Þjóðviljinn - 08.05.1975, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.05.1975, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. mal 1975. 150.000 flótta menn til USA? Nýja stjórnin sögð sleppa fyrri ráðamö Agana, Belgrod, Washmgton. 5, maí AP — Heuter — NTB. TL'GÞtSL'NÐIR suður- letnamskra flðttamanna vnni mönnum, þ. á m. vcl Bretland. Ford forseti bað f dag þingið um milljðnir dollara tíl að nrnn eun200 epaA06 191A : inuochína-return : Druce russetL agana, guam, may 3, reutei---forty-five south vietnamese air force mechanics, unwilLingly exiLeo from their country when thelr piLots fLeo to thaiLanu Ouring the sheLLing of saigon apirport, today petitioneo presioent ford to Let them return home. the eyes of many of them brimming with tears, they presented a petitition at a refugee camp here asking presiuent ford to +seno usback to south vietnam as soon as possibLe no matter what the communist government has reserveo for us.+ members of the group saio they were oroereo aboaro ♦ *-"•* *• nrtÉ"n ,'ln" ll^ nnnn eun905 epa699 0612 : inoochina - dayLead american: washington, may þ, reuter - democratic senator george mcgovern has •tafft Qfv poxt cent of the thousands of south vietnarnese refugees to be resettLeu in the uniteo staxes wouLd De better off going back home. mr mcgovern, a former presiuentiaL candioate, saiu Last night he is to introouce LeglsLation in the senate to provioe ships ano pLanes for any refugees who want to return. he said in a speech at eastern iLLinois university: +i have never thought that raore than a handfuL of government Leauers were inany reaL oanger of repr.ÍsaLs.+ Það sem ekki mátti segja um flóttafólkið Þrir fréttaþræðir liggja inn á ritstjórnarskrifstofur Morgun- hlaðsins utan úr heimi, og það blað ver meira rými undir er- lendar dagsfréttir en önnur is- lensk blöð. t ritstjórnardálkum Morgunblaðsins er oft gumað af þvi hvað blaðið flytji vandaðar fréttir, engu fréttnæmu sé skotið undan — þaðsé nú einhver munur en hjá þcim á Þjóðviljanum! Með þetta i huga skal hér með vakin athygli á tveim fréttum varðandi Vietnam sem Morgunblaðið fékk um siðustu helgi en þóttu ekki nógu góðar til að prentast i þriðjudagsblaðinu. Klukkan rúmlega 7 á laugar- dagskvöld bar fréttaþráður Reuters skeyti frá kyrrahafseyj- unni Guam inn á ritstjórnarskrif- stofur Morgunblaðsins. Það fjallaði um örlög 45 suðurviet- namskra vélvirkja sem höfðu nauðugir yfirgefið ættland sitt og vildu umfram allt snúa aftur heim til sin en fengu ekki. Staddir á bandarisku yfirráðasvæði sáu þeir ekki annað ráð en senda Ford bandarikjaforseta bænarskjal um að fá að fara heim — þeir vildu ekki með nokkru móti halda áfram til flóttamannabúðanna i Bandarikjunum. Sunnudagsblað Morgunbíaðs- ins var komið i prentun þegar þessi frétt barst inn, og var þvi eðlilegt að hún biði þriðjudags- blaðsins, en forgefinsleitar maður hennar þar — hún var siuð frá öðrum vietnam- og flóttamanna- fréttum og kastað til hliðar. Hún fékk ekki náð fyrir ritskoðunar- auga Morgunblaðsins. Hver er McGovern? A mánudeginum voru allan daginn að berast fregnir um mót- mæli bandarikjamanna við hin- um mikla straum flóttamanna frá Indó-Kina til lands sins. Einhver endurómur af þeim kemst til skila i Morgunblaðinu (nánar til- tekið i þessari málsgrein: „Ekki er talið að fjárveitingar til hjálp- ar flóttafólkinu mæti mikilli' and- stöðu i þinginu, en ýmsir þing- menn hafa látið i ljós áhyggjur yfir fjölda þeirra vegna atvinnu- leysisins i landinu sem nú er 8,9%”). En Morgunblaðið „gleymir” að segja frá þvi eina verulega mark- tæka sem fram kom