Þjóðviljinn - 16.04.1975, Page 7
Miftvikudagur 16. april 1975 ÞJÓÐVILJINN—SIÐA 7
Alþýðubandalag Flj ótsdalshéraðs:
Merkur fundur
uiii landbúnað
A skirdag boftafti Alþýftubanda7
lagsfélag Fljótsdalshéraðs til
fundar um landbúnaðarmál I
Valaskjálf á Egilsstöðum. Frum-
mælendur voru Stefán Sigfússon
búfræftikandidat, Páll Sigur-
björnsson héraðsráðunautur, Jón
St. Árnason bóndi Finnsstöðum,
Guðmundur Beck bóndi Kolla-
leiru og Helgi Seljan alþingis-
maður. Einnig kom Lúðvik
Jóscfsson alþingismaður á fund-
inn. Fundurinn tókst í alla staði
vel og var fjölsóttur, 68 manns.
Stefán Sigfússon gerði grein
fyrir stefnu AB i málum landbún-
aðarins, og kom margt athyglis-
vert fram.
Páll Sigurbjörnsson héraðs-
ráðunautur, flutti fróðlegt erindi
um þróun landbúnaðar á Austur-
landi sl. 10—15 ár i ræktun, bygg-
ingum og einnig hvaða breytingar
hafa orðið á bústærðum. Páll
skýrði einnig frá könnun sem
ráðunautar hafa gert um áætlað-
ar framkvæmdir i landbúnaði
næstu 5 ár á Austurlandi, áætlanir
um fjölgun búfjár, nýbyggingar
og vélakaup. Einnig ræddi Páll
vanda nokkurra byggðarlaga þar
sem byggð er í hættu vegna fá-
mennis.
Jón St. Árnason og Guðmundur
Beck ræddu ókosti einyrkjabú-
skapar, og nefndu þar ýmsa ó-
kosti þessa búskaparforms t.d. ó-
eðlilegt vinnuálag sem umfram
er aðrar vinnustéttir i landinu.
Hvöttu þeir bændur til meiri sam-
vinnu i búrekstri.
Helgi Seljan alþ.m. talaði um
lánamál landbúnaðarins og þá
einkum Stofnlánadeildina. Lýsti
hann útlánum siðustu ára og láns-
beiðnum sem nú liggja fyrir,
skiptingu lánsfjár milli búgreina
og vinnslustöðva. Hjá Stofnlána-
deildinnieru nú umsóknir að fjár-
hæð 1,9 miljarður, en ráðstöf-
unarfé fyrir niðurskurð 75.0 mil-
jónir.
Góð þátttaka var i frjálsum
umræðum að loknum framsögu-
erindum, og margt fróðlegt kom
fram, m.a. setti Lúðvik JósefsSon
fram hugleiðingar út frá hug-
renningum manna um stóriðju á
Reyðarfirði. Hvaðan kæmi vinnu-
aflið, úr landbúnaði, .iðnaði og
sjávarútvegi á Austurlandi?
Þjóðviljinn mun á næstunni
birta erindi og ræður sem fluttar
voru á landbúnaðarráðstefnu Al-
þýðubandalagsfélags Fljótsdals-
héraðs.
Eins og menn vita eru
nú háðar harðar deilur í
leiðurum Tímans og
Morgunblaðsins um sam-
skipti íslands við Sovét-
ríkin: Morgunblaðið er
mjög áfram um það/ að
rússar muni ætla sér að
innlima Island á sitt
áhrifasvæði með því að
sýna framsóknarleiðtog-
um gestrisni,. og fylgja
þessu margar dylgjur og
hæpnar fullyrðingar.
Eru deilur þessar næsta fróð-
legar, en fyrir utan hefðbundna
móðursýki Morgunblaðsins eiga
þær rætur til þess að rekja, að
áhrifamenn hjá ihaldinu telja
það sérstaka móðgun við flokk-
inn, að hann skuli ekki fara með
utanrikismál og þá viðskipta-
mál.
