Þjóðviljinn - 06.08.1975, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 06.08.1975, Qupperneq 1
Miðvikudagur 6. ágúst 1975 — 40. árg. —174. tbl. Hlustað á Danilo Dolci Sjá 7. síðu Yerður Gr jótaþorpið rifið? Innan skamms mun skipu- lagsnefnd borgarinnar fjalia um tiliögu , sem arkitektarnir Guö- mundur Kr. Guömundsson og Ólafur Sigurösson hafa unniö um skipulagningu Grjótaþorpsins, en tillaga þessi gerir ráö fyrir aö öll hús i Grjótaþorpi utan fjögur viki fyrir nýjum byggingum. Þau fjögur hús sem samkvæmt tillög- unni munu standa eru Túngata 8, Silla og Valda húsiö, sem er hluti innréttinganna, hús á horni Fischersunds og Mjóstrætis og Morgunblaöshúsiö (sem er i ,,all- góöu ástandi” samkv. uppl. i til- iögunni). Þar fyrir utan munu vera um 40-50 hús, sem á þessu alþjóölega húsfriöunarári er lagt til aö viki fyrir nýjum húsum. Meöai húsanna eru m.a. Unuhús og Fjalakötturinn, hiö gamla leikhús Keykvíkinga. Blaðið hafði samband við skipulagsstjóra borgarinnar, Aðalstein Richter}og sagði hann að unnið hefði verið að þessari til- lögu i tengslum við endurskoðun aðalskipulagsins. Hefur tillagan borist skipulagsnefnd og verður væntanlega fjallað um hana inn- an skamms. Megnið af húsunum i Grjóta- þorpi eru frá árunum 1874—1918 og eru þau flest talin i slæmu eða mjög slæmu ástandi samkv. til lögunni, en aðeins 5 i allgóðu ástandi. Grjótaþorpið afmarkast af Garðastræti, Vesturgötu, Aðal- stræti og Túngötu. Er gert ráð Hafrannsóknastof nunin: Vill bann við veiðum á smáloðnu Haf rannsóknastofnunin hefur gert tillögu til sjávarútvegsráðuneytisins um að bann verði lagt við veiðum á loðnu sem er 12 cm eða minni. Bann þetta verði almennt, ósvæðis- bundið og ótimabundið. Þessar tillögur eru nú til umsagnar hjá Fiski- félaginu. Að undanförnu hafa tvö skip, Eldborgin og Arni Sigurður, veitt loðnu i tilraunasky.ni i Reykja- fjarðarál og viðar úti fyrir Norð- Vesturlandi. Bátarnir hafa landað 2600 lestum af loðnu á Siglufirði og er hún öll undir þessu lágmarki hafrannsóknar- stofnunarinnar. Is hefur hamlað þvi að bátarnir kæmust á þær slóðir þar sem von er á stærri loðnu, en nú vonast menn eftir þvi að úr rætist. Hafrannsóknastofnunin hefur ekki á móti þessum tilrauna- veiðum, en vill slá varnagla við þvi að farið verði almennt að gera út á loðnu úr stofninum frá þvi i fyrra, þar sem hún er hvorki nægilega stór né kynþroska. Þetta er Unuhúsiö, eitt þekktasta hús úr fslenskum bókmenntum.sem á aö vikja samkvæmt tillögunni. • eUSTOtll A® vestan Hér sjáum viö Aöalslrætiö eins og þaö er idag og eins og þaö myndi líta út samkv. tiliögunni. Silla og Valda húsiö stendur þarna eitt eftir ásamt Morgunblaðshöllinni, en Fjalakötturinn, hiö gamla leikhús sem er á milli þeirra,á að víkja samkvæmt fyrir samkv. tillögunni að aðal- lega verði reist 2-4 hæða hús á þessu svæði, m.a. ibúðarhúsnæði með verslunarrekstri á jarðhæð og húsnæði til ýmiss konar at- vinnureksturs eða þjónustustarf- tiliögunni. semi. Verður þess væntanlega ekki langt að biða að skipulagsnefnd fjalli um þessa tillögu og skeri þar með úr um framtið þessa borgarhverfis. þs 0 ■ .Tt...