Þjóðviljinn - 09.10.1975, Qupperneq 1
Birgir víki úr sœti
meðan dómsrannsókn
ferfram
Margir reykvikingar hafa
komið að máli við Þjóðviljann
og lýst furðu sinni yfir þvf, að
borgarstjórinn I Reykjavik,
Birgir tsleifur Gunnarsson,
skuli ekki vera látinn víkja úr
sæti borgarstjóra meðan saka-
dómsrannsókn fer fram i Ar-
mannsfellsmálinu.
Það hefur ekki staðið á því, að
lægra settir starfsmenn hjá
borginni hafi verið látnir vikja
úr sessi þegar i stað, ef störf
þeirra hafa þótt gefa ástæðu til
sakadómsrannsóknar.
Er skemmst að minnast dæm-
is um verkstjóra einn hjá borg-
inni, sem Sakadómur hefur
reyndar nýlega sýknað af grun-
semdum.
Þjóðviljinn tekur hiklaust
undir þá kröfu, að Birgir tsleif-
ur, verði þegar i stað látinn
vikja úr borgarstjórasæti með-
an fjallað er um viðskipti borg-
aryfirvalda og Ármannsfells
fyrir sakadómi.
Þjóðviljinn bereinnig fram þá
kröfu, að borgarstjóri upplýsi
þegar á opinberum vettvangi,
hvenær hann seldi hlutabréf sin
i Armannsfelli og hverjum hann
seldi.
Hingaðtil hefur Birgir aðeins
sagt, að hann hafi losað sig við
þessi bréf fyrir nokkru, — en
hvenær og hvernig, — hvar eru
bréfin nú?
Það vilja býsna margir reyk-
vikingar fá að heyra frá borgar-
stjóranum.
Hvernig væri, að borgarstjór-
inn mannaði sig upp, og léti i sér
heyra, eða treystir hann þvi að
rétturinn láti vera að spyrja
hann óþægilegra spurninga.
VIÐ BRYG
ÁHORNA
Óvíst um útvegun fjár til haustlána
Hef ekki
seðlaprent
smiðju hér
segir menntamálaráðherra
,,Ég hef hvorki seðlaprent- r-^^———————————
smiðju hér við hendiná né
geymda sjóði tii þess að seilast i
og þessvegna verður ráðuneytið
að vinna að útvegun lánsfjár til
haustlána I Lánasjóð isl. náms-
manna i þeim mótvindi, sem
kröpp staða þjóðarbúsins hefur I
för með sér. Ég vil hinsvegar
taka fram, að i máli sem þessu,
hlýtur ráðuneytið að vinna með
stjórn Lánasjóðsins og reyndar
með öllum tiltækum ráðum, að ná
endum saman. Hvort það tekst að
lokum skal ég ekkert segja i þess-
ari stöðu, en við erum i miðju kafi
að vinna að útvegun lánsfjár.”
Þetta sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra, er Þjóðviljinn ræddi við
hann I gær. Viðskiptabankarnir
hafa þegar ákveðið að lána LÍN 27
miljónir króna og unnið er að at-
hugun á þvi hvort unnt er að nota
100 miljóna lánsheimild sem fyrir
hendi er til skuldabréfalána.
Stjórn LIN kom saman á fund i
fyrrakvöld og samþykkti að
senda ráðherra bréf, þar sem
honum er tilkynnt að sjóðurinn
muni hefja útlán á morgun föstu-
dag, nema ráðherrann fyrirskipi
annað. Þetta þýðir að ráðherran-
um er veittur frestur til kl. 17 i
dag til þess að útvega sjóðnum
þær tvöhundruð miljónir, sem
talið er að vanti uppá til þess að
hann geti staðið við afgreiðslu
haustlána til námsmanna.
Um þennan frest sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson, að sér
fyndist hann óviðkunnanlegur,
þar sem unnið væri að fullum
krafti að útvegun fjár og LIN væri
ekki eini sjóðurinn sem væri i
þrotum, eins og frásögn i blaði
hans, Timanum i gær, af stöðu
Byggingarsjóðs, bæri með sér.
Banaslys
Það slys varð um borð i fiski-
skipinu Skinney frá Hornafirði að
ungur hornfirðingur slasaðist við
vinnu á dekki. Skipið sem var að
veiðum djúpt út af Norðfirði tók
þegar i stað stefnu til Neskaup-
staðar en áður en þangað var
komið lést pilturinn. Skipið kom
þangað um kl. 11 i gærmorgun og
voru sjópróf haldin þar.
Ráöstefna
herstööva-
andstæðinga
Fjöl-
mennum
í Stapa
Ráðstefna um herstöðvamál
og sjálfstæði Islands verður
haldin um næstu helgi I félags-
heimilinu Stapa I Njarðvikum
eins og fyrr hefur verið frá
skýrt hér I blaðinu. Hefst ráð-
stcfnan klukkan 12.30 laugar-
daginn 11. október. Verða
þann dag fluttar framsögu-
ræður og síðan fara fram al-
mennar umræður.
Fyrirhugað er að starfshóp-
ar vinni fyrir hádegi á sunnu-
dag, en almennur fundur hef j-
ist á ný klukkan eitt eftir há-
degi. Ætlunin er að ráðstefn-
unni ljúki fyrir klukkan átta á
sunnudagskvöld.
