Þjóðviljinn - 27.09.1975, Síða 12
o/omu/m
Laugardagur 27. september 1975
Yrkingar
í Chile
SANTIAGO 26/9 reuter —
Herforingjastjórnin i Chile
leitar nú dyrum og dyngjum
að skáldi sem fékk birt eftir
sig tvirætt kvæði i blaði. A yf-
irborðinu virtist skáldið vera
að hrósa herforingjunum fyrir
að steypa sósialistanum Alli-
ende af stóli og hreinsa þannig
til i landinu, en væru fyrstu
stafir hverrar linu lesnir sam-
an kom annar boðskapur i
ljós: „Morðingjar, harðstjór-
ar hersins og bjánar aftur-
haldsins”. Núverandi vald-
hafar taka þessa lýsingu til sin
og vilja nú yfirheyra manninn.
En það reynist erfitt að hafa
hendur i hári hans, enda var
nafnið undir kvæðinu dulnefni.
Kaupa
krórn áfram
WASHINGTON reuter —
Meirihluti fulltrúadeildar
bandarikjaþings hefur enn á
ný sýnt hug sinn til ógnar-
stiórnar hvitra manna i
Rhódesiu með þvi að veita á-
framhaldandi viðskiptum með
króm blessun sina. Með 209 at-
kvæðum gegn 187 felldi deildin
frumvarp sem miðaði að þvi
að fella svokallaðan Byrd-við-
auka úr gildi, en samkvæmt
honum hefur verið leyfilegt að
kaup króm frá Rhódesiu þrátt
fyrir viðskiptabann Samein-
uðu þjóðanna á minnihluta-
stjórn Smiths þar i landi.
Stuðningsmenn róhdesisku
fasistanna rökstuddu króm-
innflutninginn með þvi að ella
yrðu Bandarikin háð sovét-
mönnum og þar með væri
öryggið i hættu.
Króm er mikilvægasta út-
flutningsvara Thódesiu og
væru dagar Smith-stjórnar-
innar taldir á þeirri stundu
sem bandarikjastjórn sneri
við henni bakinu.
Dómar mildaðir yfir
6 af 11 dauðadæmdum
Mótmœlum rignir yfir Franco-Spán úr öllum áttum
AAADRID 26/9 reuter —
Allar líkur benda til þess
að fimm skæruliðar og
föðurlandsvinir hafi
verið teknir af líf i á Spáni
um það bil sem blöðin
komast fyrir augu
lesenda á morgun. 11
manns biðu aftöku en á
síðustu stundu mildaði
Franco einræðisherra
Spánar dauðadómana
yfir 6 þeirra og breytti
þeim í fangelsisdóma.
Þegar gengið var frá þessari
frétt i gærkvöldi hafði Franco
enn ráðrúm til að milda dómana
yfir hinum 5, en óliklegt var
talið að hann mundi gera það.
Dauðadómarnir voru staðfestir
formlega af rikisstjórn Spánar I
gær, og upplýsingaráðherrann
neitaði orðrómi um deilur um
málið. Þvi hafði verið hvislað að
8 ráðherrar hefðu hótað að segja
af sér i mótmælaskyni við
dauðadómunum.
Mennirnir sem biða dauðans i
birtingu i fyrramálið eru: Juan
Parades 21 árs og Angel
Oteaqui 33ja ára, báðir baskar,
Jose Baena Alonso 23ja ára,
Ramon Garcia Sanz 27 ára og
Jose Luis Sanchez Bravo 21s
árs, félagar i Frap, föðurlands-
fylkingu býlfingarsinna gegr
fasismanum.
Meðal þeirra sem Franco
mildaði dómana yfir voru tvær
stúlkur sem taldar eru vera
ófriskar og baskinn Garmendia
sem er orðinn andlega vanheill
vegna byssukúlu i höfðinu.
011 11 voru sakfelld fyrir að
hafa drepið lögregluþjóna
fasistastjórnarinnar.
AAótmæli
Mótmælin hafa dunið í
spænskum stjórnvöldum undan-
farna daga. Viða um Evrópu
hefur verið ráðist á sendiráð
Spánar og skrifstofur spænska
flugfélagsins. Blöð i grann-
rikinu Portúgal hafa mjög veist
að rikisstjórn Spánar og i dag
átti Antunes utanrikisráðherra
Portúgals fund með sendiherra
Spánar i Liddabon.
Waldheim framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna og for-
sætisráðherra Lúxemborgar
Tveir baskar: Til vinstri
Garmendia sem lifir við örkuml
vegna skotsára og ekki verður
tekinn af iifi, til hægri Oteaqui
sem biður dauðans án nokk-
urrar vonar um náðun.
Gaston Thorn sem er forseti
allsherjarþingsins sendu harð-
orð mótmæli i dag til Francos.
Alþjóðasamband frjálsra
verkalýðsfélaga varaði spán-
verja við þvi að i hönd mundu
fara vaxandi órói meðal verka-
lýðsins á Spáni ef úr aftökunum
yrði. Alþjóðasamband
jafnaðarmanna mótmælti
einnig.
Efnahagsbandalagið sendi
mótmælaskjal sem sagt var að
væri eins harðort og mögulegt
er, en Spánverjar hafa hug á þvi
að tengjast bandalaginu.
Fjölmargar rikisstjórnii
hafa látið i ljós andúð á
aftökunum.
Ráðstefna bátasjómanna hefst i dag:
Uppsögn samninga
— Ég tel víst að uppsögn
kjarasamninga, sem gilda
til næstu áramóta og mót-
un á þeim kröfum sem við
munum fara fram á verði
helstu mál þeirrar ráð-
stefnu félaga, sem aðild
eiga að bátakjarasamning-
unum, sem hefst á skrif-
stofu Sjómannasambands
islands í dag kl. 14, sagði
Jón Sigurðsson formaður
og mótun á þeim kjarabótum sem
við munum fara fram á aðalmálin,
sagði Jón Sigurðsson form.
sjómannasambandsins
Sjómannasambands is-
lands er við höfðum sam-
band við hann í gær.
— Þá munum við einnig yfir-
fara þá samninga sem siðast voru
gerðir, með það fyrir augum að fá
Bandarikin:
200 mílna
fiskveiðilögsaga
WASHINGTON 25/9 reuter ur fallist á frumvarp sem sögu út að 200 mílum frá
— Viðskiptanefnd öldunga- ætlað er að veita banda- ströndum.
ráðs bandaríkjaþings hef- ríkjastjórn fiskveiðilög- Framhaid & bis. ío
Dauðadómarnir á Spáni
Mótmæli á Lækjartorgi
I dag kl. 11 fyrir hádegi
verður haldinn útifundur
á Lækjartorgi til þess að
mótmæla dauðadómun-
um yfir spænsku frelsis-
hetjunum. Fundarboð-
endur hafa sent frá sér
eftirfarandi fundarboð:
Fasistastjórn Francos á Spáni
herðir nú tökin á alþýðunni.
Hundruðir frelsisunnandi spán-
verja — kommúnistar, baskar
og aðrir lýðræðissinnar — sitja i
dýflissum falangistanna og biða
dóms eða afplána hann. Nú
standa yfir réttarhöld ’ýlir
meðlimum spænsku andfasista-
samtakanna F.R.A.P. og
meðlimum baskisku þjóðfrels-
issamtakanna E.T.A.
11 manneskjur hafa þegar
verið dæmdar til dauða og enn
fleiri biða dauðadóms. Meðal
þeirra sem dæmdir hafa verið
til dauða eru tvær kornungar
konur, báðar barnshafandi.
Ýmis andfasisk frelsissamtök
á Spáni hafa beint þeirri beiðni
til lýðræðissinna og andfasista
um allan heim, að þeir hunsi
sólarferðir til Spánar, þvi að
tekjur franco-fasistanna koma
að stórum hluta frá ferða-
mannastraumnum. Við styðjum
þessa beiðni og hvetjum alla is-
lenska frelsis- og lýðræðisunn-
endur til þess að hunsa sólar-
ferðir til Spánar.
Pólitiskar fangelsanir, pynt-
ingar, réttarmorð á spænskum
lýðræðissinnum og ofsóknir
gegn baskisku frelsishetjunum
eru allt saman brot á mannrétt-
indastefnuskrá Sameinuðu
þjóðanna. Við krefjumst þess,
að islenska rikisstjórnin mót-
mæli grimmdarverkum
spænsku fasistanna opinber-
lega.
Kröfur okkar eru þessar:
Látið lausa alla pólitiska
fanga strax — afnemið dauða-
dómana!
Fullur stuðningur við andfas-
iska baráttu spænskrar alþýðu!
Undirrituð samtök hvetja is-
lenska alþýðu til að sýna and-
stöðu sina við grimmdarverk
fasismans á Spáni og taka þátt i
mótmælaaðgerðum, sem fram
munu fara á Lækjartorgi kl.
11.00 á laugardag 27/9 ,
Kommúnistasamtökin, Alþýóu-
bandalagið i Rvk. Eik m-1,
M.F.I.K., Fylkingin, StNE, SHt,
VERÐANDI.
Ennfremur hafa eftirfarandi
aðilar lýst yfir stuðningi við
fundinn og kröfur hans:
Alþýðubandalagið Akureyri,
Stjörn Verkalýðsfélagsins
Raufarhöfn, Kristján Ásgeirs-
son, formaður Verkalýðsfélags-
ins Húsavík, Hópur fylkingarfé-
laga á Akureyri, Byltingarsinn-
aðir marxistar Akureyri, Jón
Asgeirsson, formaður Alþýðu-
sambands Norðurlands, Aðal-
heiður Arnadóttir, formaður
Verkakvennafélagsins Sauðár-
króki, Verkalýðsfélagið Baldur
á tsafirði og formenn vcrka-
lýðsfélaga i Vestmannaeyjum
og á Siglufirði.
Jón Sigurðsson.
lagfært orðalag á ýmsum grein-
um hans.
— Mér þykir liklegt, að við
verðum með færri kröfur nú en
siðast, en leggjum þess meiri á-
herslu á kaupkröfurnar, sagði
Jón.
Hann taldi liklegt, að það yrðu
um 20 menn sem sætu þessa ráð-
stefnu. Annars veröa kröfurnar
ekki endanlega mótaðar á þessari
ráðstefnu, þar sem enn er rúmur
mánuður þar til segja þarf upp
gildandi samningum.
—S.dór
Blaða-
burður
Þjóðviljinn óskar eftir blað-
berum i eftirtalin hverfi:
Seltjarnarnes
Tómasarhaga
Kvisthaga
Brúnir
Álfheima
Sogamýri
Vinsamlegast hafið
samband við
afgreiðsluna sími 17500
ÞJÓÐVILJINN I
Sendlar
Sendlar óskast fyrir há-
degi eða allan daginn.
Þurfa að hafa reiðhjól
eða vélhjól.
ÞJÓÐVILJINN
sin\. 17500.
Kópavogur
Blaðberar óskast -víðsvegar
um bæinn. Vinsamlegast hafið
samband við umboðsmann i
sima 42073.