Þjóðviljinn - 07.10.1975, Page 12
WÐVIUINN
Þriðjudagur 7. október 1975.
Austurriki:
Sigur
sósíalista
Vin 6/10 reuter — 1 þingkosn-
ingum sem fram fóru i Austurriki
um helgina vann Sósialista-
flokkurinn þriðja kosningasigur
sinn i jafnmörgum kosningum og
jók meirihluta sinn á þingi um tvo
menn.
Flokkurinn fékk i sinn hlut
50,6% atkvæða og 94 af 183 sætum
á þingi landsins. Hinn ihaldssami
Þjóðarflokkur tapaði tveim þing-
sætum, hlaut 78 og 42,8%
atkvæða, Frelsisflokkurinn sem
er frjálslyndur hægriflokkur vann
eitt sæti, hlaut alls 11 og 5.4%
atkvæða. Kommúnistaflokkurinn
fékk 1,2% atkvæða en engan
mann á þing.
lírsiit kosninganna eru talin
vera mikill sigur fyrir Bruno
Kreisky kanslara landsins. Allir
aðrir en hann bjuggust við að
samdráttur i efnahagslifi
landsins yrði til þess að kjósendur
breyttu til en svo varð ekki. Segir
i fréttaskeyti Reuter að austur-
ríkismenn hafi enn einu sinni
sannað að þeir eru allba þjóða
tregastir til að skipta um stjórn-
málaflokk.
Kreisky lýsti þvi yfir eftir kosn-
ingarnar að hann hyggist sitja við
völd út allt kjörtimabilið. Hann er
nú 64 ára að aldri og hefur verið
við völd f landinu i átta ár. Hefur
enginn þjóðarleiðtogi í Evrópu að
vini hans Olof Palme hinum
sænska setið lengur á valdastóli
um þessar mundir.
Allskyns
algengt
snatt
Menn hafa furðað sig nokkuð á
því, að þyrla landhelgis-
gæslunnar, TF-Gná, var að
þjónusta íþróttafélagið KR þegar
óhapp það varð fyrir heigina, sem
leiddi til þess, að vélin eyði-
lagðist.
Talsmaður gæslunnar sagði
blaðamanni i gær, að það væri
algengt að þyrlurgæslunnar væru
i alls kyns snatti fyrir félaga-
samtök, en ekki þó einstaklinga,
utan hvað bændur i smala-
mennsku hafa fengið nokkra
aðstoð.
TF-Gná, mun hafa verið að
flytja staura upp að skiðaskála
KR, en þar átti að koma fyrir lys-
ingu á svæðinu. Sambærileg
verkefni hefur þyrlan áður unnið,
en það var þegar skiðalyfta var
sett upp við Akureyri.
Landhelgisgæslan hefur sjálf
eftirlit með sinum flugvélum, og
er talið, af fulitrúum gæslunnar,
að það eftirlit sé mjög gott.
Spánn:
Fjórir féllu um
helgina — EBE
slítur umrœðum
um nýjan
viðskiptasamning
Madrid 6/10 reuter ntb — Rikis-
stjórn Spánar kom saman til
fundar i dag undir forsæti
Francos til að ræða nýjar ráðstaf-
anir til að hamla gegn starfsemi
andfasiskra afla og þjóðernis-
sinnaðra hreyfinga.
Ekki er vitað til hvaða ráða
verður gripið en fjöldi manna sit-
ur i fangelsum landsins saksóttur
1 krafti nýlegra laga gegn hefnd-
arverkum. Samkvæmt þeim eru
þeir sem sakfelldir eru fyrir morð
á lögreglumönnum dæmdir sjálf-
krafa til dauða.
Fjórir menn voru drepnir um
helgina á Spáni, þrir lögreglu-
menn og einn baski. Lögreglu-
mennirnir þrir voru á ferð i bil
sunnan við San Sebastian i
Baskahéruðunum er sprengja
sprakk undir bil þeirra. Létust
þrir samtimis en hinir tveir er i
bilnum voru særðust báðir, annar
lifshættulega. Talið er vist að
samtök baska hafi staðið að
spréngingunni og með henni ver-
ið að hefna þeirra tveggja baska
leiðtoga sem teknir voru af lifi 27.
september sl.
