Þjóðviljinn - 24.04.1975, Qupperneq 24
VIETNAM:
Leitað lausnar
Þjóðfrelsisherinn sækir suður með ströndinni
meðan diplómatarnir puða i Saigon og París
DIOÐVIUINN
Fimmtudagur 24. april 1975.
Kolbeinn Cuðnason er nú aftur
kominn í vinnu á verkstæði KA
svo sem jafnan fyrr um 35 ára
skeið.
Selfoss-
verkfallið:
„Málinu
er
lokið”
Verkfalli bifvélavirkja,
járnsmiða og verkamanna
hjá kaupfélaginuá Selfossi
lauk í gærmorgun. Vinna
hófst strax eftir að kaup-
félagsstjórinn hafði dregið
uppsögn Kolbeins Guðna-
sonar til baka, en sú upp-
sögn olli verkfallinu.
I fyrrakvöld sendi Oddur Sigur-
bergsson kaupfélagsstjóri Kol-
beini bréf, þar sem hann dó upp-
sögnina til baka, og jafnframt
sendi hann Snorra Sigfinnssyni
bréf, þar sem hann fór mögum
orðum um þá atburði er leiddu til
þriggja vikna verkfalls starfs-
manna verkstæðisins.
t bréfinu fer Oddur hörðum orð-
um um afstöðu verkfallsmann-
anna, segir afstöðu þeirra hafa
verið óbilgjarna og óhagganlega.
„Málinu er lokið”, sagði Snorri
Sigfinnsson i samtali við Þjóðvilj-
ann i gær, ,,og við ætlum ekki að
elta ólar við þetta bréf sem kaup-
félagsstjórinn stilaði til min.
Ég vil hinsvegar koma á fót
þakklæti til alls þess fólks sem
studdi okkur. Ég vildi feginn geta
tekið i hönd hvers og eins sem að
þesari lausn vann með okkur, en
þakkarávarpið verður að duga.
Við teljum nú að þessu máli sé
lokið”.
Við 1. umræðu í efri deild
i gær um frumvarp rikis-
stjórnarinnar um ráðstaf-
anir i efnahagsmálum var
Saigon og Washington
23/4 ntb — Franskir,
bandarískir og viet-
namskir diplómatar unnu
i dag baki brotnu að því
að koma á friðarviðræð-
um milli ÞFF og stjórn-
arinnar i Hanoi annars
vegar og Saigonstjórnar-
innar og bandaríkja-
stjórnar hins vegar.
ÞFF og stjórnin í Hanoi
höfnuðu í dag vopnahlés-
tilboði Saigonstjórnarinn-
ar Þetta kom ekki á óvart
og breytti í engu starfi
diplómatanna. Þjóð-
Byggingarframkvæmdum við
hina nýju geðdeild Landsspital-
ans sem byrjað var á um mitt sl.
ár miðar vel og standa fram-
kvæmdirnar nú samkvæmt á-
ætlun. Fyrirhugað cr að húsið
verði uppsteypt með isettum
gluggum og fullfrágengið að ut-
an á miðju ári 1976. Það er hins-
vegar allt óráðið með það hve-
nær húsiö verður fullfrágengið
og tekiö I notkun, það fer allt
eftir þvi hve miklu fé verður
varið til byggingarinnar, sagði
Geir Gunnarsson meðal
ræðumanna. Síðar segir
frá ræðu Geirs, en hann
lagði fram breytingartil-
frelsisöflin hafa lýst því
yf ir að afsögn Thieus sé
engan vegin nóg og að
meiri breytingar verði að
gera á æðstu stjórn i Sai-
gon áður en þau eru til
viðtals um vopnahlé.
Diplómatarnir og „Indókina-
fræðingar” Bandarikjaþings
eru sammála um að þjóðfrelsis-
öflin vilji helst losna við að taka
Saigon með áhlaupi. Ef til heift-
arlegra bardaga kemur .um
borgina munu stórir hlutar
hennar leggjast i auðn og slikt
gerir endurreisnarstarfið mun
erfiðara og er það þó yfrið nóg
fyrir. Þeir benda einnig rétti-
lega á að þjóðfrelsisöflin hafi
Skúli Guömundsson hjá Inn-
kaupastofnun rlkisins er við
ræddum þessi mál við hann i
gær. Byggingafél. Armannsfel!
sér um framkvæmdirnar.
Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri i heilbrigðsráðuneytinu
sagði að þarna væri aðeins um
fyrsta áfanga geðdeildarinnar
að ræða. t honum er gert ráð
fyrir 60 sjúkrarúmum en sam-
kvæmt teikningu alls hússins
verða 120 rúm á deildinni.
t þeim framkvæmdum sem nú
lögu við frumvarpið á
þessa leið:
„Fyrir árslok ’75 skal fjármála
ráðh. láta fara fram sem ná-
alltaf lagt mikla áherslu á að
Parisarsamkomulaginu verði
framfylgt.
En Þjóðfrelsisherinn lætur
samt ekki deigan siga i bardög-
unum og sækir stöðugt i átt til
Saigon. Þeir hafa tekið hafnar-
bæinn Ham Tan sem er i 120 m
fjarlægð frá Saigon i austurátt.
Næst er búist við að hann sæki á
hafnarborgina Vung Tau en hún
er aðalhafnarborg Saigon og
mjög mikilvæg fyrir aðflutning-
ana til borgarinnar.
