Þjóðviljinn - 31.08.1975, Síða 3
Sunnudagur 31. ágúst 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
ÞORSTEINN JONSSON
kvikmyndakompa
Stjórnendur sjónvarpsstööva
fyllast stundum ofmetnaöi gagn-
vart aðilum i þjóðfélaginu, sem
sjónvarpsstööinni er nauðsyn að
hafa samvinnu við. Þannig snúast
stjórnendur sjónvarpsstöðva
stundum gegn sjálfstæðri kvik-
myndagerð, þótt frá henni komi
reynslan, hæfileikarnir og tækni-
kunnáttan, sem sjónvarpið not-
færir sér.
Hér á tslanþi spratt sjónvarpið
reyndar upp úr engu, án nokkurr-
ar samvinnu við þá litlu kvik-
myndagerð, sem til var i landinu,
þegar það var stofnað. Enda hef-
ur islenska sjónvarpið þurft að
gera öll sömu mistökin og kvik-
myndagerðarmennirnir höfðu áð-
ur gert (kannski fleiri). Enginn
verulegur munur er á obbanum af
framleiðslu sjónvarpsins nú og
myndunum, sem Loftur Guð-
mundsson Óskar Gislason og Ós-
valdur Knudsen höfðu gert áður
en sjónvarpið tók til starfa. Ekki
voru þeir þó sendir á námskeið til
útlanda né höfðu atvinnu af kvik-
myndagerð. Þá hö.fðu greinar
Þorgeirs Þorgeirssonar*, sem
hann skrifaði um islenska kvik-
myndagerð og sjónvarpið um það
leyti, sem það var stofnað, engin
áhrif á stefnumótendur
sjónvarpsins. A innlenda kvik-
myndagerðarmenn var hvorki
hlustað né efnt til samvinnu við
þá á aðgengilegum kjörum.
Kannski má fyrst nú, áratug
siðar, greina fyrstu efasemdirnar
hjá stjórnendum sjónvarpsins um
þessa einangrunarstefnu.
Þrái sjónvarpsins hefur bæði
komið fram i áhugaleysi á þvi að
kaupa islenskar kvikmyndir til
sýninga og einnig i áhugaleysi á
þvi að ráða kvikmyndagerðar-
menn til starfa. 1 löndum, þar
sem kvikmyndagerð eru búin
skilyrði, verður afstaða af þessu
tagi náttúrulega til þess að
sjónvarpsstöðin býður upp á
Um líf eða dauða
sjónvarpsstöðvar
annars flokks framleiðslu og býr
við annars flokks starfslið, sem
ekki stenst þær kröfur, sem
gerðar eru i sjálfstæðri kvik-
myndagerð. Alvarlegra er
ástandið eins og það er hér á
landi, að möguleikar á fram-
leiðslu eða dreifingu kvikmynda
utan sjónvarpsins eru litlir eða
engir. Þar hefur sjónvarpið ekki
aðeins einokun á sjónvarpsrekstri
heldur einnig i raun og veru ein-
okun á kvikmyndagerð i landinu.
Þetta er ástæðan fyrir þvi, að is-
lenskir kvikmyndagerðarmenn
lenda ævinlega I vandræðum,
þegar þeir æskja samvinnu við
sjónvarpið um kvikmyndagerð.
Yfirmenn sjónvarpsins koma á
samningafundi i þeirri vissu að
fyrir kvikmyndagerðarmenn eru
þeir fyrsti og siðasti kosturinn
bæði hvað varðar framleiðslu og
dreifingu. Kvikmyndagerðar-
maðurinn hefur um það að velja
að semja af sér fé og mann-
réttindi eða gera enga kvikmynd
ella., Vonandi þarf ekki að lýsa
þvi, hvernig er að vera i slikri að-
stöðu fyrir kvikmyndagerðar-
mann, sem hefur áhuga á sinu
fagi-
Eðlilegu ástandi verður ekki
komið á fyrr en milli sjónvarpsins
og kvikmyndagerðarmanna tekst
samvinna á jafnréttisgrundvelli,
þar sem hlutverk beggja er viður-
kennt. Sjónvarp hefur óþrjótandi
Frá framhaldsdeildum
gagnfræöaskólanna
í Reykjavík
Væntanlegir nemendur i 5. og 6. bekk
þurfa að staðfesta umsóknir sinar með
simskeyti eða i sima dagana 1. eða 2. sept.
n.k. milli kl. 14 og 17 báða dagana.
Hjúkrunar- og uppeidiskjörsvið i Lindar-
götuskóla simar: 18368 og 10400.
Viðskipta-, tungumála- og raungreina-
kjörsvið í Laugalækjarskóla, simar 33204
Og 34415.
Framhaldsdeildirnar taka til starfa 10.
september.
Fræðslustjórinn i Reykjavík
i MELTAWAY
snjóbræðslukerfi
úr PEX plaströrum
AKATHERN
frárennsliskerfi
úr PEH plaströrum.
Nýlagnir
Hitaveitutengingar
Viðgerðir
Stilling hitakerfa
Pípulagnir sf.
Auðbrekku 59 — Kópavogi S. 43840 & 40506.
þörf fyrir efni og hefur tækja-
búnað til framleiðslu og afkasta-
mikillar dreifingar. Kvikmynda-
gerðarmenn geta séð sjónvarpinu
fyrir hæfileikum, þekkingu og
dirfsku til að framleiða efni á
hærra gæðastigi en við verður
komið i sjónvarpsrekstri.
Reynslan sýnir, að i sjónvarps-
stöðvum er ævinlega unnið undir
getu. Astæðurnar fyrir þvi eru
bæði skipulagslegar og pólitiskar.
Megnið af sjónvarpsefni er
framleitt meðvitað eða ómeð-
vitað til þess að beina athygli
áhorfenda frá raunverulegum
vandamálum. Þessi svæfandi
framleiðsla hefur ekki aðeins
áhrif á áhorfendur við sýningu,
heldur ekki siður á starfsfólkið
sjálft við framleiðsluna og dregur
úr þvi allan mátt. Listrænir hæfi-
leikar, framfarahugur, dirfska,
bjartsýni og aðrir hrósverðir
eiginleikar annaðhvort hverfa
eða koma aldrei i ljós i daglegu
starfi i sjónvarpsstöð.
Ef sjónvarp vill hafa eitthvert
lif i efninu, sem það sýnir, og hef-
ur ekki dauðann að takmarki er
þvi lifsnauðsyn að leita til kvik-
myndagerðarmanna um heil-
brigða samvinnu.
^GNAV^
* AXELS *
EYJOLFSSONAR
Smiöjuvegi 9 Kópavogi sími 43577
Klæðaskápur
frá okkur
er lausnin...
Hægt er að fá
skápana óspónlagóa,
tilbúna
að bæsa eða mála j
... og vandfundnir eru hentugi
klæðaskápar hvað samsetningu
og aðra góða eiginleika varðar.
Lítmyndabæklingur
um flestar gerðir klæðaskápa,
samsetningu, stærðir, efni og
verð ásamt öðrum upplýsingum.
Allar gerðir klæðaskápa
eru til í teak, gullálmi og eik.
Vinsamlegast sendið mér nýja litmyndabæklinginn j
um klæðaskápana.
Nafn:
_________________________ I
SkritiS með prentstöfum |
í
Heimilisfang:.
I
Húsgagnaverslun Axels Eyjóllssonar, Smiðjuvegi 9, Kópavogi. |