Þjóðviljinn - 31.08.1975, Side 20
Ester Jónsdóttir til vinstri.
14. maí i' vor var sam-
þykkt á alþingi þingsálykt-
un um atvinnumál aldr-
aðra sem hljóðar svo: ,,AI-
þingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að undirbúa í
samráði við aðila vinnu-
markaðarins frumvarp til
laga um atvinnumál aldr-
aðra, og verði að því stef nt
að allir, 67 ára og eldri,
sem til þess hafa þrek og
vilja, geti átt kost á at-
vinnu við sitt hæfi".
Árið 1974 fluttu þau
Svava Jakobsdóttir, Eð-
varð Sigurðsson og Helgi
F. Seljan þessa þingsálykt-
unartillögu, en í þessari
endanlegu samþykkt al
þingis er tveimur orðum úr
tillögu þeirra breytt. í stað
„aðila vinnumarkaðarins"
hafði í þeirra tillögu staðið
„launþegasamtök lands-
ins". Tillögu þeirra fylgdi
svohljóðandi greinargerð:
Tillaga þessi er flutt i þeim til-
gangi að knýja á um skipulega
lausn á atvinnumálum aldraðs
fólks. Mjög algengt er orðið, að
fyrirtæki og atvinnurekendur segi
mönnum upp starfi við sjötugs-
aldur, og i lögum um opinbera
starfsmenn er skýrt kveðið á um
aldurshámark. Ekki verður rétt-
mæti þessara reglna dregið i efa,
en á hinn bóginn verður ekki leng-
ur horft fram hjá þeim persónu-
lega og félagslega vanda, sem
það veldur mörgum manninum
að vera kippt úr starfi fyrir fullt
og allt sakir aldurs. Fjöldi þessa
fólks býr yfir reynslu, talsverðri
starfsorku og vilja til að halda á-
fram störfum i einhverjum mæli.
Þau lausastörf, sem öldruðu
fólki standa til boða á almennum
frá Brasiliu
„Skipuleg lausn
á atvinnumálum
á aldraðs fólks”
Rætt við Svövu Jakobsdóttur, alþingismann Guðmund J.
Guðmundsson varaformann Dagsbrúnar, Ester Jónsdóttur,
varaform. Sóknar og Guðmund H. Garðarsson formann
verslunarmannafélags Reykjavíkur um þingsályktun
um atvinnumál aldraðra sem samþykkt var í vor.
Guðmundur H. Garðarson
Svava Jakobsdóttir
Guðmundur J. Guðmundsson
vinnumarkaði, krefjast yfirleitt
af þvi fulls vinnudags og eru þvi
oft og tiðum ofraun. Þá er hætt
við, að þróun atvinnumála skerði
lika möguleika aldraðs fólks til að
fá slika vinnu. Má i þvi sambandi
benda á sivaxandi vélvæðingu,
aukið hagræðingarskipulag, t.d.
ákvæðisvinnustörf.
Ekki verður fullyrt á þessu
stigi, hvernig atvinnumálum
aldraðra verði best fyrir komið,
en flutningsmenn leggja áherslu
á, að hafa verður fullt samráð við
launþegasamtök landsins. Efa-
laust koma fleiri leiðir en ein til
greina. Jafnframt þvi sem sú
skylda væri lögð á atvinnufyrir-
tæki að sjá öldruðu starfsfólki
sinu fyrir vinnu, kannski við sér-
stök störf og styttri vinnutima en
almennt gerist, jafnvel aðeins
hálfan daginn, væri hugsanlegt að
koma á fót sérstökum vinnustöð-
um, t.d. léttum iðnaði, þar sem
aldrað fólk gæti starfað eftir
þreki og aðstæðum hvers og eins.
Flm. leggja þó áherslu á þá skoð-
un sina, að æskilegast sé, að
mönnum sé gert kleift að starfa
áfram á þeim vinnustöðum og i
þvi umhverfi, sem þeir hafa unn-
ið i, og að reynt sé að finn^ lausn,
sem feli i sér sem minnsta per-
sónulega röskun fyrir hvern og
einn.
Ekki mun enn vera búið að
skipa nefnd til undirbúnings
frumvarps til laga um atvinnu-
mál aldraðra, en svo sem segir i
þingsályktuninni skal rikisstjórn-
in undirbúa frumvarpið i samráði
við aðila vinnumarkaðarins.
Blaðið hafði samband við Svövu
Jakobsdóttur og sagði hún að sú
oröalagsbreyting sem gerð var á
tillögunni fæli i sér að vinnuveit-
endur fengju fulltrúa i undirbún-
ingsnefnd og sagðist hún vel geta
sætt sig við það.
