Þjóðviljinn - 27.09.1975, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 27.09.1975, Blaðsíða 7
6 stÐA — ÞJODVILJINN Laugardagur 27. september 1975 UM „NÆRDEMOKRATI hið nálæga lýðræði Nýlega kom út aukablað af danska Information þar sem fjallað var um „nærdemokrati" eins og það er kallað á dönsku þetta, að fólk geti haft mótandi áhrif á næsta um- hverfi sitt. Átt er við þann flöt lýðræðis sem er miklu nákomnari hverjum einstaklingi en það sem felst í ,,þinglegri meðferð mála", ákvörðunum í undirnefnd borgarstjórnar eða yfirleitt í fulltrúalýð- ræði nútímans. Hugtakið ,,nærdemokrati" þýðir ekki að þingkosningar og f ulltrúamenska eigi þar með að falla úr sögunni, heldur að það sé ekki einhlítt. Þetta hefur nú legið á borðinu báða dagana i hugsjónafræðum sósíalista, en hitt er nýtt að ,,nærdemokrati" sé áhuga- efni á hægri væng stjórn- málanna. en þannig lítur dönsk pólitík út. Þjóðviljanum þykir ekki úr vegi að kynna ýmis þau sjónarmið sem f ram komu i hinu danska blaði. Þar var fjallað á gagnrýninn hátt um hugtakið „nærdemokrati", og því er vægast sagt ekki spáð miklum frama í borgara- legu þjóðfélagi. En þeim mun meira erindi er það talið hafa við alla viðleitni til að skapa „sósíalisma með mannlegu yfir- bragði", svo að gripið sé til orðasambands frá „vorinu i Prag" 1968. En meðal annarra orða: hefur nokkur lesandi tillögu um hvernig þýða mætti orðið „nærdemo- krati" á íslensku? hj— Stéttaskiptingin í auövaldsríkinu Danmörku Vítahringur ójafnaöar gerir lýöræöiö aö blekkingu—eöa hvaö? Þjóðfélagshættir í Dan- mörku þróast ekki i átt til aukins lýðræðis, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnmála- manna um tryggð við hug- sjónir lýðræðis og þrátt fyrir vissa viðleitni til lýðræðislegra ráðstafana. Lýðræðiðð takmarkast vegna skorts á jöfnuði, og ójöfnuðurinn í þjóð- félaginu frekar eykst en minnkar. Þetta er niðurstaðan sem rót- tækir menn draga af þeim þjóðfélagsrannsóknum sem geröar hafa verið i Danmörku á undanförnum árum varðandi for- sendur lýðræðisins. Þeir telja að menn hrærist i vitahring: For- sendur lýðræðisins felast i jöfnuði. Forsendur jafnaðarins felast i lýðræði. Og hvar á þá að byrja? 24 þúsund heimili Einn fjórði hluli af öllum þeim verðmætum sem er i einkaeign i Danmörku tiiheyrir einu prósenti allra heimila i landinu, þeas. fólk á þessum tiltölulega fáu heim- ilum, hvort sem það er skrifaö á „heimilisföður” eða aðra.á l/4ða allra einkaeigna. Þarna á 24 þúsund heimilum er raunveru- lega yfirstétt og valdastétt lands- ins að finna. Hún rikir yfir miklum hluta atvinnulifsins, einnig landareignum, öðrum fast- eignum og aðstöðu i viðskipta- lifinu. Börnin á þessum heimilum fá besta menntun, og frá þessum sömu heimilum koma tilvonandi leiðtogar þjóðlifsins: i atvinnulifi, i stjórnsýslu, hjá dómstólum og í menningarlifi. 50% eiga 1/2% Sé nú öllum heimilum landsins raðað upp eftir verðmæti eigna og tekinn sá helmingur heimila sem minnstar eignir á — en á þó ein- hverjar — þá er niðurstaðan sú aö þessi helmingur heimilanna á hálft prósent einkaeigna. Meðal- eign á heimili hjá þessu fólki nemur 160 þúsund krónum (isl), en hjá heimilunum 24 þúsund voru meðaleignir metnar á 300 miljónir. 