Þjóðviljinn - 07.10.1975, Qupperneq 10
1«. ;iD V — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. október 1975.
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagsm <>n n Suðurnesjum
Alþýðubandalagsmenn á Suðurnesjum eru hvattir til að sækja ráð-
stefnu herstöðvaandstæðinga i Stapa laugardaginn 11. og sunnudaginn
12. þessa mánaðar. Er þeim bent á að hægt er að skrá þátttöku sina hjá
Ester Karvelsdóttur i Njarðvik, simi 1786, og Karli Sigurbergssyni i
Keflavik, simi 2180.
Styrli ta rm e n n Alþýðu ba n <la lagsin s
sem enn hafa ekki gert skil á framlagi sinu til flokksins, eru minntir á
giróseðlana sem sendir voru út siðast liöið vor.
1. flokks
Framhald af bls. 1 .
lögur um það, hvernig að veiðun-
um skyldi staðið. Ráðuneytið
sendi nefndinni það álit, en henn-
ar niðurstaða var ekki i fullu
samræmi við það, sem við höfð-
um lagt til.
— Hvernig voru ykkar tillögur?
— Ja, ég veit ekki hvort mér er
heimilt að segja frá þeim. Það er
vissara að spyrja ráðuneytið um
það.
— Nú er það einsýnt, að s'jó-
mönnum likar það fyrirkomulag,
sem á hefur veriðtil þessa vægast
sagt djöfullega, og fullyrða það,
að verðmæti sildarinnar verði
minna fyrir vikið, afkastagetan
verði minni og vinnan margfalt
erfiðari og meiri en ef saltað væri
i landi. Hefur þú hugmyndir um
hvernig þetta mætti verða öðru-
visi?
— Ég hef að sjálfsögðu hug-
myndir um það eins og margir
aðrir landsmenn. Það þarf ein-
faldlega að nýta þá tækni og að-
stöðu, sem er i landi, til þess að
hægt sé að gera sildina eins verð-
mæta og mögulegt er. Það segir
sig sjálft, að við vorum ekki að
friða sildina til þess að gera úr
henni annars flokks vöru. Við
vorum að friða hana til þess að
við gætum aukið þjóðartekjur
okkar svo um munaði.
— Hvað sýnist þér af þeirri sild
sem þú hefur athugað i afla skip-
anna? Er þetta góð sild?
— Já. Það hefur sáralitið borið
á smásild. Þetta hefur i langflest-
um tilfellum verið stór og falleg
sild. Yfirleitt hefur hún verið
yngst fjögurra ára, þ.e.a.s. sild,
sem hrygndi i fyrsta skipti i sum-
ar og svo þaðan af eldri. Það var
einmitt vegna þessarar fjögurra
ára sildar, sem ég lagði ofurkapp
á það i fyrra, að fá sildveiðibann-
ið framlengt um eitt ár, til þess að
hún fengi að hrygna a.m.k. einu
sinni, og þessi árgangur getur
borið þá veiði, sem nú er leyfð án
þess að um nokkurn skaða sé að
ræða.
— Hvað,eru bátarnir búnir að
veiða mikið núna, samtals?
— Eftir þvi sem mér skilst eiga
saltendur að tilkynna afla til sild-
arútvegsnefndar, og siðan á sild-
arútvegsnefnd að tilkynna ráðu-
neytinu um magnið. Ég talaði við
sildarútvegsnefnd i morgun. Þá
liöfðu þeir ekki fengið neinar full-
nægjandi upplýsingar um það
hvað hver bátur væri búinn að fá.
— Hvað er að frétta af rekneta-
bátunum?
— Það hefur ekki gengið vel hjá
þeim. Þeir hafa litið fengið, og
eftir þvi sem ég best veit biða þeir
betri tima eins og er.
— Hvað hafið þið hugsað ykkur
skammtinn næsta ár?
— Við munum reyna að gera ýt-
arlegar mælingar á sildarstofnin-
um i nóvember, en þá safnast
sildin venjulega saman á mjög
takmarkað svæði. Okkar tillögur
um afla næsta ár fara algjörlega
eftir þeim upplýsingum, sem við
fáum út úr þessum rannsóknum.
Okkar takmark er að taka
aldrei meira af stofninum en svo,
að hann haldi áfram að stækka.
—úþ
Hlutaskipti
Framhald af bls. 1
kr. kauptryggingu á mánuði ef
áfram væri haldið i hlutaskipta-
regluna. Það mætti varla teljast
goðgá þegar verkamönnum við
Sigöldu og á Grundartanga eru
greiddar 40 til 60 þúsund kr. á
viku. Sjómenn vinna oft 16-18
stundir á sólarhring, sem er
lengri vinnudagur en menn vinna
álmennt i landi.
Það er þvi allt útlit fyrir að
sjómenn fari inná nýjar leiðir við
gerð kjarasamninga sinna, en
samningar þeirra renna út um
áamótin. —S.dór
Vonbrigði
Framhald af bls. 9.
Bjarna er tómt mál að tala um is-
lenskt landslið; án þeirra verður
aðeins um B-lið að ræða.
Pólska liðið er mjög léttleik-
andi og skemmtilegt lið, en þó
höfum við oft sigrað jafn sterkt
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Svava Jakobsdóttir
Almennur félagsfundur verður haldinn á morgun miðvikudag-
inn 8. október kl. 20.30 i Lindarbæ niðri.