,,Við töldum að hér væri um svo
margþætt og flókið mál að ræða,
að ekki væri rétt að setja fram
þingmannafrumvarp um fram-
kvæmd þessa máls, heldur að
stuðla að skipun nefndar, þar sem
i sætu aðilar sem þekkja til máls-
ins og siðan gerði nefndin tillögur
i frumvarpsformi. Mér finnst
einnig eðlilegt að nefndin starfi i
nánu sambandi við Samtök aldr-
aðra. Taka þarf tillit til ýmissa
atriða, svo sem aldursflokkanna
og einnig mismunandi aðstöðu
fólks i þéttbýli og dreifbýli. Við
lögðum mikla áherslu á að tryggt
væri að launþegasamtökin og
fulltrúar þeirra hefðu hönd i
bagga um lausn þessara mála, en
hér er um ákaflega margþætt
störf að ræða. Ég hef kynnt mér
könnun Jóns Björnssonar, sál-
fræðings á högum aldraðra þar
sem m.a. kemur fram að æskilegt
er að fólk minnki við sig eða fái
léttari vinnu fyrr en segir i
nefndarálitinu og vænti ég þess að
nefndin taki tillit til þess er frum-
varpið verður undirbúið.
Könnun þessi kom fram eftir að
tillagan var fyrst flutt, en mér
finnst ekki óeðlilegt að niðurstöð-
ur könnunarinnar verði að ein-
hverju leyti lagðar til grundvall-
ar. Þá tel ég æskilegt að mönnum
sé gert kleift að starfa áfram á
þeim vinnustöðum og i þvi um-
hverfi, sem þeir hafa unnið i.
Fullorðinsfræðslan ætti einnig að
geta orðið rikur þáttur i að hjálpa
fólki til að aðlagast þeim breyttu
aðstæðum sem aldurinn færir
með sér,” sagði Svava.
Við höfðum einnig samband við
nokkra fulltrúa launþega og
spurðum þá um álit sitt á þessu
máli.
Fyrst ræddum við við Guðmund
J. Guðmundsson varaformann
Dagsbrúnar. Kvaðst hann styðja
þetta mál i einu og öllu og taldi að
kostur væri að setja löggjöf um
atvinnumál aldraðra, þótt margir
vinnuveitendur sýndu tilhliðr-
unarsemi við aldraða verka-
menn.
„Margir reyna að sveigja til og
færa menn til i starfi er þeir eld-
ast, en ég tel óeðlilegt að setja á-
kveðin aldursfyrirmæli um
vinnugetu manna. Ég held að
verkalýðsfélögin ættu að vera
milligönguaðilar og til aðstoðar
við aðframfylgja lögunum um at-
vinnumál aldraðra og vernda
þannig rétt fólksins. Vinna þeirra
eldri er mjög oft vanmetin i dag,
enda þótt þeir séu i mörgum til-
fellum að kosta menntun hinna
yngri”, sagði Guðmundur.
Ester Jónsdóttir er varafor
maður Sóknar og sagði hún að
mikill kostur væri að fá löggjöf
um atvinnumál aldraðra, þar
sem sifellt væri hætta á að eldra
fólki yrði sagt upp ef til atvinnu-
leysis kæmi.
,,Það þarf að tryggja öldruðum
atvinnu á meðan þeir hafa þrek
og vilja og einnig að setja vinnu-
veitendum kröfur um tilhliðr-
unarsemi. Vinna starfsstúlkna i
Sókn er oft mjög erfið, en þó eru
alltaf léttari störf innan um, sem
þyrfti að tryggja að eldri konur
hefðu forgang að. Þessar konur
eiga það inni, að það sé létt undir
með þeim i starfinu, en margar
hafa unnið erfiðisvinnu i ára-
tugi”, sagði Ester.
Guðmundur H. Garðarsson,
formaður Verlunarmannafélags
Reykjavikur á sæti i Atvinnu-
málanefnd, sem lagði tillöguna
fram i endanlegri mynd, sagði i
viðtali við blaðið að hann áliti að
þetta væri mjög stórt verkefni,
sem ekki mætti draga.
,,Ég tel mjög brýnt að hraða
þessu; Hugmyndin er að rikis-
stjórnin láti kanna á hvaða svið-
um eru möguleikar fyrir aldraða
að starfa og á grundvelli slikrar
athugunar siðan kannað hvernig
unnt verði að framkvæma þetta.
Ég tel eðlilegt að aðilar vinnu-
markaðarins hafi þarna milli-
göngu og að skipaðir verði full-
trúar þessara aðila i undirbún-
ingsnefnd.”.
„Ermikiðum að verslunarfólki
sé sagt upp störfum vegna ald-
urs?”
„Já, það hefur aukist að fólk sé
látið hætta vegna aldurs. Það
verður æ erfiðara fyrir þetta
aldna fólk að halda vinnunni, þvi
samkeppnin er svo mikil. En
mörg eldri fyrirtæki hafa reynt að
halda sinu aldna starfsfólki. Yfir-
leitt er allmikið um léttari störf
hjá verslunarfólki, sem ætti að
vera hægtað láta aldraða vinna”,
sagði Guðmundur að lokum. ÞS.