frá gagnrýn- endum bandarikjastjórnar varð- andi flóttamannastrauminn. Hvað eftir annað i fréttaskeytum mánudagsins var greint frá um- mælum og tillögum manns að nafni McGovern.en i fréttaflutn- Fréttamatið hjá „hesta blaðinu99 tekið til athugunar ingi sinum þykir ritskoðurum Morgunblaðsins henta að stinga sliku dóti algerlega undir stól. Þeir morgunblaðsmenn og aðr- ir unnendur bandariskra stjórn- arhátta mega vel muna hver McGovern er. Hann var maður- inn sem beið ósigur fyrir Nixon hér um árið, heiðarleikinn sem féll fyrir spillingunni. McGovern er maðurinn sem nú stendur uppi með pálmann i höndunum — að visu aðeins siðferðilega séð, þvi að bandariskt stjórnarfar er svo undarlegt að hann fær hvergi ná- lægt stjórnveli að koma þó að kjbrnir mótframbjóðendur hans til forseta og varaforseta séu nú báðir fallnir á eigin óþokkabrögð- um. Og McGovern leyfir sér að hafa skoðun — sem Morgunblaðinu er greinilega ekkert um gefið — á afdrifum flóttamanna i Banda- rikjunum og aðgerðum til aðstoð- ar þeim. Hann segist viss um að 9 flóttamenn af hverjum 10 væru miklu betur settir heima hjá sér heldur en i Bandarikjunum, og hann kveðst ætla að flytja laga- frumvarp um það að flóttamenn fái skipsfar og flugfar heim til sin aftur ef þeir svo kjósa. Fyrsta skeytiö sem reuters- þráðurinn bar inn á Morgunblað um skoðanir McGoverns var sent klukkan tólf minútur yfir sex á mánudagsmorguninn frá London og mörg fylgdu á eftir með sama. efni, einnig frá NTB og ugglaust frá AP lika, en þræðir frá þessum þrem fréttastofum liggja inn á Morgunblað. „Skjótiö okkur heldur!" Með þessari grein eru birtar myndir af tveim umræddum fréttaskeytum, en hér fer á eftir þýðing á efni þeirra. „Bruce Russell simar frá Agana á Guam, 3ja mai kl. 19.14. 45 suðurvietnamskir herflug- virkjar, óviljandi útlægir úr landi sinu þegar flugmenn þeirra flugu til Þælands meðan sprengikúlur dundu á Saigon-flugvelli, beindu i dag þeirri bón til Fords forseta að leyfa þeim að snúa aftur heim. Margir þeirra voru með tárvot augu er þeir lögðu fram bænar- skjal i flóttamarinabúðum hér þar sem þeir báðu Ford forseta að „senda okkur aftur til Suður-Viet- nam svo fljótt sem auðið er, skiptir engu máli hvað stjórn kommúnista ætlast fyrir með okkur”. Félagar i hópnum sögðu að þeim hafi verið skipað upp i flug- vélarnaraf liðsforingjum sinum á þriðjudag þegar sprengikúlum rigndi niður á Tan Son Nhutflug- völlinn og skelfingu lostnar flug- hers-fjölskyldur skriðu um borð. Þeim var ekki ljóst að flug- vélarnar voru að fara úr landi en héldu að farið yrði til flugvallar sunnar i landinu utan bardaga- marka. Þegar komið var til U-Tapao- flugvallarins i Þælandi sárbændu flugvirkjarnir þælensk og banda- risk yfirvöld um að sleppa þeim i litla báta nálægt strönd Suður- Vietnams eða leyfa þeim að halda fótgangandi heim yfir Kambódiu ella. „En þeir vildu ekki hlusta á bænir okkar,” sagði Nguyen Van Hien liðþjálfi, 34ra ára að aldri, hér i flóttamannabúðunum i dag, en hingað var komið flugleiðis með alla 45 i gær. „Við stilltum okkur upp i röð og báðum þælendinga um að gera okkur þann greiða að skjóta okk- ur umsvifalaust vegna þess að án fjölskyldna okkar vildum við ekki lifa áfram.” Frh. á bls. 15 Flugdrekasala í dag, Uppstigningardag, til dgóða fyrir hjdlparsjóði Lionsklúbba er ó eftirtöldum stöð um: Kópavogi — Kjalarnesi og Kjós — Bíldudal — Egilsstöðum — Norðfirði — Ólafsvík — Patreksfirði — Raufarhöfn — Stöðvarfirði — Reyðarfirði — Reykjavfk Styrkið hjólp arsjóðinn - Kaupið flugdreka Lionsmanna Lionsklúbburinn TÝR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.