Þjóðviljinn - 06.08.1975, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 6. ágúst 1975
Kristilegt stúdentamót:
Stærsta norrænt mót
á Islandi til þessa
í dag hefst i Laugardalshöliinni
norrænt kristilegt stúdentamót,
REYKJAVÍK ’75, og stendur það
yfir i 7 daga til 12. ágúst. Mót
þetta sækja 1400 manns, þar af
um 1190 norðurlandabúar.Er þaö
þvi stærsta norræna mótið, sem
haldið hefur verið á tsiandi til
þessa. Búist er við að miili 2 og 3
þúsund manns sæki kvöldsam-
komur, sem opnar verða almenn-
ingi.
Flugleiðir flytja hina erlendu
mótsgesti tii tslands. Að sögn
Sveins Sæmundssonar, blaðafull-
trúa Flugleiða, er þetta lang-
stærsti hópurinn, sem Flugleiðir
hafa flutt.
Erlendu gestirnir munu búa i
skólum i nágrenni Laugardals-
hallarinnar, en sækja fundi og
samkomur i Höllina.
Aðalræðumaður mótsins
verður rithöfundurinn og biskup-
inn frá Sviþjóð, Bo Giertz. Auk
hans verða ræðumenn frá öllum
Norðurlöndum. Má í þvi sam-
bandi nefna biskupinn yfir
tslandi, herra Sigurbjörn Einars-
son. Yfirskrift mótsins er ,,0rð
Guðs til þin” og verður i sam-
ræmi við það fjailað um ýmis
kjarnaatriði kristinnar trúar og
lifsskoðunar. Þátttakendum er
skipt i 15 umræðuhópa, sem taka
fyrir ákvéðin málefni og mála-
efnaflokka, sem snerta kristna
trú, svo sem „kristið heimili”,
„hugmyndafræði samtiðarinn-
ar”, „trúarlifið — sálarlifið”,
„kristniboð” og fleira. Fjölmarg-
ar ferðir hafa verið skipulagðar á
vegum mótsins. Meðal annars
verður farið til Skálholts-föstu-
daginn 8. ágúst.
Að mótinu loknu fara nokkrir
hópar út á land og munu þeir
halda fundi og samkomur, sem
almenningi verður heimilt að
sækja. Ennfremur er þátttakend-
Mót norr.
rafverktaka
Dagana 7.-10. ágúst n.k. verður
haldið norrænt rafverktakamót
'að Laugarvatni. Mót þessi eru
haldin til skiptis á Norðurlöndum
3ja hvert ár og er þetta i fyrsta
skipti, sem það verður haldið hér
á landi. Mótið stendur I tvo daga
og munu þar verða tekin fyrir
mál, sem eru ofarlega á baugi og
verða starfsemi rafverktaka.
Þá mun Gunnar Thoroddsen
iðnaðarráðherra tala á mótinu
um samvinnu Norðurlanda i
Norðurlandaráði, einkum með
tilliti til lagasetningar varðandi
vinnumarkaðinn, þjóðfélagslega
og fjárhagslega aðstöðu.
Gisli Jónsson verkfræðingur
mun ræða um innlenda orkuöflun
með tillit til húsahitunar og for-
maður dönsku eftirmenntunar-
nefndarinnar mun gera grein
fyrir eftirmenntunarmálum á
Norðurlöndum og norrænni sam-
vinnu á þvi sviði. Einnig verður
sagtfrá alþjóðamóti rafverktaka,
sem haldið var i Paris i júni s.l.
1 hópumræðum, sem verða á
mótinu verður m.a. tekið fyrir:
Dagleg vandamál rafverktaka,
og þar að auki verða flutt stutt
erindi frá hverju landi um sjálf-
valið efni.
ÞÖ verður sú nýbreytni tekin
upp i fyrsta skipti, að eiginkonpr
rafverktaka halda sérstakan fund
fyrri dag mótsins þar sem þær
ræða áhugamál sin, þar að auki
munu svo konurnar fara I sér-
staka skoðunarferð um Suður-
land. Þátttakendur á mótinu
munu verða um 322, þar af um 40
frá íslandi.
Herkvaðning
Framhald af 12 siðu
un er fyrirhugað að fljúga með yf-
ir 250.000 manns frá Angólu til
Portúgals áður en fyrrnefnda
landið fær sjálfstæði, og er hér
um að ræða einhverja mestu
fólksflutninga i lofti sem um
getur.
UNITA hefur sakað portúgala
um að þeir gæti hlutleysis ekki
nógsamlega i átökunum milli
sjálfstæðishreyfinganna, og
FNLA hefur tekið isama streng. í
útvarpsti 1 k ynningu frá
siðarnefndu samtökunum eru
ráðamenn Portúgals sakaðir um
að stefna að þvi að „afhenda
Angólu sovésku heimsvaldasinn-
unum og angólskum undirtyllum
þeirra.”
um boðið upp á stutta landkynn-
ingarferðir m.a. yfir Sprengisand
og inn i Þórsmörk. Mótið er hald-
ið á vegum Kristilegs Stúdenta-
félags og mun starfsmaður þess
og Kristilegra Skólasamtaka, sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson.stjórna
mótinu.
