Þjóðviljinn - 20.03.1975, Page 12

Þjóðviljinn - 20.03.1975, Page 12
fi WÐVium 3 Fimmtudagur 20. marz 1975. Moka upp loðnunni Bátafíotinn heldur áfram að moka upp loðnunui. Sólarhrings- aflinn á mánudag var rúmlega 12 þúsund tonn, og um klukkan hálf sjö i gærkvöldi höfðu 20 skip til- kynnt afla til loðnunefndar, sam- tals á áttunda þúsund tonn. Veiðisvæðið i gær var 18—20 milur norður af Akranesi. Farið er að þrengjast um þróarrými á Faxaflóasvæðinu, og mun það væntanlega fyllast á morgun. Vegna veðurs hafa skipin ekki komist austur fyrir Reykjanes með loðnuna, en nóg þróarrými er á höfnum þar, td. i Vestmanna- eyjum, Grindavik og Þorláks- höfn. Mestan afla tilkynnti Sigurður RE i gær, 900 tonn, en á mánu- daginn tilkynnti Börkur 800 tonna afla. — úþ Ráðherrafundi frestað Osló 19/3 ntb — Varnarmálaráð- herrar fjögurra Natórikja, Dan- merkur, Noregs, Belgiu og Hol- lands, hafa frestað til 13. april fundi sinum um „flugvélakaup aldarinnar” sem átti að hefjast næstkomandi mánudag. H-8. A þessum bll er rússnesku Shell-benslni ekið frá birgðastöð I ...en á þessum bll er rússnesku BP benslni ekið frá birgðastöð á Húnavatnssýslum til íauðárkróks... Sauðárkróki vestur yfir Vatnsskarð til Húnavatnssýslna. (Ljósm. H.B.) Hagrœðing olíufélaga á Norðurlandi vestra BP ekur í austur og Shell í vestur Norður á Blönduósi og Skagaströnd hefur BP, Olíuverslun íslands, birgðastöð fyrir bensín. Þaðan flytur BP bensin til Sauðárkróks, enda al- deilis ósæmilegt ef sauð- kræklingar fengju ekki BPbensín frá Rússlandi. Á Sauðárkróki hefur svo Skeljungur birgðastöð. Þaðan er Shell-bensini ekið vestur i Húnavatnssýslur, nánar til tek- ið til Blönduóss og Skagastrand- ar, enda væri það ekki siður ó- sæmilegt ef húnvetningar gætu ekki keypt Shell-bensin frá Rússlandi alveg eins og sauð- kræklingum er gert kleift að kaupa BP-bensin frá Rússlandi. Þetta er hagræðing i lagi. I það minnsta er greinilegt af þessu að til þess að standa undir þessum tilfærslum á bensin- dropunum að vestan og austur og að austan og vestur hlýtur að þurfa meiri hagnað út úr hverj- um litra en 6 krónur. Af 57 krónum, sem bileigandi borgar fyrir bensinlitrann, fær oliufélagið aðeins sex krónur. t blaðaviðtali við Onund Asgeirs- son, forstjóra BP á tslandi, sagði hann fyrir nokkru að á- lagning á bensin þyrfti að hækka um 20 af hundraði til þess að bensinsala bæri sig. Sagan að norðan virðist benda til þess að forstjóri BP hafi nokkuð til sins máls, amk. meðan söluhættir oliufélaganna eru af þessu tagi. Aukaþing FIDE: SAMÞYKKIR MÁLAMIÐLUN Oliklegt að Fischer keppi, en Karpof er reiðubúinn Stúdentar í Phnom Penh: HÆTTIÐ AÐSTOÐ Bergen aan Zee 19/3 reuter — Aukaþing Aiþjóðaskáksam- bandsins, FIDE, samþykkti i dag að hafna einni af meginkröfu Fischers varðandi fyrirkomulag heimsmeistaraeinvigisins sem hefjast á I Manila á Fiiippseyjum 1. júni nk. Þvi miður féll út úr fréttaskeyti Reuters hvaða kröfu um var að ræða en hún hefur verið svo mik- ilvæg að forseti bandariska skák- sambandsins, Ed Edmundson, kvað likurnar á þvi að Fischer mætti til leiks vera einn á móti þúsund eftir ákvörðun þingsins. Þingið virðist hafa samþykkt einhverja málamiðlun milli Karpofs og Fischers þvi fulltrúar sovéska skáksambandsins þurftu að ræða málið einslega áður en þeir kváðu upp úr með að þeir Fischer Karpov féllust á samþykktina og að Karpof myndi mæta til leiks. Helstu kröfur Fischers hafa snúist um fjölda skáka i einviginu — hann vill ekki takmarka hann — og