Þjóðviljinn - 31.08.1975, Side 9

Þjóðviljinn - 31.08.1975, Side 9
Sunnudagur 31. ágúst 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Gagnnjósnarar hennar hátignar i óvæntum uppákomum — og kýr aö bera i kjallaranum eða hvað? Karl Guðmundsson er korpórállinn en Helga Bachmann stjórnar rannsókn á dularfullu máli. ar”, en við megum gjarna vita af þeim stóru hjörtum, sem snauð- ari timar sáu mönnum fyrir, af þvf að náttúran og samfélagið þurftu á sliku óútspekúleruðu tryggingakerfi að halda. Ég minni á þær fátækar barnakonur sem alltaf gátu bætt á sig börnum úr næsta húsi ef dauðinn bar þar að dyrum — og var sjálfsagður hlutur. Svo ég bæti á mig fleiri mynd- um og þversögnum, þá er ég reyndar efins um möguleikana á að frelsa heiminn á leiksviði, t.d. með umræðuleikritum, debat- leikritum, 'sem koma gjarna hingað frá Norðurlöndum og eru full með greindarlegar skilgrein- ingar en eiga sér kannski ekki að sama skapi alveg eins hlýjar hjartarætur. Ég held að það sem með þeim verkum fæst fram af bættum skilningi á gömlu fölki eða afbrigðilegum börnum sé þvi miður litilvægt miðað við það annað sem hægt er að gera i þeim málum. En á hinn bóginn getur svo farið, að umræðukomplexinn verði svo sterkur og yfirþyrm- andi að menn fái ekki lengur notið lifsins i leikhúsi á eðlilegan hátt. Myndir En þótt maður láti svona lagað út úr sér, þá er ekki þar með sagt að maður viti- hvernig ástandið eigi að vera —,ég er lika vantrú- aður á teoriu hvort sem er. Allt sem gerst hefur i listum hefur átt sitt erindi. Ég skal gera játningu sem snýr að málaralist. Þegar ég var ungur — og vann á Þjóðvilj- anum — gekk ég að þvi með oddi og egg að þröngva upp á islend- inga þeim skilningi á list, að ekk- ert væri gott nema það væri afstrakt. Þetta var að þvi leyti eðlilegt að það þyrfti að vinna á þeim mótbyr sem ungir lista- menn mættu þá, Kjartan, Jó- hannes, Valtýr og fleiri ágætir listamenn. En ég gæti svo vel trú- að þvi, að ýmsir listamenn, sem voru heldur betur lágt skrifaðir hjá þeim hóp sem ég var þá i, eigi eftir að hækka mjög i gengi. Ég yrði t.d. ekkert hissa á þvi ef Eyjólfur Eyfells yrði eftir svolít- inn tima talinn með allra merk- ustu listamönnum okkar fyrr og siðar. En hann var semsagt ekki talinn upp á marga fiska þá, vegna vissra fordóma, sem kann- ski voru nauðsynlegir til þess að eitthvað nýtt kæmi fram. Eiríksjökull Ég sé stundum á bæjum mjög fallegar myndir eftir Eyjólf, full- ar af góðu veðri, reykurinn stend- ur beint upp i' loftið. Frá Kópa- reykjum, þar sem ég á heima, blasir við dýrlegasta fjall á Is- landi, Eiriksjökull, i nýrri og nýrri mynd á nótt og degi, sumri og vetri. Margir stórmeistarar og aðrir hafa málað hann, en þær myndir hafa lækkað i áliti hjá mér við það að sjá, hvað hann Ei- riksjökull kann sjálfur fyrir sér i listinni. Verður nú litils virði margt af þvi, sem aðrir hafa ver- ið að bauka við að gera úr honum ikúnstinni.Ogfallegasta mynd af Eiriksjökli sem ég hefi séð er i eigu hinnar eldri Helgu á Kópa- reykjum, sem nú er komin á ni- ræðisaldur. Myndin er máluð árið 1917 og sýnir einnig gamla bæinn. Myndin er eftir Eyjólf. Jökullinn er dtki málaður þar eins stór- kostlegur og allt að því uppá- þrengjandi eins og hjá öðrum listamönnum, en i' myndinni er