Tekið er við þátttökutil-
kynningum hjá eftirtöldum
mönnum: Finni Torfa Hjör-
leifssyni, simi 40281, Einari
Braga, simi 19933, Gils Guð-
mundssyni, simi 15225 og
Eliasi Snæland Jónssyni, sim-
ar 42612 og 12002.
Vitað er að margir, sem
hyggjast sátja ráðstefnuna,
hafa enn ekki látið skrá sig til
þátttöku, og eru menn hvattir
til að gera það hið allra fyrsta
til að auðvelta skipulagningu.
Einnig eru bileigendur, sem
ráðstefnuna hyggjast sækja og
hafa laus sæti fyrir farþega
frá Reykjavik, beðnir að láta
einhvern þeirra, sem sæti eiga
i undirbúningsnefndinni og áð-
ur voru nefndir vita.
DJOÐVIUINN
Fimmtudagur 9. október 1975—40. árg. —229. tbi.
í dag er ég blankur og á ekki eyri...
Opinberir sjóðir eru galtómir
Hinir ýmsu sjóöir lands-
manna, þeir sem eru i
umsjá ríkisstjórnar Sjálf-
stæðisf iokks o g
Framsóknarf lokks, eru
tómir, og sumir svo fjár-
vana, að til þess að þeir
geti staðið i stykkinu þarf
að útvega þeim hundruðir
miljóna króna: einum til
að mynda þrjá fjórðunga
úr miljarði.
Gjaldeyrisvarasjóður
1 ágústlok i fyrra áttu is-
lendingar tvöþúsund tvöhundruð
fjörutlu og fimm miljónir i gjald-
eyrisvarasjóði sinum. Af honum
hafði verið eytt verulega til þess
tima það sem af var árinu.
Af honum hefur enn verið tekið,
og i lok ágúst i ár var engin inni-
stæða i þessum sjóði. Hins vegar
var skuld hans tvö þúsund eitt
hundrað tuttugu og sex miljónir,
eða 2 miljarðar 126 miljónir.
Gjaldeyrisvarasjóðs gætir við-
skiptaráðherra, Ólafur Jóhaniies-
son.
Lánasjóður
isl. námsmanna
Til þess að standa við lögboðnar
skuldbindingar sinar þarf Lána-
sjóður islenskra námsmanna 220
miljónir króna umfram það, sem
til er I honum. Þegar þetta varð
ljóst, varð einnig ljóst að góð ráð
hlutu að verða dýr. Eftir fræki-
lega framgöngu æðsta yfirmanns
sjóðsins varö niðurstaðan sú, að
sjóðurinn fær 27 miljónir til þess
að greiða þær 220, sem honum
ber, hvernig svo sem sú greiðslu-
konst verður i framkvæmd.
Æðsti yfirmaður þessa sjóðs er
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra.
Byggingasjóður ríkisins
Það fé, sem úthlutað er af
Húsnæðismálastofnun rikisins til
ibúðabygginga er fengið úr
Byggingasjóði rikisins.
Til þess að geta veitt þeim
byggjendum frumlán, sem rétt
eiga á þvi það sem eftir er ársins,
vantar sjóðinn 100 miljónir króna.
Til þess aö greiða þeim, sem
rétt eiga á seinni hl. af lánum,
þ.e. þeim sem gert hafa eöa gera
munu ibúðir sinar fokheldar á
timabilinu 1. júli til 1. desember,
vantar sjóöinn 660 miljónir króna.
Samtals vantar Byggingasjóö
þvi 760 miljónir króna til þess að
standa við lögboðnar skuldbind-
ingar slnar þetta ár.
Vfirgæslumaður Bygginga-
sjóös er Gunnar Thoroddsen,
félagsmálaráðherra.
Rikissjóður
Aður en skýrt verður frá stöðu
rikissjóðs skal getið framlags
yfirmanns hans, fjármála-
ráðherra, til reksturs
Byggðasjóðs.
Rikissjóður heldur eftir fé, sem
Byggðasjóður á að fá, sem nemur
15% af tekjum sjóðsins.
Fjármálaráðherra beitti sér
fyrir þvi, að framlag rikissjóös til
Atvinnuleysistryggingasjóðs var
skorið niður um 150 miljónir frá
þvi sem alþingi hafði ákveðið I
fjárlögum.
Þetta eru þó ekki einu afrek
fjármálaráðherra.
Skuld rikissjóös og rikis-
stofnana við Seðlabanka var 8.675
miljónir i ágústlok sl. og hafði
aukist um 4,7 miljarða frá sama
tíma árið áður.
Gæslumaður rikissjóðs er'
Matthias A. Matthisen,
fjármálaráðherra.
Glæta í myrkrinu
Eygja má þó ljós i myrkrinu.
Það stafar frá Verðjöfnunarsjóöi
sjávarútvegsins.
1 lok september i ár var inni-
stæða saltfiskdeildar 1137
miljónirkróna. Var á sama tima i
fyrra 357 miljónir króna.
Við sömu mánaðarlok var inni-
stæða i freðfiskdeild SOO.miljónir
króna. Var 1205 miljónir sama
dag 1974.
Innistæða loðnusjóða var 62
miljónir i lok sept. i ár, en 222
miljónir sama mánaðardag árið
1974.
Innistæöa rækjudeildar
sjóðsins var 58 miljónir króna
þann 1. sept. i ár, en 53 miliónir 1.
sept i fyrra. úþ