Þjóðviljinn - 16.04.1975, Qupperneq 3
Miðvikudagur 16. april 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Útvarp ísland
í Kanada
Nýlega tók til starfa í
Winnepeg ný útvarpsstöð
sem útvarpar á mörgum
tungumálum í Manitóba-
fylki.
Um sextíu prósent
ibúanna i fylkinu eru af
öðru þjóðerni en ensku og
frönsku, og því réðst eig-
andi CFMB-stöðvarinnar í
Montreal, sem rekin er á
svipuðum grundvelli, í
þetta fyrirtæki, sem hefur
kostað hann um hálfa mil-
jón dollara til þessa.
Þessi útvarpsstöð mun senda
hálftima dagskrá á islensku i
hverri viku og hefur Guðbjartur
Guðbjartur Gunnarsson.
Gunnarsson.sem nú starfar hjá
Manitóbaháskóla, umsjón með
dagskránni. Guðbjartur fluttist til
Kanada fyrir tveimur árum, en
starfaði áður við islenska
sjónvarpið. Þar sem stöðin er
rekin fyrir auglýsingafé eingöngu
verður umsjónarmaður hverrar
dagskrár að sjá sjálfur um söfnun
auglýsinga i sinn þátt, enda hlýt-
ur hann engin önnur laun en hluta
af auglýsingagjaldinu. Blaðið
Lögberg Heimskringla hvetur
lesendur sina til þess að styrkja
vel frumkvæði Guðbjarts, þannig
að hægt verði að halda islensku
dagskránni, Útvarp Island,
myndarlega úti. Fyrstu þætti
Guðbjartar var útvarpað mið-
vikudaginn 9. þessa mánaðar. Þá
ræddi hann við Harald Bessason,
prófessor i islensku við
Manitóbaháskóla, Dr. Wilhelm
Kristjánsson, sagnfræðing og
Stefán Stefánsson, forseta Þjóð-
ræknisfélags Islands i Vestur-
heimi.
Atvinna ■ Atvinna
Deilt nm hávaða
í mjólkurbúum
Lausar stöður
Eftirtaldar dósentsstöður I verkfræðiskor verkfræði- og
raunvfsindadeildar Háskóla Islands eru lausar til um-
sóknar:
Dósentsstaða i vélaverkfræði. Dósentinum er ætlað að
starfa á sviöi rekstrarfræði.
Dósentstaða I rafmagnsverkfræði. Fyrirhugað er að rann-
sóknir og aðalkennslugreinar verði á sviði eins eða fleiri
þessara greinafiokka: a) simafræðigreina, b) merkja-
fræðigreina og c) rásafræðigreina.
Dósentsstaða I byggingarverkfræði. Fyrirhugað er að
rannsóknir og aðalkennslugreinar verði á sviði tveggja
eða fleiri þessara greinaflokka: a) efnisfræði byggingar-
efna, b) húsagerðar og c) hagnýtrar buröarþolsfræði.
Umsóknarfrestur er til 15. mai 1975.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur um dósentsstöður þessar skulu láta fylgja
umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau, er
þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil
sinn og störf.
Tvær siðasttöldu dósentsstöðurnar, I rafmagnsverkfræði
og byggingarverkfræöi, voru áöur auglýstar I Lög-
birtingablaði nr. 19/1975 með umsóknarfresti til 1. þ.m. en
umsóknarfrestur er hér með framlengdur til framan-
greinds tima.
Menntamálaráðuneytið,
14. april 1975.
Lausar stöður
Eftirtaldar þrjár lektorsstöður i heimspekideild Háskóla
tslands eru lausar til umsóknar:
Lektorsstaöa I bókasafnsfræði,
lektorsstaða I uppeldisfræðum og
lektorsstaða i frönsku.
Mjólkurf ræöingar og
annað starfsfólk mjólkur-
búa, hafa boðað verkfall
frá og með næsta mánu-
degi 21. apríl.
Kjaradeilu þeirra og
Vinnuveitendasambands-
ins og Vinnumálasam-
bands SÍS var fyrir nokkru
vísað til sáttasemjara, og
var fundur deiluaðila hjá
sáttasemjara á mánudag-
inn. Ekkert miðaði í sam-
komulagsátt, en nýr fund-
ur verður á morgun.
