Þjóðviljinn - 16.04.1975, Side 6

Þjóðviljinn - 16.04.1975, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. april 1975 Náttúruverndarráð HÆTTAN EKKI VERULEG ef allar tiltœkar ráð- stafanir eru gerðar „Náttúruverndarráð þakkar bréf yðar frá 19. febrúar 1975 varðandi fyrirhugaða kisil- járnverksmiðju i Hvalfirði og þau gögn, er þvi fylgdu. Með tilliti til þeirra upplýsinga er þar koma fram og annarrar vitneskju, sem Náttúruvernd- arráð hefur aflað sér um hlið- stæðan iðnrekstur, m.a. á Norðurlöndum, vill ráðið koma á framfæri við yður nokkrum ábendingum og mati á vandamálum af þeim iðn- rekstri, sem hér um ræðir. Náttúruverndarráði er ljóst, að öllum iðnrekstri fylgir ein- hver mengun, þótt beitt sé fullkomnasta hreinsibúnaði, sem völ er á, og þekking á skaðsemi iðnaðarmengunar er enn takmörkuð. Verður þvi ætið nokkur óvissa, er meta skal áhrif slikrar mengunar, og þau áhrif geta verið háð staðbundnum aðstæðum. Jafnfr. liggur fyrir að tækni til varnar mengun frá iðnaði er enn m jög i þróun og iðnaður misjafnlega á vegi staddur i þessu tilliti. Upplýsingar um stöðu mála kunna þvi oft að virðast mótsagnakenndar. Reynsla af áhrifum af völdum iðjumengunar er takmörkuð hérlendis, svo að menn verða að styðjast við þekkingu og upplýsingar erlendis frá, er nýjar iðngreinar koma til sögu. Aðstaða til eftirlits og sjálfstæðra rannsókna vegna mengunaráhrifa hefur einnig verið af skornum skammti og þarf að ráða bót á hvoru tveggja, ekki sist ef haldið er áfram á braut stóriðju og áður óþekkts iðnrekstrar i landinu. Ber sérstaklega að hafa i huga, að lifriki landsins býrvið sérstæðar aðstæður og al- mennt verður að gera ráð fyr- ir, að islensk vistkerfi séu við- kvæm fyrir mengunaráhrif- um vegna norðlægrar legu landsins og einangrunar. Varðandi fyrirhugaða kisil- járnverksmiðju i Hvalfirði er það mat Náttúruverndarráðs að hættan á skaðlegum áhrif- um á lifriki vegna mengunar af hennar völdum sé ekki veruleg ef allar tilteknar var- úðarráðstafanir eru gerðar, og minni en af öðrum málm- blendiiðnaði, svo sem af fram- leiðslu mangan- og krómjárn- blendis. Veldur þvi fyrst og fremst annað hráefni svo og annar tæknibúnaður til meng- unarvarna. Þrátt fyrir ára- tugareynslu af mikilli og hvimleiðri rykmengun frá kis- iljárnbræðslum i Noregi hafa að sögn umhverfisyfirvalda þar (Statens Forurensnings- tilsyn, miljödepartementet) ekki komið fram neinar upp- lýsingar, sem benda til þess að slik mengun hafi haft skaðleg áhrif á gróður eða dýralif. Á hinn bóginn var það einnig upplýst að það hafði ekki verið sérstaklega rannsakað, og að sjálfsögðu höfum við ekki reynslu af slikri starfsemi hér á landi. Með þeim tæknibúnaði til rykhreinsunar, sem þróað- ur hefur verið á allra siðustu árum, hafa skapast möguleik- ar á stórfelldum úrbótum frá þvi sem áður var til varnar rykmengun út frá kisiljárn- verksmiðjum og jafnframt verið unnt að bæta verulega innri starfsskilyrði i slikum verksmiðjum. Þó er aftöppun af bræðslu- ofnum enn ófullkomin og fylg- ir henni nokkur mengun i vinnslusölum, sem áherslu þarf að leggja á að dregið verði úr. Með pokasium hefur tekist að taka fyrir sýnilegan rykút- blástur frá bræðsluofnunum, cn þá kemur upp sá vandi að iosna á viðunandi hátt við ryk- ið. sem þannig safnast fyrir. Iláðið hefur um það upplýs- ingartæknimanna f Noregi, að endurnýting sé miklum vand- kvæðum háð og hafi afköst ofnanna, og þar meö orkunýt- ing, lækkað um 8-10%, þegar það hafi verið reynt, og jafn- framt safnist fyrir úrgangs- efni i þvl ryki, sem fer I