Þjóðviljinn - 07.10.1975, Page 8

Þjóðviljinn - 07.10.1975, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriOjudagur 7. október 1975. Pólverjarsigruöueinnig glæsilega í seinni leiknum Lítiö fallegt sást til íslenska liðsins! Botnlaus vitleysa í vörn og sókn ríkti meirihluta leiksins, og pólverjar sigruðu 20:15 Það verður ekki sagt að Islenska handknattleikslandsliðið hafi fengið neina sérstaka óskabyrjun á þvf keppnistimabili sem nú fer i hönd. Fyrstu landsleikirnir tveir ollu vonbrigðum, og þótt markatalan hafi að visu ekki verið neitt hróplega sársaukafuil fyrir islenska handknatt- leiksunnendur verða þeir aðkyngja þvi, að jafn illa og i siðari landsleik tslands og Póllands hefur lið okkar ekki leikið I langan tima. Greinilegt var, að það var of mikil blóðtaka fyrir landsliðið að vera allt I einu án þeirra Ólafs Jónssonar, Einars Magnússonar og Axels Axelssonar, sem allir eru atvinnumenn úti I heimi. Mörg önnur þekkt nöfn voru ekki með. Fyrstan er þar að telja þjálfarann Viðar Slmonar- son, siöan rifjast upp nöfn eins og Geir Hallsteinsson, Bjarni Jónsson og fleiri, sem mikið hafa komiö við sögu undanfarið. Margt olli vonbrigðum i þessum fyrstu leikjum. Leikskipulag var I molum, markvarslan engin mestan hluta siðari leiksins, sóknarleikur- inn þá botnlaus vitleysa, og framan af sást litið af viti til islenska varnarleiksins. Viðar landsliðseinvaldur gerði þrjár breytingar á liðinu fyrir slðari leikinn. Ot fóru þeir Gunnsteinn Skúlason, Magnús Guömundsson og Jón Karlsson, en inn komu Ingimar Haraldsson, Viggó Sigurðsson og Arni Indriöason. Segja má að sömu mistökin hafi verið gerð i sókninni allan fyrri hálfleikinn og meiri hluta þess slöari einnig. öll markskot okkar frá skyttunum stefndu ofarlega I markiö og þá bolta hirti hinn stór- kostlegi markvörður pólverj- anna nánast allt. Hann varði nær allt sem til hans kom og það var ekki nærri þvl nógu fljótt sem Islensku leikmönnunum skildist aö ekki þýddi annað en að reyna aö skjóta niðri — sumum lærðist þaö meira að segja aldrei. Skota- nýting margra var enda hörmu- leg, Viggó reyndi sjö sinnum markskot og aðeins eitt heppnað- ist og Ólafur Einarsson skoraði tvö mörk úr sjö tilraunum, þar af kom annaö markið úr vltaskoti. A meðan á þessum ósköpum gekk I fyrri hálfleik I sókninni, sem var gjörsamlega bitlaus og án ógnunar, var lítiö betra uppi á teningnum I varnarleiknum. Þeir Rósmundur og Ólafur vörðu ekki eitt einasta skot fyrir hlé og pól- verjarnir röðuðu inn mörkum. Er það rauninni hin mesta furða að munurinn skyldi ekki verða meiri en fimm mörk þegar flautaö var til leikhlés. Pólverjar höfðu þá skorað tólf mörk, en landinn sjö. Drýgstur hjá pólska liðinu hafði hin mikla vinstrihandarskytta Klempel veriö. Hann skoraði fimm þess- ara marka, þar af þrjú þau fyrstu. Stefán Gunnarsson tók 1-0 forystu íslands, slðan skoraði Ólafur Einarsson 2-1, Björgvin skoraði laglega af llnunni 3-2 en svo náðu pólverjar forystu sem þeir héldu út leikinn. Að vlsu var jafnt, 4-4, á 10. mín. en eftir það áttum við aldrei möguleika. Dönsku dómararnir voru enda iðnir við aö visa landanum af leikvelli. Þeir Sigurbergur, Gunnar Einarsson og Björgvin fengu allir hvíld i tvær mln. og einn pólverji einnig. Slðari hálfleikurinn var mun skárri af