„Deilan stendur fyrst og fremst
um hávaðavarnir á vinnustöðum.
Og það eru ekki mjólkurfræðing-
ar einir sem eiga i þessari deilu,
Verkalýðsfélagið Þór á Selfossi er
lika aðili að kröfugerð okkar,
vegna starfsfólks Mjólkurbús
flóamanna, þeirra sem ekki eru
mjólkurfræðingar”, sagði Þórar-
inn Sigmundsson, sem er i
samninganefndinni fyrir
mjólkurfræðinga.
„Starfsfólkið hér hefur verið
heyrnarmælt, þ.e. allir mjólkur-
fræðingarnir og flestir aðrir
starfsmenn hér. Sú mæling var
gerð vegna heyrnarmælingar
sem Heilsuverndarstöðin stóð
fyrir, bankamenn og
járniðnaðarmenn voru hávaða-
mældir og niðurstöður bornar
saman. Við hjá Mjólkurbúinu
vorum með i þessu og komum
mun verr út en járnsmiðir.
Heyrnartap af völdum hávaðans
hérer geigvænlegt”, sagði Þórar-
inn.
„Kröfur okkar eru bundnar við
hávaðavarnir á vinnustað. Það
verður að koma i veg fyrir þetta
— reyndar verður það ekki gert á
næstunni, þvi það þyrfti að hanna
ný hús. Við förum þvi fram á
styttan álagstima, styttri vinnu-
tima, eins og gert hefur verið hjá
öðrum starfshópum. Þessar
heyrnarhlifar sem viða eru
notaðar eru engin lausn hér.
Maður þolir þær illa, og svo koma
þær ekki að neinu endanlegu
gagni”. —GG
NAUMUR SIGUR
hjá stúdentum við HI yfir verkamönnum í Dagsbrún í skák
Um siðustu helgi háðu stúdent-
ar við Hí og Verkamannafélagið
Dagsbrún með sér skákkeppni á
23 borðum og svo fóru leikar að
stúdentar sigruðu 25 1/2 gegn 20
1/2.
Tefldar voru tvær umferðir.
Fyrri umferðina unnu stúdentar
15 1/2 gegn 7 1/2 en siðari um-
ferðina unnu verkamenn 13 gegn
10. Báðir þessir aðilar eiga mjög
harðsnúnum sveitum skákmanna
á að skipa. Mun hvor aðilinn um
sig geta teflt fram 25 manna sveit
sem skipuð yrði ekki lægra sett-
um skákmönnum en i meistara-
flokki.
Sem dæmi má nefna að á 1.
borði tefldi Bragi Kristjánsson
fyrir H1 en gamla kempan
Benoný Benediktsson fyrir Dags-
brún. Og á 2. borði tefldi Gylfi
Magnússon fyrir Dagsbrún en
Kristján Guðmundsson fyrir HI.
A 3. borði tefldi Bragi Halldórs-
son fyrir Ht en Sævar Bjarnasoi
fyrir Dagsbrún.
Skákstjóri var Ólafur H. óíafs-
son. Var rætt um það eftir keppn-
ina að gera það að árlegum við-
burði I skáklifinu að þessir aðilar
ættust við.
Menn höfðu orð á þvi eftir
þessa keppni að sennilega gæti
það óviða gerst i heiminum að há-
skóli viðkomandi lands tefldi við
verkamannafélag og hvað þá að
munurinn yrði svo litill sem raun
varð á i þessari keppni.
Guðmundur J. Guðmundsson
varaform. Dagsbrúnar sagði eftir
keppnina er hann þakkaði
stúdentum fyrir skemmtilega og
drengilega keppni að þeir Dags-
brúnarmenn tækju þessum ósigri
ekki verr en það að þeir ætluðu
ekki að kæra keppnina að sið
iþróttamanna. Hinsvegar þætti
sér augljóst mál að stúdentar
færu létt með próf sin við skólann
fyrst þeim tókst að sigra Dags-
brún i skák, slikt gerðu engir
skussar.
—S.dór
Yísindasjóður Dýra
læknafélags Islands
Árið 1968 var stofnaður
Visindasjóður Dýralæknafélags
Islands, fyrir forgöngu Guð-
brandar E. Hliðar, dýralæknis.
