Þjóðviljinn - 06.08.1975, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 06.08.1975, Qupperneq 3
Miövikudagur 6. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Skriðuhrun lokaði veginum í Ólafsvikurenni Gáleysi Yegagerðarinnar? Skúli Alexandersson á Ilellissandi haföi samband viö okkur i gær og sagöi frá skriöu- hruni f ólafsvfkurenni s.l. laugar- dag og samþykkt hreppsnefndar Neshrepps utan Gnnis vegna ástandsins á veginum i Ólafs- vfkurenni og skriöufallanna þar. A laugardagsmorgun milli kl. 5 og 6 hrundi stór skriöa úr stálinu ofan vegarins i ólafsvikurenni. ískriðunni voru stór björg margar smálestir að þyngd. Vegurinn um Enni lokaöist frá þvi skriðan féll til kl. 12 á laugar- dag og var hálf lokaður fram til kl. 5 um daginn meðan verið var að hreinsa veginn að fullu. Vega- gerðin auglýsti ekki lokun vegar- ins þótt umferö væri mikil. Vegfarendur voru fyrir löngu slðan búnir að sjá að hverju stefndi á þeim stað, þar sem skriðan féll úr vegstálinu^og er svo reyndar um fleiri staði I Ólafsvlkurenni. Vegagerðin virð- ist aftur á móti ekki taka eftir neinu, að minnsta kosti hefur ekkert verið gert hvorki til að lag- færa stálið ofan vegarins eða skörð i veginum að neðan. Mikil umferð mun hafa verið undir Enninu aðfaranótt laugardags al- veg fram undir þann tlma að Skúli skriðan féll. Fjölmenn skemmtun var á Arnarstapa og fór margt fólk af skemmtuninni fyrir Jökul og undir Enni. 1 morgun kom hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis saman til sérstaks fundar vegna ástandsins á vegunum I Ólafsvlkurenni og skriðufalla þar s.l. laugardags- morgun. Hreppsnefndin gerði eftirfar- andi samþykkt: Hreppsnefndin áréttar fyrri samþykktir um þessi mál og skorar á samgönguyfirvöld að gera nú þegar eftirtaldar lagfær- ingar á veginum I Ólafsvikurenni a) að láta hreinsa lausagrjót og klettadranga, sem komnir eru aö falli og gætu valdið stórslysum. b) að láta gera við veginn þar sem skörð hafa myndast I hann, einnig að breikka vestari hluta vegarins. Hreppsnefndin telur nauðsynlegt að meira eftirlit verði haft, af ábyrgum, með veginum og honum lokað þegar hrun er mest. _ Þjóðviljinn bar þessa frétt undir Sigurð Jóhannsson vega- málastjóra og var hann spurður m.a. hvort vegagerðin hefði ekki hugsað sér að gera eitthvað I þessum málum og hvort að ekki yrði reynt að gera einhverjar um- bætur á veginum. Vegamálastjóri sagði að það væri liðlega áratug- ur siðan vegurinn um ólafsvlkur- enni hefði verið lagður og að þeir hjá vegagerðinni hefðu ekki tölu á öllum þeim grjótskriðum sem þar væru búnar að falla. Það væri ákaflega erfitt tæknilega séð að gera nokkrar ráðstafanir til að fyrirbyggja grjóthrunið vegna þess að ofan á berginu, þar sem vegurinn væri sprengdur I gegn- um, væru skriður nokkur hundruð metra upp I fjallið. Þessar skrið- ur væru alltaf meira og minna á hreyfingu fram, sérstaklega i rigningum. Vegurinn væri alltaf skoöaður annað slagiö af mönn- um vegagerðarinnar og þá reynt að gera sér grein fyrir hvort og hvar hætta væri á hruni, en það kæmi fyrir að þar sem vegagerð- in teldi hugsanlega að gæti hrunið gerðist ekkert heldur einhvers staðar annars staðar, eins og t.d. i þessu tilfelli. Það væri einnig vandamál með svona skriður að færu menn að gera einhverjar ráðstafanir s.s. að sprengja væri hætta að losað yröi um eitthvað annaö, sem gæti svo farið af stað áður en nokkur vissi af. Hvað varðaði skörðin I veginn, sem væri vegna þess að brimið gerði geilar I hann, væri erfiðara viö aö eiga^en reynt væri að halda honum við eins og hægt væri og merkja hann þannig að fólk gæti varað sig þar sem hugsanleg hætta væri. Vegagerðin reyndi að halda þessum