Þjóðviljinn - 16.08.1975, Side 12
WÐVIUINN
Laugardagur l(i. ágúst 1S75
Vísir
eða Nýr
Vísir
Deilan snýst um
hvort blaðið
verður prentað
á undan
Þaö er nú ljóst aö forráöa-
menn Visis og Reykjaprents
h.f annarsvegar og forgöngu-
menn nýs siödegisblaös og
meirihlutamenn i Járnsiöu
h.f. ætla aö berjast um for-
gangsaöstööu i Biaöaprenti.
Báöir þessir aöilar hafa ritaö
stjórn Blaðaprents bréf þar
sem þeir véfengja rétt hvor
annars, og viröist ekki annaö
sýnna en aö deilan komi fyrr
en siöartilúrskuröardómstóia.
Að þvi er blaðið kemst næst
telur stjórn Reykjaprents að
hún þurfi ekki að þola það að
annað siðdegisblað verði
prentað á undan Visi og er það
stutt þeim rökum að i stofn-
samningi Blaðaprents sé ein-
vörðungu talað um Visi, Al-
þýðublaðið, Timann og bjóð-
viljann og i samkomulagi um
forsendur samstarfs þessara
fjögurra blaða komi fram að
Visir þurfi ekki að þola slika
meðferð. tbréfinumunu koma
fram efasemdir um réttmæti
hlutabréfasölu Járnsiðu h.f. til
Jónasar Kristjánssonar og
Sveins R. Eyjólfssonar og
fleiri ásakanir. Sveinn og
Jónas telja sig aftur á móti i
fullum rétti, hafa 3/5 hluta
hlutabréfa i Járnsiðu á sinum
snærum, auk þess sem hluta-
bréf Járnsiðu i Blaðaprenti
eru nú á þeirra nafni.
Deilan stendur aðallega um
það hvort blaðið fæst prentað
á undan og er stjórn Blaða-
prents nú vandi á höndum að
úrskurða um það, og verður
það ekki gert fyrr en að nánar
athuguðu máli, en Jónas og
Sveinn knýja á um skjóta
ákvörðun, enda stefna þeir
enn að þvi að koma Nýjum
Visi út um næstu mánaðamót.
— ekh.
Valdarán í Bangladesh í nótt
Fall Mujibur Rahman
veikir áhrif Indverja
NÝJU DELHI 15/8 — Valdarán
var framiö i Bangladesh i nótt, og
var leiötogi landsins, Mujibur
Rahman, tekinn af lifi, en herinn
tók öll völd i sinar hendur undir
forystu viöskiptamálaráöherr-
ans, Khondakar Mushtaque Ah-
med, sem haföi veriö náinn sam-
starfsmaöur Mujibur Rahmans i
Mujibur Rahman.
mörg ár. Eftir valdarániö hófust
nokkrar róstur i landinu og
hermdu óljósar fregnir i dag aö
200 fylgismcnn Mujibur Rahmans
heföu látiö lifiö.
Valdaránið var framið kl. hálf
sex i morgun að staðartima (hálf
ellefu i gærkvöldi að islenskum
tima), og voru fregnir i fyrstu
mjög óljósar. Fyrsta fréttin barst
frá sendiráði Bandarikjanna i
Dacca til utanrikisráðuneytisins I
Washington, og skömmu siðar
heyrðist i Indlandi til útvarpsins i
Dacca. Samkvæmt fréttaskeyt-
um indversku fréttastofunnar
PTI skýröu fréttaritarar hennar i
Dacca frá þvi að skothrið hefði
heyrst þar i borg skömmu eftir
miðnætti. Eftir það rofnaði allt
samband við Bangladesh, en
nokkru siöar tilkynnti útvarps-
stöðin I Dacca að Mujibur Rah-
man hefði verið liflátinn og stjórn
hans steypt. Sagt var að Khon-
dakar Mushtaque Ahmed væri
orðinn forseti, og skorað var á
þjóðina að sýna stillingu og vinna
með hinni nýju stjórn. Lýst var
yfir útgöngubanni I landinu.
Engar nánari fréttir bárust af
endalokum Mujiburs Rahman, en
fregnir um skothriö I Dacca þóttu
benda til þess að lifverðir hans
hefðu veitt mótspyrnu. Flugvellir
i Bangladesh eru lokaöir og ekk-
ert samband við landið.
Bangladesh er eitt af þéttbýl-
ustu og fátækustu löndum heims.
Það er aðeins 144 þúsund ferkiló-
metrar að flatarmáli, en ibúar
þess eru 72 miljónir aö tölu.
bangað til 1971 var landið hluti af
Pakistan, en Ibúa þess, Bengali,
hafði lengi dreymt um aukna
sjálfstjórn og jafnvel sjálfstæöi,
og var Mujibur Rahman einn
helsti leiðtogi þeirra. 1
kosningunum i desember 1970
vann Awami-bandalag Mujiburs
Rahmans stórsigur og fékk næst-
um öll þingsæti landsins, sem þá
var nefnt Austur-Pakistan. En i
mars 1971 lét Yahya Khan, forseti
Pakistans, setja hann i fangelsi.