Sjóðurinn var stofnaður til
minningar um þau hjónin
Guðrúnu Louisu Hliðar og Sigurð
E. Hliðar, yfirdýralækni, en
Sigurður gekkst fyrir stofnun
Dýralæknafélagsins árið 1934 og
var formaður þess um langa hrið.
Hlutverk þessa sjóðs er að
styrkja islenska dýralækna til
framhaldsnáms eða visindanáms
á verkssviði dýralækna, en einnig
má veita verðlaun úr sjóðnum
fyrir sérstakar rannsóknir.
Sjóðurinn hefur eflst vonum
fyrr, svo að nú er unnt að veita
styrki úr honum árlega sam-
kvæmt skipulagsskrá.
Þann 4. april var úthlutað úr
sjóðnum fyrsta styrknum, en
þann dag hefði Sigurður Hliðar
orðið niræður, ef honum hefði
enst aldur.
Styrkinn, að upphæð kr. 100.000,
hlaut Þorsteinn Ólafsson, dýra-
læknir, en hann stundar nú fram-
haldsnám til licentiatsprófs við
dýralæknaháskólann i Osló.
Þorsteinn leggur einkum stund á
þau fræði sem fjalla um ófrjósemi
húsdýra og búfjársæðingar, en
eftir þvi sem búf járrækt eflist hér
á landi verða mál þessi sifellt
þýðingarmeiri fyrir fjárhagslega
afkomu bænda.
Þar sem brýn þörf er fyrir
aukna sérþekkingu og rannsóknir
á þsssu sviði taldi sjóðsstjórnin
rétt að veita Þorsteini styrkinn að
þessu sinni.
Að þvi er varðar stöðuna I uppeldisfræðum skal tekið
fram, að endurskoðun á skipan kennslu og rannsókna I
uppeldisfræðum, m.a. aðþvier varðar samstarf og verka-
skiptingu stofnana á þessu sviði, kann að hafa áhrif á
framtiðarvettvang þessarar iektorsstööu.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir um framangreindar lektorsstöður, ásamt ýtar-
legum uppiýsingum um námsferii og störf, skuiu hafa
borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vik, fyrir 15. mai n.k.
Stöður þessar voru áður auglýstar I Lögbirtingabiaði nr.
19/1975 með umsóknarfresti til 1. þ.m. en umsóknarfrest-
ur er hér með framlengdur til framangreinds tlma.
Menntamálaráðuneytið, \
14. april 1975.
Laust embætti
er forseti Islands veitir
Prófessorsembætti I byggingarverkfræði I verkfræðiskor
verkfræði-og raunvlsindadeildar Háskóla islands er laust
til umsóknar. Fyrirhugað er að rannsóknir og aðal-
kennslugreinar verði á sviði fræðilegrar burðarþolsfræði
og aflfræði fastra efna.
Umsóknarfrestur er til 15. mai n.k.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur um prófessorsembætti þetta skulu láta
fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau,
er þeir hafa unnið, ritsmlöar og rannsóknir, svo og náms-
feril sinn og störf.
Embætti þetta var áður augiýst I Lögbirtingablaði nr.
19/1975 með umsóknarfresti til 1. þ.m. en umsóknarfrest-
ur er hér með framlengdur til framangreinds tlma.
Menntamálaráðuneytið,
14. april 1975.
Laus staða
Dósentsstaöa I svæfingafræði við læknadeild Háskóla ts-
lands er laus til umsóknar. Staða þessi er hlutastaða og fer
um veiting hennar og tilhögun samkv. ákvæðum 2. gr.
laga nr. 67/1972, um breyting á lögum nr. 84/1970, um
Háskóla tslands, m.a. aö þvi er varðar tengsl við sérfræöi-
störf utan háskólans. Gert er ráð fyrir, að væntanlegur
kennari hafi jafnframt starfsaðstöðu á sjúkrahúsi I
Reykjavik.
Umsóknarfrestur er tii 10. mai n.k.
Laun samkv. gildandi reglum um launakjör dósenta I
hlutastöðum I læknadeild i samræmi við kennslumagn.
Umsækjendur um dósentsstöðu þessa skulu láta fylgja
umsókn sinni rækilega skýrslu um vlsindastörf þau, er
þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil
sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
8. aprll 1975.