1/3 eignalaus Svo er enn hægt að finna heimili þar sem alls engar eignir eru fyrir hendi (og er þáaðsjálfsögðu horft fram hjá frumstæðustu bús- munum og fatnaði). Þetta eigna- lausa fólk er einn þriðji hluti dönsku þjóðarinnar. Þessar tölur um eignaskiptingu endurspegla þann ójöfnuð i samfélaginu sem mestu máli skiptir og liggur öllum öðrum ójöfnuði til grundvallar. Og eignaskiptingin hefur alls ekki orðið neitt jafnari i tið siðustu kynslóðar. Tekjuskiptingin er einnig feiki- lega ójöfn,en sé tekið tillit til jafn- andi áhrifa frá sköttum, tryggingabótum oþh. aðgerðum rikisvaldsins, er þó útkoman sú að tekjurnar skiptast mun jafnar niður en eignirnar. Tífaldur tekjumunur Danir telja að skattsvik séu ekki það mikil i landi sinu að úti- lokað sé að mæla tekjuskiptingu i skattframtölum (hér á Islandi mun vera minna traust á skatt- framtölum i þessu efni). Og dönum finnst það segja talsvert að sú starfsstéttsem hafði hæstar meðaltekjur á kvæntan framtelj- anda 1970 var með 10 sinnum hærri meöaltekjur en sú starfs- stétt sem minnstar tekjur hafði. Annars vegar voru málfærslu- menn, hins vegar leiguliðar i sveit. Athuganir leiða i ljós að á árunum 1960-1970 dró siður en svo úr mismun hæstu og lægstu launa i Danmörku, frekar jókst munurinn. Samhangandi ójöfnuður Allar þjóðfélagsathuganir á Norðurlöndum (þ.e. utan Islands) sem gerðar hafa verið hin siðari ár sýna að ójöfnuður á einu sviði fylgir ójöfnuður á öðru sviði. Þjóðfélagshópar sem hafa litið fyrir sig að leggja i efnahags- legu tilliti eru illa settir á hér um bil öllum sviðum lifsins. Lágum tekjum fylgir hætta á heilsuleysi og atvinnuslysum, einnig óþrifa- leg og forheimskandi vinna, óholl húsakynni, litil menntun, lélegt viðurværi, likur fyrir uppíausn j fjölskyldunni og litlir möguleikar fyrir börnin. Það má þvi segja að mikil- vægasta valiö sem hver maður stendur andspænis á lifsleiðinni sé valið á foreldrum! Þannig endurnýjast ójöfnuður- inn með hverri nýrri kynslóð, og erfist um leið frá kynslóð til kyn- slóðar. Það er ekkert annað en imyndun sem byggist á blekkingu að halda aö öllum séu gefnir sömu möguleikar i þjóðfélaginu. Það er ekki einu sinni gert i skólanum þrátt fyrir allar yfirlýsingar um hið gagnstæða. Langskólanám: 5% og 54% Athuganir i Danmörku sýna að möguleikar barns úr lægstu þjóð- félagsstéttinni til að komast i menntaskóla eru 7-10 sinnum minni en barns úr hæstu þjóð- félagsstéttinni. Ariö 1971 fóru 5% barna úr lægstu stéttinni (ófag- lærðir verkamenn) i mennta- skóla, en 54% af börnum úr hæstu Laugardagur 27. september 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 stéttinni (sjálfstæðir atvinnurek- endur og opinberir forstjórar). Innritunarhlutfallið var hins vegar 17% að meðaltali. Til viðbótar þessu óréttlæti kemur svo það að lægri þjóð- félagsstéttirnar greiða með sköttum sinum skólagöngu sem þeirra eigin börn njóta að afar takmörkuðu leyti. 22% eru ráðalaus gagnvart yfirvöldum Það er ekki að öllu leyti auðvelt að finna tölur sem mæla þátttöku fólks af hinum ýmsu stéttum i lýðræðinu, þátttöku i þjóðfélags- legum ákvörðunum. Þó hefur sannast að meðal þess fólks sem ekki skilar sér á kjörstað i almennum kosningum er yfir- gnæfandi hluti úr lágstéttum, þ.e.a.s. úr þjóðfélagshópum sem hafa lágar tekjur og litlar eignir. Samkvæmt sænskri athugun tók þar i landi rúmur þriðjungur fólks i hástéttum einhvern þátt i pólitisku starfi, en hjá lág- stéttunum var þetta hlutfall um fjórðungur. Og svo er fólkið sem ..ekki getur samið bréf til yfirvaldanna eða kært yfir ákvörðun yfirvalda og þekkti engan sem hefði getað aðstoðað við það”. Þetta er bágt ástand og svona er ástatt fyrir fjórða hverjum manni, 22%, i sænskum