Hann var dæmdur fyrir lokuðum
dyrum og var dómurinn aldrei
birtur, en hann sagði siðar sjálfur
að hann hefði verið dæmdur til
Framhald á bls. 10
dluti af stöövarhúsinu þar sem hornsteinninn var lagöur í gær.
„Traustir skulu horn-
steinar hárra sala”
— Forseti tslands lagði hornstein
að stöðvarhúsinu i Sigöldu i gœr
Eftir helgina birtast hér i blaö-
inu myndir og frekari frásögn af
athöfninni og framkvæmdum viö
Sigöldu.
• — hm
„Ljúft er og skylt aö þakka
hverjum og einum, sem hér legg-
ur hug og hönd aö verki, hvert
hollráö, hvert handtak, sem aö
baki liggur þessum áfanga, og
óska góös fram á veg. Þær þakkir
og hamingjuóskir ber ég nú fram
Portúgalir vikja bráðabirgðastjórn til hliðar
Taka í sínar hendur
alla stjórn Angólu
LUANDA 15/8 — Portúgalar tóku
i gær i sinar hendur beina stjórn
nýlendu sinnar Angólu og viku
þannig til hliðar bráöabirgða-
stjórninni, sem átti aö fara meö
völd þar, þangaö til Angóla fengi
sjálfstæöi næsta nóvember.
Ernesto Ferreira Macedo hers-
höfðingi, landstjóri portúgala i
Angólu, sagði i útvarpsræðu I
gærkvöldi að hann tæki I sínar
hendur öll völd bráðabirgða-
stjórnarinnar. 1 þessari stjórn
áttu sæti, auk hans, fulltrúar
þeirra þriggja sjálfstæðis-
hreyfinga sem nú berjast um
völdin i landinu. Macedo sagði að
sú stjórn væri ekki lengur starf-
hæf vegna bardaganna, og nú
tæki hann einn alla ábyrgð á þvi
að halda uppi lögum og reglu.
Fréttamenn I Lissabon töldu að
með þessari aðgerð ryfi Macedo
hershöfðingi I rauninni það sam-
komulag sem gert var milli
portúgala og sjálfstæðishreyfing-
anna þriggja um framtið landsins
I janúar. Þar var svo kveðið á að
fulltrúar sjálfstæðishreyfinganna
þyrftu að samþykkja allar
breytingar á stjórn landsins.
Areiðanlegir heimildarmenn
töldu að með þessu vildi Macedo
fyrirbyggja einhliða sjálfstæðis-
yfirlýsingu af hálfu vinstri
hreyfingarinnar MPLA.
Strax eftir ræðu Macedos til-
kynnti stjórn MPLA að hreyfingin
myndi ekki hætta þátttöku sinni I
bráðabirgðastjórninni né bregö-
ast þeirri ábyrgö sem hún hefði
Framhald á bls. 10
til allra sem hér mega sjá árang-
ur sins erfiöis. Ég óska Lands-
virkjun og þjóöinni allri til
hamingju meö þetta mikla orku-
ver sem vissulega mun marka
þáttaskil i lifsbaráttu hennar. Ég
óska þess aö hús þaö sem hér er
að risa svo og Sigölduvirkjun öll,
ein mikilfenglegustu mannvirki á
landi voru, standi sterk og traust
og reynist islensku þjóöinni sá
aflgjafi sem vonir hennar standa
framast til. Traustir skulu horn-
steinar hárra sala.”
Þannig lauk forseti Islands
ávarpi sinu er hann hafði lagt
hornstein að Sigölduvirkjun I gær.
Athöfnin við virkjunina hófst með
þvi að Jóhannes Nordal formaöur
stjórnar Landsvirkjunar flutti
ávarp, en að þvi loknu lagði for-
seti Islands, dr. Kristján Eldjárn,
hornstein að mannvirkinu. Við
hóf eftir athöfnina flutti Eirikur
Briem framkvæmdastjóri Lands-
virkjunar og dr. Gunnar Thor-
oddsen iðnaðarráðherra ávörp og
lýstu mannvirkjum og gagnsemi
þeirra. Siöan var gestum boðið að
skoöa virkjunarframkvæmdir við
Sigöldu og eftir þaö ekiö að Búr-
felli þar sem þeir skoöuðu mann-
virki og þáðu hressingu gest-
gjafa. Að þvi loknu var ekiö til
Reykjavikur.
Blöðin hœkka
um 100 krónur
Verðlagsyfirvöld hafa leyft
100 kr. hækkun á ákriftar-
gjöldum dagblaöanna.
Hækkunin tók gildi i gær, 15.
ágúst, þannig aö áskrift dag-
blaðanna I ágúst veröur kr.
750, en kr. 800 eftir þaö.
Handtökur
1 Chile
SANTIAGO 14/8 — Lögreglan i
Chile hefur handtekiö 44
prófessora, stúdenta og starfs-
menn við háskóla landsins, og
hafa talsmenn stjórnarinnar
staöfest þá fregn.
Þessir menn voru hafðir I haldi
á heimilum sinum á mánudaginn
og var þeim gefið að sök að hafa
rofið bann það við allri stjórn-
málastarfsemi, sem verið hefur
i gildi siöan herforingjarnir
frömdu valdaránið fyrir 23
mánuðum.