Þjóðviljinn - 02.04.1975, Side 8

Þjóðviljinn - 02.04.1975, Side 8
.8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. april 1975. Miövikudagur 2. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Rætt við tvo reyðfirðinga, þá Þóri Gíslason og Helga Seljan Frá Reyöarfiröi. Atvinnuástandið ekki einsogbest verður á kosið en ýmsar hugmyndir til aö efla það Fyrir nokkrum dögum áttu leið hér um ritstjórn þeir Þórir Gislason, sem starfar sem bólstrari aust- ur á Reyðarfirði og Helgi Seljan, alþingismaður, en eins og lesendum blaðsins er vafalaust kunnugt þá á Helgi lögheimili á Reyðar- firði. Blaðamaður tók því tví- menninga tali og spurði Helga fyrst eftir því hvernig háttað væri skipt- ingu manna í hreppsnefnd Reyðarf jarðar á milli stjórnmálaf lokkanna. — Skiptingin er þannig, sagöi Helgi, að Framsóknarflokkurinn hefur tvo menn i hreppsnefnd, en hann bauð fram tvo lista við sið- ustu kosningar og fékk báöa sina menn kjörna af öðrum listanum. Sjálfstæðisflokkurinn bauð einnig fram tvo lista, og var einn maður kjörinn af hvorum lista fyrir sig. Alþýðubandalagið fékk tvo menn og óháðir einn mann. Samkomulag varð um það, að ekki yröi myndaður meirihluti i sveitarstjórninni, en allir ynnu saman að hagsmunamálum sveitarfélagsins. Fullt samkomu- lag varð um að sveitarstjórinn yrði áfram sá hinn sami og áður, Hörður bóhallsson, viðskipta- fræðingur. Oddviti er Vigfús Ólafsson, fulltrúi óháðra. Alþýðubandalagið kom þvi á, að sett var á stofn sérstakt byggðaráð þriggja manna, sem undirbýr hreppsnefndarfundina. 1 byggðaráði situr oddvitinn, einn frá Alþýðubandalaginu og hinn frá Sjálfstæðisflokknum. Einnig höfum við fengið samþykkta þá skipan mála, að hreppsnefndar- fundir skuli haldnir fyrir opnum tjöldum. Blm. —Hvernig er háttað at- vinnulifi á Reyðarfirði þessa stundina, Þórir? Þórir: — Atvinnuástandið á Reyðafirði hefur verið þokkalegt það sem af er þessu ári. Loðnu- veiðin hefur verið góð og skapað mikla atvinnu nú um alllangan tima. Annars er atvinna á Reyðar- firöi jafnan mjög sveiflukennd. Til dæmis er oft ærið stopul vinna yfir sumarmánuðina, nema hvað siðasta sumar var nokkur vinna i sambandi við gatnagerð, þ.e.a.s. undirbúning gatna undir lagningu oliumalar. Það er vinna i Fiskverkunar- stöð G.S.R. alit árið, en hún gerir út tvo báta, Gunnar og Snæfugl. Þeir sem þar vinna hafa haft nokkuð jafna vinnu allt árið um kring, en bátarnir hafa aflað mjög sæmilega. Mér finnst verulega vanta iðn- að til staðarins, sem fólk gæti byggt atvinnu sina á. Blm — Þú nefndir útgerð tveggja báta, en nú hljóta að vera gerðir út fleiri en tveir bátar frá Reyðarfirði? Þórir: — Nei. Það er þvi miður ekki. Fyrir þremur árum var þarna mjög blómleg smábátaút- gerð, sem að lokum lognaðist út af. Eg held aö það sé vegna þess að það er mjög langt að sækja úr Reyðarfirði og erfitt af þeim sök- um. f þessu sambandi má einnig nefna, að frystihús KHB tók ekki viö fiski af bátunum ef þeir komu ekki að fyrir einhvern ákveðinn tima. Þvi má bæta viö, að rekstur frystihússins er mjög ójafn og ó- stöðugur. Blm.: — Er kaupfélagið með annars konar rekstur á Reyðar- firði en frystihússreksturinn? — Þórir: — Auk verslunar rekur það kornblöndunarstöð, sem fjórir eða fimm menn hafa atvinnu við. Á haustin er svo nokkur atvinna i kring um slátr- unina. Þá reka þeir bilaútgerð og sjá um umskipun á vörum. — Blm: — Þú nefndir loðnu- bræðslu. Hver rekur hana? Þórir: — Bræðslan er rikisfyr- irtæki. Blm: — Vegagerðin er með að- setur á Reyðarfirði, ekki satt? Þórir: — Jú og veitir staðarbú- um, sem þar vinna stöðuga at- vinnu allt árið um kring. Blm: — Hvað með aðrar at- vinnugreinar? Er eitthvað i upp- siglingu, t.d. hjá hreppsnefnd- inni? Þórir: — Ekki er mér kunnugt um það. Hins vegar tel ég nauð- synlegt að koma upp iðnaði á Reyðarfirði i sambandi við land- búnaðinn. Að firðinum liggja mörg stór landbúnaðarhéruð, og þar væri upplagt að reisa verk- smiðjur til að vinna úr landbún- aðarafurðum og má i þvi sam- bandi bæði nefna sútunarverk- smiðju og niðursuðuverksmiðju. Blm: — 1 hvaða framkvæmd- um stendur sveitarfélagið helst? Þórir: — Ég minntist áðan á lagningu oliumalar. Siðan er ver- iðað byggja sundlaug og leikfimi- hús. Þessar framkvæmdir þótti okkur Reyðfirðingum vera of seint á ferðinni en vonum að unn- ið verði að fullum krafti þar til lokið er. Blm: — Hvað er af byggingar- málum Reyðfirðinga að segja? Þórir: — Byggingarmálin eru eiginlega i lægð. Ég hef ekki ná- kvæma tölu yfir þau hús sem nú eru i byggingu, en þau eru þó ekki mikið yfir fimm. Blm: — Mun hreppurinn byggja eitthvað af leiguibúöum? Þórir: — Það voru reistir tveir verkamannabústaöir á siðasta ári, og verið er að fullgera þá þessa dagana. 1 þeim eru fjórar ibúðir. Helgi: — A næstu fimm árum verða byggðar 10 leiguibúðir. Þórir-. — 1 sambandi við at- vinnumálin skal þess getið, að kaupfélagið keypti til helminga á móti útgerðarfyrirtæki á Eski- firði skuttogarann Hólmanes, en frá Eskifirði eru gerðir út tveir skuttogarar. Fær frystihúsið 1/4 hluta afla þessara tveggja tog- ara. Helgi: — Ég kynnti mér það fyrir stuttu, að starfsemi frysti- hússins er ekki meiri en það, að sú kauptrygging, sem samið var um i fyrra varðandi starfsfólk i frystihúsum, nær ekki til þess fólks, sem vinnur hjá frystihúsinu á Reyðarfirði. Það hefur aldrei náðst það samfelldur timi I starf- semi frystihússins, að fólkið ætti rétt á kauptryggingu. Að visu hef- ur rekstur hússins orðið mun betri eftir tilkomu þess afla, sem fæst með hlutdeildinni i Hólma- nesinu, en þó ekki nóg. Það hefur sýnt sig, að við þyrftum að fá sér- stakan skuttogara, og þá hefði skapast nokkurn veginn samfelld atvinna. Blm: — Það hefur litið heyrst frá reyðfirðingum um þá hug- mynd að Reyðarfjörður verði ein- hvers konar miðstöð stóriðju fyrir útlendinga á Austurlandi. Hvað finnst þér um þessa hugmynd, Þórir? Þórir: — Min skoðun er sú að við höfum ekkert með stóriðju að gera austur á landi. Mér fyndist mikið hyggilegra af okkur að reyna að koma upp verksmiðjum til fullvinnslu á landbúnaðarvör- um, eins og ég nefndi áðan. Ég tel mikið meiri framtið i slikri fram- kvæmd. Blm: — Hvað hafið þið reyð- firðingar fengið mikið að vita um þessi mál, eða hvað er að gerast i þeim? Þórir: — Þetta hefur farið mjög dult, og ég held að það séu ákaflega fáir reyðfirðingar, sem vita hvaða umræður hafa raun- verulega farið fram. Helgi: — Það fóru fram ýmiss konar mælingar á staðnum á veg- um þessara aðilja, sem hafa i huga að reisa stóriðju á Reyðar- firði. Það virðist vera meirihluta- vilji fyrir þvi i sveitarstjórn að kanna þetta mál mjög rækilega. Hins vegar hefur komið fram andstaða við þetta mál i sveitar- stjórninni frá að minnsta kosti þremur sveitarstjórnarmönnum, einum