Þjóðviljinn - 07.10.1975, Blaðsíða 2
,2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. október 1975.
FRÁ HOFI
Stórbrim í Þorlákshöfn
Viö eigum garn í öllum
Ijómandi litum regnbogans og
væru þræöirnir tengdir saman
næöu þeir yfir lönd og álfur.
Komiö og kaupiö
HOF
Þingholtsstræti
STYRKUR
til háskólanáms eða
rannsóknastarfa i Bretlandi
Breska sendiráöiö i Reykjavlk hefur tjáö Islenskum
stjórnvöldum að The British Council bjóði fram styrk
handa islendingi til náms eöa rannsóknastarfa við háskóla
eða aðra visindastofnun I Bretlandi háskólaárið 1976—77.
Gert er ráð fyrir að styrkurinn nægi fyrir fargjöldum til og
frá Bretlandi, kennslugjöldum, fæði og húsnæði, auk
styrks til bókakaupa.
Umsækjendur' skulu hafa lokið háskólaprófi og aö ööru
jöfnu vera á aldrinum 25—30 ára.
Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. des-
ember nk. — Tilskilin eyðublöð, ásamt upplýsingum um
nauðsynleg fylgigögn, má fá I ráðuneytinu og einnig I
breska sendiráðinu, Laufásvegi 49, Reykjavik.
Menntamálaráöuneytið,
3. október 1975.
Rannsóknamaður
i jarðiræði
Hafrannsóknastofnunin óskar að ráða
rannsóknamann, karl eða konu, til aðstoð-
arstarfa við jarðfræðirannsóknir. Starfið
fer að mestu fram á rannsóknastofu, en
auk þess felst i þvi nokkur vinna við
gagnasöfnun á sjó.
Umsækjendur eru beðnir að snúa sér til
Kjartans Thors, Hafrannsóknastofnun-
inni, Skúlagötu 4, sem veitir nánari upp-
lýsingar.
Atvinna ■ Atvinna
Læknaritari
Starf læknaritara við Heilsugæslustöðina i
Ólafsvik er laust til umsóknar nú þegar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til oddvita
Ólafsvikurhrepps, eða Kristófers Þor-
leifss. læknis Heilsugæslustöðvarinnar i
Ólafsvik, sem gefa nánari upplýsingar.
Ólafsvik 1/10, 1975
Heilsugæslustöðin ólafsvik.
Húsvörður
Húsvarðastaða i stóru f jölbýlishúsi er laus
til umsóknar. Góð 3. herbergja ibúð fylgir
með hita, laun samkvæmt 12. launaflokki
opinbera starfsmanna. Upplýsingar um
fyrri störf og meðmæli ef til eru sendist af-
greiðslu blaðsins merkt, H fyrir 20. þessa
mánaðar.
Þótt enn vanti nokkuð á aö syðri
varnargaröurinn sem veriö er að
byggja i höfninni I Þorlákshöfn sé
tilbúinn, þá stóöst hann eldraun-
ina sem hann fékk i þvi óskaplega
brimi sem gerði við suðurströnd
landsins á sunnudaginn. Dolos-
arnir, en svo nefnast steinar þeir
sem settir eru yst á varnargarö-
inn högguðust ekki I briminu, þótt
mikið vanti á að þeir séu komnir
allir, sem þar eiga aö vera.
Hlutverk þeirra er fyrst og
fremst aö hlifa sjálfum varnar-
garðinum meö þvi að drepa öld-
una þegar hún æðir að landi og
þaö gerðu þeir svo sannarlega á
sunnudaginn.
— Ég tel að það hafi sannast um
helgina að með þessum nýja
garði hafi orðið hrein bylting i
hafnaraöstöðunni hér, sagði Sig-
urður Jónsson, hafnarstjóri er við
ræddum viö hann I gær. Nýi garð-
urinn sannaöi vel gildi sitt 1 þessu
veðri. Hefði hann ekki veriö kom-
inn, heföi orðið að manna alla
báta I höfninni og noröurgaröur-
inn heföi fariö I kaf i þessari
miklu flóðhæð samfara briminu,
sagði Sigurður, en að þessu sinni
hreyfðist ekki nokkur bátur, tók
ekki I landfestar einu sinni.
Sigurður sagði ennfremur að
engar skemmdir hefðu orðið á
garðinum, dolosarnir hefðu ekki
haggast. Það eina sem geröist
var, að búið var aö leggja bráða-
birgöaveg eftir garöinum, fyrir
þungavinnuvélar sem vinna aö
hafnargerðinni, þessi vegur
skemmdist dálitið, en fljótlegt
verður aö gera við hann.
S.dór
Nýi varnargaröurinn I Þorlákshöfn. Lengst til vinstri sést tunnan sem sett var niöur fyrir skömmu og
siöan fyllt af stórgrýti. Hvert langborð i þessari tunnu kostar yfir 100 þúsund kr., enda úr viöi sem ekki
fúnar og ku sökkva I vatni.