Þjóðviljinn - 20.03.1975, Síða 1
UOWIUINN
Fimmtudagur 20. mars 1975 —40. árg. —66. tbl.
Fundurníu manna
nefndar og
baknefndar ASÍ:
Yerkföll boðuð 7. a
Á fundi sáttasemjara
meö samninganefndum
ASÍ og Vinnuveitenda í gær
kom ekkert nýtt fram.
Búist hafði verið við að at-
vinnurekendur legðu fram
einhverjar tillögur í tengsl-
um við þær efnahagsráð-
stafanir, sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið, en svo varð
ekki.
Á fundi níu manna
samninganefndar ASÍ og
baknef ndarinnar, sem
haldinn var í Tjarnarbúð í
gærkvöldi, var samþykkt
að fara þess á leit við
aðildarfélög ASl' að þau
boðuðu til vinnustöðvunar
frá og með mánudeginum
7. apríl.
Sáttafundur hefur ekki
verið boðaður fyrr en á
morgun kl. 14.
100 konur
mótmæla
Sjálfs-
ákvörðunarréttur
kvenna óvirtur
Konurnar sex, sem
gengustfyrir undirskrift-
um í mótmælaskyni
vegna endurskoðunar
f cstureyðingarf rum-
varpsins: Valborg Bents-
dóttir, Sigrún Júlíus-
dóttir, Guðrún Kristins-
dóttir, Hlédís Guðmunds-
dóttir, Bergljót Halldórs-
dóttir og Erna Ragnars-
dóttir.
SJÁ 3. SÍÐU
Stjórnarfrumvarp vœntanlegt í dag:
Niðurskuröur fjár-
laga 3500 miljónir
I dag er von á frumvarpi
um efnahagsráðstafanir
og skattamál frá ríkis-
stjórninni.
Helstu efnisatriði þessa
frumvarps munu vera,
sem hér segir. Fjárlög
verða skorin niður um 3500
miljónir króna, og þá ekki
síst verklegar fram-
kvæmdir. Gert er ráð fyrir
að tekjuskattur lækki um
700-900 miljónir króna og
ú+svar um 360 miljónir, eða
alls um 1160 miljónir. Hins
vegar er svo þess að geta,
að rikisstjórnin hyggst
heimila 11% útsvarsálagn-
ingu í stað 10% í fyrra, en
það þýðir um 700 milj.
króna hækkun á móti, svo
að lækkun beinna skatta
verður aðeins 4-500 miljón-
ir miðað við álagninga-
grundvöllinn í fyrra.
Þá mun frumvarpið fela í sér
ákvæði um það, að rikisstjórninni
verði heimilt að verja 6-800 mil-
jónum króna til lækkunar sölu-
skatts eða tolla á vissum vöruteg-
undum.
Meðal annarra atriða frum-
varpsins má nefna, að afnema á
persónuafslátt og persónu-
frádrátt út á börn gagnvart skatti
og einnig á að afnema fjölskyldu-
bætur. I staðinn fyrir þetta þrennt
skal koma nokkuð, sem kallað er
„barnabætur” og eiga að verða
kr. 30. þús. á ári með 1. barni og
kr. 45. þús. á ári með hverju öðru
barni. Þarna er um kerfis-
breytingu að ræða, sem ekki felur
i sér neina verulega kjarabót fyr-
ir barnafólk, en nokkuð mun þessi
breyting þó koma misjafnt niður.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
þvi, að persónufrádráttur hjóna
og einstaklinga til skatts verði af-
numinn sem slikur en honum
breytt þannig, að eingöngu verði
um persónuafslátt að ræða. Gert
er ráð fyrir að hinn „öfugi tekju-
skattur”, sem sumt lágtekjufólk
hefur fengið greiddán út i pening-
um, verði nú ekki almennt
greiddur út, þótt hærri verði i
ýmsum tilvikum en svarar til
þess, sem þarf til að mæta opin-
berum gjöldum. Þó skal hann
áfram greiddur út elli- og örorku-
lifeyrisþegum.
Persónuafsláttur til útsvars
skal hækka til samræmis við
hækkun skattvisitölu.
Samkvæmt útreikningum, sem
rikisstjórnin hefur látið gera er
reiknað með, að breytingin varð-
andi beina skatta og kerfisbreyt-
ingu hvað snertir barnaivilnanir,
færi þeim, sem höfðu 1 miljón i
brúttótekjur á siðasta ári þessar
bætur miðað við skatta sam-
kvæmt fyrra kerfi. Barnlaus
hjón: kr. 15 þús. Hjón með 1
barn kr 13 þús. Hjón með 2 börn
kr 24 þús. Hjón með 3 börn kr 35
þús„ Hjón með 4 börn kr. 55 þús.
— Einhleypingur: kr. 3.000,— Og
hefur þá i öllum tilvikum verið
tekið tillit til þess, að auka-
prósentið verður langt á varðandi
Magnús
Kjartansson
um járnblendi:
Orkuna þurfum
við til annarra nota
650 miljónum bœtt á auðhringinn
„Þar sem íslendingar
þurfa á næstu árum að
hagnýta alla tiltæka orku,
fjármagn og vinnuafl til
þess að fullnægja þörfum
hins almenna orkumark-
aðar, m.a. með rafhitun
húsa, telur alþingi allar
forsendur skorta til þess að
koma upp orkufrekum iðn-
aði meðan svo er ástatt og
tekur fyrir næsta mál á
dagskrá."
Þannig hljóðar dagskrártil-
laga, sem Magnús Kjartansson
boðaði á fundi neðri deildar al-
þingis i gær að hann myndi flytja,
en frumvarp rikisstjórnarinnar
um járnblendiverksmiðju i Hval-
firði kom til 1. umræðu i deildinni
i gær.
Gunnar Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra mælti fyrir frumvarp-
inu og var málflutningur hans á
sömu lund og áður i efri deild.
Fulltrúar allra stjórnarandstöðu-
flokkanna höfðu talað, þegar
fundi var frestað klukkan 16:15.
Benedikt Gröndal lýsti stuðningi
Alþýðuflokksins við málið, með
fyrirvörum þó um einstök atriði.
Karvel Pálmason lýsti andstöðu
Samtaka frjálslyndra við frum-
varpið.
Magnús Kjartansson talaði
næstur á eftir Gunnari Thorodd-
sen og flutti itarlega ræðu, sem
skýrt verður nánar frá i Þjóðvilj-
Beinir
skattar
lœkki um
4-500
miljónir kr.
útsvarið, 11% i stað 10% i fyrra.
Hins vegar eru barnlaus hjón
með kr. 500 þús. i brúttótekjur
1974 talin skaðast um 10 þúsund
krónur (5000,— beint og~ 5000,-
vegna aukaprósents i útsvars-
álagningu). Þá er talið, að hjón
með kr. 1.500 þús. i brúttótekjur
og 2 börn hagnist um kr. 6000,-, en
hjón með 900 þús. krónur i brúttó-
tekjur og 3 börn um kr. 45 þús. svo
að dæmi séu tekin, sem byggð eru
á útreikningum sérfræðinga
rikisstjórnarinnar.
Furðulegt er að svo virðist, sem
hinir allra tekjulægstu með 40 þús
kr. á mánuði beinlinis skaðist á
breytingunni, en annars er yfir-
leitt um svo óverulegar skatta-
lækkanir að ræða, að ekki eru þær
liklegar til að breyta miklu
varðandi kjarasamningana.
Magnús Kjartansson
anum siðar. Hann boðaði þá frá-
visunartillögu, sem hér var frá
sagt og einnig allmargar breyt-
Framhald á bls. 4.