Svo virðist sem hægrimenn séu
farnir að svara i sömu mynt þvi i
dag er Ignacio Echave skotinn til
bana i bænum Mondragon i
Baskahéruðunum. Echave var
bróðir Juan Jose Echave sem er
einn leiðtoga aðskilnaðarhreyf-
ingar baska, ETA, en hann er i út-
legð i Frakklandi.
Heimildir innan kaþólsku kirkj-
unnar herma að fimm prestar
hafi verið handteknir i Madrid á
sunnudag eftir messu þar sem
þeir eru sagðir hafa lesiö bréf frá
aðstoðarbiskupi borgarinnar.
Ekki er vitað hvað stóð i bréfinu
en talið að i þvi hafi verið fjallað
um atburði siðustu vikna.
Utanrikisráðherrar EBE-land-
anna þinga nú i Lúxemborg og i
dag hermdu heimildir innan
sendinefnda að þeir hefðu orðið
sammála um að stððva allar
samningaviðræður milli EBE og
Spánar um nýjan viðskiptasamn-
ing i mótmælaskyni við aftökur
spánverjanna fimm á dögunum.
Ekki er þó útlit fyrir að i sam-
þykkt ráðherranna verði nein á-
kveðin skilyrði sett fyrir þvi
hvenær leyft verður að hefja við-
ræðurnar að nýju.
Framhald á bls. 10
Ferbamenn I Palma de Mallorca vöknuöu upp vib vondan draum á dðgunum þegar þessi sýn blasti viö
þeim. Þarna var komin stuðningsaðgerö viö Franco vegna erlendra mótmæla gegn aftökunum á dögun-
um. Þaðhaföi alveg gleymst aö segja feröamönnunum frá þessu svo þeim brá óneitanlega f brún þegar
mannfjöldinn rétti hendur til himins i Hitlerskveöju og kyrjaöi fasistasöngva, bölvandi vondum
kommúnistum á borð við Olof Palme.
Verkfallsréttarmálin:
13 fundir búnir,
7 haldnir í da
Undirtektir hafa verið góðar á
þeim fundum sem haldnir voru
fyrir helgina, sagði Haraldur
Stcinþórsson, varaform. BSRB,
er Þjóðviljinn ræddi við hann i
gær.
Á föstudaginn voru haldnir
tveir fundir, á Patreksfirði og á
Núpi, en á laugardaginn voru
fundirnir fjórir, á isafiröi, Egils-
stöðum, Reyðarfirði og Neskaup-
stað.
I gær voru fundir i Keflavik,
Breiðholti fyrir kennara, Lög-
reglufélagi Reykjavikur, Toll-
varðafélagi Islands, Trygginga-
stofnun rikisins, Þjóðleikhúsinu
og i /Efinga-og tilraunaskólanum,
kennarafundur.
Á fundunum er rætt um verk-
fallsréttarmálin og hefur fundar-
sókn verið góð, sagði Haraldur. A
hverjum fundi mæta tveir fulltrú-
ar stjórnar BSRB og verkfalls-
réttarnefndarinnar. I lok fund-
anna er framkvæmd skoðana-
könnun um afstöðu til verkfalls-
réttarins, og á þriðjudag i næstu
viku, þegar öllum fundunum er
Lögreglumenn f Reykjavlk ræöa um verkfallsréttinn á fundi I gær.
lokið, verður talið upp úr kössun-
um.
1 dag, þriðjudag, verða fundir
sem hér segir: Akranes kl. 20.30.
Þar tala Haraldur Steinþórsson
og Pálina Sigurjónsdóttir. Haga-
skóla kl. 17.00. Þar tala Vilhjálm-
ur Grimsson og ólafur S. Ólafs-
son og Haukur Helgason Stjórn-
arráð kl. 17. Þar tala Kristján
Thorlacius og örlygur Geirsson.