vegi I eins góðu horfi og henni væri unnt, þvi að I rauninni væri engin lausn til, til að koma i veg fyrir skriðuhrun þarna nema þá að byggja yfir veginn, en slik framkvæmd væri óhemju kostnaðarsöm. Leka Nato-olíutank- arnir í Hvalfirði? Starfsmenn i hvalstöðinni fullyrða það — Siglingamála- stofnun og varnarmáladeild kannast ekki við málið Starfsmenn viö hvalstöðina i Hvalfiröi fullyrða aö einn af ollu- tönkum NATO, sem grafinn er I jörö uppi Hvalfiröi, leki.og segja þeir ollusmit I læk sem tekur viö aðrennslisvatni af tönkunum og einnig séu smit f fjörunni sem Iækurinn rennur i til sjávar. Sem kunnugt er voru þessir NATO- tankar smlöaöir á árunum 1965 til 1968 og eru þeir grafnir I jörö, enda hernaðarmannvirki. Við höfðum I gær samband við Hjálmar Bárðarson, siglingar- málastjóra og spurðum hann hvort hann hefði nokkuð um þennan olíuleka heyrt. Hjálmar kvað svo ekki vera en hann myndi láta rannsaka sannleiksgildi þessarar fréttar strax. Páll Á. Tryggvason hjá varnar- máladeild utanrikisráðuneytisins kannaðist heldur ekkert við að hafa heyrt um oliulekann talað, en þessir NATO-tankar heyra undir varnarmáladeild eins og önnur hernaðarmannvirki hér á landi. Sagði Páll að það væru Is- lenskir aðalverktakar, sem hefðu smiðað tankana og bæru ábyrgð á þeim gagnvart bandarlkjamönn- um eða NATO. Við gerðum itrekaðar tilraunir til að ná sambandi við fram- kvæmdastjóra aðalverktaka en siminn á skrifstofu fyrirtækisins, bæði I Reykjavik og Keflavik svaraði ekki I gær. Það sem kom mönnum uppl Hvalfirði til að hafa orð á þessu var það að um siðustu helgi var verið að dæla olíu úr bandarisku skipi i tankinn og þótti mönnum það biræfni áður en lekinn væri kannaður nánar. Mjög margar sögur eru I gangi meðal starfsmanna I Hvalfirði um magn það sem talið er að leki af oliu á sólarhring, um það aðþessi tankur hafi aldrei verið I lagi o.sv.frv. Að sinni munum við láta vera að segja nánar frá þessu máli en munum reyna að fá botn I það með þvi að tala við fram- kvæmdastjóra Islenskra aðal- verktaka, sem ber ábyrgð á tanknum. __S.dór Hér má sjá röriö sem menn segja| oliuna vætla útum en I f jarska ei oliuskipiö sem var aö fylla tank- ana um siöustu helgi. EYJAFJÖRÐUR: Horfur á sœmilegri kartöfluuppskeru „Samkvæmt fréttum horfir illa með kartöfluuppskeruna I Þykkvabænum, en norður i Eyja- firði, sem gengur Þykkvabænum næst hvað kartöflurækt snertir, hefur verið betra sumar, svo að likur eru á betri uppskeru þar,” sagði Þorgils Steinþórsson, skrif- stofustjóri Grænmetisverslunar landbúnaðarins, þegar Þjóðvilj- inn spurði hann um horfur á kartöfluuppskeru i haust af tilefni fréttar um mjög slæmar upp- skeruhorfur i Þykkvabænum. Þorgils taldi fréttina frá Þykkvabæ ekki gegna neinni furðu, miðað við tiðarfarið það sem af er sumrinu. Hinsvegar væri mikil svartsýni vart tima- bær, þar eð enn væru likur á að betur rættist úr með uppskeruna norðanlands. 1 Hornafirði hefði kartöflurækt mjög dregist saman undanfarin ár, svo að minna máli skipti upp á heildarútkomuna hvernig uppskeran yrði þar. Garðastrœti fyrirog eftir Þannig verður umhorfs i Garöastrætinu, ef tillögur arki- tektanna, sem greint er frá á for- siðu ná fram að ganga. A mynd- inni sést Garöastræti aö austan, Vesturgatan er til vinstri. t staö gömlu húsanna, scm standa nú, eins og sjá má á efri teikningunni, og eru ekki öll augnayndi, en þó hluti af þeirri Reykjavik, sem menn hafa þekkt, á aö koma röö „smekklegra” fjórlyftra húsa, sem öll eru steypt I sama mót. Og Unuhús á aö fjúka lika. Þaö er no. 15 I Gaöarstræti og er fjóröa heila húsiö frá hægri, Iitið,milli tveggja hærri húsa.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.