Hlustað á Dolci
Framhald af bís. 7.
Samábyrgð allra
Dolci upplýsti, að kjarni starfs-
ins væri um 20 manna hópur, sem
skipti með sér verkum um rann-
sókn og ráðgjöf i ræktun, bygg-
ingum, skólamálum osfrv. Sjálf
eru samvinnufélögin skipulögð
svotil án yfirbyggingar og allt
kapp lagt á að hver einstakur
skilji og skynji að hann deilir
ábyrgðinni með öllum hinum. Þvi
fer bersýnilega fjarri að starfið sé
bundið við framleiðslu og
framkvæmdir. Það er mjög tengt
uppeldisstarfi — og ekki aðeins
virku tilraunastarfi i skólamálum
sem fram fer með samstarfi við
sérhæfðar stofnanir austan hafs
og vestan. Heldur og námskeið-
um og fundahöldum meðal full-
orðinna, sem læra hver af öðrum
að hlusta og tala og gera sér grein
fyrir samhengi i hlutum.
Gleymið þvi ekki, sagði Dolci
að lokum, að það er ekki einstak-
lingurinn Danilo Dolci sem hefur
skorað mafiuforingja á hólm. Ég
vinn með öðru fólki. Nýr heimur
mætir gömlum. Okkar athafnir
miðast að þvi, að skapa nýtt afl,
skapa aðstæður þegar hver orkar
á annan á jafnréttisgrundvelli.
Heimurinn er að verða eins og
ein stór borg. Ef við viljum gera
þetta að sómasamlegri borg þá
verðum við að ala upp nýja
þegna. Þessir þegnar þurfa að
geta tekið á margskonar fyrir-
bærum. Þeir þurfa að geta tekið
persónulega afstöðu. Þeir þurfa
að geta tekið afstöðu til vanda-
mála alls hópsins. Einatt verða til
verstu ófreskjur ef menn geta
ekki I senn tekið tillit til persónu-
legs vanda, vanda smáeininga
samfélagsins og svo stærri
heildar.
Tegundir þagnar
Einhverju sinni var ég i um-
ræðuhópi með drengjum og telp-
um. Einhverra hluta vegna datt
strákunum i hug að nú skyldu þau
ræða um það, hve margar teg-
undir af þögn væru til. Stjórnand-
inn, sem var ellefu ára, sagði:
Gott og vel, nú skulið þið skrifa
niður það sem ykkur dettur i hug
um efnið og svo hittumst við aftur
eftir hálftima. Þetta gerum við —
og ég lika. Siðan komum við sam-
an, og hver og einn fer að tiunda
þagnir:
Þögn um miðnætti þegar einn
mafiugúbbi stekkur á annan,
segir sá fyrsti.
Þögn móður sem gefur barni
sinu brjóst i fyrsta sinn, segir
annar.
Þögn föður sem er búinn að
leita að vinnu allan daginn, en
hefurenga fengið, segir sá þriðji.
Þögn tveggja elskenda, segir
litil stúika og roðnar við....
Svona héldu þau áfram góða
stund þar til einn strákur segir:
Ég held þetta sé tóm vitleysa hjá
ykkur. Hin mótmæltu harðlega:
við höfum unnið alvarlega að
þessu verkefni. Já, það veit ég,
segir strákur, en vandinn er sá,
að þögnin er alls ekki til!
Nú hófst mikil deila, en strákur
varði sig fimlega: þögn kvöldsins
er, þegar betur er skoðað, rofin af
þyti i laufi eða grasi, þögn hafsins
er rofin af vatni og sandi.
Þau komust að lokum að þeirri
niðurstöðu, að reyndar væri
þögnin ekki til. Það sem er til, er
möguleikinn á að gera sér grein
fyrir þvi, hvort þögn sé til eða
ekki.
Sjónvarp kl, 20,35:
TEIKNIMYND
UM GUNNLAUG
ORMSTUNGU
t kvöld kiukkan 20.35 eða að
ioknum fréttum hefur stjórn-
varpið sýningu á teiknimynda-
syrpu sem byggð er á Gunn-
laugs sögu ormstungu. Verður
þá sýndur fyrsti þátturinn en
alls veröa þeir sex talsins.
Tekur þátturinn I kvöid
fimmtán minútur i sýningu.