framsóknarmanni og báð- um fulltrúum Alþýðubandalags- ins. Hér syðra hefur verið svarið fyrir það, að þetta væri á nokkru öðru stigi en umleitunarstigi bæði af iðnaðarráðherra og fulltrúa i stóriðjunefnd, sem situr á alþingi. Nú eru þó tveir menn úr stór- iðjunefndinni farnir til Sviss, og kannski ætla þeir að fara að semja um stóriðju þrátt fyrir all- ar yfirlýsingar. Helgi Seljan Blm: — Hvaða skoðun hefur þú á þeim efnahagsráðstöfunum, sem rikisstjórnin hefur nú nýver- ið lagt fram, Þórir? Þórir: — Mér finnst þessar ráðstafanir siður en svo vera til bóta. Nú er verið að setja járn- krumlu utan um verkalýðinn, og við erum ekki lengur orðnir frjálsir okkar gerða. Það getur enginn maður lifað i dag af 38-40 þúsund króna mánaðartekjum. Ef litið er aðeins á einn rekstrar- lið hjá hinum almenna manni, það er kynding húss og rafmagn, þá fer þessi liður allt upp i 18 þús- und krónur á mánuði, og alls ekki farið i hámarkiö. Nú hefur verið farið fram á það að aðildarfélög ASt fari i verkföll, en ég get ekki séð hvernig hægt er að fara i verkfall, og held að slikt yrði dauðadómur yfir verkalýðs- stéttinni núna. En þó ber að geta þess, að verkfallsrétturinn er okkar eina vopn, og við verðum að berjast til hlýtar með honum, til þess að fá okkar mál- um framgengt. Blm: — Getur þú farið I verk- fall? Þórir: — Nei. Ég treysti mér ekki til þess. Ég verö að vinna hvern dag til þess að hafa nóg fyr- ir mig, og þó er ég ekki með heim- ili, ekki fjölskyldumaður. Blm: — En mundir þú skorast undan þvi að fara i verkfall? Þórir: — Ekki ef út á hólminn væri komið. Ég vil taka það fram f sam- bandi við kjaramálin, að undar- legt þykir mér að ekki skuli vera hægt að lyfta þeim lægstlaunuðu upp i þjóðfélaginu hvað launa- tekjur snertir, en láta hina standa i stað. Þvi hver er það i þjóðfélag- inu i dag, sem aflar mests gjald- eyris og vinnur þjóðinni best ann- ar en hinn almenni verkamaður? Blm: — Svo er það goösögnin um brauðið og lifið. Þið þurfið vætnanlega annað en brauð til þess að lifa fyrir austan, eins og fólk annars staðar, Hvað tekur við þegar brauðstritinu sleppir? Þórir: — Félagslifið er bæði upp og ofan hér, blómlegt annað kastið en dettur niður hitt kastib. Það hefur verið nokkuð gott lif með kvenfélaginu og Lyons- klúbbnum. Þessi félög hafa starf- að nokkuð jafnt, annað félagslíf er mjög dauft. Blm: — Hvað með verkalýðs- félagið? Þórir: — Það er að sjálfsögðu starfandi, en fólk mætir bara ekki á fundi, sem boðaðir eru. Það virðist vera mjög mikið áhuga- leysi um kjarabaráttuna. Blm: — Starfa stjórnmála- flokkarnir eitthvað? Þórir: — Nei, enginn þeirra að neinu gagni. Blm: — Syngur fólk þarna i kórum? Þórir: — Það er þá ekki nema kirkjukórinn. Helgi: — Tónlistarnám hjá okkur er i algjöru lágmarki. Það er engin tónlistarkennsla á staðn- um. Blm: — Nú ert þú fyrrverandi skólastjóri á Reyðarfirði, Helgi. Hvers vegna var ekki komið upp tónlistakennslu við skólann? Helgi: — Ég gerði þær tilraun- ir, sem hægt var að gera á staðn- um til þess að láta krakkana syngja, með misjöfnum árangri, þó eins og gerist og gengur. Við gátum aldrei fengið mann með tónlistarkennaramenntun, það er svo fámennt hér. Þær tilraunir, er við gerðum um tima að hafa samstarf við eskfirðinga um tón- listarkennslu, fóru út um þúfur. En það eru möguleikar á þvi núna, að eksfiröingar og reyðfirð- ingar taki höndum