Þjóðviljinn - 07.10.1975, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.10.1975, Blaðsíða 4
4 StOA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. október 1975. UOÐVIUINN mAlgagn sósíalisma VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS 'Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. TIL UMHUGSUNAR FYRIR BOLYÍKINGA OG BORGNESINGA OG AÐRA SKATTGREIÐENDUR í tilefni af áskorunum Bolvikinga og Borgnesinga til skattayfirvalda fyrir stuttu er ástæða til að rifja upp nokkrar alvarlegar staðreyndir um skattamál á íslandi. Eins og margir lesendur Þjóðviljans muna var á siðasta ári gerð á þvi itarleg könnun, hvernig háttað væri tekjuskatts- greiðslum fyrirtækja i Reykjavik. í Ijós kom m.a., að 240 fyrirtæki, sem höfðu samtals i ársveltu á árinu 1973 um 25 miljarða á núgildandi verðlagi, eða sem svarar til hálfum fjárlögum rikisins greiddu ekki eina einustu krónu i tekju- skatt. 1 hópi þessara fyrirtækja má nefna: Silla og Valda, Sláturfélag Suðurlands, H. Ben., Eimskipafélag Islands, Hafskip hf., og hótelin Sögu, Borg og Esju, svo dæmi séu tekin af handahófi. Hver var ástæðan fyrir þvi, að þessi 240 fyrirtæki i ýmsum greinum, sem höfðu ársveltu til hálfs við sjálft islenska rikið, greiddu alls engan tekjuskatt? Ástæðan var sú, að samkvæmt skatta- lögunum hafði ekkert þeirra nokkurn tekjuafgang, þegar búið var að afskrifa, eins og lög leyfa. Samkvæmt gildandi lögum er fyrirtækj- um nefnilega heimilt að leggja til hliðar skattfrjálst, sem afskriftir eða fyrningar, á einu ári ágóða sem nemur 25—30% af öllum stofnkostnaði við fyrirtækið, og samt getur verið um taprekstur að ræða samkvæmt „löglegu” bókhaldi og ,,lög- legu” skattaframtali. Maður sem stofnar fyrirtæki og kaupir t.d. skip eða vinnuvélar af þessu tagi eða hinu fyrir 100 miljónir i ár, hann getur á næsta ári haft tæpar 30 miljónir i tekjuaf- gang, þegar öll laun og allur kostnaður við reksturinn hefur verið greiddur, en talist samt standa á núlli i bókhaldinu og á skattaframtalinu, þvi að 30 miljónirnar i gróða kallast þar bara löglegar fyrningar. Ef hagnaðurinn af slikri 100 miljón króna fjárfestingu hefur hins vegar á einu ári orðið enn meiri en nemur þessum tæp- um 30 milljónum, þá hefur eigandi fyrir- tækisins rétt til að leggja enn f jórðung eða 25% þess, sem umfram er, skattfrjálst i varasjóð að auki. Sá lagaréttur, sem fyrirtækin hafa i þessum efnum byggist á lögboðnum á- kvæðum um almenna fyrningu, flýtifyrn- ingu og svokallaðan verðhækkanastuðul. Sú stórkostlega skattfrjálsa eigna- myndun, sem á sér stað á íslandi i skjóli þessara lagaákvæða leiðir að sjálfsögðu til þess, að öll alþýða manna svo i Bolung- arvik og Borgarnesi sem annars staðar i landinu verður að standa undir langtum þyngri skattgreiðslum en ella væri. Og hafi menn komið auga á einstök dæmi af smærra taginu i sinu næsta ná- grenni, dæmi um það hvernig þetta kerfi virkar, — þá mættu menn gjarnan hugsa lengra, til stóru upphæðanna, t.d. miljarð- anna 25, þeirra 25 þúsund miljóna króna, sem fara um hendur 240 fyrirtækja i Reykjavik á einu ári, án þess nokkurs staðar komi fram skattskyldur tekjuaf- gangur. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvernig fjölmargir þeirra, sem við rekst- ur fást á landi hér, láta fyrirtækin bera stóran hluta óhóflegrar einkaneyslu sjálfra þeirra, en láta kaupið sitt ganga upp i „hallarekstur” fyrirtækisins og sleppa þannig við að borga af þvi skatt. Það er einnig vitað að stóreignamyndun á íslandi á sér fyrst og fremst stað með þvi að fjárfesta i stórum stil út á lánsfé i „hallarekstri”, og láta siðan verðbólguna um að margfalda eignirnar i verði en eyða skuMunum. Með allar þessar staðreyndir i huga er það reyndar næstum grátbroslegt að sjá málgögn stjórnarflokkanna vera að reyna að klappa Bolvikingum og Borgnesingum á kollinn, segjandi sem svo: Ja, það er bara liklega eitthvað til i þessu hjá ykkur drengir, að skattakerfið sé ekki alveg i lagi, en okkur hafði nú láðst að grufla út i þetta, sem þið eruð að tala um. Og ekki sakar að geta þess, að þeir sem svo tala nú fyrir munn stjórnarflokkanna eru oft sömu mennirnir og á siðasta al- þingi stráfelldu allar tillögur Alþýðu- bandalagsmanna um leiðréttingar i skattamálum, mennirnir sem neituðu að fallast á tillögur Alþýðubandalagsmanna um verulega skerðingu skattfrjálsra af- skrifta og um skatt á verðbólgugróða. k. Myndatextinn undir þessari mynd Gunnars Steins f fyrra var „Milli steins og sleggju”. Nú virðist ólafur vera orðinn eins konar sam- einingartákn Sjálfstæðisflokksins, enda situr hann, „sterki mað- urinn” þarna á milli striðandi Ieiðtoga íhaldsins. Kátt í höllinni Það er kátt i Morgunbiaðs- höllinni þessa dagana. Astæða: Ræða Ólafs Jóhannessonar hjá Framsóknarfélagi Reykjavikur i sl. viku. Morgunblaðið kvittar fyrir ræðuna með þessum orðum: ,,... má vera, að sá þáttur sem vakti einna mesta eftirtekt i ræðu Ólafs Jóhannessonar hafi verið hin eindregna yfirlýsing hans um andstöðu við innflutningshöft. Hann tók af öll tvimæli um það, að til inn- flutningshafta yrði ekki gripið hér á landi, þótt við margvis- legan vanda væri að etja, og benti i þvi sambandi á, að við islendingar þyrftum mjög á að halda frelsi i viðskiptum hjá öðrum þjóðum... Þessi yfir- lýsing mun áreiðanlega vekja athygli og fögnuð unnenda frjálsra viðskipta.” Sársaukafullt og ánœgjulegt Sem kunnugt er eru hatrömm átök innan Sjálfstæðisflokksins en Ólafur Jóhannesson nær aði briia bilið, hann er að verða einskonar einingartákn. Það sést af ofangreindri tilvitnun i málgagn Geirsklik unnar, Morgunblaðið, og ekki er fögn- uðurinn minni i málgagni minnihluta Sjálfstæðisflokksins, Dagblaðinu, — málgagni Sjálf- stæðisflokksins, Dagblaðinu, — málgagni Gunnars Thoroddsens og Alberts Guðmundssonar. Jónas Kristjánsson segir i forustugrein Dagblaðsins á föstudag: „Rofin hefur verið hin óbæri- lega þögn rikisstjómarinnar um ástand og horfur i efnahags- málunum og hugsanlegar úrbætur. „Sterki maðurinn” i rikisstjórninni, Ólafur Jó- hannesson hefur komið fram i dagsljósið og er ómyrkur i máli.” „Ólafur skýrði frá þvi að væntanlegt fjárlagafrumvarp rikisstjórnarinnarmundi hækka mun minna en sem svarar vexti dýrtiðar milli ára. Það fæli i sér sársaukafulian niðurskurð, bæði