af byltingarher-
dómstóli, og yrði reynt að sjá til
þess að málareksturinn gengi
fljótt fyrir sig. 52 herforingjar og
49 utanhersmenn hafa verið
handteknir vegna þátttöku i
gagnbyltingartilrauninni. I til-
kynningunni um þetta var meðal
annars komist svo að orði: ,,Á
þessari stundu gleði og vonar
skyldi portúgalska þjóðin ha'fa
fullt traust á byltingarsinnuðu
réttlæti.”
Sovétrikin lýstu i gær yfir sam-
stöðu með Portúgal og óskuðu
leiðtogum þess til hamingju með
sigurinn yfir gagnbyltingar-
mönnum fyrir rúmri viku.
•
Síöari fréttir:
Portúgalska byltingarráðið
hefur lagt blátt bann við áróðurs-
starfi Kristilega demókrata-
flokksins fram að kosningum, svo
og þátttöku flokksins i kosningun-
um sjálfum. Bannið er einnig lát-
ið ná yfir tvo smáflokka til
vinstri, Bandalag verkamanna og
vinnumanna i sveit (AOC) og
Enduskipulagingarhreyfingu
öreigaflokksins (MRPP). Tekið
var fram aö bannið yrði aðeins
látið gilda framyfir kosningarnar
i næsta mánuði, og flokkunum
þremur væri velkomið að hafa
skrifstofur sinar opnar áfram og
halda áfram starfi, svo fremi þeir
trufluðu ekki „almenna relgu.”
Saigon-liðar lamaðir eftir
missi Ban Me Thuot
Búist við víðtæku undanhaldi þeirra úr hálöndunum
SAIGON 18/3 — Talið er
víst að Saigon-stjórnin sé
nú tilneydd að taka til at-
hugunar meiriháttar
undanhald úr miðhálendi
Suður-Víetnams.
Vestrænir hernaðarsér-
f ræðingar eru þegar farnir
að spá því að svo að segja
allt hálandasvæðið verði í
höndum Þjóðfrelsis-
fylkingarinnar fyrir viku-
lokin. Baráttukjarkur Sai-
gon-liða er sagður lamaður
eftir missi Ban Me Thout,
mikilvægustu borgar há-
landanna, og hefur Saigon-
stjórnin enn ekki þorað að
tilkynna fall borgarinnar
opinberlega. Taka Ban Me
Thuot er ef til vill mesti
hernaðarsigur, sem þjóð-
frelsisöfl víetnama hafa
unnið síðan orrustan var
háð um Dien Bien Phu
1954, en sá sigur leiddi sem
kunnugt er til þess að
frakkar kölluðu nýlendu-
her sinn á brott úr Indó-
kína.
Auk Ben Me Thuot hafa
þjóðfrelsisliðar tekið flestar
stöðvar Saigon-liða i hálöndunum
suðaustur af borginni, allt til
hafnarborgarinnar Nha Trang.
Þjóðfrelsisliðar hafa einnig rofið
helstu samgönguleiðir Saigon-
manna inn i hálöndin. Hefur þetta
gert að verkum að aðstaða
Saigon-manna i héraðs-
höfuðborgunum Pleiku og Kont-
um er nú mjög veik. Mjög hefur
dregið úr yfirburðum Saigon-
manna i lofti vegna stöðugt betri
loftvarnarvopna þjóðfrelsisliða
og stórskota- og eldflaugaárása
þeirra á flugvelli.
Bardagar geisa enn i hálöndun-
um og viða annarsstaðar i land-
inu, en fréttir af þeim eru óljósar.
Vitað er þó að þjóöfrelsisliðar
rufu i gær samgönguleið nálægt
Dinh Quan, niutiu kilómetra fyrir
norðaustan Saigon. Vegur þessi
er Saigon-liðum mikilvægur
vegna samgangna við lið þeirra i
syðri hálöndunum.
