Þjóðviljinn - 27.09.1975, Side 9
Laugardagur 27. september 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Burt með
þríhöfða
þursinn
Hvað er það, sem rekur á eftir
islenskum verkamönnum að ráða
sig til starfa við byggingu fyrir-
hugaðrar málmblendiverksmiðju
i Hvalfirði?
Er það samdráttarstefna rikis-
stjómarinnar, sem veldur þvi?
Að menn séu beinlinis hræddir
um að fá ekki neitt annað að
starfa — að þessi stefna sé hrein-
lega stjórntæki, sem notað sé til
að veita vinnukraftinum inn á
þessa braut? (Þess sama má
spyrja um Keflav.flugvöll —
Kanavinnuna) Eða eru menn svo
áfjáðir i að þjóna undir erlenda
auðhringa og álika fyrirbrigði,
sem hafa öryggisútbúnað i lág-
marki og hreinsundartæki sem
jafnvel gera minna gagn en engin
og svifast þess jafnvel ekki að
koma mengandi fyrirtækjum sin-
um fyrir á sem allra-viðkvæm-
ustu stöðum hvað varðar náttúru-
vernd — eins og kemur glöggt
fram hér á landi, þar sem Faxa-
flóinn og Mývatnssveitin hafa
orðiðfyrir valinu. Faxaflóinn hef-
ur manni skilist vera ein aðalupp-
eldisstöð margra fiskstofna og
Mývatnssveitin er sögð vera ein-
stök perla á jarðriki hvað varðar
lifriki og sérstætt jarðfræðilegt
náttúrufar. Eða er þeim hjartan-
lega sama um hvar þeir leggja
hönd að verki?
Úr þvi stjórnvöld okkar eru svo
staurblind og fyrirhyggjulaus,
sem raun ber vitni, að ljá máls á
slikum framkvæmdum, veitir
sannarlega ekki af, að almenn-
ingur hafi vit fyrir ráðamönnum
sinum og geri þeim þetta og ann-
aö állka ráðabrugg og brölt ó-
mögulegt. Með þvi t.d. að taka
alls ekki I mál að vinna við þessu
lik óþurftarverk. Hér á íslandi er
nóg annað að starfa — hvað sem
hver segir. — Og ef svo reynist
ekki þá er einhver maðkur i mys-
unni.
Núna I vor vissi ég til, að nokkr-
ir skólakrakkar gengu sig meira
og minna upp að knjám i atvinnu-
leit — hvernig þeirri göngu
lauk veit ég ekki. — En á ein-
um stað, sem þau knúðu dyra,
var þeim gefin nokkur von
um, að e.t.v. gætu þau fengið
eitthvað að gera við málmblendi-
verksmiðjuframkvæmdirn-
ar á Grundartanga. Þau sögð-
ust nú ekki hafa áhuga á þvi at-
vinnutilboði — þvi þau væru á
móti þeim framkvæmdum. Þá
voru þau spurð með miklum
undrunarsvip — hvort þau
myndu láta þessa skoðun sína
ganga út yfir efnahag sinn. Þau
kváðu öll já við. En þetta er nú
kannski ómerkur útúrdúr.
Það var sagt frá þvi i blöðunum
ekki alls fyrir löngu, að þarna á
vinnustaðnum á Grundartanga
væri nánast engin aðstaða til eins
né neins — og er það ærið aumt.
En þó tel ég, að enn muni öll að-
staða og aðbúnaður þarna á
staönum eiga eftir aö veröa
margfalt meira niðurlægjandi
fyrir alla aðila — ef það er rétt, að
þar eigi að flokka menn i 1.
flokks, 2. flokks og 3. og jafnvel 4.
flokks menn — og þeir látnir sæta
gifurlegum mismun i öllum að-
búnaði eftir þessari aðgreiningu.
Hugsunarhátturinn, sem liggur
að baki þessu er greinilega á
grófu miðaldastigi — eða þvi
stigi, sem nýlendukúgun og allt
arðrán byggist — þ.e. að fólki sé
haldið á vissu undirlægjustigi.
