Þjóðviljinn - 08.05.1975, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. mai 1975.
Siðgœði
kaupfélagsstjóra
Nú er Oddsbyl lokið á Selfossi
og fannst mörgum góöum sam-
vinnumanni nóg um. Mönnum
létti og vonuðu að annar kaup-
félagsstjóri með sliku hugarfari
fyndist ekki á landi hér. En viti
menn. Illu heilli skaust annar
slikur inn á alþingi fyrir nokkru
og vakti slíkt hneyksli I eigin hér-
aði að dæmafátt er.
Ég ræði ekki Kolbeinsmálið.
Það er útrætt, rógurinn um Kol-
bein marghrakinn og sigur
verkamanna alger. En hitt, að
„litli kaupfélagsstjórinn á Hvols-
velli” skyldi draga inn i umræður
á alþingi óskylt mál fyrrverandi
starfsmanns sins, geri ég að
umtalsefni.
Þessi starfsmaður vann hjá
K.R. i 30 ár. Vann bifreiðaverk-
stæðið upp og stjórnaði þvi. Ég
hef engan heyrt draga i efa, að
hann hafi unnið K.R. vel, en
þegar hann fór að eldast og
þreytast gekk honum illa að
umgangast sina undirmenn. Það
var almannarómur i héraði, að
hann væri höfuðverkur kaup-
félagsstjórnarinnar. Ég hef
aldrei heyrt, aö O.Ó. hafi tekið
nærri sér að losa sig við hann
þegar tækifæri gafst. Ekki hef ég
heldur heyrt, að honum hafi verið
boðið annað starf svo að hann
gæti hætt með fullum sóma eftir
dygga þjónustu. Og nú fær hann
eftirlaunin: Algerlega að þarf-
lausu er hans mál rætt fyrir
alþjóð á alþingi, án þess að hann
hafi tækifæri til að verja sig,
einmitt þegar hann er kominn i
annað starf og vegnar vel. Dettur
engum i hug hefnigirni eða
atvinnurógur? Og enn heldur
óhróðurinn um starfsfólk verk-
stæðanna áfram, m.a. mæta þeir
drukknir til vinnu! Þá veit alþjóð
það.
Gjafir eru gefnar. Hvað segið
þið, rangæingar?
Félagi i
Kaupfélagi Ilangæinga
Öryggisventill
áhafnarinnar
Vegna togaradeilunnar, sem nú
hefur staðið yfir i um eða yfir
mánaðartima, og ummæla Jóns
Sigurðssonar, forseta Sjómanna-
sambands Islands, i viðtali við
Alþýðublaðið nýlega um fækkun
manna á stóru togurunum, vildi
ég undirritaður gjarnan koma á
framfæri undrun minni og furðu
yfir þvi að maður, sem sjálfur
hefur verið gamall togaramaður,
og sloppið naumlega úr sjávar-
háska aö þvi er ég best veit, á
sinni tið, þótt langt sé um liðið, og
búinn að starfa allar götur siðan
sem framámaður i verkalýðs-
hreyfingunni, og nú siðustu árin
sem forseti allsherjarsamtaka
sjómar.na, og nú kominn á
áttræðisaldur, skuli leyfa sér þá
firru, að láta frá sér fara að
fækka þurfi mönnum á stærri tog-
urunum. Flestir þessara manna,
sem hér um ræðir, hafa alla tið
verið nokkurskonar öryggis-
ventill áhafnarinnar aö minu viti
Og ekki sist eftir að þessar miklu
og margbrotnu og dýru vélar,
miljónaverðmæti, hafa komið um
borð i skipin.
Þar á ég við loftskeytamenn,
vélstjóra og matsveina. Mat-
sveinar eru að þvi er ég best veit
taldir þörfustu þjónarnir um
borð, enda eitthvað skrýtið að
vera staddur á Grænlandsmiðum
eða Nýfundnalandsmiðum og
þurfa að sigla til tslands að sækja
matsvein eða vélstjóra um borð i
skipið, ef um einn matsvein væri
að ræða um borð i skipinu, sem
veröur að sinna sinum störfum,
hvað sem á dynur, oft við erfið-
ustu aðstæður vegna veðurs og
vinda. Ef útgerðarmenn geta ekki
rekið skipin lengur með
lágmarksáhöfn, þá er auðvitað
ekkert annað fyrir hendi, þar sem
þjóðin eða rikið á þessi skip, en að
taka þau eignarnámi þegar i stað,
þvi að það hangir svo stórt á
spýtunni. Það eru fleiri hundruð
manns i landi, sem eiga allt sitt
undir þvi að þessi skip geti gengið
án tafa.
Að lokum vil ég skora á
sjómannasamtökin og ekki siður
Slysavarnarfélagið að láta það
ekki liðast að öryggi
áhafnarinnar verði rýrt á þann
hátt sem óskað hefur
veriðeftir af útgerðarmönnum og
fleirum, meira að segja alþingis-
mönnum eins og Pétri Sigurðs-
syni, ritara i Sjómannafélagi
Reykjavikur, og Sverri
Hermannssyni, stjórnarformanni
i ögurvik h.f., sem gerir út
togarana ögra og Vigra.
