Þjóðviljinn - 04.05.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 4. mal 1975. [ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
NÍELS HAFSTEIN
SKRIFAR
UM MYNDLIST
Tréstungur
frá Kína
Stórveldasýningar á grafiklist
eru orðnar næsta tfðar i menning-
arlifi höfuðborgarinnar, Banda-
rikin Frakkland og Sovétrfkin
hafa i vetur kynnt islendingum
kUnst og tækni myndlistamanna
sinna, og i kjölfar þeirra státar nú
Kinverska Alþýðulýðveldið af
fjölbreyttri tréstungulist I sölum
Kjarvalsstaða. Vafalaust eru
þessar sendingar stórþjóðanna
liður i viðtækum menningarsam-
skiptum, þar sem arfleifð og ný-
sköpun tengjast saman. Sumir
telja þetta brölt eitt og lúmskan
áróöur, þátt i viðleitni valda-
manna til að sölsa undir sig heim-
inn, en aðrir álita allri menningu
hollt að kynnast sem flestum
sviðum lifshátta og lista annarra
þjóða á heimavigstöðvum svo sjá
megi hvernig smáþjóðamenning-
in tekur sig út i samanburðinum.
En hvað sem öllum vangaveltum
liður þá er ljóst að „ágengni”
risaveldanna hefur haft litil áhrif,
frá listrænum sjónarhóli séð, sýn-
ingarnar hafa i mestu verið stað-
festing á þvi sem áður var vitað.
Hvað kinversku sýningunni við-
kemur er þessu öðruvisi farið, is-
lendingarhafa helst kynnst mynd-
list Kina i ferðasögum eða af
sundurlausum myndbrotum og
kvikmyndum. Sérstök menning
Kina, frábrugðin menningu vest-
urlanda, hefur á sér dularblæ i
vitund manna, hún er ævintýrið I
fjarlægðinni, hið ósnertanlega i
einangruninni. Hræringar sam-
timans og sffelld breyting og um-
bylting i myndlist Evrópu m.a.
hefur að mestu sneitt hjá Kfna,
hinir óliklegustu straumar hafa
skollið saman fjarri þessu mikla
landi, endalausar vangaveltur,
andstæöar hugmyndir og afbrigði
listarinnar hafa hrærst i deiglu
hinna stóru torga striðs og
storma. Vestræn myndlist hefur
öldum saman verið miðsvæðis,
hrifsað til sin eitt, gefið annað.
Hún hefur þróast um langan ald-
ur f hvers kyns sundurleitum
stefnum, hugmyndum og rökræð-
um. Hún hefur ánetjast töfra- og
trúarlegum formum úr myrkviði
Afriku, fengið að láni niðurskipan
flata f egypskum veggmálverk-
um og skurð myndinnihalds hjá
jaðönskum. Þjóðfélagshræringar
hvers lands eða álfu eru undan-
fari eða ómandi myndlistarinnar,
skapendur verkanna eru börn
Vorregn á ánni Li eftir Hsu Pei-Hung.
Hjálpum
stríðshrjáóum
íIndókína
Gíró
90002 20002
RAUÐIKROSS
ÍSLANDS
HJÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
Vetrarsáning á hæöunum eftir Chen Tien-Jan.
sins tfma og ber að horfast i augu
við veruleikann.
Það er ljóst að kinverjar gera
sér grein fyrir skaðsemi einangr-
unar, og að vaxandi skilningur er
hjá þeim um nauðsyn nánari
samskipta við aðrar þjóðir.
1 sýningarskrá segir meðal
annars: „Kinversk graffklist á
sér langa sögu og ber með sér
sterk þjóðleg einkenni. Bæði at-
vinnulistamenn og áhugalista-
menn úr röðum verkamanna,
bænda og hermanna hafa skapað
listaverk með nýju innihaldi og
nýjum stfl og eru þau reist á arf-
leifð og þróun fágaðrar þjóðlegr-
ar listhefðar. 1 verkum þessum
koma þessir listamenn fram sem
ötulir boðberar þeirrar bók-
mennta- og listastefnu Maós for-
manns að „láta hundrað blóm-
jurtir blómstra, sem eldri blóm
hafa látið vaxa, svo þær megi
nýjar af sér gefa” og „láta fortíð-
ina þjóna nútiðinni og Kina not-
færi sér það sem erlent er.” Þótt
þessi verk séu enn ófullkomin að
listgæðum, endurspegla þau samt
sem áður þau afrek, sem kin-
verskir listamenn hafa unnið á
þessu sviði vegna hinnar miklu
reynslu, er þeir hafa öðlast með
þvi að skyggnast inn i lifshætti
verkamanna, bænda og her-
manna.
Listfræðingar skipta þróunar-
vferli myndlistar i þrjú aðalstig,
sem eru nátengd hinum alþekktu
skeiðum ævinnar: fæðingu, lifi og
dauða. Fyrst þreifa menn fyrir
sér um tjáningarform, mynd-
byggingin er stif og stundum ó-
hlutlæg, einföld og skrautlaus.