þessi barnslega hlýja ásamt merkilegri tækni sem einkennir myndir Eyjólfs Eyfells. Sumir spakvitringar hafa skopast að þvi, hve gott veður er i myndum Eyjólfs. Það má ekki vera gott veður i myndum frekar en það má vera hjartahlýja i bókmennt- um. En kannski er enginn maður sem skilar eins vel og Eyjólfur þvi sem blasir við í islenskri nátt- úru góðviðrisdaga. Best ég ein- faldi þetta með dæmi. Fvrir sex dögum kom eitt af þessum dýrlegu siðsumars kvöldum í Borgarfirði. Við hjónin brugðum okkur i skoðunarferð i þvi tilefni. Guðrún hafði orð á þvi hve dásamlegt væri um að litast. Mér varð að orði: ,,Ja, þetta er svo dýrlegt að það er eins og maður sé að spásséra inni i mál- verki eftir Eyjólf Eyfells.” Ég get ekki farið með meira hól, hvorki um islenska lands- lagsfegurð né Eyjólf Eyfells. áb Aö faðma að sér Tolstoj Það er kannski ekki alltaf þægilegt fyrir skáld og rithöf- unda þegar Morgunblöð heims- ins ráðast að þeim með skammahrinum fyrir þeirra vinstrivillur eins og einatt kem- ur fyrir. En stundum hvarflar það að manni hvort það sé ekki enn ömurlegra hlutskipti þegar svoleiðis blöð faðma skáld, lifs eða liðin, að sér með ógnarleg- um fyrirgangi, i nafni meintrar eða raunverulegrar samstöðu með þeim i nokkrum greinum. Samstaða Engan mann hefur Morgun- blaðið hér faðmað af meiri ástriðu en Solzjenitsin.um langt skeið er slegið upp þriðja hvern dag útlistununum höfundarins á rauðu hættunni i heiminum og andvaraleysi Vesturlanda- manna gagnvart henni. Það er heldur enginn vafi á þvi, að i þessu tilviki er samstaðan raun- veruleg. Morgunblaðið setur skoðanir rithöfundarins miklu ofar viðhorfum og gerðum vest- rænna stjórnmálamanna og ber þetta tvennt einatt saman, sið- arnefndum i óhag. Svo merkilega vill til, að þau viðhorf Solzjenitsins sem Morgunblaðið heldur hvað mest á lofti eru einatt eins og ranghverfa á opinberri sovéskri heimsmynd eins og henni hefur lengi vel verið haldið að mönn- um þar eystra. Samkvæmt henni er kommúnisminn (sovéskur) staðfestingá öllu þvi sem ágætt er, hafinn yfir efa- semdir, en bókstaflega allt ann- að er af hinu illa eða tortryggi- legt mjög. Hjá Solzjenitsin verður aftur á móti allt sem tengist við kommúnisma og sósialisma illt og djöfullegt i þeim mæli, að önnur vandamál hverfa. Til dæmis er ómögulegt að greina það i upptalningu hans á þeim löndum, sem séu að hrynja fyrir hinni rauðu hættu eða nálægt þvi, nokkurn mun á frelsi og mannréttindum i lönd- um eins og Finnlandi og Austur- riki annarsvegar Suður-Kóreu og Suður-VIetnam hinsvegar. Enþeim mörgu sem finnst að vonum ógjörningur að átta sig á heiminum eftir svo einfölduðum formúlum, án þess að hafa i huga fjölþættari heimsmynd, verður þetta ekki umræðu- gruridvöllur sem stætt er á. Ýmsar alhæfingar Solzjenitsins um heimsmál (og hrifning Morgunblaðanna af þeim) verða til þess, því miður, að grafa undan trausti manna á þeim vitnsiburði hans sem merkastur er: ,á skýrslunni um Gúlag, eða skáldsögum hans I reistum á sömu reynslu, 1 fyrsta hring og Krabbadeildinni, sem er mest listrænt afrek höfundar- ins. Ég segi þvi miður vegna þess,aðþað er ekki hægt að átta sig að gagni á vandamálum sósialisma og kommúnisma i kenningu eða praxis án þess að taka i fullri alvöru nótís af þess- um vitnisburði. Að