Taka Ban Me Thuot:
Stríðsmenn fjallaþjóð-
flokka í fylkingarbrjósti
SAIGON 18/3 — Faðir Tran Huu
Thanh, leiðtogi andspyrnu-
hreyfingar kaþólskra á yfir-
ráðasvæði Saigonstjórnarinnar,
sagði i dag að vopnaðir flokkar
þjóðernisminnihluta i fjall-
lendinu hefðu átt hvað drýgsta
þáttinn i töku Ban Me Thout, en
hernaðarsérfræðingar eru þeg-
ar farnir að telja átökin um
borgina eina af þýðingarmestu
orrustum Vietnamstriðsins.
Faðir Thanh sagðist hafa
þessar fréttir frá flóttamönnum
og prestum úr borginni. Fyrsta
áhlaupið á borgina hefði verið
gert af þúsund manna liði fjall-
manna og úrvalsliða úr
Þjóðfrelsisfylkingunni. Saigon-
stjórnin hefði haft 12-15.000
manns til varnar borginni, en
varnirnar hefðu verið svo illa
skipulagðar að þær hefðu þegar
rofnað fyrir áhlaupsliðinu, sem
ruðst hefði inn i miðborgina, og
þá fyrst hefðu þjóðfrelsismenn
sent fram skriðdreka.
Faðir Thanh gaf i skyn að
þjóðernisminnihlutarnir I
fjöllunum, sem margir eru alls
óskyldir vietnömum hvað
tungumál og fleira snertir, væru
orðnir langþreyttir á illri
meðferð Saigon-stjórnarinnar á
þeim. Liðsforingjar og stjórnar-
embættismenn rændu fjalla-
þjóðflokkana landi þeirra, þeg-
ar þeim byði svo við að horfa, og
stælu jafnvel af þeim búpeningi
eins og nautgripum og fiðurfé.
— Hinsvegar hefur Þjóðfrelsis-
fylkingin gert mikið til þess að
bæta hag minnihlutanna og
hjálpað til dæmis mörgum
þeirra til þess að eignast ritmál
i fyrsta sinn.
Nýkjörið útvarpsráð á fyrsta fundi. Frá vinstri: Leó Löwe, varamaður örlygs Hálfdánarsonar (F),
Stefán Júliusson (Alþfi.), Ellert Schram (S), Þórarinn Þórarinsson (F), ólafur R. Einarsson (AB),
Friðrik Sófusson (S), Auður Auðuns (S), Pétur Guðfinnsson, framkvst. sjónvarps, Guðmundur Jónsson,
frkvst. hljóðvarps, og Andrés Björnsson, útvarpsstjórl.
Formaður KSÍ sigraði
Fyrsti fundur útvarpsráðs eftir
kosningar á alþingi var haldinn i
gær. Menntamálaráðherra skip-
aði Þórarin Þórarinsson formann
útvarpsráðs og Ellert B. Schram
varaformann ráðsins. Nokkuð
dróst að boðað væri til fyrsta
fundarins þar sem deilur um
varaformann af hálfu Sjálfstæð-
isflokksins hófust jafnskjótt og
deilunum um NATO-Manga
Iinnti. Baráttan stóðá milli Auðar
Auðuns, fyrrv. alþingismanns, og
Ellerts B. Schram, alþm. Nokkrir
þingmenn munu og hafa stutt
Friðrik Sófusson, formann SUS.
Aðalástæðan fyrir þessum met-
ingi um varaformannssætiö er að
sjálfsögðu sú, aö stjórnarflokk-
arnir gera ráð fyrir að Þórarinn
Þórarinsson muni mjög litið
starfa sem formaður útvarpsráðs
og þvi muni varaformaðurinn oft
verða til kvaddur. Þórarinn er
sem kunnugt er ritstjóri Timans,
alþingismaður, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, for-
maður utanrikismálanefndar al-
þingis og fulltrúi á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóöanna ein-
mitt þessa dagana, auk þess sem
hann sækir fast að mæta fyrir
flokk sinn á nær öllum öðrum al-
þjóðaráðstefnum.