endur- nýtingarhringrás. Virðist raunar auðséö, að fullkomin endurnýting sé tæknilega og fræðilega óhugsandi og spurn- ingin aðallega hversu mikið sé hægt að endurnýta og hversu mikið verði að losna við á ann- an hátt og þá hvernig. Um þetta atriði sýnist náttúrur- verndarráði ekki hafa borist nægiiega skýrar upplýsingar að þvi er fyrirhugaða verk- smiðju i Hvalfirði varðar. (Leturbreyt. Þjóðviljans.). Mengun af völdum snefil- efna,svosem málmsambanda i útblæstri, virðist af fyrir- liggjandi gögnum ekki likleg til að valda tjóni, en gæti þó 9. april sl. sendi náttúru- verndarráö frá sér álit á máÞ hlendiverksmiöjunni i Hval- firði. Alitiö fékk heilbrigðis- eftirlit rikisins, en afrit af álit- inu iðnaðarráöuncytið og hoil- brigðisráðuneytið. I bréfi sinu til heilbrigðis- ráðuneytisins óskaði náttúru- verndarráð eftir náinni sam- vinnu við ráðuneytið og heil- brigðiseftirlitið um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis handa málmblendiverksmiðj- unni samkvæmt reglugerð þeirri sem Magnús Kjartans- son, fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra, setti um að fyrir- tæki yrðu að afla sér starfs- leyfis hjá heilbrigðiseftirlitinu áður en starfræksla hæfist. Morgunblaðið hefur þegar (á sunnudag) birt meginhiuta álitsgerðar náttúruverndar- ráðs, en Þjóðviijinn birtir álit- ið hér á eftir i heild: Skýringa óskað á því hve mikið af föstum úrgangs- efnum losnar frá verksmiðj- unni og hvernig það gœti orðið samkvæmt ofansögðu skapað vandamál vegna sams;öfnun- ar við endurvinnslu rykisins i málmbræðslunni og þvi nauð- synlegt að fylgjast vel með þeim þætti svo og efnainni- haldi allra hráefna, sem notuð eru. Önnur föst úrgangsefni, svo sem gjall og steinefni úr deigl- um, eru ekki i þeim mæli að valda þurfi erfiðleikum, sé frá þeim gengið með eðlilegum hætti og jafnframt fylgst með efnasamsetningu þeirra og á- hrifum frá þeim við geymslu- svæði. Nokkur loftmengun með brennisteinsdioxiði, SO 2, virðist óumflýjanleg með nú- verandi vinnslutækni en eðli- legt er að gera kröfur um, að henni sé haldið i lágmarki með kröfum til hráefnis. Náttúruverndarráð telur miklu varða að fyrirtækið verði frá byrjun búið full- komnustu mengunarvörnum sem völ er á, og strangt eftirlit verði haft með viðhaldi og stýringu þess búnaðar með til- liti til umhverfisáhrifa frá rekstrinum, sem kosti slikt eftirlit og allar nauðsynlegar úrbætur vegna tjóna, sem rekja má til fyrirtækisins. Náttúruverndarráð telur mikilsvert að vistfræðileg rannsókn á umhverfi verk- smiðjunnar ásamt nauðsyn- legum efnarannsóknum hefj- ist sem fyrst, þannig að áreið- anlegar niðurstöður varðandi umhverfisaðstæður liggi fyrir áður en rekstur hefst. Einnig leggur ráðið áherslu á að slikri alhliða könnun verði fram haldið skipulega eftir að rekstur hæfist, i samræmi við áætlun er Náttúruverndarráð lætur i té. Náttúruverndarráð tekur á- kveðið undir þá kröfu Heil- brigðiseftirlitsins, að dregið verði úr rykmengun frá hrá- efnisflutningi til verksmiðj- unnar með aðfærslu á lokuð- um færiböndum og að komið verði upp hlífum til varnar foki frá hráefnisbingjum. Strangt eftirlit verði með rykhreinsibúnaði (pokasium o.fl.) og tiðar mælingar gerðar á ryki, sem berst i andrúms- loft, bæði magni þess og efna- samsetningu. f rekstrarleyfi verði gerðar bindandi kröfur um lágt brennisteinsinnihald koks og kola, sem notuð eru við vinnsl- una til að draga úr brenni- steinsdioxiði i útblæstri. Náttúruverndarráði verði gerð grein fyrir þvi hversu mikið af föstum úrgangsefn- um verði að losna