Þjóðviljinn - 24.04.1975, Page 12

Þjóðviljinn - 24.04.1975, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. april 1975. Hafsteinn Hafliöason viröir fyrir sér þessi eintök af „Alþýöugreni” sem þeir I Peking sendu garöinum I Reykjavik. Er vorið í alvöru komið? Er að þessu sinni óhætt að treysta almanakinu, fagna sumarkomunni á sumar- daginn fyrsta? Skilja úlpuna eftir heima og spóka sig léttklæddur á götum úti eða jafnvel gægjast eftir vorgróðri úti í garði? Það var hlýtt í veðri í Reykjavík á föstudaginn fyrir;síðustu helgi,og Þjóð- viljamenn fóru út til að reyna að fá spurningunni um vorkomuna svarað. Kannski hefði verið meira vit að spyrja veður- fræðing en garðyrkju- mann. Samt völdum við garðyrkjumann, vegna þess að við imynduðum okkur að í skarkala og mengun bæjarlifsins, væru það helst garðyrkjumenn sem varðveittu þá taug sem bindur manninn við gróðurmoldina og hefðu kannski samband við náttúruna eftir þeirri taug. Er vorið komið? spurðum við Hafstein Haf- liðason, garðyrkjumann í Grasgarðinum i Laugar- dalnum. Grasgarðurinn f Laugardal er sérstaklega virðuleg visinda- stofnun, þar sem geðgóðir sér- fræðingar reika milli plantnanna, hagræða þeim, fylgjast með vexti og viðgangi og tala til gróðursins, þvi að eins og allir vita þurfa blóm og græðlingar tiltal og tónlist, eigi vel að vera. Grasgarðurinn heitir raunar Hortus Botanicus Reykjavicensis uppá latinu, og blómin skilja illa annað tungumál. „Það fer best á þvi að við lesum fyrir jurtirnar valda kafla úr Ovidiusi”, sagði Hafsteinn Hafliðason, „við verðum lika að kunna svolitið fyrir okkur i latinu, þvi að við fáum fræ úr öllum heimshornum og vart hægt að ætlast til að finna islensk heiti á allt. Hvort vorið sé komið? Já. Ég er amk. bjartsýnn núna’'. Crocusarnir bera blóm Við spurðum Hafstein hvort jurtir væru farnar að blómga — hvort brum sæist á trjám. „Það er nú varla ennþá. En þið verðið að sjá crocusana hérna. Þeir eru fyrstir að venju.” Crocus — hvað er það? ,,Æ, það er svona litið blóm. Það hefur verið kallað dverglilja á islensku, en það notar ekki nokkur maður”. Og við skoðuðum hvita crocusa sem stungu óneitanlega i stúf við umhverfið, raka og vetrarlega moldina og naktar trjágreinar. í Laugardalnum eru eiginlega þrjár stofnanir, reyndar allar náskyldar, þ.e. Hortus Botanicus, Ræktunarstöð Reykjavikur sem reynir enn að halda lifi i „grænu ■ I Hortus Botanicus lesa menn index seminum og álíta að vorið sé komið byltingunni” og svo Trjá- garðurinn i Laugardal. Rækt- unarstöðin útvegar jurtir i garða bæjarins, og þótt fjárskortur valdi þvi að „græna byltingin” er ekki til nema á pappir, þá er furða hve mikil þörf er fyrir græðlinga og blóm af ýmsu tagi. „Við erum eiginlega „grænir khmerar” hérna”, sagði Haf- steinn og brosti. Að vera garöyrkjumaður Þetta með „grænu byltinguna” — er raunveruleg þörf á sér- stökum, afmörkuðum, ræktuðum svæðum i Reykjavik — er bærinn ekki enn i nánum tengslum við land og gróður? spurðum við Haf- stein. „Já, það er þörf á gróðri, þörf á skógi. Þú veist, maðurinn er enn eins konar skógardýr. Við lifum „Að vera garðyrkju maður— það er sérstök lífsstefna” enn i skógarjaðrinum. Að vera garðyrkjumaður, það er eigin- lega eins konar heimspeki, lifs- stefna. 