Dagskrá:
1. Kosning uppstillingarnefndar vegna stjórnarkjörs.
2. Lögð fram tillaga stjórnar um breytingar á lögum félagsins.
3. Umræður um stjórnmáiaástandið i dag. Svava Jakobsdóttir,
alþingismaður, hefur framsögu.
Mætið vel og stundvíslega
Stjórnin.
eöa sterkara liö, og ég er nærri
viss um, að við hefðum sigrað nú
ef fjórmenningarnir fyrrnefndu
hefðu verið með. Pólverjarnir
leika mjög hraðan handknattleik,
en nær allar þeirra leikfléttur
ganga upp á þremur mönnum,
Klempel (5) Katvzimski (13) og
Melcer (9). Aðrir eru nánast til
þess að leika þessa menn uppi og
aðstoða þá á annan hátt.
Af gangi leiksins er það að
segja, að pólverjarnir komust i
4:1 en landinn náði að jafna 6:6,og
varði ölafur Ben. snilldarlega á
meðan verið var að vinna þetta
forskot upp. Og siöan hélst leikur-
inn i jafnvægi fram að leikhléi, en
þá höfðu pólverjarnir aðeins eitt
mark yfir, 10:9.
En svo gerðust ósköpin i þeim
siöari. Vörnin var slök og mark-
varslan engin og bilið breikkaði
sifellt. Pólverjarnir komust I
14:11, 17:12, 21:13, 24:15 og loka-
tölurnar urðu 27:19.
Dómarar voru danskir og skil-
uðu hlutverki slnu vel.
Mörk Islands: Ólafur E. 9 (2)
Páll 4. Gunnar 3, Jón K., Stefán
og Hörður 1 mark hver. —Sjdór
Stórkostlegt
Framhald af bls. 8.
metaregni hjá Öskari á kastmót-
unum á næstunni.
Þá var keppt i 10 km hlaupi á
laugardag, og þar sigraði Jón
Diðriksson á 35:14,2 min. Sigurð-
ur P. Sigmundsson varð 2. á
35:24,2 min. og þeir Gunnar
Snorrason og Hafsteinn Óskars-
son urðu númer 3-4 á 35:41,6 min.
—S.dór
Aðgerðir
Framhald af bls. 1.
geri þegar i stað viðhlitandi ráð-
stafanir til að tryggja Lánasjóði
islenskra námsmanna nægilegt
fjármagn til að standa við skuld-
bindingar sinar gagnvart náms-
mönnum. Það er kominn timi til
að stjórnvöld átti sig á þvi að fjár-
veitingar til námslána eru ekki
einn af þeim þáttum i rekstri
rikissjóðs sem hægt er að nota
sem hagstjórnartæki. Stjórnvöld-
um ber á hverjum tima að gera
LtN kleift að standa við þær
skuldbindingar við námsmenn
sem sjóðurinn hefur skv. lögum
og reglum og þannig að fram-
fylgja yfirlýstri stefnu löggjafar-
valdsins um efnahagslegt jafn-
rétti til náms. Það ástand sem nú
hefur skapast — að lánþegar hafa
ekki fengið haustlan sin á tilsett-
um tima og biða enn i óvissu — er
gersamlega óviðunandi og er frá-
leitt að búast við þvi að náms-
menn geti setið aðgerðalausir
undir sliku.
Spánn
Framhald af 12 siðu
Utanrikisráðherra Danmerkur,
K.B. Andersen, var að sögn
manna herskáastur á fundinum
Hann fagnaði þvi að viðræðunum
skyldi hætt en þannig ætti að
meðhöndla allar ólýðræðislegar
stjórnin i Evrópu. Landi hans
Ivar Nörgaard, ráðherra er-
lendra viðskipta, kvað dani þá að-
eins verða ánægða að EBE segði
upp öllum gildandi viðskipta-
samningum við Spán. Astæðan
fyrir reiði dana mun einkum vera
sú að spænsk yfirvöld kyrrsettu
fyrir helgina þrjú dönsk skip i
höfnum á Norður-Spáni. Aðgerðir
þessar tóku einnig til skipa frá
Noregi, ltaliu og Hollandi en leið-
togar þessara þjóða fordæmdu
aftökurnar á Spáni hvað harðleg-
ast.
BLAÐA-
BURÐUR
Þjóðviljinn óskar eftir blað-
berum i eftirtalin hverfi:
Seltjarnarnes
Kleppsveg
Vinsamlegast hafið
samband við
afgreiðsluna simi 17500.
voovii/m
Kópavogur
Blaðberar óskast viðsvegar
um bæinn. Vinsamlegast
hafið samband við umboðs-
mann i sima 42073.
Húseign til sölu
Þingholtsstræti 6
Kauptilboð óskast i húseign prent-
smiðjunnar Gutenberg, ásamt tilheyrandi
eignalóð.
Húsið verður til sýnis þeim, er þess óska,
miðvikudaginn 8. október kl. 2-4 e.h. og
verða tilboðseyðublöð afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu
vorrifyrir kl. 11.00 f.h., miðvikudaginn 15.
október n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
UTBOÐ
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboð-
um i stálturna og stög fyrir 220 kV há-
spennulinu milli Geitháls og Grundar-
tanga samtals 112 turna.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Lands-
virkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykja-
vik, frá og með þriðjudeginum 7. október
1975 og kostar hvert eintak kr. 2.000.-.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.
14.00 föstudaginn 28. nóvember 1975.
Reykjavík, 3. október 1975.
LANDSVIRKJUN