Kleppsspitali kl. 15.30. Þar tala
Haraldur Steinþórsson og Guð-
mundur Sigurþórsson. Tollstöðin
kl. 17. Ræðumenn Þórir Marons-
son og Einar Ólafsson. Kársnes-
skóli kl. 17. Þar tala Gunnar
Eydal og Guðmundur Arnason.
Það eru alls um 40 manns sem
hafa framsögur á fundunum um
verkfallsréttarmáiin.
iórnin ræðir aukna
hörku
Ölafur Ragnar Grímsson um Staparáðstefnuna:
Skoðun og skilgreining
baráttunnar gegn hernum
..Bandarikjaher hefur verið
hér á landi i áratugi og ýmsar
aðferöir reyndar i baráttunni
fyrir brottför hans. Samstöðu-
hreyfingar hafa verið stofnaðar
gegn honum og sérstakir stjórn-
málaflokkar, tvær rikisstjórnir
liafa haft brottför hersins á
stefnuskrá sinni og hún cr enn á
stefnuskrá þriggja þingflokka.
Samt cr herinn hér enn og hefur
fléttast innf tslenskt þjóðfélag á
margvislegan hátt.
Siðasta þætti þcssarar
baráttu lauk i fyrra. Áður cn
lengra er haldið verður að
teljast skynsamlegt að koma
saman og lita yfir farinnveg,
skilgreina hinar ýmsu baráttu-
aðfcrðir, rekja áhrif hersins á
þjóölifið og skoða hvaða áhrif
breyttar forsendur i alþjóða-
málum hafa á veru hans hér.
Þetta eru hcld ég mcginástæður
þess að ákveðið er að kveðja
hcr s töðv a a n ds t æði nga til
ráðstefnu á Stapa um næstu
helgi”.
Þetta sagði Ólafur Ragnar
Grimsson, prófessor, m.a. er
Þjóðviljinn innti hann eftir þvi
hversvegna ákveðið hefði ver-
ið að kveðja herstöðvaand-
stæðinga saman á ráðstefnu.
Ólafur Ragnar er einn frum-
mælenda á ráðstefnunni. Um
höfuðviðfangsefni framsögu
sinnar sagði Ólafur Ragnar
þetta:
A siðustu tiu árum hefur
athygli manna einkum beinst að
menningarlegum áhrifum af
veru hersins hér á landi og er
það skiljanlegt m.a. vegna
baráttunnar gegn Keflavikur-
sjónvarpinu. Ýmsir aðrir mikil-
vægirþættir hafa heldur horfið i
skuggann. Einn þeirra er að
m'inu mati tengsl hersins á efna-
hags og atvinnuþróun hér.
Ég mun leitast við að rekja
meginþættina i samspili hersins
og islensks atvinnu- og efna-
hagslifs, þróun þeirra, sérkenni,
innbyrðis mikilvægi og mikil-
vægi þeirra gagnvart öðrum
efnahags og atvinnumálum.
Inn i þessa umfjöllun munu
svo fléttast áhrif hersins á ýmis
meiriháttar efnahagsvandamál
síðustu áratuga á Islandi, svo
sem byggðaröskun og verð-
bólguþróun. Þá mun ég einnig
hugieiða hagsmuni ákveðinna
fyrirtækja og viðskiptaaðila
vegna framkvæmda og efna-
hagslegra athafna sem tengdar
éru dvöl hersins.”
ólafur Ragnar Grimsson
— Hver telur þú að verði
árangurinn af ráðstefnu sem
þessari?
„Mikilvægast er að á
ráðstefnuna komi kjarni þeinrar
baráttusveitar, sem fengist
hefur við hermálið á undan-
förnum áratugum, svo og full-
trúar þess æskufólks, sem
tengst hefur þessari baráttu á
allra siðustu árum. Það er
einnig mikilvægt að þessi hópur
skoði af fullri hreinskilni það
sem unnist hefur og tapast, og
reyni á þeim grundvelli að meta
i sameiningu hver eigi að vera
næstu skrefin í baráttunni.”