Þjóðviljinn - 04.05.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.05.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. mai 1975. Umsjón:Vilborg Haröardóttir. Guöriður Kristjánsdóttir Geröur G. óskarsdóttir skóla- stjóri setti fundinn. Guörún Cortes Gagnfræöanemar i Neskaupstaö skemmta á fundi rauösokka Ein úr hópi sunnankvenna: Aöal- héiður Bj arnfreösdóttir. Velsóttur kynningarfundur rauösokka í Neskaupstað Er kvennabaráttan stéttabar- átta? Hversvegna viljiö þiö for- skóla fyrir alla? Eru rauðsokkar menntakonur? Eru allar konur kúgaöar? Hver er réttur fööur i sambandi viö fóstureyöingu? Eru rauösokkar kynsveltir? Svona ólikar og sitt úr hverri áttinni voru spurningarnar sem látið var rigna yfir rauðsokkana tiu sem héldu kynningarfund um Rauðsokkahreyfinguna og bar- áttumái hennar i Neskaupstað á föstudaginn i fyrri viku. Og rauð- sokkar leystu úr eftir bestu getu, hvort sem spurt var I grini eöa al- vöru. Fundurinn var haldinn i Egils- búð og a.m.k. af norðfiröingum talinn mjög vel sóttur, þótt húsið væri ekki fullt, en yfir 200 manns komu á fundinn liflegan og skemmtilegan, en þau bææði sungu frumorta kvennabaráttu- söngva, eftir húsmóður i Nes- kaupstaö, lásu upp og fluttu ljóð. Fyrir hönd rauðsokka töluðu Edda Agnarsdóttir ritari sem sagöi frá upphafi Rauðsokka- hreyfingarinnar, starfi og starfs- háttum. Helga Sigurjónsdóttir kennari fjallaði um uppeldis-, barnaheimilis- og skólamál. Hlin Agnarsdóttir háskólanemi talaði um kynferðismál, getnaðarvarnir og um fóstureyðingalöggjöfina. Herdis Helgadóttir skrifstofu- maður talaði um vinnumarkað- inn, atvinnuþátttöku kvenna og kyngreiningu starfa. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir starfsstúlka tal- aði um lifeyrissjóði verkalýðsfé- laganna, eignarrétt verkafólks yfir þeim og félagslega notkun sjóðanna. Vilborg Haröardóttir blaðamaður fjallaði um samdrátt i atvinnulifinu og uppsagnir og um tengsl verklýðsbaráttunnar og jafnréttisbaráttu kvenna. Tveir barnakennarar i Nes- kaupstað, Guðriður Kristjáns- dóttir og Guðrún Cortes lásu upp. Guðriður ljóðið Maria Farrar eft- ir Bertolt Brecht og Guðrún kafla úr sögu eftir Jakobinu Sigurðar- dóttur. Gagnfræðaskólanemarnir Aslaug Danielsdóttir, Magnús Geirsson, Steinunn Lindbergs- dóttir, Helga Guðjónsdóttir og Guðlaun Brynjarsdóttir lásu uppúr Gagni og gamni og fleira, og Friðný Þorláksdóttir, Kristrún Ragnarsdóttir, Anna Sigurjóns- dóttir, Sigriöur F. Másdóttir og Svanhildur óskarsdóttir sungu. Mörg þau mál, sem drepið var á á þessum fundi voru áfram til umræðu á ráðstefnu um kjör kvenna til sjávar og sveita, sem konur i Neskaupstað gengust fyrir daginn eftir, en rauð- sokkahópurinn sat þá ráðstefnu. Vonast rauðsokkar til að geta far- ið fleiri álika ferðir útá land á þessu ári til að ræða við konur — og karla — um sameiginlegan vanda og baráttuna fyrir jafnrétti I raun. — vh Blað rauðsokka: „Forvitin rauð * I KOM ÚT , 1. MAI Verklýðs- og atvinnumál eru meginefnið I blaöi Rauösokka- hreyfingarinnar, Forvitin rauö, sem út kom 1. mai, og er i leið- ara lögö á þaö áhersla, aö sigur i verklýösbaráttunni vinnist ekki nema meö virkri þátttöku kvenna. ,,En tii aö konur geti oröiö virkar veröa þær jafn- framt aö sigrast á bæiingu og mismunun", segir f blaöinu, „þær veröa aö hafa freisi til þátttöku. Og I þeirri baráttu kvenna næst aldrei árangur nema verklýösöflin taki fullan þátt i henni og geri hana aö sinni baráttu”. Margar konur úr verklýðs- hreyfingunni eiga greinar i blaðinu. Herdis Helgadóttir úr VR fjallar um verklýðshreyf- inguna og siðustu samninga, Herdis ólafsdóttir úr Verka- lýðsfélagi Akraness skrifar greinina „Verkamenn — verka- konur”, Steila Stefánsdóttir úr verkakvennafélaginu Fram- sókn skrifar um kjör verkafólks i frystihúsum, Bjarnfriöur Leósdóttir Verkalýösfélagi Akraness á grein um fæðingar- orlof og atvinnuleysisbætur og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir úr Sókn skrifar um lifeyrissjóðina. Þá er birt stefnuyfirlýsing Rauðsokkahreyfingarinnar, sem samþykkt var á ráðstefnu rauðsokka að Skógum i fyrra- sumar, álit ráöstefnu rauðsokka og nokkurra verkalýðsfélaga um kjör láglaunakvenna og sagt frá ráðstefnu rauðsokka og Fóstrufélagsins um dagvistun barna og forskólafræðslu. Verkakona úr Norðurstjörnunni i Hafnarfirði segir frá uppsögn- um þar og Vilborg Dagbjarts- dóttir kennari ræðir barnaflutn- \n \ ingana frá Vietnam til Banda- rikjanna. Lára Halla Maack læknanemi fjallar um fóstureyðingamálið og HildurHákonardóttir vefari skrifar brot úr iðnsögu. Ljóð er eftir Eddu Hákonardóttur og saga eftir Hlin Agnarsdóttur háskólanema. Sigrún Eldjárn myndlistarnemi hefur mynd- skreytt blaðið og Edda Óskars- dóttir kennari gert forsiðu. Blaðið var selt á götunum 1. mai, en er nú til sölu á skrifstofu rauðsokka, Sokkholti, að Skóla- vörðustig 12, en þar er opið hús daglega virka daga kl. 5—7, og hjá einstökum meðlimum hreyfingarinnar.— vh Ein af myndum Sigrúnar Eldjárn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.