Þjóðviljinn - 08.05.1975, Page 5
Fimmtudagur 8. mai 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
af erlendum vettvangi
Þaö eru vesalingar eins og þessi sem mest liöa fyrir gróðasókn auöhringanna i þróunarlöndunum. Taliö
er aö um 300 miljónir barna i heiminum þjáist af vannæringu.
Að græða á
eymdinni
Viö höfum nýveriö
fengið að fylgjast með
áróðursherferð Banda-
rikjanna og leppa þeirra í
Vietnam þar sem
/,munaðarlaus" börn léku
aðalhlutverkið. Sú her-
ferð mistókst þó sem
betur fer að meira eða
minna leyti þar sem
komið var upp um til-
ganginn.
Nú hefur rekið á fjörur sviss-
neskra dómstóla sakamál þar
sem börn þriðja heimsins leika
einnig stórt hlutverk. Næst-
stærsti matvælaauðhringur
heims, hinn svissneski Nestlé,
hefur stefnt hópi róttæklinga
fyrir rétt og ákært hann fyrir
ærumeiðingar.
Hópurinn, sem nefnir sig
Arbeitsgruppe Dritte Welt
(Starfshópur um þriðja
heiminn) hefur gerst sekur um
að gefa út skýrslu undir titlinum
„Nestlé drepur smábörn” og
dreifa flugritum með helstu
niðurstöðum hennar.
Barnamatur eykur
á barnadauðann
Skýrsla þessi er unnin upp úr
rannsókn breskrar hreyfingar
sem hefur samstöðu með
þróunarlöndum á stefnuskrá
sinni. Rannsóknin beindist að
vandamálum sem sprottið hafa
af aukinni sölu á verksmiðju-
framleiddum barnamat i
þróunarlöndunum. 1 skýrslunni
eru tvö fyrirtæki nefnd öðrum
fremur i þessu samhengi: Cow
and Gates i Bretlandi og Nestlé
hinn svissneski.
Helstu niðurstöður skýrsl-
unnar eru þær að verksmiðju-
framleidd gervimjólk er komi i
stað móðurmjólkur eigi þátt i að
auka barnadauðann eða amk.
að halda honum i horfinu en eins
og alþjóð veit er barnadauði eitt
stærsta vandamál þróunar-
landa. Notkun þessarar mjólkur
og annarra afurða matvæla-
hringanna krefst hreinlætisað-
stæðna sem ekki eru fyrir hendi
i fátækum löndum. 1 leiðbein-
ingunum er mæðrunum ráðlagt
að þvo hendur sinar undir renn-
andi vatni og sjóða pelann i
amk. tiu minútur. Þetta er auð-
velt verk fyrir mæður sem eiga
fullkomin evrópsk eða amerisk
Nestlé stefnir
róttœklingum
vegna
upplýsinga
um miður
þokkalega iðju
hringsins i þró-
unarlöndunum
eldhús. En þar sem vatnskrani
er óþekkt fyrirbæri og eina eld-
unaraðstaðan hlóðir úr þremur
steinum eru svona ráðleggingar
út i hött.
Hringarnir reka gifurlegan
áróður fyrir vöru sinni. Fjöl-
miðlar, sjúkrahús og lyfjabúðir
eru full með litskrúðugum
myndum af sterkum og heilsu-
hraustum börnum i fangi ham-
ingjusamra mæðra og allt er
barnamatnum að þakka. Þetta
hefur þau áhrif að barnamatur
verður stöðutákn meðal kvenna
og æ fleiri konur hætta að hafa
börn sin á brjósti en fara að nota
gervimjólk. En hún er dýr og
þvi er það mikil freisting
fátækri móður að drýgja hana
með of miklu vatni. Og þá er
eggjahvituskortinum boðið
heim — og barnadauðanum i
kjölfar hans.
„Siðleysi"
í formála svissneska hópsins
fyrir skýrslunni er Nestlé
borinn þeim sökum að stunda
siðlausa starfsemi i þróunar-
iöndunum. Þrátt fyrir ógnvæn-
legar skýrslur um ástandið i
þriðja heiminum sem flæða yfir
heiminn heldur hringurinn
áfram að auka sölumennskuna.