Uppúr þessu þróast jafnvægi
myndefnis og listrænnar úr-
vinnslu, allt er yfirvegað og akkú-
rat, fagurt (eða ljótt) með ró-
sömu yfirbragði. Loks er svo of-
hlaðið og dramatiskar ástriður,
myndin verður mestmegnis
handverk og bragðlaus eftirlik-
ing. Ef miðað er við verkin á kin-
versku sýningunni er greinilegt
að myndlistin þar hefur gengið i
gegnum öl! þessi stig, hér virðist
þó ekkert Sýnishorn vera af fyrsta
stigi og fá af öðru! Hér birtist i
ægidýrð ljósmyndaleg nákvæmni
og ofurmannleg tækni, — þessu
bjargar aðeins bylting!
Efni myndanna er sótt i daglegt
lif fólksins: vinnu i stálsmiðjum
og öðrum iðjuverum, hjúkrunar-
störf, húsverk, kennslustundir,
hermennsku. Myndlistamennirn-
ir þekkja sitt heimafólk, eru öll-
um hnútum kunnugir og hafa
sterkara jarðsamband en flestir
aðrir,lýsing þeirra á atvikum eru
túlkuð eins og þau gerast, likt og
öllu skipti að ná sem nákvæmast
hverjum drætti. En hér má einnig
lita hástemmda lofgjörð um hinn
hversdagslega i hversdagsleikn-
um, bóndann, verkakonuna og
striðshetjuna. A sýningunni eru
127 tréstungumyndir og skiptast
þær I þrjá aðalflokka, samkvæmt
þvi sem i sýningarskrá stendur:
Nýjárstréskurðarmyndir, Tré-
stunguprentanir og Nútimatré-
stungur. Fyrst nefndi flokkurinn
samanstendur af myndum ætluð-
um til skreytingar á vorhátiðum,
litirnir eru bjartir og hreinir,
myndirnar sakleysislega skraut-
legar með blómafléttum og fjöl-
þættu munstri, tæknin er einföld
og skyggir ekki á innihaldið.
Þrátt fyrir létt yfirbragð þá eru
þessar myndir litil listaverk. Tré-
stunguprentun er nokkurs konar
yfirfærsla myndar eða eftirliking,
þaö er reynt að endurskapa frum-
myndina með þeirri tækni sem
tiltæk er, þannig að ekkert raskist
og frummyndin geti dreifsti stóru
upplagi ferskari heldur en i þeirri
eftirprentunargerð sem þekkist á
vesturlöndum. Mynd nr. 23 (Vor-
regn á ánni Li) er af þessum toga,
feykilega vel unnin mynd, næst-
um fljótandi á pappirnum! Einn-
ig er mynd nr. 22 (Pandabjörn)
athyglisverð, i myndbyggingu er
hún framar flestum öðrum verk-
um sýningarinnar. Þriðji flokkur-
inn og sá viðamesti eru Nútima-
tréstungurnar. 1 þessum mynd-
um kemur glögglega i ljós hvert
tæknin getur leitt menn afvega:
fyrirmyndin er nákvæml. stæld,
stundum er erfitt að sjá hvort
þetta er ljósmynd eða ekki! Lit-
irnir eru hráir og óþægilegir og
yfirkeyra myndefnið. Hér er mik-
il hamingja á ferðum, stór bros i
stritinu, tilgangur listamannanna
viröist helst sá að auglýsa þessa
stórkostlegu vinnugleði uppbygg-
ingu Alþýðuveldisins til dýrðar.
Mynd nr. 39 (Hartsótt eftir stáli)
kemst næst þvi að hafa listrænt
gildi, einnig er mynd nr. 94 (Nýr
nemandi) sannverðug.
am
Dálitill galli er það á svona yf-
irlitssýningu, sem spannar aldir,
að hafa ekki timasetningu á
myndunum, væri þá hægt að fá
betri yfirsýn á verkin. Þetta er
einkum nefnt hér vegna tveggja
mynda sem hafa slæðst með (?) i
þessari sendingu. Myndir nr. 69
(Vetrarsáning á hæðunum) og nr.
111 (Blóm) eru örugglega úr
myndasjóði mikillar listar,
þokkafull verk sem fengur væri
að sjá með öðrum álika, — þá
sýndist viðleitni kinverja til
kynningar á listaverkum sinum
verða einhvers virði hér á torgi
allsnægtanna.
Vinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavikur tekur til starfa
um mánaðarmótin mai—júni n.k. og
starfar til 1. ágúst.
í skólann verða teknir unglingar fæddir
1960 og 1961 þ.e. nemendur sem eru i 7. og
8 bekk skyldunámsins i skólum Reykja-
vikurborgar skólaárið 1974—1975.
Gert er ráð fyrir 4 stunda vinnudegi hjá
yngri nemendunum en 8 stunda vinnudegi
hjá þeim eldri.
Umsóknareyðublöð fást i Ráðningarstofu
Reykjavikurborgar Hafnarbúðum við
Tryggvagötu og skal umsóknum skilað
þangað eigi siðar en 23. mai n.k.
óskað er eftir að umsækjendur hafi með
sér nafnskirteini.
Ráðningarstofa Reykjavikurborgar.
Við þökkum innilega öllum þeim sem hafa vottaö okkur
samúð og vináttu við andlát
Einars Andréssonar,
Jófriöur Guðmundsdóttir
Anna Einarsdóttir Halldór Jónsson
Einar Halldórsson Jón S. Halldórsson
Gunnar Þ. Halldórsson Friður M. Halldórsdóttir