lágstéttum. En i hástettunum finnast ekki dæmi um þetta nema hjá 25sta hverjum manni eða 4%. Forréttindahringurinn Nærtækasta skýringin á ójöfnuðinum i þjóðfélaginu og þvi hvað hann er viðvarandi er sú, að þjóðfélagið er stéttskipt og völdin eru i höndum forréttindahópa. Þau störf sem forréttindahóp- arnir inna af hendi telja þeir sjálfir hin mikilvægustu af öllum störfum i þjóðfél., þess vegna þurfi að launa þau best. En þetta gengur lika i hring: Þar eð ákveðin störf eru hálaunuð, eru þau talin mikilvæg fyrir þjóðfélagið. Og þar eð þau eru álitin mikilVæg, eru þau hálaunuð! En þá er reyndar þeirri spurningu ósvarað, af hverju forréttindastéttir verða til, og þá er svar marxismans haldbest: einkaeign á lifsskilyrðum annarra skapar aðstöðu til arð- ráns og drottnunar. Músik fyrir mjólkurlfyrnar Danska - vinnuveitendasam- bandið hefur gefið út fjölda rit - linga um nauðsyn þess að gera verkstjórn á vinnustað og for- stjórn i fyrirtækjum lýðræðis- legri. Það þyrfti að gera fólk „sjálfstætt”, ýta undir „sköpun- arþrá” þess, þroska með fólki „hæfni til aðlögunar að nýjum viðhorfum”, létta framkvæmdina með „hópvinnu” og „auðga” starfið. Yfirleitt þyrfti að koma „hvati að neðan”, (sem byggist á skilningi á tilgangi) i stað „skip- unar að ofan”. Hugarfarsstýring Hvað snýr nú upp á kúnni? Get- ur það verið að auðmagnið sé far- ið að krefjast meira lýðræðis? Sé málið skoðað vandlega kemur i ljós að danska vinnuveitenda- sambandið (ásamt álika atvinnu- rekendasamböndum viðs vegar um heim) hefur ekki yfirgefið sina gömlu stef'nu gagnvart til- gangi vinnunnar. Hann er ó- breyttur: hámarksgróði fyrir auðmagnið hvað sem hag launa- fólksins, vinnudýranna, liður. „Sjálfstæði” i vinnunni á að felast i þvi einu að byggja kapitaliskan tilgang starfsins inn i eigin við- horf starfsmannsins til þess að sem minnst vinnuafl fari til spillis við það að einn starfsmaðurinn stjórni öðrum. 1 velreknum auð- valdsfyrirtækjum viðgengst ekk- ert skrifræði skrifræðisins vegna, heldur verður að telja það ákjós- anlegt að yfirstjórnin sé litil en virk. Þetta er allur galdurinn við „hvetjandi” launakerfi eins og á- kvæðisvinnu og iauna-auka (bón- us). Ekki hugarfars- breyting En vei þeim sem halda að „sjálf- stjórn” og „leit að vandamálum” i nútima vinnufræði þýði það að launafólk eigi sjálft að setja vinn- unni markmið eða ákveða i hverju vandamálin liggja i stærra samhengi. Þetta hefur komið glöggt i ljós i nýja háskólanum i Hróarskeldu i Danmörku þar sem hafa verið gerðar tilraunir meö svonefnda „umhverfismenntun”. Danska vinnuveitendasambandið sér fjandann sjálfan i viðhorfum eins og þeim sem þar þróast. Þvi það var aldrei meiningin að tæknilegir starfsmenn nýsloppnir út úr háskóla færu að stýra fram- leiðslunni atvinnurekendum til tjóns en verkafólki i hag. Jafnvel þótt sýna megi fram á þjóðhags- legan hagnað af slikum tiltektum. Frávisun veruleikans Þess vegna er það að leiðara- höfundur Information kemst að þeirri niðurstöðu að hinn blákaldi veruleiki visi talinu um „meðá- kvörðunarrétt” i fyrirtækjum á bug. Þar sé aðeins um innantómt hjal að ræða sem gefi falska til- finningu um samstöðu. „Lýðræði á vinnustað” sé eins og músik fyrir mjólkurkýrnar svo að þær selji betur. Og þegar til lengdar lætur láti verkalýðurinn ekki blekkjast. Tvöfeldni Hartlings I Danmörku tala stjórnmála- mennirnir mikið um lýðræði sem sé nákomið einstaklingnum. Þannig er t.d. með ihaldsmann- inn Poul Hartling