á rekstri og fram- kvæmdum rikisins. Þetta væri nauðsynlegt vegna þenslunnar i landinu. Þessar upplýsingar eru dvenju ánægjulegar. „Einnig var ánægjulegt að frétta eftir ólafi, að ekki yrði gripið til innflutningshafta, þótt aðgæslu væri þörf i fjármálum. Hann kvað haftastefnu óheil- brigða. Er það vonandi merki þess, að Framsóknarflokkurinn sé endanlega hættur að gæla við þá stórhættulegu stefnu, sem orðið hefur þjóðinni til mikils tjóns á undanförnum árum.” Fljótur að lœra Jónas Kristjánsson, málpipa Gunnars Thoroddsens, leynir ekki aðdáun sinni á Ólafi, eins og ofangreind tilvitnun ber með sér: „Sterki maðurinn” er hann kailaður! Hver er þá veiki maðurinn i stjórninni? Geir Hallgrimsson? Kunnugir skilja áreiðanlega hvað rósamál Jónasar á að þýða. „Sársaukafullur” niður- skurður samneyslunnar er ihaldinu einkar mikið að skapi, eins og fram kemur i til- vitnuninni. En það er augljóst, og það er ánægjuefni ihaldsins, að Ólafur Jóhannesson hefur verið fljótur að læra. Fyrstu viðbrögð hans ntína við efnahagsvandanum eru þau að skera niður sam- neysluna en viðhalda um leið gegndarlausri gjaldeyrissóun. Það eru ekki nema fáeinir mánuðir siðan Ólafur Jóhannes- son hélt ræðu um nauðsyn þess að veita aðhald i gjaldeyris- og innflutningsmálum: nú er þvi öllu kastað fyrir róða. Söguleg rœða Ræða ólafs Jóhannessonar hjá Framsóknarfélagi Reykja- vikuri sl. viku, er söguleg ræða. Formaður Framsóknar- flokksins hefur kastað frá sér öllum þeim efnahagslegu viðmiðunum, sem flokkur hans hafði áður i heiðri. Þó ekki sé farið lengra aftur i sögu Framsóknarflokksinsen til þess tima, þegar Eysteinn Jónsson var formaður flokksins, sést að alger umbreyting hefur átt sér stað. NU talar formaður fram- sóknar eins og hver ihaldsráð- herra gæti gert. r Olafur nœsti formaður Sjálf- stœðisflokksins? Áður var á það minnst að innan Sjálfstæðisflokksins væru nU miklar erjur, en ólafur Jóhannesson virtist ætla að brtía bilið og verða eins konar einingartákn Sjálfstæðis- flokksins. Nú tók Ólafur að sér að mynda rikisstjórn fyrir ihaldið fyrir rétt rúmu ári. Hvi ekki að stiga skrefið til fulls og gera Ólaf Jóhannesson að formanni Sjálfstæðisflokksins. Það færi vel á þvi'. Sinnaskiptin hafa átt sér stað og þá eru aðeins forms- atriðin eftir. Sömu leið og Gylfi „Sterki maðurinn” i rikis- stjórninni, ólafur Jóhannesson, er að verða átrúnaðargoð ihaldsmanna. Hann er þannig á sömu leið og Gylfi Þ. Gislason I viöreisnarstjórninni. Þá birti Morgunblaðið ræður Gylfa hvað eftir annað i heilu lagi á undan Alþýðublaðinu og frekar en Alþýðublaðið. Hið sama gerist nú. Morgunblaðið birtir ræður Ólafs Jóhannessonar með sýni- legri velþóknun hvað eftir annað, og á undan Timanum. Sjálfsagt lætur hól ihaldsblað- anna sætt i eyrum ólafs Jó- hannessonar þessa dagana. En öðru máli gegnir áreiðanlega um framsóknarmenn, flokks- menn og fylgismenn. Enda vita þeir að daður ihaldsblaðanna er aðeins skamma stund alls- ráðandi: áður en varir tekur hinnbitri veruleiki við. Sá veru- leiki birtist Gylfa Þ. Gislasyni i kosningatölum. —s ... OG SKORIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.