Þjóðviljinn - 04.10.1975, Page 4
4 StÐA — i»JÓÐVILJINN Laugardagur 4. október 1975
DiOÐVIUINN
mAl'gagn SOSlALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
ÝJtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljaná Úmsjón með sunnudagsblaöi:
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann - Arni Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Svavar Gestsson Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur,
Fréttastjóri: E}inar KarlHaraldsson Prentun: Blaðaprent h.f.
EGGIÐ KENNIR HÆNUNNI
Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra,
formaður Framsóknarflokksins myndaði
núverandi rikisstjórn handa Geir Hall-
grimssyni. Nú hefur þetta afkvæmi Ólafs
stýrt landinu um eins árs skeið og niður-
stöðumar liggja fyrir, Samkvæmt upplýs-
ingum Ólafs sjálfs ræður stjórnin ekkert
við efnahagsvandann. Hann hefur einnig
bent á það að verðbólguæðið sé einkum að
kenna stefnu rikisstjórnarinnar. Hefur
ráðherrann i þeim efnum sérstaklega bent
á gengisfellingar og gengissig núverandi
rikisstjórnar, auk þess sem verðhækkanir
opinberrar þjónustu eru nefndar til. Verð-
bólgan er þvi nú — gagnstætt þvi sem var
á valdatima vinstristjórnarinnar — af
innlendum toga spunnin, enda hefur ólaf-
ur sagt i ræðu nýlega: „Þess vegna er hér
að verulegu leyti um að ræða innlendar
orsakir.” Um leið og Ólafur lýsir þessu yf-
ir viðurkennir hann að það sé ekki kaupið
sem valdi þessari verðbólguþróun:
„Kauptaxtar allra launþega munu i pen-
ingum hækka um 27% frá árinu 1974, en
meðaltalsverðhækkanir eru um 48%...
Þetta sýnir, að um verulega kaupmáttar-
rýrnun er að ræða á þessu timabili.”
Þannig er komið hag launafólksins, en
hvað um aðra þætti þjóðlifsins, atvinnu-
vegina? í ræðu Ólafs kemur fram að
framleiðsla almenns iðnaðar verður i ár
svipuð og i fyrra, byggingastarfsemin
einnig, afkoma landbúnaðarins góð, af-
koma sjávarútvegsins misjöfn, góð til
dæmis i saltfiski og herslu, „sumar
greinar útflutningsiðnaðar hafa sýnt góða
afkomu” og verslunin verið með
svipaða afkomu og undanfarin ár , „og
betri afkomu en i fyrra.”
Þannig er stöðu atvinnuveganna háttað,
og virðist hún mjög svipuð þvi sem var i
fyrra þegar vinstristjórnin lét af störfum,
eða allgóð almenn afkoma. Það sem hefur
farið úrskeiðis er þvi innflutningsstefnan,
gjaldeyriseyðslan, handahóf og bruðl á
mörgum sviðum. Og ó .þvi ber Ólafur
Jóhannesson að sjálfsögðu fremur ábyrgð
en nokkur annar maður. Ræða hans er
hins vegar staðfesting á þvi að atvinnu-
greinarnar hafa stöðu til þess að tryggja
hærra kaup án þess að nokkrar verulegar
grundvallarbreytingar verði gerðar.
En hvað er þá til ráða i innflutnings- og
gjaldeyrismálunum? ólafur Jóhannesson
var þeirrar skoðunar i febrúarmánuði sl.
að setja yrði gjaldeyrisskorður, þannig að
innflytjendur gætu ekki hömlulaust vaðið i
gjaldeyrissjóðinn. En nú hefur Ólafur
Jóhannesson snúið við blaðinu. Hann hef-
ur sporðrennt i heilu lagi viðskiptakenn-
ingum ihaldsins og leggst algerlega gegn
þvi að skynsamleg stjórn sé á gjaldeyris-
og innflutningsmálum þjóðarinnar. Þetta
segir ólafur á sama tima og hann lýsir þvi
einnig yfir að hagur verslunarinnar i ár sé
með sérstökum blóma. Á sama tima og
„veruleg kaupmáttarrýrnun hefur átt sér
stað”, á sama tima og fyrirsjáanlegur er
verulegur halli á rikissjóði, á sama tima
og ljóst er að greiðslubyrði erlendra lána
er að sliga þjóðina og gjaldeyrisstaðan
rýrnar um 2.500 milj. kr. á árinu — á sama
tima er hagur verslunarinnar i blóma og
ekki má samt skerða hár á höfði milliliða
og braskara
1 upphafi var á það minnst að Ólafur
Jóhannesson væri faðir núverandi rikis-
stjórnar; af ræðu hans i Framsóknarfélagi
á dögunum er ljóst að eggið hefur verið
iðið við að kenna hænunni að undanförnu.
Ólafur Jóhannesson er ihaldsmaður. —s.
Hœttal
Sérsköttun
Már Pétursson, héraðsdómari
ritaði athyglisverða grein i
Þjóðviljann 26. sept., þar sem
hann gerir undirbúning nýs
frumvarps um sérsköttun hjóna
að umtalsefni. Már bendir á að
hér sé um slikt stórmál að ræða
að það megi ekki liggja lengur i
þagnargildi og hvetur Kvenrétt-
indafélag íslands og Rauð-
sokkahreyfinguna til þess að
taka afstöðu.
Hér skal gripið niður i grein
Más Péturssonar:
„Hverju er veriö aö breyta?
Eftir þvi sem ráöa má af þeim
yfirlýsingum er stjórnmála-
menn hafa að undanförnu gefið,
þá virðist meginefni væntanlegs
frumvarps verða i fyrsta lagi
það, að leggja til að sérsköttun
verði lögboðin, þ.e. hjónum
verði ekki heimilt heldur skylt
að telja fram hvort i sinu lagi. 1
öðru lagi að konan telji ekki ein-
vörðungu fram sinar eigin tekj-
ur heldur sameiginlegar tekjur
hjóna veröi Iagöar saman og
siðan skipt tii helminga.
Leynd yfir undirbúningi hins
nýja frumvarps — efni þess má
ráöa af likum.
Undirbúningsvinna við sér-
sköttunarfrumvarpið hefur far-
ið mjög hljóðlega fram en mun
þó vera i fullum gangi, enda
nauðsynlegt að leggja það fram
þegar i upphafi þings eða
snemma á þinginu, ef ákvæðum
þess á að beita við skattlagn-
ingu næsta ár. Ekki mun sérstök
nefnd hafa verið skipuð til þess
að semja frumvarpið, heldur
mun þriggja eða fimm manna
starfshópur hafa verið settur i
verkefnið og i honum munu vera
fulltrúi eða fulltrúar fjármála-
ráðuneytisins ásamt utanað-
komandi mönnum, þó mun ekki
hafa þótt ástæða til að kveðja til
konu eða fulltrúa kvennasam-
taka.
Þótt frumvarpið eða drög að
þvi hafi enn ekki komið fyrir al-
menningssjónir, þá má ráða
efni þess af lfkum. Þótt þvi sé
borið við, þegar spurt er, að
Már Pétursson
málið sé flókið og ekki útrætt,
þá er það i raun og veru einfalt
þegar sú yfirlýsing er höfð i
huga að koma eigi á sérsköttun.
Það eru þrir valkostir sem
raunverulega eru fyrir hendi og
til umræðu:
1. Helmingaskiptaregla, þ.e.
tekjur beggja hjóna lagðar
saman og deilt með tveim.
Henni munu fylgja hliðarráð-
stafanir sem munu hafa litla
þýðingu og verða smám saman
afnumdar.
2. Sérsköttun tekna hvors
hjóna um sig og heimild til
millifærslu.
3. Sérsköttun tekna hvors
hjóna um sig án millifærslu.
í öllum tilvikum yrði 50% frá-
drátturinn afnuminn.
Auðvelt er að ráða i, hver
þessara þriggja leiða verður
valin: Það má fletta upp i
Alþingistiðindum frá 1973, A-
deild bls. 693, þingskjal 171. Þar
er að finna frumvarp sem nú-
verandi fjármálaráðherra og
sjávarútvegsráðherra fluttu.
Það hefst á þessum orðum:
„Tekjum og eignum hjóna,
sem samvistum eru, skal skipta
til helminga og skattur reiknað-
ur af hverjum helmingi fyrir
sig...”
Engin ný gögn liggja fyrir
sem benda til þess að stefnan sé
breytt eða benda til. þess að
frumvarp i þessari mynd verði
ekki lagt fram sem stjórnar-
frumvarp, ef af framlagningu
sérsköttunarfrumvarpsins
verður á annað borð.
Áhrif hinnar nýju sérsköttunar
En hvaða þýðingu mundi sllk
lagabreyting hafa skattalega
séð?
Nú er það svo, að meðaltekjur
bæði hjóna og einstaklinga
koma i næsta skattþrep, þ.e.