1 bókmenntum eru sér- vitringar oft látnir vera garð- yrkjumenn. Það er eitthvað afar skýrt afmarkað og einfalt. Ég veit nú ekki hvort æskilegt er að grænir blettir i bæjum séu klipptir og skornir, sléttir og skipulagðir, en hitt er staðreynd, að græni liturinn, gróðurlyktin er róandi. Þaðer mjög gott að vera i náinni snertingu við blómin hér. Hinsvegar höfðar tómatarækt ekki til min á nokkurn hátt. En þetta með græna litinn — það er ljóst, að það er félagsleg þörf á gróðurvinjum i borgum. Taktu eftir þvi, að maðurinn hegðar sér allt öðruvisi i skógi heldur en á berri sléttu. Ég held að það sé afar litið um geðveiki þar sem menn liffa i skógi. Og fylleri er allt öðruvisi i skógi heldur en i borg. Það er skjólið, það er þetta græna sem hefur róandi áhrif á fólk, dregur úr árásarhvöt”. Linnulaus leit Hefur skógur vaxtarskilyrði hér á landi? „Tvimælalaust. En rannsóknir verða að halda áfram, það verður að halda áfram linnulausri könnun á tegundum, við þurfum að hitta á þær harðgeru tegundir sem hafa aðlagað sig veðráttu áþekkri okkar”. Hortus Botanicus er skipt niður i reiti, hver reitur afmarkaður, hver planta ber sitt nafnspjald. í gróðurhúsi garðsins fara stöðugt fram tilraunir, þangað koma fræ, sem garðurinn fær send frá sams konar stofnunum i útlöndum. „Allir slikir garðar eiga fræ- lista, index: seminum, þar sem tilgreind eru fræ, innlend og erlend. Við hér eigum stuttan lista, aðeins um 300 fræ”, sagði Hafsteinn, ,,en erlendis eru fræin i þúsundavis og við höfum lista frá mörgum görðum og getum pantað eftir þeim”. Og við rekum augun i nokkur græn strá, sem gægjast upp úr rnold i plastpotti og áletrunin er Pinus Bauksiana. „Ég kalla þetta stundum alþýðugreni, og það er eins og það nýja heiti falli jurtinni vel”, sagði Hafsteinn. „þvi að hún er hingað komin frá Klna.” Cannabis Sativa? Ræktið þið hass hér? „Nei. Ég veit nú ekki hvort það er bannað. Fyrir mörgum árum var hampur, eins og menn kölluðu jurtina þá, hér út um allt. Þetta er einær jurt. Þegar hún óx hér vissu menn varla til hvers hún væri brúkleg, og hefði raunar ekki verið hægt að hafa af henni not, þvi cannabis sativa þarf að vera i 22 gráðu meðalhita til að fá nýtanlegt hass”. Maöur þritst með gróðrinum Hvenær er mesti annatiminn i Hortus Botanicus? „Það er i april og mai. Við hérna hressumst allir samhliða gróðrinum og erum fjári sprækir fram i september þegar fer aftur að verða hætta á næturfrosti. I september veslumst við svo upp eins og gróðurinn”. Ertu nokkuð hræddur við fleiri kuldaköst i vor? „Við erum að sjálfsögðu bjart- sýnir hér”. Kveikja Grasagarðsins Hafsteinn sagði okkur, að kveikjan að Grasagarðinum hafi veriðsú, að Hafliði Jónsson hóf að safna saman i Laugardalsgarðinn öllum þeim plöntum sem ræktað- ar voru viðsvegar i görðum Reykjavikur árið 1961 og unnt var að ná til. Við þetta bættist svo stórmerkt safn hjónanna Katrinar Viðar og Jóns Sigurðssonar af fslenskum jurtum, er þau gáfu Reykjavfkur- borg á 175 ára afmæli hennar. Af-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.