Þjóðviljinn - 28.06.1975, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 28.06.1975, Blaðsíða 7
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. júni 1975. Laugardagur 28. júni 1975. ÞJÓÐVILJINN — StDA 7 Drullupollar eru alltaf vinsælir Hvers vegna eru leikvellir ónotaðir? Hvernig ætli standi á því að barnaleikvellir borgar- innar, þá eru raunar und- anskildir gæsluvellirnir svokölluðu/ standa nær ævinlega tómir/ var undir- ritaður spurður að fyrir ekki löngu síðan. Og satt að segja þá var ég hálf hissa á þessari spurningu, gat það verið rétt að svo væri? Það er svo margt i daglega líf- inu sem maður tekur ekki eftir. Auðvitað hefur maöur oft farið framhjá barnaleikvelli án þess að taka eftir því hvort þar voru börn að leik eða ekki. En væri það rétt að leik- vellirnir stæðu tómir, þá var í það minnsta ástæða til að kanna hvort svo væri og þá hvers vegna. Og eftir dagsferö um barnfiestu hverfi borgarinnar kom þab i ljóst að þetta var alveg rétt hjá mann- inum, leikvellirnir standa tómir. Viö komum þrisvar sinnum á ein- um degi á leikvellina i Fossvogs- hverfi, Breiðholti og i Arbæjar- hverfinu og i öll skiptin stóöu þessir vellir tómir utan hvað einu sinni voru tvær litlar hnátur að róla sér á leikvellinum i Fossvogi. Endurtekið skal að þarna var ekki um gæsluvellina að ræða enda eiga börnin sem þar eru engan valkost, foreldrar þeirra setja þau á gæsluvellina og þaðan mega þau ekki fara fyrr en þau eru sótt. En hvernig stendur þá á þvi að leikvellir, með nýjum vegasölt- um, rólum, klifurgrindum og sandkössum standa auðir, en á sama tima eru börn svo tugum skiptir að leik á óskipulögðu svæði i nágrenninu? Nokkur börn voru spurð hvers vegna þau væru ekki að leika sér á leikvellinum i stað þess að grafa i moldar eða sandhrúgum, vaða i drullupollum o.s.frv. — Iss, það er hundleiðinlegt á vellinum, hvað heldurðu aö maður geti bara rólað sér eða vegið salt allan daginn, það er ekkertannað hægt að gera þarna, var svarið. Og þetta er alveg rétt. Er maður skoðar málið nánar kemur i ljós að leikvellirnir eru mjög ómerkilegt fyrirbæri fyrir börn sem orðin eru eldri en 3ja ára. Hvaða heilbrigt barn á aldr- inum 4ra til 10 ára halda menn að endist til að róla sér daginn út og daginn inn, eða þá að vega salt og klifra i klifurgrind? Það er staðreynd að fáir hafa jafn rika sköpunarþrá og börn. Að gera eitthvað sem situr eftir. Grafa smáskurði, gera bilvegi á moldarhaug, sigla smábátum, jafnvelbara spýtum á polli. Ég á von á þvi að þeir sem ekki eru orðnir of gamlir muni að svona var þetta þegar þeir voru litlir og svona er þetta enn. Maður verður raunar hissa á þvi að ekkert i þessa átt skuli hafa verið tekið með i reikninginn þeg- Dæmigerö mynd frá barnaleikvelli I Reykjavlk. Leiktækin standa tóm en börnin að leik fyrir utan girðinguna. Vinsæila leiksvæði en leikvellirnir Leiktækin standa auö I Arbæjarhverfi Upplagt svæði fyrir mömmuleik. ar leikvellirnir voru geröir, I stað hinna eilifu vegasalt, klifurgrinda og róla sem sett er upp á leikvell- ina. Og þar ofan i kaupin bætist, að margir vellirnir eru malbikað- ir. Ég á von á þvi að þeir sem eru á aldrinum 20 til 40 ára muni að leikvellirnir sem þeir muna eftir voru nákvæmlega eins og þeir eru i dag, engin framþróun, ekkert nýtt og skemmtilegt við gerð vall- anna. Ef nú þeir menn sem sjá um gerð þessara leikvalla færu stöku sinnum út i barnflestu hverfin og kynntu sér hvað þaö er sem börnin vilja helst gera, þá hygg ég að annað yrði uppá ten- ingnum við gerð næstu valla og að þeim sem fyrir er yrði breytt verulega. Hvar vetna sem farið er, má sjá hópa af börnum að leik á opnum og óviðhrófluðum svæð- um, þar sem þau geta gert flest það sem hugurinn girnist. Kann- ski hafa þessir menn farið út i hverfin og séð þetta en sagt sem svo, þarna eiga börnin ekki að vera, þau eiga að vera á leikvöll- unum og auðvitað væri það æski- legt að þau væru þar, en til þess að laða þau að þarf gagngera breytingu á völlunum. Þessi klassisku 30 ára gömlu leiktæki laða þau ekki að, það er alveg ljóst. Að visu er einn ljós punktur i þessu