Sendiráðum Bretlands,
Ástraliu, Vestur-Þýskaiands og
Thailands i Saigon hefur verið
lokað ,,um stundarsakir” og
starfsfólk þeirra verið flutt á
brott. Áður hafði þó öllum mik-
ilvægum leyndarskjölum verið
eru i gangi er öll kjarnabygging
hússins og önnur legudeildin. Að
sögn Páls er þessi geðdeild
hugsuð sem hrein viðbót við þær
geðdeildir sem nú eru i notkun,
þannig að Kleppsspitalinn verð-
ur áfram starfræktur, þegar
þessi nýja deild tekur til starfa.
Hún verður fyrst og fremst fyrir
bráðasjúklinga, eins og aðrar
deildir Landsspitalans, eins og
Páll komst að orði, en Klepps-
spitalinn verði fyrir þá sem
þurfa lengri meðferð. —S.dór
kvæmasta könnun á framfærslu-
kostnaði barna, þ.á.m. hvernig
honum er háttað eftir mismun-
andi aldri og fjölda barna i fjöl-
skyldu svo og hvort telja megi, að
eðlilegt tillit sé tekið til þessa
kostnaðar við álagningu skatta og
ákvörðun tryggingabóta, sem
greiddar eru vegna barna. A
grundvelli þessarar könnunar
skal endurskoðuð upphæð barna-
bóta og frádráttar vegna barna
við álagningu útsvara svo og upp-
hæðir tryggingabóta sem greidd-
ar eru vegna barna samkvæmt
lögum um almannatryggingar.
Frumvörp um breytingar á
þessum atriðum fyrrgreindra
laga skulu lögð fyrir Alþingi sem
fyrsteftir n.k. áramót, ef könnun-
in gefur tilefni til. Skýrsla um
könnunina skal lögð fyrir Al-
þingi”.
brennt. Talsmaður frönsku
stjórnarinnar sagði að ekki væri
ætlunin að flytja sendimenn
hennar i borginni á brott og
skorað hefur verið á franska
borgara sem búa i borginni að
vera um kyrrt en þeir eru um 9
þúsund. Talsmaðurinn sagði að
franska stjórnin hefði fengið
fregir af þvi að vel væri farið
með þá frakka sem búa á frels-
uðu svæðunum og þvi væri eng-
in ástæða til hræðslu.
Bandarikjamenn og suður-
vietnamar handgengnir þeim
eru ekki eins rólegir i tiðinni.
Frá og með morgundeginum
verða fimm þúsund manns
fluttir frá Saigon til eyjarinnar
Guam i Kyrrahafi en þar hefur
verið undirbúin móttaka 50 þús-
und flóttamanna. Bandarisk
innflytjendayfirvöld hafa slak-
að á innflutningshömlum gagn-
vart flóttamönnum frá Vietnam
og leyft innflutning 129 þúsund
vietnama næstu vikurnar. Utan
við strönd Suður-Vietnam liggja
17 bandarisk herskip með fimm
þúsund hermenn um borð.
Verða þeir sendir til Saigon ef á-
standið þykir ótryggt til þess að
aðstoða við að koma banda-
rikjamönnum og leppum þeirra
úr landi.
PORTUGAL:
Kosninga-
baráttu
lýkur
Lissabon 23/4 ntb — Kosn-
ingabaráttan í Portúgal
náöi hámarki dag er allir
flokkarnir tólf sem bjóöa
fram héldu stóra fundi og
viðhöfðu mikinn áróður.
Kosið verður á föstudaginn
en á morgun, fimmtudag
er öll áróðursstarfsemi
bönnuð til að gefa fólki
eins dags næði til að á-
kveða sig.
Þrátt fyrir þá staðreynd að
bráðabirgðastjórnin hefur rýrt
mjög gildi þessara fyrstu frjálsu
kosninga i landinu siðustu hálfa
öld virðast flokkarnir taka hana
mjög alvarlega og i átökum sem
orðið hafa i kosningabaráttunni
hafa 40 manns slasast.
1 kosningunum á föstudag skal
kjósa 247 manna þing. Þingið á
að setja landinu stjórnarskrá en
ekki að fara með löggjafar- eða
framkvæmdavald að öðru leyti.
Herinn hefur lagt fram tillögu og
knúið fram samþykki flokkanna,
á henni og gerir hún ráð fyrir að
næstu fimm árin geti MFA út-
nefnt forseta, lagt fram frum-
vörp, beitt þingið neitunarvaldi
og útnefnt efnahagsmála-, varn-
armála- og innanrikisráðherra.
Sjá nánar um portúgölsku
kosningarnar á blaðsiðum 8 og 9 i
blaðinu i dag.
Flugmenn
fljúga
Flugmenn aflýstu i gærdag
verkfalli þvi sem þeir höfðu boðað
til og hófst i fyrrinótt.
Eftir langan fund samninga-
nefnda hjá sáttasemjara sam-
þykktu flugmenn að afboða verk-
fallið.
Þótt verkfalli hafi verið aflýst,
er deilu flugmanna og Flugleiða
ekki lokið, þvi búist er við frekari
viðræðum, þar eð ekki var gengið
frá varanlegum samningum.
—GG
—GG
Hvað kostar að
framfæra barn?
Geir Gunnarsson leggur til könnun
Þessi mynd sem ljósmyndari Þjóðviljans AK tók sýnir byggingarframkvæmdir nýju geðdeildar I.ahds-
spltalans eins og þær standa nú.
Geðdeild landspítalans:
Byggingarframkvœmdum
við 1. áfanga miðar vel
Þjóðviljinn óskar lesendum sínum gleðilegs sumars