1 sambandi við þá erlendu stór-
iðju, sem þegar hefur verið
þvinguð upp á islendinga og hlotið
blessun landsfeðranna má sjá, að
stjómsemi þeirra er æði mis-
brestasöm og spekin ekki á sér-
lega háu stigi. — En það má lika
ORÐIÐ
CD
FRJÁLST
draga allskuggalegar ályktanir
af þvi, hvernig kerfið muni vera
saman sett af þvi, hveriiig við-
brögðin eru, þegar upp kemst um
asnastrikin og handvömmina. —
Meirihluti almennings þegir og
hefur enga skoðun — þ.e. dauttal-
menningsálit.Og svo — að þvi er
viröist — þvi minni hæfni, sem
mennsýna og þvi meiri vitleysur,
sem þeir gera, þvi' hærra er þeim
hossað. Það er bara að koma ári
sinni vel fyrir borð — hafa lag á
þvl að pota sér i vissa valda- og
fjárhagsaðstöðu — þá fyrirgefst
flest. Til þessa þarf að hafa mátu-
lega takmarkað gáfnafar, á-
kveðna ósvifni, sæmilegt kjafta-
vit og sambönd á réttum stöðum.
— Tök á að gæða hlutina vissum
kunnáttubrag — gera þá sem
flóknasta og ógegnsæjasta með
málskrúði og mæigi og meðferð
talna — svo að flestu sæmilega
greindu fólki reynist ofviða að
brjótast i gegnum myrkviðið.
Flestum þykir vist óþarft starf
að auka á gróða auðhringa. Og
um það geta vist allir verið sam-
mála og raunar vissir, að aðal-
markmið þeirra muni vera að
græða sem mest sjálfir. Þeir
samningar, sem gerðir voru við
Alverið sællar minningar — eru
til háborinnar skammar og van-
virðu eins og allir vita — og ágætt,
dæmi um, hvernig slik samnings-
gjörð var möguleg. Var það
heimska, sem olli — vankunnátta
— eöa beinlinis gert að yfirlögðu
ráði (það eru til orð yfir slíkt at-
hæfi, en best að nefna þau ekki —
Grindavík
Laust er starf á skrifstofu bæjarfógetans i
Grindavik. Vinnutimi frá kl. 12—17 alla
virka daga nema laugardaga. Laun
samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal skilað til
undirritaðs fyrir 15. okt. nk.
Bæjarfógetinn i Grindavik og Keflavik,
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu.
þvi fyrir svoleiöis munnsötnuo
geta menn lent i tugthúsi eða orð-
ið fyrir fjársektum á Islandi nú á
þessum siðustu og verstu tim-
um). Engu af þessu vill maður
trúa — og allt er þetta jafn slæmt.
En samningarnir eru staðreynd
— og þá á ekki að fyrirgefa né
gleyma þeim.
Yfir þetta allt leggja menn
blessun sina.
Svo er það eitt enn.
Eru þessar verksmiðjur, - sem
verið er að klina upp á okkur, eins
fjarskalega nauðsynlegar mann-
kyninu og af er látið? Til hvers er
það efni, sem þarna er unnið,
aðallega notað? Þetta er atriði,
sem vert er að athuga betur. Er
það ekki sérstaklega mikið notað
til að smiða úr allskyns tæki til
vigbúnaðar og striðsrekstrar?
Svo að, þegar öll kurl koma til
grafar, þá séu Islendingar nú
kannski teknir að föndra við
vopnaframleiðslu —- þ.e. einn
hlekkinn I þeirri löngu fram-
leiðslukeðju? Spyr sá, sem ekki
veit.
Við Islendingar búum hér mitt i
miklu gnægtabúri matvæla, og
mætti ætla, að nóg væri að starfa
við framleiðslu fæðu fyrir svelt-
andi mannkyn — eins og menn
taka svo hátiðlega til orða, þegar
mikið liggur við. Þar hlýtur okkar
stóribja að vera og hvergi annars
staðar. Sem sagt búskapur upp á
hitaeiningar.
Allt skraf um, að við viljum
koma yfir á aðra allri mengandi
stóriðju — en sitja sjálf i ómeng-
uöu umhverfi — en njóta siðan
þeirra hlunninda, sem þessi
margumtalaða stóriðja ber i
skauti sér — er blátt áfram
heimskulegt fjas og kjaftæði. Af
hverju megum við ekki læra af
mistökum annarra? Og hvað er i
rauninni meiri fjarstæða og
heimska en að vera að flytja
hingað til lands efni til vinnslu
langt aö, þegar við höfum meira
en nóg annað aö starfa og verk-
efnin eru við bæjardyrnar og inn-
an okkar vébanda?
Það er engu likara en þeir
menn, sem valist hafa 1 æðstu
stjómsýslu okkar séu innan úr
belju eða bergnumdir — og viti
ekkert hvað er að gerast i kring-
um þá i heiminum. Það er eins og
þeir hafi verið bólusettir við
skynsemi.
Svo er það annað.
Hverjir vilja vinna i svona
verksmiðjum?