formann Venstre. Hann flytur hástemmd- ar ræður um það fyrirkomulag sem fær einstaklingnum „meðá- byrgð” gagnvart þeirri þjóðfé- lagsstarfsemi sem hann er i beinni snertingu við. En þetta er dálitið loftkennt þvi að jafnframt auglýsir Hartling eftir pólitiskri samstöðu gegn öllum þeim öflum sem krefjast afnáms einkaeignar á framleiðslutækjum. Og svo er hann fylgismaður EBE sem ein- mitt er verkfæri hinna stóru ein- inga! Þverstæður jáfn- aöarmanna Svipuð þversögn einkennir af- stöðu danskra jafnaðarmanna sem tala um sem stefnu sina: annars vegar að koma á atvinnu- lifi sem byggist á sameign og sjálfstjórn á vinnustað, hins veg- ar að viðhalda markaðskerfinu ó- trufluðu. En annað útilokar hitt. Samtimis er svo bent á það að formleg áhrif starfsmannahóps i fyrirtækjum er i mörgum tilvik- um miklu minni hjá samvinnufé- lögum danskra jafnaðarmanna heldur en hjá ýmsum einkaaðil- um i atvinnurekstri. Að teyma og reka Það er þvi ljóst, segir In- formation.að baráttan stendur á- fram milli tveggja höfuðstefna varðandi eðli vinnunnar. Annars vegar er það viðhorf að menn séu eins og latir rakkar sem ekkert geri nema með kjötbita fyrir framan trýnið og sparki i aftur- endann, þ.e.a.s. teymdir áfram af ágóðahvöt og launahækkunum, og reknir áfram, af ótta vi,ð gjald- þrot og uppsögn. En hitt viðhorfið byggist á öðrum skilningi á eðli mannsins: vinnan er mannleg réttindi en ekki þungbær skylda. Vinnan leyst úr ánauð auðvalds og firringar er aðferð til göfgunar og þeirrar umbreytingar á þjóð- félagslegum tengslum sem felur i sér frelsi. Þaö sem gleymdist í Togliattigrad Haustið 1971 heimsótti Mario Dido, formaður verkalýðssam- bands kommúnista á ttaliu, hið mikla verkból bilaiðnaðarins sem itölsku FIAT-smiðjurnar voru þá að byggja og skipuleggja i Togli- attigrad i Sovétrikjunum. Heim- kominn lýsti Dido þvi hvernig allt verkbólið væri úthugsað af verk- fræðingum FIATs og ekki væri hægt að greina neinn mun á skipulagningu vinnunnar á hinum nýja stað frá bilasmiöjunum heima i Torino. En eitt hefði gleymst. Það að heima á Italiu stendur afl verkalýðsfélagsins gegn hinni þrauthugsuðu skipu- lagningu og forstjóranna og þeirra sem fyrir þá starfa. Og þannig kemst á það jafnvægi sem gerir vinnuna á slikum stað bæri- lega. En verkalýðshreyfing sem ris undir slikum kröfum væri alls ekki til i Sovétrikjunum og raun- ar hvergi i Austur-Evrópu. Þess vegna yrði verkbóliö i Togliatti- grad verri vinnustaður en launa- vinnubúðir i auövaldslöndum. Vannýttir möguleikar Þegar þetta er haft i huga — og það hefurekkert breyst siðan 1971 n- má svo sannarl. spyrja hvort það var þá nokkurs virði að af- nema einkaeign á franleiöslu- gögnum i Rússlandi og löndum Austur-Evrópu. Um þetta mætti skrifa þykkar bækur og hefur enda verið gert. En kjarninn i svari sósialista hlýtur að vera þetta, að sovéska kerfið felur i sér möguleika sem ekki hafa verið nýttir i þágu alþýðunnar. Það að taka framleiðslutækin i almanna- eigu er nauðsynleg forsenda en ekki einhlit. Fjölda margt fleira þarf að koma til.en þvi er hægt að lýsa með hinu gamla vigorði Marx: „sjálfstjórn framleiðend- Augljóst er að i Sovétrikjunum hefur „alræði öreiganna” snúist upp i alræði yfir öreigunum af hálfu flokks og rikisvalds. Hins vegar er það ekkert einfalt mál að átta sig á skrifstofuvaldinu, innri mótsögnum þess og hagsmuna- baráttu. Þarna er ekki um að ræða sérstaka stétt sem hafi full- an ráðstöfunarrétt á framleiðslu- tækjunum