40% tekjuskatt. Tekjur hjóna,
þar sem konan vinnur að ein-
hverju marki utan heimilis,
munu eftir breytinguna áfram
koma i hæsta skattþrep. Það er
þvi alveg ljóst að skattar hjóna,
þar sem konan vinnur utan
heimilis, munu hækka verulega,
i algengum tilvikum mun tekju-
skatturinn hækka um og yfir
25%, ef konan aflar helmings
teknanna, en hækkunin yrði
þeim mun minni sem tekjur
konu eru minni hluti heildar-
teknanna. Nefna má dæmi til
skýringar: Ef skattgjaldstekjur
hjóna eru alls kr. 1800 þúsund,
sem væntaniega verður ekki ó-
algengt á þvi ári sem nú er að
liða, og konan aflar helmings
teknanna, yrði tekjuskattur
þeirra nú um kr. 405 þúsund en
eftir breytinguna um kr. 520
þúsund. Ef konan aflar þriöj-
ungs sömu brúttótekna mundi
tekjuskatturinn hækka nokkru
minna við breytinguna eða úr
nálægt kr. 459 þúsund i um kr.
520 þúsund.
A hinn bóginn myndu skattar
hjóna, þar sem konan aflar ekki
tekna utan heimilis lækka nokk-
uð, ef um góðar tekjur eigin-
mannsins er að ræða. Ef miðað
er við að maðurinn ynni einn
fyrir sömu tekjum og bæði hjón-
in i dæminu hér á undan yrði
tekjuskattslækkunin nálægt 18%
við breytinguna. Sú lækkun yrði
hlutfallslega þvi minni sem
tekjurnar væru lægri. Hjá lág-
launafólki, þar sem konan er
heimavinnandi, hefði skatt-
breytingin sáralitla eða jafnvel
enga lækkun i för með sér.”
Ný tegund
misréttis
Már Pétursson kemst að
þeirri niðurstöðu að hér sé um
að ræða nýja tegund misréttis.
Hvaða skýringardæmi sem tek-
in séu komi i ljós að skattbyrði
fjölskyldna þar sem kona aflar
tekna utan heimilis mun aukast
að mun og hagur þeirra fjöl-
skyldna versna, einkum meðal
lágtekjufólks, þar sem tekjur
Er sérsköttun ekki þeim i hag?
konu eru verulegur hluti tekn-
anna. Skattbyrði efnafólks með
góðar tekjur þar sem konan tek-
ur ekki þátt i tekjuöfluninni mun
léttast og hagur þess batna.
Már telur að þjóðfélagslegar
afleiðingar umræddrar skatt-
breytingar yrðu: 1. Hópur
kvenna mun hverfa af vinnu-
markaðinum. 2. Hin nýja sér-
sköttun mun verða mikill drag-
bitur á sókn kvenna til aukinnar
menntunar. 3. Sérsköttunarað-
ferðin mun leiða til þess að færri
konur munu leita út á vinnu-
markaðinn.
Þá telur Már að verði helm-
ingaskiptareglan látin ráða
muni I mörgum tilfellum verða
litið eftir i launaumslögum
kvenna, sem hafa litlar tekjur,
en verða samt að standa skil af
helmingi af skattbyrði fjöl-
skyldunnar. Færir hann rök að
þvi að þar sé fjárforræði kvenna
i hættu.
1 lok greinarinnar segir Már
að ástæðan til þess að verið er
að undirbúa sérsköttunarfrum-
varp sé sú að landsfeðurnir hafi
viljað koma til móts við sjónar-
mið ógiftra kvenna, sem ekki
njóta nú 50% afsláttarins um
leið og ætlunin sé að auka tekjur
rikisins.
Már heldur þvi fram að hagur
ógiftra kvenna muni ekki batna
við skattkerfisbreytinguna. Að-
eins sé verið að taka aukinn
hluta af launatekjum giftra
kvenna og færa i rikissjóð. Hag-
ur einstæðra mæðra batni ekki
við það, en munurinn á hag ein-
stæðra foreldra og giftra
kvenna minnki. Sérsköttun
hjóna sé þvi hag einstæðra for-
eldra óviðkomandi, og til séu
aðrar leiðir til þess að bæta
hann, ef vilji sé fyrir hendi.
Már Pétursson hefur vakið at-
hygli á merku máli og sett fram
ákveðnar skoðanir á væntan-
legu sérsköttunarfrumvarpi. Af
grein hans er ljóst að full þörf er
á umræðu um þessi mál áður en
af afgreiðslu frumvarpsins
verður.
—ekh.