að áskorandinn þurfi að vinna hann með minnst tveggja vinninga mun til að hreppa meist- aratitilinn. Þessu hafa sovétmenn verið afskaplega mótfallnir og vísað til þess að verði gengið að kröfum Fischers sé verið að fót- umtroða allar fyrri samþykktir FIDE. Phnom Penh 19/3 reuter — Stúdentar við háskólann I Phnom Penh héldu útifund á háskólalóð- inni þar sem skorað var á banda- rikjastjórn að hætta allri aðstoð viö stjórn Lon Nols. t ræðum sem haldnar voru á fundinum var sagt að aðstoðin kæmi alþýðu Kombodju að engu gagni þar sem örsmár for- réttindahópur meðal æðstu em- bættismanna misnotaði hana og auðgaði sjálfan sig á henni. Þjóðfrelsisöflin héldu áfram eldflaugaárásum á höfuðborgina og flugvöllinn Pochentong. Féllu sex eldflaugar á borgina og fjórar á flugvöllinn en ekkert mannfall varð. Stórskotaliðsbardagar magnast nú i nágrenni borgarinn- ar og mátti i dag vel greina óminn af fallbyssudrunum og vélbyssu- gelti utan við borgina. Stjórnar- herinn reynir enn að hrekja þjóðfrelsisherinn lengra frá flug- vellinum með eldflaugaskotpalla sina en engar sögur fara af árangri hans. Bandarikjamenn halda áfram loftflutningum sinum til Phnom Penh og annarra einangraðra staða sem stjórnarherinn heldur enn og voru i dag farnar 56 ferðir með hrisgrjón, eldsneyti og vopn. Fregnir hermdu að harðir bar- dagar geysuðu á austurbakka Mekongárinnar, en ekkert spurbist af vigstöðunni við ferju- bæinn Neak Luong þar sem 40 þúsund manns hafa verið i um- sátri þjóðfrelsishersins i heila viku. Niðurskurður í Breska stjórnm hermálum London 19/3 ntb reuter — Breska stjórnin hefur lagt fram „hvítbók" um stefnu sína í varnarmálum. Þar kemur fram að hún hyggst skera niður útgjöld til varnarmála um 4.7 mil- jarða punda næsta áratug- inn og minnka hlutfall út- gjalda til hermála í rikisút- gjöldunum úr 5.5%, í 4.5. Niðurskurðurinn felst einkum i þvi að stjórnin hyggst fjarlægja allar flug- og flotaherdeildir frá Miðjarðarhafinu og Indlandshafi fyrir 1980. Þess i stað vill hún leggja áherslu á að viðhalda her- styrk sinum i Austur-Atlantshafi og á Ermarsundi. Bókinni var mætt með gagnrýni bæði frá hægri og vinstri. Vinstri- armur Verkamannaflokksins taldi ekki nógu langt gengið i niðurskurðinum en ihaldsmenn kváðu stefnu stjórnarinnar ekki taka mið af skuldbindingum breta gagnvart Nató. Eins og vænta mátti brá Nató hart við bókinni. í yfirlýsingu frá höfuðstöðvum bandalagsins i Briíssel er lýst yfir áhyggjum Nató af þvi hversu niðurskurður- inn sé mikill og sagt að hann muni veikja varnir Nató ískyggilega. Er lagt að bresku stjórninni að hún ihugi sinn gang gaumgæfi- lega með það i huga hve mjög stefna hennar veiki heildar- varnarmátt bandalagsins. Hœttir FRI Fjársöfnun er nú hafin til styrktar Frjálsiþróttasambandi tslands og er stefnt að þvl að safna amk. jafnvirði þeirrar 1,5 miljónar króna, sem FRt taldi sig geta haft upp úr sigarettupakka- söfnun i samráði við tóbaksinn- fiytjanda. við sígarettusöfnun Söfnunin fer þannig fram, að fólk er beðið um að skrifa á lista með áskorun til hins opinbera um að auka fjárframlög til Iþrótta- starfsemi um leið og það greiðir þúsundkall, til styrktar FRl. For- ráðamenn söfnunarinnar vonast til að geta náð 1500 nöfnun á list- ana fyrir helgina. Með þvi væri komin ein og hálf miljón, sem FRI fengi afhenda þegar i stað, ef hætt verður við auglýsingaher- ferðina. Stjórn FRÍ ræðir málið væntanlega á fundi á föstudaginn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.