og afrakstrinum af vinnu verkalýðsins. Það er langur vegur frá þvi að þarna riki óheft markaðskerfi sem lýtur kapital- iskum lögmálum. En að visu er margt sem bendir til þess að markaðurinn fái æ frjálsara spil. Þar kemur m .a. til æ meira efna- hagssamstarf vestur á bóginn. Milli tveggja elda Sovéskir forstjórar fara á við- skiptaháskólann i Harvard til þess að nema fjármálastjórn og hagnýtustu aðferðir við rekstur fyrirtækja. Heimkomnir gera þeir kröfu um að vinnuagi verði bættur með þvi að fá heimild til að segja upp fólki og endurráða fólk að vild. En sem betur fer kemur skrifstofuvaldiö i veg fyrir slikar auðvaldsaðferðir, enda er það svo að ef atvinnulifið gengi sjáifkrafa samkvæmt markaðs- lögmálum færi að sneyðast um verkefnin hjá skrifstofuvaldinu. Þá færi fólk að spyrja: Hvað höf- um við með skrifræðið aö gera? Það skapast þvi nokkurs konar samstaða milli skrifstofuvaldsins og verkalýðsins. En óski verka- lýðurinn eftir raunverulegum á- hrifum á vinnustaðnum finnur hann bandamenn i æðra settu tæknilegu starfsliði. Vitanlega er þetta ekki full- komin lýsing á aðstæðum i sovéskum verkalýðsmálum en hún sýnir þó blindgötu hins sovéska kerfis. Þarna er ekki það kerfi sem verkalýður Vestur- landa getur tekið sér til fyrir- myndar þegar hann leitast við að skapa þjóðfélag raunverulegs iýðræðis og jafnaðar. Hér þarf að sjálfsögðu jafnt að lita á aðstöðu hvers einstaklings til áhrifa á umhverfi sitt og á kerfið sem heild. I þessu sam- bandi segir launamismunur æði mikla en þó takmarkaða sögu: Munur hæstu og lægstu launa er tæpast minni i Sovétrikjunum heldur en hann er i Danmörku. Markaöurinn ræður Júgóslavneskir kommúnistar leituðust við að skapa sósialisma sem byggðist á þvi að raunveru- legt vald lægi hjá verkalýðnum og hið dagsdaglega framkvæmda- vald skyldi vera á hverjum vinnustað. Rikið, verkalýðsfélög- in og flokkurinn væru sett undir þetta vald verkalýðsins og væru i reynd samræmingartæki. Þetta hljómar nú nógu vel og auðvitað var þessu stefnt gegn þeirri mjög svo dapurlegu reynslu sem var af samþjöppun valdsins i Sovétrikjunum. En reynslan er sú að markaðslög- málin hafa fengið alltof mikið frjálsræði með hrikalegum af- leiðingum fyrir verkamenn: at- vinnuleysi og óhóflegur launa- munur fyrir sömu vinnu, eða allt að 5-faldur. Auk þess hefur starfsfólk fyrirtækja orðið að sætta sig við þrúgandi forstjóra- vald á þeim forsendum að „ef for- stjórinn er ekki duglegur, þá stenst fyrirtækið ekki samkeppni og við komumst á vonarvöl”. Það er semsagt markaðurinn sem ræður. Þó þekkjast staðbundin verkföll. Reyndar er það ekki þannig að hagstjórnaraðferðir i Júgóslaviu hafi verið eins og óbreyttar und- anfarin 30 ár. Það hafa skipst á timabil þegar makaðurinn fékk að ráða miklu og timabil þegar stjórnvöld gripu i taumana. Þvi verður ekki lýst nánar hér að sinni. Tvimælalaust rikir meira frjálsræði i Júgóslaviu en flestum þeim löndum öðrum sem kenna sig viö sósialisma. En þó að þarna sé margt áhugavert er margt sem mælir á móti þvi að þarna hafi lykillinn að hinu æskilegasta formi þjóðfélagsþróunar verið fundinn. En það verður þó að segjast að öllu þvi þjóðfélagslega óréttlæti sem júgósiavneska sjálfstjórnar- fyrirkomulagið elur af sér fylgir þó það, að tiltölulega margir þjóðfélagsþegnar æfast i þeim mannlegu samskiptum sem felast i ákvarðanatöku i félagsskap. Og það visar til betri framtiðar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.