-. Braskarahöllin fékk 17 miljónir úr borgarsjóði Borga helmingi lœgra gatnaðargjald en i Kópavogi íhaldið þekkir sína A fundi borgarráös Reykja- vikur i gær samþykkti meirihluti ihaldsins aö færa þeim aðilum, sem áforma að byggja svokallaö Hús Verslunarinnar í nýja miöbæn- um i Reykjavik litlar 17 miljónir króna á silfurbakka, en þeir sem byggja umrætt hús og vcrða þessarar fyrirgreiðslu aönjótandi eru Félags islenskra stórkaupmanna. Verslunarráö islands og fleiri slikir aöilar. Þetta geröist með þeim hætti, að á borgarráösfundinum var á- kveðið af fulltrúum meirihlut- ans, að þeir, sem byggja Hús Verslunarinnar skuli aðeins greiða kr. 750 á rúmmetra i gatnagerðargjöld, en hámarks- gjald samkvæmt reglugerð er kr. 1322,- á rúmmetra, hvað varðar húsnæði fyfir verslun, skrifstofur eða iðnað. Auk þess á gjaldið að greiðast á 3 árum, mun lengri tima en almennt er. Miðað við áformaða stærð byggingar verslunarfurst anna er mismunurinn, sem Albert og Co. rétta heildsölun- um, félögum sinum, með þess- ari einu samþykkt um 17 miljónir króna, eins og áður segir. Þeir Sigurjón Pétursson og Kristján Benediktsson, fulltruar minnihlutans lögðu til, að gatnagerðargjaldið yrði kr. 1322,- á rúmmetra, til vara að það yrði kr. 1200,- og til þrauta- vara, að það yrði kr. 1000,- á rúmmetra, en allar tillögur þeirra voru felldar. Til samanburöar er vert að hafa i huga, að i nýja miöbæn- um i Kópavogi veröa bygg- ingaraðilar aö greiöa kr. 1696,- á rúmmetra i gatnagerðargjald, þótt þar sé hins vegar ekki grcitt nema kr. 678,- á rúm- mctra annars staðar I bænum fyrir verslunar- og skrifstofu- húsnæði. Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnaríhaldsins eiga verslunarfurstarnir hins vegar að fá að reisa musteri sitt i nýjum miöbæ fyrir svotil alveg sama gatnagerðargjald og almennt gildir i bænum eða kr. 750,- á rúmmetra, en almenna gjaldið er kr. 665,- á rúmmetra, og mun hækka um 40% þann 1. nóv n.k. Og er nema von að menn spyrji: Til hvers er það fyrir fjárþrota borgarsjóð að hafa reglugerðarákvæði um há- marksgjald, sem nemur 1322,- kr. á rúmmetra, þegar hægt er meö handauppréttingu þriggja ihaldsmanna á fimm manna fundi að samþykkja, að þeir sem fá úhlutað allra verð- mætustu lóðunum i bænum — i sjálfum nýja miðbænum — þurfi samt ekki að greiða nema rétt rúman helming þessarar upphæðar? Borgarstjórnarihaldið hefur svo sannarlega ekki veriö svona eftirgefanlegt við þá, sem flest ir af litlum efnum hafa baslaö við að koma sér upp ibúð fyrir fjölskyldu sina til að búa i, en af ibúðarhúsnæði er undantekn- ingarlaust innheimt hámarks- gjald i þeim flokki húsnæðis. Það skyldi þá aldrei vera, að herrarnir i Verslunarráði Islands og Félagi islenskra stór- kaupmanna, sem ráðamenn Reykjavikurborgar færðu 17 miljónirnar i gær hafi látiö svo- litið brot af þessum sömu miljónum af hendi rakna til byggingar hinnar nýju flokks- hallar þeirra Alberts, Gunnars og Geirs, — og þarna komi svo sem greiði á móti greiða? Þeir þrir fulltrúar braskara- stéttarinnar sem i gær afsöluðu fjárþrota borgarsjóði 17 miljón- um króna og töldu þær betur komnar hjá Húsi Verslunarinn- ar voru þeir Albert Guðmunds- son heildsali og alþingismaður, Markús örn Antonsson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, timarits stórkaupmanna, og Magnús L. Sveinsson, varaformaður Verslunarmannafélags Reykja- vikur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.