saman um þetta, enda er það eina raunhæfa leiðin. Það eru ekki nema 15 kiló- metrar þarna á milli, og ef miðað er við eitthvað annað en snjó- þyngslin i vetur þá á þetta að vera i lagi. Þórir: — Ef við höldum áfram með félagsmálastarf á Reyðar- firði, má geta þess, að leikfélagið hefur starfað með miklum blóma undanfarin ár og gert marga mjög góða hluti. Það setti til dæmis upp Járnhausinn svo að eitthv. sé nefnt, og gerði það með miklum ágætum, en það er eins og vilji jafnan koma deyfð yfir slik félög fyrst eftir að þau hafa gert góða hluti. Slikar sveiflur koma liklega alltaf i svona starf- semi þvi fólk þarf að leggja mikla vinnu i þetta starf eftir að vinnu- degi þess lýkur. Blm: — Starfar iþróttafélag á staðnum? Þórir: — Ungmennafélagið er allt of dauft og hefur verið um árabil. Þó má minnast á eitt at- riði i þessu sambandi. Það er gliman, sem Aðalsteinn Eiriksson hefur haldiö uppi með miklum dugnaði, og er mjög virðingar- vert. Aðalsteinn hefur komið mörgu góðu til leiðar i þessum efnum, og komið mönnum i frem- stu röð á glimumótum hér syðra. Blm: — Af þessu spjalli sýnist mér ljóst, að atvinnulif sé frekar stopult á Reyðarfirði, og félags- lifið gloppótt. Er þá bara ekki assskoti vont að eiga heima á Reyðarfirði? Þórir: — Nei. Égerbúinn að eiga heima á Reyðarfirði frá fyrstu tið og mér finnst mjög gott að eiga heima þar. Þetta er vinalegur staður, og ég vil ekki flytja þaöan. Blm: — Nú hefur þú reynslu af höfuðstaðnum, Helgi, og getur borið saman. Hvorn staðinn kýstu? Helgi: — Það er alveg ótvirætt, að ég kýs Reyðarfjörð langt fram yfir höfuðborgarsvæðið, annars hefði ég ekki verið eins tregur og ég hef verið til þess að fara i framboð og hætta mér út i þessa þingmennsku, sem er manni miklu frekar kvöl heldur en hitt vegna langdvalar hér og meira og minna tengslaleysis við fjöl- skylduna. Varðandi atvinnumálin vil ég taka fram, vegna þess að þú mátt ekki misskilja þaö sem áður hefur komið fram i þessu spjalli, að viö erum með sterk fyrirtæki eins og Vegagerð rikisins, sem skapar mikla og stöðuga atvinnu. Við er- um með fyrirtæki eins og Kaupfé- lag Heráösbúa, sem er þvi miður að færa starfsemi sina allt of mik- ið upp á Hérað. Að visu er frysti- hússrekstur kaupfélagsins ekki nógu stöðugur. Það er með tölu- verða bilaútgerð, kornblöndunar- stöð, eins og Þórir benti á, og svo erum við með töluvert mikla vinnu varðandi umskipun, sem við höfum alveg gleymt að minn- ast á. Þessi vinna mætti að sjálf- sögðu vera meiri, og við þyrftum að fá umskipunarhöfn á Reyðar- firði fyrir Austfirði, svo vörunar yrðu fluttar beint inn. Þetta er ekki bara atriði fyrir okkur reyð- firðinga, heldur okkur austfirð- inga alla, þvi slikt mundi gjör- breytt vöruverðinu. Mér finnst að kaupfélögin á fjörðunum ættu að hafa forystu i þessu máli, og koma upp töllvöru- geymslu Blm: — Ættu þingmenn kjör- dæmisins ekki að eiga einhvern hlut þarna að máli? Helgi: — Ég vil segja að ég hafi átt rikan þátt að þessu máli. Þó að lygilegt sé, var fyrsta þing- málið sem ég flytti fyrir sautján árum, um umskipunarhöfn á Reyðarf. Þá hef ég einnig haft mikið samband við Eimskipafé- lagið vegna þessa máls. Rétt er að taka það fram, að þingmenn geta litil áhrif haft um byggingu tollvörugeymslu. Það verða verslunaraðiljarnir að sjá um. Þá hef eg mjög beitt mér fyrir þvi i stofnananefndinni, sem ég á sæti i, að Skipaútgerð rikisins verði tviskipt, þannig, að annar hluti hennar verði rekinn frá Reyðarfirði, og hinn frá Vest- fjörðum, þeim tveimur landshlut- um, sem mest þurfa á henni að halda. Ég vil varðandi atvinnumálin árétta það, að við hefðum þurft að fá skuttogara á Reyðarfjörð á góðu árunum, en það eru einmitt þeir sem hafa gert atvinnuna stöðuga á fjörðunum hér eystra. Núna þegar kreppir að, er eina von launamannsins sú, að eigin- konan geti stundað fulla vinnu ut- an heimilis. Það getur hún ekki á Reyðarfirði vegna þess að hrað- frystihússvinnan er svo stopul. Nú þegar verið er að vinna að at- vinnumálaáætlun fyrir Austfirði legg ég áherslu á það, að sérstök atvinnumálaáætlun verði gerð fyrir Reyöarfj., og er tilbúinn til þess, að leggja hart að mér i þvi máli og Alþb. hefur reyndar lagt fram um það sérstaka tillögu i sveitarstjórn. Blm: — Helgi segir það Þórir, að honum sé hálfgerð kvöl i þvi að vera þingamaður. Heldurðu að reyðfirðingum sé kvöl i þvi að hafa hann sem þingmann? Þórir: — Ég tel það ómetanlegt fyrir Reyðarf jörð og reyðfirðinga að hafa þingmann frá staðnum. Hins vegar er það min persónu- lega skoðun að menn mættu leggja eyrun betur við þeim til- lögum og hugmyndum, sem Helgi hefur kynnt mönnum, vitandi það, að staðurinn væri betur sett- ur ef hans ráðum hefði verið frek- ar fylgt en gert hefur verið. —úþ Reyðfiröingar eiga helming I togaranum Hólmanesi SU 1 á móti esk- firöingum og fá fjóörung aflans úr honum og fjóröung afla hins togara eskfiröinga, Hólmatinds. Kynfræösludeildin í Heilsuverndarstööinni: Fræösla og aðstoð varöandi kynferöismál, en fáir virðast vita um deildina Kynfræösludeild var nýlega komiö á fót viö Heilsuverndar- stööina viö Barónsstig. Til Kynfræösludeildarinnar geta menn leitaö eftir fræöslu, einnig ráöleggingum I kyn- ferðismálum, fengiö þungunar- próf, getnaöarvarnir og fleira sem aö þessum málum lýtur. öll þjónusta og fræösla deildarinnar er látin i té án endurgjalds, utan hvaö fólk verður aö greiöa getnaðarvarn- ir. Þjóðviljamaður ræddi nýlega við starfsfólk deildarinnar, en það samanstendur af tveimur læknum sem skiptast á um að .vera til viðtals, hjúkrunarkonu og félagsráðgjafa Heilsu- verndarstöðvarinnar. Guðjón Guðnason, læknir sagði, að engu likara væri en til- vist Kynfræðsludeildarinnar hefði farið framhjá fólki, svo fá- ir leituðu þangað. „Þó er nokkuð um að fólk leiti hingað eftir fræðslu. Unglingar koma hingað nokkuð, einkum stúlkur, sem taka sigþá til tvær eða þrjár og ræða við okkur. Sumar virðast reyndar hræddar um að viö höfum þegar i stað samband við foreldra þeirra, t.d. ef þær biöja okkur um getn- aðarvarnarpillur. Það gerum við hins vegar ekki. Stundum koma foreldrar hingað með dætur sinar og það er raunar heppilegast að geta þannig rætt þessi mál einnig viö forráðamenn unglinga”. Látið þið unglingsstúlkur, kannski 14—15 ára fá piliuna? „Það getur vel verið. Ef viö- komandi hefur haft tiðir i tvö ár eða svo, er ,,á föstu” eða á kær- asta, þá gerum við það, en þó Þessi föngulegu hjú prýða bæk - ing þann sem Kynfræðsiudeild Heilsuverndarstöðvarinnar hef- ur gefið út og fjallar um getnað- arvarnir, hettu, lykkju, smokka og lyf af ýmsu tagi. helst að höfðu samráði við for- eldrana. Við metum málin ein- vörðungu út frá læknisfræði- legu tilliti, en ekki mórölsku”. Starfsfólk deildarinnar sagði, að nokkuð væri um að