A matvælaráðstefnu SÞ i Róm i
fyrra hélt fulltrúi norðmanna,
Treholt landbúnaðarráðherra,
þvi fram að ein helsta orsökin til
eggjahvituskortsins væri það að
börnin væru of snemma vanin af
brjósti.
En Nestlé ætlar ekki að láta
segjast. Með málaferlunum
hyggst hringurinn þagga niður i
gagnrýnisröddunum og koma i
veg lyrir frekari útbreiðslu
skýrslunnar. Hann setti starfs-
hópnum þá afarkosti að annað
hvort drægi hann staðhæfingar
sinar til baka, léti af öllum
ásökunum á hendur Nestlé og
hætti við að þýða skýrsluna yfir
á frönsku eða mæta fyrir rétt.
Hópurinn tók siðari kostinn og
undirbýr nú málflutning sinn
sem ma. inniheldur ummæli
fjölda barnalækna, félagsráð-
gjafa og starfsfólks hjálpar-
stofnana i þróunarlöndunum
þar sem skýrð eru ofan i kjölinn
þau vandamál sem verksmiðju-
framleiddur barnamatur
skapar i þróunarlöndunum.
Veltir 1.000.000.000 kr.
Eins og áður segir er Nestlé
næststærsti matvælaauðhringur
heims, sá stærsti er hinn bresk-
hollenski Unilever sem islend-
ingar hafa fengið að glima við i
landhelgismálum. Nestlé velti
árið 1973 16,4 miljörðum sviss-
neskra franka og hafði það ár
127 þúsund manns i sinni
þjónustu, þar af aðeins 7 þúsund
i Sviss. Hringurinn á dóttur-
fyrirtæki út um allan heim og
má ma. nefna stærsta fisk-
iðnaðarfyrirtæki Noregs,
Findus. 97% af framleiðslu
hringsins er selt utan heima-
landsins.
Það segir sig sjálft að þvilikt
risafyrirtæki sem veltir uþb.
tuttugu sinnum hærri upphæð en
islenska rikið gerir á þessu fjár-
lagaári getur haft gifurleg áhirf
i fátækum löndum sem hafa
kannski á að skipa álika miklu
vinnuafli og hringurinn. Og
þurfa lika að verjast ásælni
fjölda annnarra auðhringa.
Bakhjarlar hringanna
Og eins og verða vill eru það
börnin sem verða að liða fyrir
takmarkalausa gróðafikn
vesturlandabúa Þeir sem
skipuleggja aðför auðhringanna
að börnunum eru vita
skuld forstjórar og starfsmenn
auðhringanna. En bak við þá
standa venjulegir vestur-
heimskir meðalborgarar sem
fest hafa fé sitt i hringunum. 1
þeirra hópi eru eflaust margar
þeirra hvatarkerlinga af báðum
kynjum sem hæst láta út af þvi
að „byltingin éti börnin sin” og
taka þátt i áróðursherferðinni
með vietnömsku „munaðar-
leysingjana”. Þessar sömu
kerlingar kveina eflaust
hástöfum ef þær fá ekki
greiddan sinn 12% árlega arð af
hlutabréfunum i auðhringunum
sem græða á barnadauðanum.
Þvilik hræsni.
(ÞH —byggt á Kommentar)
Minningartónleikar
um Róbert A. Ottósson
í Skálholtskirkju á sunnudag
Islenska þjóðkirkjan gengst
fyrir hátiðarguðsþjónustu og tón-
leikum i Skálholtskirkju sunnu-
daginn 11. mai 1975.
Flutningur þessi er helgaður
minningu dr. Róberts A. Ottós-
sonar söngmálastjóra er lést 10.
mars siðastliðið ár.