máli og það eru starfsvell- irnir svo nefndu. Þar gefst börn- unum kostur á að láta hugmynda- flugið ráða og gamminn geysa, en gallinn er bara sá, að þeir eru svo fáir, en þeir eru eigi að siður spor i rétta átt. Enda er það svo að þeir eru fullsetnir daginn út og daginn inn. Vonandi verða þeir settir upp i öllum hverfum borgarinnar, þar sem þörf er á barnaleikvöllum, þá væri vandinn sennilega leyst- ur. Það er annars furðulegt þegar barnaleikvellir eru hannaðir að börn skuli ekki vera höfð með i ráðum. Eða hvað ætli fullorðna fólkið sem er að byggja sér hús segði ef það fengi ekki að vera með i ráðum þegar húsin eru hönnuð. Við megum nefnilega ekki gleyma þvi að það er ekki fullorðna fólkið sem dvelja á á leikvöllunum. Það eru börnin sem þar eiga að vera og þess vegna eiga vellirnir að vera eins nærri þvi sem börnin sjálf vilja og mögulegter. Aðeins með þvi móti er hægt að fá börnin til að una sér á leikvöllunum að þeir séu eins og þau vilja hafa þá en ekki eins og við fullorðna fólkið viljum að þeir séu. —S.dór Gagngerra breytinga aö vænta Sá sem hefur yfirumsjón meö barnaleikvöllum i Reykjavík heitir Bjarnhéö- inn Hallgrimsson, hjá fræðsluskrifstofu borgar- innar. Við inntum Bjarn- héðin eftir því hvort aldrei á liðnum árum hafi komið til tals að breyta um gerð barnaleikvaIla, gera þá þannig úr garði að þeir laði börnin til sín? Jú, vissulega hefur verið rætt nokkuð um þetta og þó alveg sér- staklega nú siðari árin og má segja að starfsvellirnir hafi kom- ið uppúr þvi. Við gerum okkur hinsvegar ljóst, að leikvellirnir eins og þeir eru i dag, ná ekki til- gangi sinum, börnin vilja ekki vera þar. Við i leikvallanefnd borgarinnar höfum rættþessi mál mikið að undahförnu. Það er meiningin hjá okkur að koma upp starfsvelli i hvert einasta hverfi borgarinnar og raunar stendur það til. — Myndu þeir þá leysa þá leik- velli sem fyrir eru af hólmi? — Nei, ekki beint, heldur vilj- um við blanda þessu saman. Við teljum heppilegt að hafa rólur, vegasölt og klifurgrindur inná starfsvöllunum, börnin verða lika stundum leið á framkvæmdunum Gerum okkur fulla grein fyrir því að leikvellirnir eru mislukkaðir eins og þeir eru, sagði Bjarnhéðinn Ha^grímsson hjá fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og vilja þá gjarnan geta hoppað uppi rólur eða vegasölt. En það sem kannski er mest um vert i gerð þessara nýju leikvalla er það, að við viljum gera garðana eða vellina, hvort nafnið sem við notum, að eins konar fjölskyldu- reitum. Við viljum koma þar upp tennisvöllum, minigolfvöllum og fleirum slikum leiktækjum sem fullorðið fólk getur einnig haft gaman af. — Nú, sem stendur er verið að byggja einn slikan völl við Leiru- bakkann. Þá var það ætlunin að gera starfsvelli i Breiðholts- hverfi, bæði i hverfi 1 og 3 og eins við Rofabæ i Arbæjarhverfi. En þessum framkvæmdum hefur orðið að fresta vegna fjármagns- leysis hjá borginni i ár. — Hefur nokkurn timann kom- ið til greina hjá ykkur að hafa börnin sjálf með i ráðum þegar leikvellir þeirra eru skipulagðir? — Nei, ekki hefur það nú verið gert en mér finnst þessi hugmynd vissulega mjög góð og ég mun koma með hana á fund hjá leik- vallanefnd. Það yrði áreiðanlega til góðs að fá hugmyndir hjá börn- unum sjálfum. — Aftur á móti get ég sagt þér frá þvi, að Haj'narfjörður, Kópa- vogur og Reykjavik, efndu til hugmyndasamkeppni fyrir al- menning um gerð leiksvæða og leikvalla. En áhugi hjá almenn- ingi virtist alls enginn, aðeins þrjár tillögur komu fram, þrátt fyrir það að háum verðlaunum væri heitið fyrir bestu lausnina. En þessar þrjár tillögur hafa enn ekki verið opnaðar vegna þess að mönnum þykir þátttakan alltof litil. Þarna var kjörið tækifæri fyrir almenning að leggja fram sinar hugmyndir um það hvernig leikvellir og svæði ættu að vera en áhuginn var enginn. — Aftur á móti mætti vel hugsa sér ritgerðarsamkeppni i barna- skólunum um það hvernig leik- svæði eiga að vera. Þar með feng- ist álit fjölmargra barna og hver veit nema þetta verði gert, sagði Bjarnhéöinn að lokum. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.