Gamall togarasjómaður
Breiðholtsskóli:
T ólf nemendur luku
bronsprófi í skák
A meðfylgjandi mynd sjást
nemendur úr Breiöholtsskóla
scm nýlega luku skáknámskciði
á vegum Æskulýðsráös Reykja-
vlkur og hlutu I viðurkenningar-
skyni bronsveifu. Æskulýðsráö
hefur komið á skákþrautaflokk-
um að erlendri fyrirmynd —
brons, silfur og gullflokkar, en
veifur eru veittar í viður-
kenningu fyrir hvern áfanga.
Aö þessu sinni luku tólf nem-
endur Breiðholtsskóla brons-
stigi, en námskeiöið stóð i átta
vikur. Var mætt einu sinni i viku
og kennt i tvo tima i senn.
Mikill áhugi hefur rikt i Breið-
holtsskóla á skákiþróttinni.
Breiddin er mikil þar sem
megináhersla er lögð á að sem
flestir taki þátt. Nemendur
Breiðholtsskóla hafa drifið sig
úr neösta sæti i sveitakeppni
skólanna I þriðja sætið nú i ár.
Ætlunin var aö senda þrjár
sveitir til keppni siðast, en skól-
inn fékk ekki að senda nema
eina sveit vegna reglna þar að
lútandi hjá Æskulýðsráði. Þetta
er eina fjögurra manna sveita-
keppnin i skák, þar sem sú regla
gildir að einn og sami aðili má
ekki senda fleiri en eina sveit.
Þetta kemur sér illa I f jölmenn-
um skólum og þar sem unnið er
sómasamlega að útbreiðslu
skákarinnar. 1 breytingu felst
enginn kostnaðarauki, þar sem
Taflfél. Reykjavikur leggur til
áhöld og húsnæði hvort sem
keppendur eru fimmtiu eða
hundrað. Þessar reglur munu
nú vera i endurskoðun hjá
Æskulýðsráði.
Það var Jón Pálsson, æsku-
lýðsfulltrúi, sem veitti verð-
launin, en hann og Þorvaldur
óskarsson, yfirkennari Breiö-
holtsskólans hafa hlúð vel að
þessu skákstarfi. Skákkennari
var Svavar Guöni Svavarsson,
en hann hefur kennt skák i
Breiðholtsskóla sl. þrjú ár. Nöfn
þeirra sem hlutu bronsveifuna
að þessu sinni:
Atli Þór Þorvaldsson, Bjarni
Gunnarsson, Einar J. Ey-
þórsson, Guðmundur Hansson,
Hanna Katrin Friðriksdóttir,
Ingi Már Gunnarsson, Magnús
Friðriksson, Oddur Þ. Þórðar-
son, Pétur Guðmundsson,
Sigurður Steingrimsson, Skúli
Bergmann og Sveinn Hansson.
Verkalýðsfréttir
Alþjóðasamband verkamanna I
málmiönaði hefur sent spænsku
stjórninni haröorö mótmæli og
kröfur um að verkamcnn sem
handteknir voru á verkalýðs
daginn I mai verði látnir lausir.
Lögreglan i Madrid og hópur
fasista komu að verkamönnum,
scm höfðu safnast saman fyrir
utan kirkjugarðinn, þar sem
Pablo Iglesias hvilir, einn af
helstu forustumönnum verka-
lýðshreyfingarinnar i árdögum
hennar á Spáni. Voru verka-
mennirnir lúbarðir og siðan
teknir höndum.
Langt er nú komið samninga-
viðræðum verkalýðsfélaga og at
vinnurekenda i Japan á þessu
vori. Svo virðist sem meðal-
hækkun launa muni verða 14-15%
en kröfurnar hljóðuðu upp á 30%.
Japanskur verkalýður bersig illa
undan þvi hvernig verðbólgan
leikur kjörin.
Atvinnuleysi i Bandarikjunum
náði 8,9% i aprilmánuði, hæstu
hlutfallstölu siðan fyrir strið.
Formælendur stjórnarinnar ala á
bjartsýni varðandi siöari hluta
ársins.
Fimm baráttumenn verkalýðs-
hyggju, kallaðir „maóistar” voru
.skotnir til bana i Kalkútta af
fangavörðum sinum, þegar þeir
reyndu að flýja úr varðhaldi, aö
þvi er opinberar heimildar
greindu. Indverska stjórnin hefur
beitt sér fyrir ofsóknum á hendur
flokki þeirra.
Atvinnuástandið I Vest-
ur-Þýskalandi versnaði I reynd i
april miðað viö mars-mánuö. A6
visu fækkaði atvinnuleysingjum
úr 1,110 þúsundum I 1.080 þúsund,
en þeim sem unnu skertan vinnu-
dag fjölgaði út 85 þúsund I 900
þúsund.
(reuter)
Lausar stöður
Þrjár kennarastööur við menntaskólann á Akureyri eru
lausar til umsóknar. Kennslugreinar eru danska, enska
stærðfræði og cölisfræöi.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt Itarlegum upplýsingum um námsferil
°g störfskulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 30. mal n.k. — Umsóknar-
eyðublöð fást I ráðuneytinu.
Menntamála ráðuney tið,
2. mai 1975.