okkar hálfu, og lauk honum með jafntefli, 8-8. ólafur Benediktsson gaf tóninn strax I byrjun, hann lokaði markinu gjörsamlega I ellefu minútur, en þá tókst pólverjunum að brjóta múrinn eftir vafasaman og strangan vltakastsdóm. A meðan skoraöi landinn þrjú mörk, stað- an breyttist úr 12-7 112-10 og slðan 13-11. Greinilegt var að Islensku strákarnir voru að komast I ham, áhorfendur voru meö á nótunum og stemmningin var mikil. Þá gerðist það að besta manni liös- ins, Páli Björgvinssyni fyrirliöa, var visað af velli I tvær mínútur. Pólverjar notuðu tækifærið, skor- uðu tvö mörk og gerðu þar með út um leikinn. Brottreksturinn skipti sköpum, hann kom á versta tlma. Islenska liðinu tókst ekki að notafæra sér það, aö einum pól- verjanna var vlsað út af I fimm mlnútur. Gerðist það um leið og Páll kom aftur inn, og vonuðust margir eftir því að eitthvað færi þá betur að ganga. En landinn brást gjörsamlega, engin snerpa var i sókninni og á þessum fimm minútum skoruðu pólverjar eitt mark og Islendingar aðeins eitt!!! Úrslit leiksins voru þar meö endanlega ráðin. Björgvin Björg- vinsson átti siðasta orðið, hann skoraði sitt þriðja mark með stór- glæsilegum tilburðum, og það eitt að sjá Björgvin fara inn af llnunni getur hæglega réttlætt kvöldstund I höllinni án nokkurs tillits til þess hvort leikurinn er hörmulega lé- legur eða ekki. Fyrirliðinn Páll Björgvinsson kom langbest frá þessum leik. Ólafur Benediktsson rétti einnig úr kútnum i síðari hálfleik og varð stórkostlega hvað eftir ann- að I byrjun hans. Mörk tslands skoruðu: Páll 5, Björgvin 3, Gunnar Einarsson 3, ólafur Einarsson 2, Viggó eitt og Stefan Gunnarsson eitt. Klempel var einna mest áber- andi hjá pólverjunum. Hann skoraði sex mörk, og réðu Islenskir varnarmenn ekkert viö þennan hávaxna vinstrihandar mann. Melcer var einnig drjúgur viö markaskorunina, gerði fjögur mörk. En bestur I liði gestanna var markvörðurinn, Szymczak, sem ávann sér svo mikla frægð á heimsmeistarakeppninni siðustu. Fékk hann þá orö á sig sem besti markvörður heims og stóö svo sannarlega undir þvl nafni I þess- um leik. Hann fékk enda ekkert nema draumaskotin sín á sig, Islendingar skutu alltaf háum boltum I markið, og betri verkefni getur pólski markvörðurinn ekki hugsað sér. —gsp Stefán Gunnarsson fékk oft óbliðar móttökur hjá góðri vörn pólverj- anna, og það var enginn leikur að koma boltanum I netið framhjá hin- um frábæra markverði þeirra. Hér hefur Stefán komist i gegn I fyrri leiknum, en á honum var brotið og AUKAKAST dæmt. (Mynd: gsp.) Fyrri leikurinn: ísland — Pólland 19:27 (9:10) Mikil vonbrigði meö íslenska liðið sem lék eins og slakt 1. deildarlið og varð að þola næststærsta tap íslendinga á heimavelli islenska landsiiöið I handknattleik olii sárum vonbrigðumi fyrri leik þess gegn pólverjum i Laugardalshöli sl. laugardag, og siðari hálfleik- ur leiksins var einna likastur martröð fyrir isienska áhorfendur, svo al- gerlega var islenska liðið yfirspilað. Lokatölurnar urðu 27:19 sigur pól- verja, sem er næststærsta tap sem islenskt landslið i handknattleik hef- ur orðið að þola á heimavelli. Aðeins 11:20 tap fyrir júgóslövum I nóv- ember 1971 er stærra, og munar þó aðeins einu marki. Og þetta tap er gegn liöi sem við sigruðum fyrir rúmum þremur mánuðum