hafna Tolstoj En svo gerist það einnig, að faðmlög Morgunblaðsins eru reist á sýnu hæpnari forsendum en sú samstaða sem hér að ofan var lýst. Tökum til dæmis vangaveltur Matthiasar Jo- hannessens um Léf Tolstoj i Reykjavikurbréfi siðasta sunnudag, en þær voru sprottn- ar af sjónvarpsmynd um ,þenn- an rússneksa meistara og sið- ferðishetju. Eins og að likum lætur eru þessar vangaveltur hafðar i frammi I þeim tilgangi, að halda fram siðferðilegum þroska Tolstojs og trú hans gegn bolsévikkum, fyrr og nú sem hafni meistaranum I sinni efnis- hyggjublindni (og um leið er minnt á hraklega frammistöðu rússnesku rétttrúnaðarkirkj- unnar, sem fyrr og síðar hefur verið frekar þæg æðstu valdhöf- um, hverjir sem þeir hafa ver- ið). Það er að sjálfsögðu ekki nema rétt, að Lenin og siðar þeir sem telja sig arftaka hans höfnuðu i stórum dráttum kenn- ingum Tolstojs, um leið vitum við að í föðurlandi hans er er til þessa dags haldið uppi mikilli persónudýrkun á skáldinu Tol- stoj. En það er i sjálfu sér nokk- uð forvitnilegt efni til skoðunar á hvaða forsendum menn hafa hafnað Tolstoj. Og hverjir mættu með nokkrum rétti telj- ast skyldir honum i þankagangi nú gm stundir. Bolsévikar Það væri mikil einföldun að telja, að Lenin og hans menn hefðu hafnað Tolstoj fyrst og fremst vegna kristinnar siða- skoðunar hans, þótt rétt sé að Lenin var lítt hrifinn af viðleitni Tolstojs og fleiri (m.a. Gorkis um tima) til að smiða ný trúar- brögð, hreinsuð af sora valds- ins. Réttara er, að bolsar hafi fyrstog fremst talið kenningar Tolstojs óraunhæfa lausn á vanda snauðra manna, snúa aftur á bak en ekki fram á við, byggja á fegrun þjóðfélagshátta sem voru á undanhaldi og urðu ekki endurreistir. Tolstojisminn heldur fram raunverulegum eða imynduðum dyggðum bænda- samfélags andspænis örbirgð, misrétti og auðhyggju sem fylgdi risandi kapitalisma i Rússlandi, en tolstojsinnum hættir til að telja fylgja borgum og tæknilegum framförum yfir höfuð. Þær deilur bolsévika og tolstojsinna sem stóðu i Rúss- landi fyrstu tvo tugi aldarinnar eru fróðlegur kafli úr langri sögu: slikar deilur endurtaka sig jafnan meðal þeirra sem hafna rikjandi skipulagi — ann- arsvegareru þeir sem gera það I nafni einskonar afturhvarfs til betri fortiðar, hinsvegar fara þeir sem hafna rikjandi ástandi I nafni öðruvisi, nýrrar framtið- ar. Til þess að minna fari milli mála skal vitnað til fróðleiks i greinarkorn eftir Lenin sem nefnist „Tolstoj og verklýðs- hreyfing samtimans”: Andóf og örvænting „Gagnrýni Tolstojs er ekki ný.... En sérstaða gagnrýni hans og söguleg þýðing hennar er I þvi fólgin, að hún túlkar með þeim krafti, sem aðeins snill- ingar eiga, umbrot og uppgjör viðhorfa mjög mikils hluta al- þýðu manna i Rússlandi á vissu timaskeiði, eða nánar tiltekið I Rússlandi bændanna. Þvi að gagnrýni Tolstojs á samfélags- hætti okkar tima er að þvi leyti ólik hliðstæðri gagnrýni fulltrúa verklýðshreyfingarinnar, að Tolstoj hefur sömu viðhorf og hinn barnslegi bóndi sem að- hyllistháttu fyrri tima. Tolstoj flytur sálarinnréttingu þessa bónda yfir i gagnrýni sina og kenningu. Gagnrýni Tolstojs er af þeim sökum svo sterk, á- striðumikil, sannfærandi, fersk, einlæg og djörf i viðleitninni til * að ,,ná til rótanna”, finna hinar sönnu