við frá verk- smiðjunni og með hvaöa hætti þaðverði gert. Komi til álita að efnið verði losað eða nýtt úti við, verði.slikt einungis heim- ilað að undangenginni athug- un á snefilefnasamsetningu ryksins og með samþykki Náttúruverndarráðs hverju sinni og verði þetta gert að skilyrði við veitingu rekstrar- leyfis. Náttúruverndarráð telur af- ar mikilsvert að sem best samvinna megi takast við Heilbrigðiseftirlit rikisins til varnar gegn mengun almennt og af völdum þess fyrirtækis, sem hér er f jallað um sérstak- lega, svo og við aðra aðila, er hlut eiga að máli, þar á meðal stjórn fyrirhugaðrar klsiliárn* verksmiðju. Ráðið bendir á, að meira samhengi er á milli innra umhverfis vinnustaðar- ins og þar með starfsskilyrða þeirra er þar vinna, og áhrifa á náttúrulegt ytra umhverfi en virðast kann i fljótu bragði. Um frágang við fyrirtækið og hönnun mannvirkja og skipu- lag mun ráðið að öðru leyti fjalla sérstaklega. 1 sambandi við innra um- hverfi kisiljárnverksmiðju vill Náttúruverndarráð skýra frá þeim upplýsingum, sem feng- ust frá forráðamönnum Fiskaa Verk i Kristiansand, er full- trúar ráðsins voru þar nýlega á ferð, að um 70% starfs- manna i bræðsluskála hefðu skerta heyrn, vegna sóns, sem bærist frá rafbræðsluofnun- um.Sónn' þessi er litt heyran- legurrog hefur reynst erfitt að fá starfsmenn fyrirtækisins til að bera heyrnarhlifar. Er þessum upplýsingum hér með komið á framfæri við Heil- brigðiseftirlit rikisins til at- hugunar. Náttúruverndarráð óskar náinnar samvinnu við Heil- brigðiseftirlitið og Heil- brigðisráðuneytið um það, hvaða skilyrði verða sett fyrir veitingu starfsleyfis skv. reglugerð nr. 164/1972. Þá telur Náttúruverndarráð að ýmsa lærdóma beri að draga af meðferð þessa verk- smiðjumáls hingað til með til- liti til umhverfisþátta og stofnanalegrar afgreiðslu, svo og aðstöðu og tengsl þeirra stofnana, er um þá hlið mála eiga að fjalla lögum samkvæmt. Mun ráðið álykta sérstaklega um það efni siðar, og vill eiga samvinnu við Heil- brigðiseftirltið um heppilegar vinnuaðferðir varðandi þess háttar mál. Með vinsemd og virðingu, Eysteinn Jónsson, formaður, Árni Reynisson, fram- kvæmdastjóri.” 1 bréfi til iðnaðarráðuneyt- isins óskaði náttúruverndar- ráð sérstaklega eftir athygli þessvarðandi feitletraða kafl- ann hér á udnan. Biður ráðið um að fá svo fljótt sem auðið er upplýsingar um það frá ráðinu hversu mikið af föstum úrgangsefnum verði að losa frá verksmiðjunni og með hvaða hætti það gæti oröið. Björn Bjarnason: Nokkur orð til Agnars Guðnasonar og J.H. Þau fáu orð sem ég skrifaði i Þjóðviljann 10. apr. sl. hafa orðið tveim mönnum tilefni til and- svara, Agnari Guðnasyni i Þjóð- viljanum og einhverjum J.H. i dálki Timans ,,Á viðavangi”. Agnar ræðir málin á málefnaleg- um grundvelli en það verður naumast sagt um J.H. Ég er algerlega sammála Agn- ari um að vits sé þörf i vangæfu og einmitt þessvegna skrifaði ég þessi orð min i Þjóðviljann að ég taldi að með niðurgreiðslu á á- burðarverðinu væri ekki vitlega að verki staðið. Ég er þeirrar skoðunar að allt frá gerð 6-mannanefndar sam- komulagsins og til þessa dags hafi stefna okkar i málefnum landbúnaðarins verið ein óslitin vangæfa. Ég var þessu sam- komulagi andvigur þegar i upp- hafi þó mig óraði þá ekki fyrir þvi að það yrði slikur skaðvaldur, sem raun er nú á orðin. Það gat ekki leitt til annars en ófarnaðar fyrir landbúnaðinn að létta þeirri skyldu af bóndanum að hann yrði að reka bú sitt á skynsamlegan og hagsýnan hátt ef hann vildi halda velli, en það var það sem gert var með 6-mannanefndar samkomu- laginu, þegar bóndanum á hinu svokallaða meðalbúi eru tryggð- ar meðaltekjur viðmiðunarstétt- anna. En þetta svokallaða meðal- bú er svo litið að afrakstur þess verður að reikna á svo óhæfilega háu verði að engri átt nær, til þess að ná tekjum viðmiðunarstétt- anna. Það er þessi rangi grund- völlur sem óförunum veldur. Reiknað út frá honum get ég fall- ist á það með Agnari að verð- mætasköpun þess fólks, sem að landbúnaði vinnur yrði varla meiri i alvöru atvinnurekstri. Þá hefir þessi rangi grundvöll- ur orðið til þess að stærri búin hafa rakað til sin gróða, sem um munar. Þeim, sem kunna að telja mig fara hér með fleipur vil ég ráðleggja að blaða vandlega i fasteignaskrá Reykjavikur. Agnar heldur þvi fram að bilið milli bænda og viðmiðunarstétt- anna hafi farið vaxandi, bændum i óhag. Um það er ég á annarri skoðun. Má i þvi sambandi benda á, að ekki voru liðnir nema tveir dagar frá gerð kjarasamning- anna 26. febrúar 1974 þar til að bændur höfðu fengið hækkun á sinum framleiðsluvörum. Þessa hækkun áttu svo viðmiðunarstétt- irnar að bera bótalaust næstu þrjá mánuði, en vegna þess að visitalan var tekin úr sambandi 1. júni, bera þær þessa hækkun bótalaust enn þann dag i dag. Ég veit ekki betur en allar hækkanir á rekstrarvörum bænda hafi komið inn i verðlagið jafn óðum en ég hefi minna orðið var við að hallarekstur heimilanna hafi haldið vöku fyrir valdhöfunum. Þá nokkur orð til viðavangs- hlaupara Timans, J.H. Meginhluti greinar hans snertir mig persónulega, þvi hirði ég ekki að svara en um þann hluta henn- ar, sem varðar umrætt málefni vil ég segja þetta: Hann, J.H., eins og margir aðr- ir, sem telja sig málssvara land- búnaðarins vilja halda þvi fram að allar niðurgreiðslur á verði landbúnaðarva séu gerðar til hagsbóta fyrir neytendur og séu raunverulega styrkur til þeirra, en þar er ég algerlega á öðru máli. Ég tel niðurgreiðslurnar eingöngu styrkveitingu til land- búnaðarins, neytandanum til verulegs óhagræðis. Með niður- greiðslunum er verið að reyna að blekkja verðskyn hans, telja hon- um trú um að hann sé að kaupa vöru sem sé honum hagstæðari en önnur, láta hann gleyma þvi að við búðarborðið greiðir hann ekki vöruna að fullu, lokagreiðslan kemur svo með skattseðlinum. Það er ekki einu sinni svo að neytandinn hafi frjálst val um hvaða landbúnaðarvörur hann kaupir, vilji hann verða þessara „hlunninda” aðnjótandi, vilji hann t.d. heldur nautakjöt en rollukjöt, eru „hlunnindin” af honum tekin; rollukjötið skal i hann. J.H. vill jafna saman niður- greiðslum á áburðarverði og oliu- styrknum sem veittur er vegna húsakyndingar. Sá styrkur er greiddur i peningum til notanda eftir þar um gildandi reglum. Væru niðurgreiðslur á verði land- búnaðarvara og áburði styrkur til neytenda ætti vitanlega sama regla að gilda um þær niður- greiðslur. Allar þær upphæðir er nú fara til niðurgreiðslna á land- búnaðarvörum væru þá greiddar i peningum til neytandans og væri honum i sjálfsvald sett hvaða landbúnaðarvörur hann vildi kaupa, eða þá hverja aðra vöru sem hann teldi sér betur henta. Niðurgreiðslur landbúnaðarvara eru orðnar það háar upphæðir að myndi nema nokkrum þúsundum króna á hverjum mánuði til hvers neytanda i landinu, sem hann þá fengi til frjálsra afnota, án allrar skyldu til að kaupa eingöngu viss- ar tegundir. Ég fæ ekki betur séð en að þeir, sem i alvöru telja niðurgreiðsl- urnar styrk til neytenda ættu að geta fallist á þetta fyrirkomulag. Björn Bjarnason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.