I Júgó- slaviu, 16:14. Hvernig má þetta vera? Jú, skýringin er einföld, Islenska liðið lék eins og miðiungs 1. deiidarlið, þar skar sig enginn úr. Okkur vantaði stjörnurnar okkar, ólaf H. Jónsson, Einar Magnússon, Axel Axelsson og Bjarna Jónsson, sem ekki bara eru stjörnur Islensks hand- knattieiks, heldur og okkar leikreyndustu menn, sem ekki brotna þótt á móti blási eins og gerðist I siöari hálfleik hjá Isl. leikmönnunum á laug- ardaginn. hrikalega léleg. Engin barátta og engin samvinna. Það sannaðist I þessum leik, svo ekki verður um villst, að án þeirra Ólafs, Einars, Axels og Framhald á bls. 10 Þá Ólaf, Einar og Axel var ekki hægt að fá heim til þessa leiks, en Bjarna Jónsson var hægt að fá, og Viðar landsliðsþjálfari getur nag- að sig I handarbökin fyrir það aö velja Bjarna ekki I hópinn til undirbúnings þessum leik. Hann viðurkenndi llka á blaöamanna- fundi eftir fyrri leikinn, að hann myndi endurskoða afstöðu slna til landsliðsvalsins næst. Þeir sem tóku við hlutverki þessara stórkarla réðu hreinlega ekki við það. Þeir ólafur og Gunnar Einarssynir, Páll Björg- vinsson og Jón Karlsson eru allir lltt reyndir landsliðsmenn og þeir réðu hreinlega ekki við það mikla hlutverk að leiða Islenska liðið I sókn, eins og þeir áttu að gera, og I vörninni, sem var aðalhöfuð- verkurinn, stóðu aðeins tveir menn upp úr meðalmennskunni, Stefán Gunnarsson og Gunnsteinn Skúlason, en sá slðarnefndi fékk þá ekki að leika sina venjulegu stöðu, en var settur I hornið og lokaði því meðan hann var inná. Markvarslan var I lagi I fyrri hálfleik, meöan Ólafur . Bene- diktsson var inná, en I þeim slðari kom Rósmundur snemma inn og varði aðeins tvö skot, en honum til málsbóta verður að segja að vörnin fyrir framan hann var Vörnin brást Viðar Simonarson var aö vonum ekkert brattur eftir fyrri leikinn viö pólverja. Hann' sagði, að að sinu mati hefði það verið varnarleikur- inn sem brást, það að skora 19 mörk ætti að vera nóg, en að fá á sig 27 mörk segði allt um það hvernig varnarleikurinn hefði verið. Menn hefðu ekki barist, ekki talað saman og engin samvinna hefði verið i vörn- inni. Þá sagði Viðar að það hefðu orðið kaflaskipti i Ieiknum, þegar islenska liðið átti mögu- leika á að komast yfir i lok fyrri hálfleiks, en mistekist. Þá hefði liðið brotnað. Viðar sagði að leikfléttur pólverjanna hefðu ekki komið sér á óvart, þær væru þær sömu og i Júgóslaviu, en leik- mennirnir hefðu ekki farið eftir þvi sem fyrir þá hefði verið lagt, og þvi fór sem fór. Eftir siðari ieikinn sagðist Viöar hafa lært mikið af þessum leikjum. Hann væri ákveðinn iaðbreyta hópnum á næstunni og þreifa sig áfram þar til hann hefði fundið rétta liðið. -Auðvitað vantar mikið þegar þeir ólafur, Einar og Axel eru ekki með, svo og Geir Hallsteinsson, þetta eru allt leikreyndir menn, en það sem háði okkur öðru fremur i þessum leik cr hve litla sam- æfingu sá hópur sem nú myndaði landsliðið hefur haft. Við sem myndaðhöfum lands- liðskjarnann undanfarin ár gjörþekkjum hver annan og vissum alltaf hvað hver og einn ætlaði að gera. Þetta er ekki fyrir hendi i þeiin hópi sem nú lék, en með ineiri sain- æfingu er ég vissum, að við náum upp sterku liði, sagði Viðar að lokum. -S.dór iS«*»

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.