Deilunum I Sjálfstæðisflokkn-
um lyktaði með að kosið var um
Ellert og Auði. Bar formaður
Knattspyrnusambands íslands
þar sigurorð af Auði, sem var
áf jáð I að ná varaformannssæti I
útvarpsráði. í sárabætur var
LUSAKA 18/3 - Einn af blökku-
mannaleiðtogum Ródesiu,
Herbert Chitepo, og einn lifvarða
hansbiðu i dag bana er sprenging
tætti bil þeirra I sundur. Tveggja
ára drengur, sem stóð nærri, beið
einnig bana af völdum
sprengingarinnar. Chitepo var 52
ára og formaður Afriska þjóð-
þingssambandsins fyrir
Zimbabwe (ZANU).
ZANU hefur þegar gefið út til-
kynningu um atburðinn og sakar
Ródesiu um að standa á bakvið
tilræðið. Fyrir rúmum tveimur
vikum lét ródesiska stjórnin
handtaka séra Ndabaningi
Sithole, forseta ZANU, og sakaði
Auður Auðuns kosin ritari út-
varpsráös á fyrsta fundi þess, og
fer hún þar I föt ólafs Ragnars
Grimssonar.
hann um morðsamsæri gegn póli-
tiskum keppinautum. Chitepo var
kominn til Lusaka, höfuðborgar
Sambiu, til viðræðna við Abel
Muzorena biskup, forseta Afriska
þjóðarráðsins (ANC), en ZANU
hefur nú sameinast þvi að nafninu
til. Kenneth Kaunda, forseti
Sambiu, hefur lýst þvi yfir að hér
hafi verið að verki aðilar, sem
fjandsamlegir séu þvi að i
Ródesiu komist til valda stjórn,
sem hafi meirihluta landsmanna
á bakvið sig. — Sprengingin mun
hafa orðið af völdum jarð-
sprengju, sem grafin hafði verið
fyrir utan skúrinn, þar sem
Chitepo geymdi bil sinn. reuter
Skothríð á
flotastöð
Lon Nols
PHNOMPENH 18/3 — Mikið
mannfall varð i dag i liði Lon Nol-
stjórnarinnar I Neak Luong,
siðustu borginni sem stjórnin
heldur við Mekong fyrir neðan
Phnompenh. Þá geröu þjóðar-
einingarliðar harða skothrið með
eldflaugum og sprengjuvörpum á
Chui Changvar, helstu flotastöð
Lon Nol-stjórnarinnar, sem er
milli höfuðborgarinnar og
stöðuvatnsins Tonle Sap. Munu
sprengjurnar og eldflaugarnar
hafa valdið verulegu tjóni.
Hernaðarsérfræðingar segja að
ef þjóðareiningarmenn tækju
Chui Changvar, væri öll von úti
fyrir Lon Nol-stjórninni um að
geta aftur byrjað flutninga upp
Mekong, þvi að fallbyssubátar
stjórnarinnar, sem fylgja birgða-
skipunum, fá eldsneyti, skotfæri
og aðra þjónustu I flotastöðinni.
Sexteknir af
ADDIS ABABA 18/3 —
Sex menn voru i dag
teknir af lifi i Addis
Ababa fyrir andstöðu
við umbætur her-
foringjastjórnarinnar i
Eþiópiu. Þeirra á meðal
var Tadasse Berú, fyrr-
um lögregluforingi, en
hann var tekinn siðast-
liðinn fimmtudag fyrir
að reyna að spana til
uppreisnar galla,
stærstu þjóð Eþiópiu.
Gallar eru kúsjitar að
tungumáli (skyldir
fornegyptum.).
Þeir sexmenningar voru
dæmdir til dauða af æðsta her-
rétti landsins, sem stofnsettur
var i september s.l. 1 honum eiga
sæti fimm menn.
RODESÍA:
Blökkumannaleið-
togi myrtur í gær