hjón leit- uðu til deildarinnar varðandi vandamál tengd kynlifi sinu. „I þannig tilvikum er algeng- ast að konan komi og leiti ráða”, sagði Guðjón Guðnason, „og það er ágætt. Best fyndist mér að hvort hjónanna kæmi einu sinni sitt i hvoru lagi, en siðan saman. t samtali getur maður oft komist á snoðir um vandann og bent á ráð til bóta. Það er rétt að taka fram, að fólk þarf ekki að panta hér tima og það þarf enga tilvisun frá heimilislækni”. Má ekki byrja of smátt „Við höfum hugsað okkur ým- islegt varðandi þessa deild i framtiðinni”, sagði Guðjón, „en fjárskortur hrjáir okkur, og svo var kannski rétt að byrja smátt en auka starfsemina eftir þvi sem timar liða. Þó má ekki byrja of smátt. Við hefðum t.d. viljað láta útbúa auglýsingar, plaköt til að dreifa t.d. i skóla, en til þess skortir okkur fé. Ef byrjunin er of smá i sniðum er hætta á að þessi starfsemi logn- ist út af”. Kynfræðsludeildin hefur látið prenta bækling þar sem greint er frá þeim getnaðarvörnum sem nú er til að dreifa og fáan- legar eru. „Það er næsta merkilegt”, sagði læknirinn, hve vanþekk- ing varðandi getnaðarvarnir er tið. Það er fjöldinn allur af kon- um sem aldrei talar um þess háttar hluti, veit ekki af þeim, ræðir þá ekki einu sinni við eig- inmann sinn, fer undan i flæm- ingi ef félagsráðgjafi, hjúkr- unarkona eða læknir spyr um þessa hluti. Furðu margir eru aldir upp i þvi að kymferðismál séu eitthvað ljótt, sem ekki eigi að tala um. Hlutverk þessarar deildar getur verið margþætt, auk þeirrar fræðslu sem fólk getur sótt hingað og aðstoðar, þá væri nauðsynlegt að geta staðið fyrir fræðslunámskeiðum i kynlifs- fræðslu, t.d. fyrir kennara. Þessi deild þarf lika aö safna reynslu, þannig aö hún búi i framtiðinni yfir vissri þekkingu i kynferðismálum, sem siðan má byggja á”. Kynfræðsludeildin er opin á mánudögum frá klukkan 17—19 og föstudögum frá klukkan 10—12 f.h. og hún er til húsa i Heilsuverndarstöðinni, gengið inn um aðalinnganginn við Barónsstig. —GG Hægt gengur með Heilsugæslustöðvar í Árbæ og Breiðholti A borgarstjórnarfundi I siö- ustu viku upplýsti Páll Gisiason, borgarfulltrúi Sjálfstæöis- flokksins, aö teikningar væru nú loks tilbúnar aö heilsugæslustöö i Arbæjarhverfi, en hins vegar ekki aö heilsugæslustöö I Breiö- holti, cn þær munu þó vera komnar nokkuö á veg. Taldi Páll þó, að hægt yrði á næsta ári aö hefja framkvæmdir aö heilsugæslustöð i Breiðholti. Ástæðan til þessarar umræðu var samþykkt heilbrigðismála- ráðs borgarinnar frá 14. mars sl., en þá samþykkti ráðið áætl- un um kostnað við hópstarf lækna i Dómus Medica árið 1975. Stofnkostnaður og breyt- ingar á húsnæði og kaup á nýj- um tækjum er áætlaður 2,5 miljónir króna, og er ákveðið að hefja rekstur eftir þessar breyt- ingar með nýju fyrirkomulagi þann 1. september. Páll taldi, að þrátt fyrir það, að allmargir læknar myndu út- skrifast i ár, væri ekki tryggt að fleiri læknar fengjust til þess að stunda heimilislækningar en hingað til ef ekki yrði bætt úr þeirri starfsaðstöðu sem heimil- islæknum er búin. Taldi hann að Dómus Medica gæti þróast upp i það að verða heilsugæslustöð þegar fram liðu stundir. Vegna þess tima, sem það mun taka að koma upp heilsu- gæslustöð i Breiðholti, hafa yfir- völd verið að leita fyrir sér um leiguhúsnæði fyrir þessa þjón- ustu að sögn Páls. — úþ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.