Fimm kórar' koma fram við
þetta tækifæri en þeir eru: Skál
holtskórinn, Kirkjukór Akraness,
Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð, Samkór Selfoss og Kór
Langholtskirkju. Stjórnendur
verða Haukur Guðlaugsson, Þor-
gerður Ingólfsdóttir, Jónas
Ingimundarson og Jón Stefáns-
son. En þau þrjú siðasttöldu voru
öll nemendur dr. Róberts. t guðs-
þjónustunni, er hefst kl. 2 sd„
predikar biskup tslands, herra
Sigurbjörn Einarsson, og þjónar
einnig fyrir altari ásamt staðar-
prestinum sr. Guðmundi Óla
Ólafssyni. Skálholtskórinn syng-
ur við messuna með aðstoð kór-
anna fjögurra. Trompetleikarar
verða Jón Sigurðsson og Lárus
Sveinsson. Forsöngvarar verða
Ingvar Þórðarson og Sigurður
Erlendsson. Orgelleikari Jón
Stefánsson.
A tónleikunum er hefjast kl.
4.30 sd. flytur biskupinn herra
Sigurbjörn Einarsson, ávarpsorð.
Kórarnir fimm, sem i eru um
200 manns, syngja bæði sameig-
inlega og einnig hver fyrir sig
Róbert A. Ottósson
kórverk I hljómsetningum dr. Ró-
berts A. Ottóssonar, einnig verk
eftir aðra höfunda, svo sem Bach,
Hándel, Mozart, Brúckner og Pál
Isólfsson. Einsöngvarar verða
Guðrún Tómasdóttir og Ólöf K.
Harðardóttir. Orgelundirleikur
Ami Arinbjarnarson og Glúmur
Gylfason ásamt trompetleikur-
um.
Þorkell Sigurbjörnsson minnist
verka dr. Róberts og núverandi
söngmálastjóri flytur nokkur orð.
Lokaorð flytur svo staðarprestur-
inn, sr. Guðmundur Óli Ólafsson.
Ferðir verða frá B.S.l. kl. 11.30
sama dag og til baka kl. 6 sd.
Lögreglumaður drepinn á Spáni
Madrid 7/5 ntb — Lögreglumaður
einn var I gær skotinn til bana á
götu I borginni Guernica á Norð-
ur-Spáni. Talið er að þjóðernis-
sinnar af baskaþjóð hafi verið að
verki.
Drápsmennirnir skutu á mann-
inn úr bil er hann var á leið heim
af vakt við vopnaverksmiðju eina
I borginni. Þetta er fimmti lög-
reglumaðurinn sem drepinn er I
baskahéruðum Spánar siðan I
desember en undanfarna 12 daga
hefur rikt yfirlýst umsátursá-
stand I tveim héruðum á Norð-
ur-Spáni.
Hreinsun Súesskurðar á lokastigi
Vatnshorni, Egyptalandi 7/5
reuter — Hreinsun Súesskurðar
er nú aö komast á lokastig og i
dag hófu dráttarbátar að fjar-
lægja 14 skip sem legið hafa i
skurðinum og ryðgað siðan i sex-
dagastriðinu 1967.
Hreinsunin hefur tekið 13 mán-
uði. A þeim tima hafa breskir og
franskir hreinsunarflokkar fjar-
lægt 40 þúsund sprengjur úr
skurðinum og rutt i burt bráða-
birgðauppfyllingu sem Israelar
lögðu þvert yfir skurðinn i striö-
inu 1973. Enn er þó^ýmislegt eftir
og t.d. er rennan sem skip komast
um ekki orðin nema 120 metra
breið.
Sadat forseti mun opna skurö-
inn við hátiðlega athöfn 5. júni nk.
en þá eiga öll skipin að vera farin
og skurðurinn tilbúinn til umferð-
ar. Kostnaður viö hreinsun hans
nemur nú um 120 miljónum ster-
lingspunda.
Auglýsingasíminn
er17500
þJOÐVIUINN
Hjálpum
stríöshrjáóum
í Indókína
Giró
90002 20002
RALIÐI KROSS
ÍSLANDS
HJÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR