Þjóðviljinn - 08.05.1975, Page 11
Fimmtudagur 8. mai 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Ávarp íslensku friðarnefndarinnar í tilefni
30 ára afmælis sigursins yfir fasismanum:
Aldrei meir —Eflum
samstarf friðarafla
Þrjá+íu ár eru nú liðin
frá því að síðustu sprengj-
um síðari heimss+yrjaldar
var varpað. Þegar
byssurnar þögnuðu fyrir
þrjátiu árum lauk blóðug-
asta stríði allra tíma.
Heimurinn allur minnist
þess nú með þakklæti, hve
miklar f órnir voru færðar í
baráttunni, sem að lokum
lauk með sigrinum yfir
nasistum. Fórnir þjóðanna
í þágu friðarins voru ekki
til einskis: Lærdómurinn
sem dreginn var af þessari
styrjöld má aldrei gleym-
ast.
Á árunum eftir heimsstyrjöld-
ina myndaði hópur manna og
kvenna um allan heim friðar-
hreyfingu, sem helgaði sig bar-
áttunni gegn hættum nýrrar
styrjaldar og vann gegn árásar-
stefnu heimsvaldasinna. Þessi
hreyfing er nú orðin að nútima
fjöldasamtökum.
Fimm miljónir manna rituðu
undir Stokkhólmsávarpið gegn
notkun kjarnorkuvopna og enn i
dag hefur hreyfingin sterkt að-
dráttarafl. Miljónir manna viðs-
vegar um heim fylkja sér undir
merki hennar.
Á þessum hátiðisdegi má ekki
gleyma þeim sém eiga i baráttu
við fasisma, nýfasisma og ein-
ræðisstjórnir. í Chile sjáum við
eitt margra dæma um það,
hvernig fasistar og nýfasistar
brjóta niður lýðræðisleg samtök
vinnandi fólks með einræðisvaldi
til þess að viðhalda völdum sínum
og sérréttindum.
Þessvegna leggur friðar-
hreyfingin á það mikla áherslu að
dregið verði úr spennu, ekki að-
eins á sviði stjórnmála heldur
einnig á hermálasviðinu. Hin
mikla þróun sem orðið hefur i
efnahags- visinda- og tæknimál-
um og menningarlegri samvinnu
þjóða, verður að haldast i hendur
við algjöra afvopnun.
Sú sögulega tilviljun, að sigur
friðaraflanna i Vietnam ber upp á
sömu daga og minnst er 30 ára af-
mælis sigursins yfir nasistum,
gefurfriðarsinnum aukna von um
að unnt verði að byggja upp heim
án stríðs, réttlátan og lýðræðis-
legan heim.
Friðarnefndin á Islandi, sem er
aðili að Heimsfriðarráðinu, vill i
tilefni 30 ára afmælisins leitast
við að efla samstarf sitt við inn-
lend og alþjóðleg samtök og
hreyfingar, sem stuðla vilja að
friði, öryggi, sjálfstæði og rétt
látri þróun þjóða. Friðarnefndin
vonar að þetta hátiðarár muni
fela i sér nýtt framtak og nýja
sigra i baráttunni fyrir friði og
hamingju öllum þjóðum til
handa.
«0» uot rntui feffjáíif
Hópur hermanna við Reykjavfkurflokk 1975.
H j álpr æðisherinn
á Islandi 80 ára
Hinn 12. mai 1895 hóf Hjálpræö-
isherinn starfsferil sinn hér á
landi. Hann var stofnaður af
William og Catherine Booth i fá-
tækrahverfum i Austur-London
1865.
Þegar Herinn byrjaði hér, átti
hann við ýmsan vanda að etja.
Hátiðasamkoma í kvöld
30 ár frá
stríðslokum
I kvöld kl. 20.30 verður
haldin i Háskólabíói
hátíðarsamkoma í tilefni
þess að 30 ár eru iiðin frá
því að sigur vannst yfir
fasistaherjum Hitlers í
Evrópu. Samkoman er
haldin á vegum
Menningartengsla Islands
og Ráðstjórnarrikjanna,
Tékknesk-íslenska
menningarfélagsins,
Pólsk-íslenska menningar-
félagsins og Félagsins is-
land—DDR. Við undirbún-
ing hafa félögin haft sam-
vinnu við sendiráð Sovét-
rikjanna, Tékkóslóvakiu,
Póllands og Þýska alþýðu-
lýðveldisins.
Dagskrá hátiðarsamkomunnar
er sem hér segir:
1. Lúðrasveit Húsavikur leikur
áður en samkoman hefst og i
upphafi hennar. Stjórnandi:
Robert Bezdek.
2. Þórarinn Guðnason læknir
setur samkomuna og kynnir
dagskráratriði.
3. Avarp: Einar Agústsson utan-
rikisráðherra.
4. Avarp: Géorgij N. Farafonof
sendiherra Sovétrikjanna á Is-
landi.
5. „Forleikur um gyðingastef”
fyrir strokkvartett, klaoinettu
og pianó op. 34 eftir Sergei
Prokovéf. Flytjendur: Gisli
Magnússon, Graham Bagg,
Gunnar Egilson, Helga
Hauksdóttir, Janina Klek og
Pétur Þorvaldsson.
6. Karlakórinn Þrymur á Húsa-
vik syngur undir stjórn Róberts
Bezdek.
7. Einleikur á pianó:
Löve.
Agnes
8. „Stalingrad”. Baldvin
Halldórsson leikari les ljóð Jó-
hannesar úr Kötlum.
9. Einleikur á fjórar dojrur
(bjöllutrumbusett): Kakhram-
on Dadaéf.
10. Kvartett, skipaður tékknesk-
um hljóðfæraleikurum úr
Sinfóniuhljómsveit Islands,
leikur.
11. Einsöngur: Galina Múrzaj.
Undirleikur á bajan: Vladimir
Ljaposjenko.
12. Samkomuslit.
Hér fer á eftir kynning á
sovésku listamönnunum, sem
fram koma á samkomunni:
Söngkonan Galina Múrzaj er
fædd árið 1943 i sveitaþorpi
skammt frá borginni Vorosjilof-
grad i úkrainu, en nú er hún
starfandi við Filharmóniu þeirrar
borgar. Arið 1969 hlaut Galina
verðlaun i fjórðu alsovésku lista-
mannasamkeppninni. Söngkonan
syngur rússneks og úkrainsk
þjóðlög og söngva eftir sovésk
tónskáld við bajan-undirleik.
Galina Múrzaj hefur haldið
söngskemmtanir allviða utan
Sovétrikjanna, m.a. i Frakklandi,
Höllandi, Póllandi, Afganistan og
Mongóliu. Hin þekkta óperusöng-
kona Nadézeda Kazantséva, sem
m.a. hefur gist Island, segir um
Galinu, að „hún túlki i söng sinum
hl%yju og hógværð rússneksrar
sálar.”
Undirleikari Galinu Múrzai er
ba janleikarinn Valdimir
Ljaposjenko, sem einnig er frá
Vorosjilofgrad i Úkrainu og kon
sertmeistari þar.
Kakhramon Dadaéfer fæddur i
Tasjkent, höfuðborg sovétlýð-
veldisins Úsbekistan i Mið-Asiu,
árið 1936. Hann er nú starfandi
sem einleikari og dansari við
þjóðdansaflokkinn Bakhor þar i
borg. Hann leikur á dojrur, sem
eru einskonar bjöllutrumbur,
þjóðlegt, úsbekst hljóðfæri. Þykir
hann mikill meistari á þetta sér-
stæða hljóðfæri og hefur viða
hlotið viðurkenningu, m.a. verð-
laun á 6. heimsmóti æskunnar i
Moskvu árið 1957. Hann hefur
komið mjög viða fram utan
Sovétrikjanna, m.a. i Englandi,
Póllandi, Ungverjalandi, Sýr-
landi, Libanon, Súdan, Lýbiu,
Egyptalandi, Eþiópiu, Japan,
Indlandi, Pakistan og viðar.
Stuttnefjan tyllir sér kotroskin á kiettasnös. Einn af bjargfuglunum,
sem sjálfsagt mun bera fyrir augu I fuglaskoðunarferð F1 á lokadag-
inn, sunnudaginn kemur.
Ferðafélag íslands:
Fuglaskoðun
á Reykjanesi
Sunnudaginn 11. mai verður
farið i hina árlegu fuglaskoðunar-
ferð F.I., sem varð að fresta um
sl. helgi. Verður fyrst ekið að
Garðskagavita og gengið þaðan
suður með ströhdinni. Eftir
nokkra dvöl þar verður farið til
Sandgerðis. Á ströndinni milli
Garðskaga og Sandgerðis er
venjulega mikið fuglalif um þess-
ar mundir, og má búast þar við
sjaldgæfum fuglum, sem flækst
hafa hingað til lands. Frá Sand-
gerði verður haldið til Hafna og
staldrað þar við nokkra stund og
skyggnst eftir straumönd, sem
heldur sig þar i brimrótinu. Siðan
verður haldið á Hafnaberg, sem
er aðgengilegasta fuglabjarg
fyrir ibúa höfuðborgarsvæðisins.
I Hafnabergi má sjá allar bjarg-
fuglategundir landsins nema
haftryðilinn. Af bjargbrúninni má
sjá til Eldeyjar, þar sem þúsundir
súlna halda sig. Þær sjást einnig
fljúgandi nálægt bjarginu. Þá má
einnig sjá skrofuna og fleiri fugla,
sem forvitnilegir eru. Frá Hafna-
bergi verður ekið að Reykjanes-
vita og skoðaður þar silfurmávur.
Síðan verður haldið heim og hug-
að að fugli á þeirri leið.
Fólki skal bent á að hafa með-
ferðis kiki, og þeir, sem eiga
FUGLABÓK ALMENNA BÓKA-
FÉLAGSINS, ættu að hafa hana
meðferðis.
Lagt verður af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 9.30.
Enda þótt hann mætti strax rik-
um skilningi og samúð margra á-
gætustu manna þjóðarinnar, sem
enn er tilfellið, voru þeir jafn-
framt margir, sem heldur reyndu
að gera honum erfitt fyrir en að
greiða fyrir honum, eða starfi
hans, á nokkurn hátt.
Aðurnefndra timamóta minnist
Herinn nú með fjögurra daga há-
tiðahöldum. Aðalstöðvarnar i
Noregi hafa sent hingað sem full-
trúa sinn og stjórnanda hátiða-
haldanna majór Guðfinnu
Jóhannesdóttur, sem gegnir þýð-
ingarmiklu starfi við foringja-
skólann i Osló. Majórinn er fædd-
ur og uppalinn i Hafnarfirði. Hún
var barnung þegar hún hóf að
starfa með Hernum og hefur nú
um langt skeið gegnt margvisleg-
um ábyrgðarstörfum innan vé-
banda hans, þar á meðal deildar-
stjórastarfinu á Islandi og Fær-
eyjum.
Sérstökum fögnuði veldur það
öllum hér á landi sem hlut eiga að
máli, að frá frændþjóðipni i Fær-
eyjum koma hVorki meira né
minna en 24 gestir — hermenn og
heimilasambandssystur. Þennan
alúðar-vináttuvott meta foringjar
og hermenn hér mikils. Einnig
koma gestir frá Akureyri og Isa-
firði. Hátiðin hefst á uppstign-
ingardag með fagnaðarsamkomu
i sal Hersins. A föstudaginn er svo
samkvæmi fyrir hermenn og
heimilasambandssystur.
A laugardaginn þ. 10. mai ná
hátiðahöldin hámarki i aðal-há-
’tiðarsamkomunni sem fram fer i
Dómkirkjunni kl. 20.30. Þar verða
forsetahjónin viðstödd ásamt
biskupi Islands, sem flytur ávarp.
Borgarstjórinn mun einnig flytja
ávarp og dómprófasturinn. Mikið
verður um söng og hljóðfæraleik.
Ollum mun heimill inngangur. A
sunnudaginn eru samkomur kl.
10.30 og 20.30. A mánudeginum
er svo heimilasambandsmót, sem
lýkur með almennri samkomu
um kvöldið.
Samband ísl. sveitarfélaga:
Olíuspamaðnr
nauðsy nj amál
Á fundi fulltrúaráðs Sambands
islenskra sveitarflelaga á Akur
eyri 29. og 30. april 1975 var svo-
felld ályktun gerð um stillingu
oliukyndingartækja:
„Fulltrúaráðið fagnar þvi, að
viðskiptaráðuneytið hefur ákveð-
ið að gangast fyrir námskeiðum i
eftirliti og stillingu oliukynding-
artækja til þess að draga úr
oliunotkun og lækka hitunar-
kostnað og annast öflun nauðsyn-
legra tækja, til þess að unnt verði
að framkvæma slik störf sem við-
ast um land.
Sveitarstjórnir eru hvattar til
að hlutast til um, að sendur verði
maður úr hverju byggðarlagi á
slik námskeið og greiði fyrir þátt-
töku með fjárhagsstuðningi úr
sveitarstjóði.
Fundurinn væntir þess, að sem
viðast um land verði kerfisbundið
unnið að framgangi þessa mikla
hagsmunamáls þess hluta lands-
manna, sem býr við oliukyndingu
húsa, og að stóraukið verði leið-
beininga- og upplýsingastarfsemi
á þessu sviði.
Fundurinn beinir þvi til stjórn-
ar sambandsins, að hún fylgist
vel með framvindu þessa máls.”