1 leiðara i Timanum i gær hef-
ur Jóni Helgasyni ritstjóra
blöskrað svo málflutningur
Morgunblaðsins að hann segir
sem svo:
„Mun slik aðdróttun (um
njósnaferil nýs sovésks sendi-
herra) fáséð við þær kringum-
stæður i málgagni sjálfs for-
sætisráðherrans, hvar sem
leitað er i siðuðum löndum. Slikt
er að sjálfsögðu ber móðgun af
grófasta tagi og gæti helst gerst
i Úganda.”
Svo mörg eru þau orð i
Timanum töluð. Og fylgja nú
með til skrauts myndir af þeim
Idi Amin Ugandaforseta, sem
sannarlega hefur átt met i
dólgslegum talsmáta og Styrmi
Morgunblaðsritstjóra.
Lærisveinninn
Skiptaverðmæti
loðnuafla
Skiptaverftmæti loftnuaflans i
ár veröur þriöjungi minna en var
I fyrra, en þá var þaö tvö þúsund
miljónir, en reikna má meft að i
ár verfti þaö ekki meira en tólf til
þrettán hundruft miljónir.
Þessar upplýsingar voru birtar
i útvarpinu á þriðjudagskvöldið.
Þar var einnig sagt að meðal-
hásetahlutur á vertiðinni nú væri
160 þúsund á mánuði með orlofi,
hæsta skipi, eða skipi með 10
þúsund lestir. Trygging háseta er
hins vegar aðeins 70.102 kr. pr.
mán.
Þessar tölur útvarpsmanna eru
áætlaðar og fengnar þannig, að
verð til báts, sem hefur fengið
meðalafla, er áætlað að hafi verið
2,36 krónur fyrir kilóið af loðnunni
að viðbættum einhverjum
en um 320 þúsund á mánuði á
greiðslum úr flutningasjóði, en
hins vegar 2,50 kr. fyrir kilóið hjá
aflahæstu skipum að uppgefinni
þeirri forsendu að um stórt skip
sé að ræða, sem fái méiri
greiðslur úr flutningasjóðnum.
Þá sagði orðrétt i útvarps-
fréttinni:
„Aflinn á loðnuvertiðinni var i
kvöld orðinn 387.590 lestir og
skiptaverð þess afla 917 miljónir
og sjö hundruð þúsund, þar með
taldar 42 miljónir króna úr
flutningasjóði.
1 fyrra nam heildaraflinn 460
þúsund lestum og vantar nú
rúmlega 70 þúsund lestir upp á að
ná þeim afla. Skiptaverð heildar-
aflans var i fyrra um 2 þúsund
miljónir króna. Náist sami afli á
þessari vertið, verður skiptaverð
aflans um þriðjungi minni en i
fyrra, eða tólf til þrettán hundruð
miljónir króna. Kaup sjómanna á
loðnuvertiðinni verður þvi nálægt
þriðjungi lægra i krónutölu nú en i
fyrra...”
Þá var einnig fjallað um verð-
mæti fiskafurða i sjónvarpinu
sama kvöld, og kom þar fram, að
verðmæti þorskaflans það sem af
er árinu er helmingi meira en
loðnunnar.
—úþ
Giftu þig eða
Danska kirkjumálaráðuneytið
hefursett presti einum þá úrslita-
kosti að annað hvort gifti hann sig
eða hann verði sviptur kjóli og
kalli. Ástæðan fyi ir þessu er sú að
presturinn hefur um nokkurt
skeið búið i óvigðri sambúð með
konu og einu barni þeirra.
Þetta gerðist i tið fyrri stjórnar.
Núverandi kirkjumálaráðherra
hefur dregið i land og óskað eftir
segðu upp!
almennri umræðu um sambúðar-
mál danskra klerka. Biskupar
landsins hafa lýst sig samþykka
úrslitakostum fyrrverandi ráð-
herra. En prestar landsins eru
ekki sammála sinum yfirboður-
um. Til dæmis hefur formaður
prestafélags landsins sagt að við-
komandi prestur og sambýlis-
kona hans hafi allan rétt til að
ákveða sjálf hvaða sambýlisform
þau búa við.
taoasaaa 3
JlTI d tl
AUGLYSING
UM BREYTT
SÍMANÚMER
Fró 14. april er símanúmer vort
28144
Öryggiseftirlit ríkisins