Er ekki óþarft að koma upp
fleiri vinnustöðum hér á lancji^
sem eru taldir heilsuspillandi —
og á allan hátt einhverjar ömur-
legustu vinnustöðvar i viðri ver-
öld. Þá held ég sé einhver munur
að stjana undir islenska baulu-
rassa út um breiðar byggðir
landsins og róa á fengsæl fiski-
mið, en að kynda undir hvitgló-
andi vitiskötlum útlendra auð-
jöfra.
Kannski ráðamenn okkar
ágæta langi sjálfa til að vinna þar
i eigin hágöfugu persónu — fullan
vinnudag i nokkur ár til tilbreyt-
ingar, þegar þeim fer að leiðast
aö stjóma? Þeir fengju þá lfka að
njóta þess ágæta aðbúnaðar, sem
til stenduraökorna þarna upp (þvi
varla á að tjalda til einnar nætur),
Fyrir vinnu sina fengju þeir svo
sjálfsagt dagvinnulaun Dags-
brúnarverkamanns með ein-
hverju álagi — að viðbættri nægri
eftirvinnu (sem hefur mikið að-
dráttarafl). Og ekki má gleyma
þvi, að ef þeir hlytu sinn bróður-
part af allri dýrðinni, gætu þeir
búist við vænni örorku — annað
hvort vegna slyss eða mengunar
á vinnustað — nema hvort
tveggja yrði. Ef svona færi,
þyrftu þeir baraað hafa verið 10
ár i lifeyrissjóði verkamanna til
að fá einhverjar smáörorkubætur
— að sjálfsögðu óverðtryggðar.
Svona mætti lengi telja.
Þetta er eftirsóknarvert!
Ég legg þvi til, að ef úr frekari
framkvæmdum verður þarna á
Grundartanganum, þá verði
meiri hlutanum af ráðamönnum
okkar — ráðherrum og öðru stór-
menni — umsvifalaust veitt lausn
frá störfum og þeir látnir sitja
fyrir vinnu þar — eins og þeir
hafa sérstaklega lagtáherslu á að
islendingum hlotnist þarna á •
Tanganum — af mikilli landsföð-
urlegri framsýni og umhyggju
fyrir velferð þegnanna. — Nú —
eða þá að þeir fái inni i Alverinu
og I Kisilgúrnum — allt er það
jafn sælt.
Skrifað i ágúst 1975.
Björg Herinannsdóttir
Frá Sjálfsbjörg,
félagi fatlaöra í Reykjavík:
SÖLUBÖRN — SÖLUBÖRN
Mætið á eftirtalda staði á morgun kl. 10 f.h. og seljið merki
og blað Sjálfsbjargar:
Reykjavik:
Alla barnaskóla og vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar,
Hátúni 12.
Kópavogur:
Kársnesskóla, Kópavogsskóla, Digranesskóla og Snæ-
landsskóla.
Garðahreppur:
Barnaskólann.
Hafnarfjörður:
Viðistaðaskóla, Lækjarskóla og Oldutúnsskóla.
Seltjarnarnes:
Mýrarhúsaskóla.
Mosfellssveit:
Varmárskóla.
Góð sölulaun.
Sjálfsbjörg,
félag fatlaðra I Reykjavik.
Kvöldskólinn
Nemendur mæti 1. október sem hér segir.
4. bekkur kl. 7
3. bekkur kl. 9
Aðfaranám kl. 8
Viðskiptadeild mæti 2. október kl. 7.30.
RÍKISSPÍTALARNm
lausar stöður
LANDSPíTALINin :
DEILDARHJUKRUNARKONA,
HJUKRUNARKONUR, SJUKRA-'
LIÐAR óskast til starfa á nýja
sjúkradeild Landspitalans fyrir
framhaidsdvalarsjúklinga á Hátúni
10. Deildin mun væntanlega taka til
starfa i október nk. Umsóknum ber
að skila til skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 15. október nk. Upplýsingar
veitir forstöðukonan, simi 24160.
DEILDARHJUKRUNARKONA
óskast á nýja vökudeild kvenlækn-
ingadeildar Landspitalans. Um-
sóknum ber að skila til skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 15. okt. n.k.
Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
konan, simi 24060.
VÍFILSSTAÐ ASPÍ TALI:
SJUKRALIÐAR óskast til starfa nú
þegar eða eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar veitir forstöðukonan, simi
42800.
LANDSPÍTALINN:
FóSTRA óskast til starfa á Geðdeild
Barnaspitala Hringsins nú þegar
eða eftir samkomulagi. Upplýsingar
veitir yfirhjúkrunarkona Geðdeild-
arinnar, simi 84611 milli kl. 12 og 14
næstu daga.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍM111765