ástæður fyrir hörmung- um alþýðu, að þessi gagnrýni i raun endurspeglar hvörf i skoð- unum miljóna bænda, sem rétt hafa nýfengið frelsi undan bændaánauðinni og komast þá að þvi, að þetta frelsihefur i för með sér nýjar skelfingar upp- flosnunar af jörðum, hungur- dauða. allsleysis i slömmum borganna o.s.frv. Tolstoj sýnir svo vel hvernig þeim er innan- brjósts, að sjálfur færir hann yf- ir i kenningu sina barnaskap þeirra, afskiptaleysi af stjórn- málum, dulhyggju þeirra, óskina um að hverfa út úr venjulegu lifi, „að mæta hinu illa án andófs”, vanmáttugar bölbænir i garð kapitalismans og „valds peninganna”. í kenn- ingu Tolstojs komu saman mót- mæli miljóna bænda og örvænt- ing þeirra”. Niður með eignarrétt Eins og fyrr segir hafnaði .rússneska kirkjanTolstoj einnig, bannfærði hann meira aðsegja. Bæði vegna þess að hann gagn- rýndi þjónustu hennar við vald- hafana og einnig vegna þess, að Tolstoj hafriaði mystik trúar- innar, leyndardómum hennar — honum er Kristur ekki guð held- ur kennari. Hitt rifja menn svo siður upp, að það eru miklu fleiri sem hafna manni eins og Tolstoj. Einkum og sér i lagi þeir sem byggja heimspeki sina og breytni á einkaeignarétti. Það hefur fyrr og siðar verið mikil tiska að fjölyrða sem mest um „siðferðisbaráttu sem beinir at- hyglinni inn á við” hjá Tolstoj (vitnað i Reykjavikurbréf) en^ hlaupa að mestu yfir það, að' siðferðiskrafan var órjúfanlega tengd kröfu um afnám séreign- ar á landi, afnám kauphallar- brasks, auð_.söfnunar, lúxuslifs — I stuttu máli afnám bæði léns- skipulags og kapitalisma. Moskovskie védomosti, en svo hét einn moggi austur þar, réð- ist mjög á Tolstoj snemma árs 1891 fyrir greinar hans um hungursneyð i landinu, sem prentaðar höfðu verið erlendis. „Greifinn (Tolstoj) rekur áróð- ur fyrir ótakmörkuðum sósial- isma, sem jafnvel neðanjarðar- áróðursrit hér hjá okkur blikna fyrir.... Hann apar eftir vest- rænum sósialistum fáránlega og útjaskaða frasa um að „rika fólkið mergsjúgi þjóðina”. Kommúnufólk Það er alltaf jafn hvimleitt þegar menn reyna að lifa sníkjulifi á lifs eða liðnum mik- ilmennum með þvi að matreiða sér einhvern part af þeim á sér þægilegan hátt og passa sig að meiða sig ekki á öðrum pörtum þeirra. 1 stað þess að reyna að gera sér og öðrum grein fyrir heildarverki þeirra af hrein- skiptni: siðan velja menn auð- vitað og hafna, hvað þeim sjálf- um finnst bitastætt og enn á dagskrá af arfi þeirra. Ekki treysti ég mér til að segja neittumþað,aðhve miklu leyti hugmyndir Tolstojs eru á dagskrá hjá nútimamönnum, fyrir utan þau kynni sem les- endur skáldverka hans hafa af þeim. En ef að nokkrir menn gætu átt rétt til að segjast halda áfram viðleitni hans i verki, þá væru það kannski ýmsir ungir menn sem hafa á seinni árum gert tilraunir með ný lifsform i ýmiss konar kommúnum. Skor- ið mjög á tengsl sin við maskinu þjóðfélagsins, að minnsta kosti markaðslögmál þess, reynt að búa við sameign, litlar þarfir, lifa á landsins gæðum eða hand- verki. Þetta fólk hefur sumt spurt eftir Kristi, annað eftir Marx eða Marcuse. Það væri kannski ekki út i hött að það reyndi einnegin að greiða svolit- ið úr flækjum i skeggi sagna- þuslins fræga frá Jasnaja Poljana. Arni Bergmann.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.