Höfundur þessara þátta er
Haraldur Einarsson kennari úr
Kópavogi. Við náðum tali af
Haraldi og spurðum eilltið út I
feril hans. Haraldur kvaðst vera
lærður teiknikennari og hafa
verið teiknandi siðan hann man
eftir sér. Hann kenndi lengi
teikningu i Kópavogi en undan-
farin ár hefur hann þó einkum
fengist við enskukennslu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Haraldur teiknar fyrir sjónvarp
þvi hann hefur áður teiknað
fyrir Stundina okkar, bæði sjálf-
stæða þætti og fyrir aðra. Einn-
ig hafa teikningar hans birst i
Vikunni, Lesbók Morgunblaðs-
ins og hér á slðum Þjóðviljans.
Sögumaður með myndum
Haralds er Cskar Halldórsson
lektor og er óþarfi að kynna
hann, einn vinsælasta upplesara
útvarpsins og gamalreyndan
við lesturfornsagna. Og eins og
áður segir verður fyrsti þáttur-
inn á dagskrá i kvöld en hinir
fylgja svo i kjölfarið viku-
lega. —ÞH
Alþýðubandalagið:
MBD STJÓRNARFUNDUR
Fundur er boðaður i miðstjórn Alþýðubandalagsins mánudaginn
11. ágúst kl. 20.30 að Grettisgötu 3.
Ragnar Arnalds.
TILBOÐ
Tilboð óskast i að gera 2 grasvelli og 1
malarvöll á iþróttasvæði KR við Kapla-
skjólsveg, og einnig i uppsetningu girðing-
ar um iþróttasvæðið.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistofu
vorri gegn 5.000.- króna skilatryggingu.
VERKFRÆOISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf
ÁRMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Þökkum vinarhug og samúð vegna fráfalls
Þorvaldar Þórarinssonar
Friða Knudsen
Þórarinn Einarsson
Og aðrir vandamenn.
Faðir okkar og tengdafaðir
Axel Gunnarsson
Hringbraut 52
sem lést 1. ágúst verður jarðsunginn frá Fossvogskapeliu
fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13.30.
Ingibjörg Axeisdóttir
Gunnar Axelsson
Unnur Axelsdóttir
Axel St. Axelsson
Árni B. Jóhannsson
Hjördís Þorgeirsdóttir
Hjörtur Hjartarson
Maria Jónsdóttir.
Bestu afrek
Framhald af bls 8.
2000 metra hlaup
min
Sigurður P. Sigmundsson
FH 5:48,8
Gunnar Þ. Sigurðsson
FH 6:06,2
Magnús Haraldsson FH 7:02,8
Sigurður Haraldsson FH 7:28,4
3000 metra hlaup mjn
Sigfús Jónsson ÍR 8:39,0
Sigurður P. Sigmundss.
FH 9:03,0
Gunnar P. Jóakimsson
1R .9:26,0
Einar P. Guðmundsson
FH 9:26,8
Erlingur Þorsteinsson
UMSK 9:27,8
Gunnar Snorrason
UMSK 9:43,6
Hafsteinn Óskarsson ÍR 9:44,6
Leif österby HSK 9:52,8
ÁgústGunnarsson
UMSK 10:00,6
Magnús Haraldsson FH10:27,2
5000 metra hlaup mjn
Sigfús Jónsson 1R 14:26,2
Agúst Ásgeirsson 1R 15:06,0
Jón Diðriksson UMSB 15:44,8
SigurðurP. Sigmundss.
FH 15:50,8
Jón H. Sigurðsson HSK 16:08,6
Gunnar Snorrason
UMSK 16:09,0
Emil Björnsson UIA 16:09,6
Leif Österby HSK 16:16,0
Erlingur Þorsteinsson
UMSK 16:32,6
Jón Illugason HSÞ 16:41,8
Hafsteinn óskarsson
1R 16:56,4
Reglusaman
yerkamann
vantar herbergi
strax
Tilboð sendist
Þjóðviljanum
fyrir 9. ágúst
SKIPAUTfitRÐ RIKISINS
M.s. Esja
fer frá Reykjavik þriðjudag-
inn 12. þ.m. vestur um land i
hringferð.
Vörumóttaka: fimmtudag,
föstudag og til hádegis á
mánudag til Vestfjarða-
hafna, Norðurfjarðar, Siglu-
fjarðar, ólafsfjarðar, Akur-
eyrar, Húsavikur, Raufar-
hafnar, Þórshafnar, Bakka-
fjarðar, Vopnafjarðar og
Borgarfjarðar eystra.
Sovétríkin
Kynnist fólki og lífi í
Sovétríkjunum.
Gerist áskrifendur að:
Sovétríkin
iþróttir í USSR
Sovéska konan
Menningarlíf
Þjóöfélagsvisindi
Alþjóðamál
Sputnik
Erlend viðskipti
Nýir tímar
XX öldin & friður
Sovéskar kvikmyndir
Ferðir til Sovét
Moskvu fréttir
Fréttir frá úkraínu.
Tímaritin eru á ensku,
þýsku og frönsku.
ERLEND
TÍMARIT
s. 28035
pósthólf 1175