Þjóðviljinn - 09.10.1975, Blaðsíða 10
1« l>' - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. október 1975.
Sporvagninn Girnd: Erlingur Gislason, Þóra Friðriksdóttir og
Margrét Guðmundsdóttir i hlutverkum sinum.
Þjóðleikhúsið:
F rumsýningar
um helgina
Það er mikiö um að vera i Þjóð-
leikhúsinu þessa dagana. Tékk-
neski látbragðsflokkurinn
skemmtir fólki daglega og þegar
sýningum hans lýkur taka við
tvær frumsýningar um helgina,
önnur þeirra á barnaleikriti.
Fyrri frumsýningin verður á
laugardagskvöld og er það sú
fyrsta á stóra sviðinu á þessu
hausti Þá verður sýnt leikrit sem
i islenskri þýðingu hefur hlotið
heitið Sporvagninn Girnd. Fleiri
munu etv. kannast við heiti þess á
frummálinu: A Streetcar Named
Desire. Það er eftir bandariska
leikskáldið Tennessee Williams.
Þetta er i fyrsta sinn sem
islenskir leikarar glima við þetta
verk en það hefur þó borið fyrir
augu kvikmyndahúsgesta i túlkun
leikaranna Vivian Leigh og
Marlon Brando.
Sporvagninn Girnd er samið
1947 og er sögusviðið Suðurriki
Bandarikjaanna. Fjallar það um
heimsókn höfuðpersónunnar,
Blanche kennslukonu, til systur
sinnar, Stellu, sem gift er
pólskum manni, Stanley.
Leikstjóri i þessu verki er Gisli
Alfreðsson en Þóra Friðriksdóttir
fer með alaðlhlutverkið, Blanche.
Stella systir hennar er leikin af
Margréti Guðmundsdóttur,
Erlingur Gislason leikur mann
hennar, Stanley, og fjórða stóra
hlutverkið, vinur Stanleys, er i
höndum Róberts Arnfinnssonar.
Aðrir leikendur eru Bryndis
Pétursdóttir, Bjarni Stein-
grimsson, Flosi ólafsson,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Guðmunda Eliasdóttir, Kristinn
Karlsson, Ævar Kvaran og Auður
Guðmundsdóttir.
Þýðandi leiksins er örnólfur
Arnason en Birgir Engilberts
hefur gert leikmynd.
Á sunnudagsmorgun kl. 11
verður svo seinni frumsýning
helgarinnar. Þá verður sýnt
barnaleikritið Milli himins og
jarðar. Leikritið sem ætlaö er
allra yngstu börnunum — 3—7 ára
— er samið upp úr frægum
þáttum sem Ionesco samdi fyrir
Sendir
Framhald af bls. 3.
mótmæitu óréttlátri skattalög-
gjöf-
Félagið tekur af alhug undir
sanngjarnar kröfur þeirra Rnl-
vikinga og annarra, sem fylgþ
hafa þeim eftir, og hvetur skatt-
greiðendur i landinu til að láta
ekki staðar numið fyrr en leið-
rétting hefur fengist og menn
greiða gjöld sin til þjóðfélagsins i
samræmi við raunverulegar tekj-
ur.”
Milli himins og jarðar:
Sigmundur örn, Þórunn Magnea
og brúðan Josctta að skoða
útsýnið út um flugvélarglugga.
börn og sá sænskur maður, Staff-
an Westerberg um umskriftina.
Leikrit þetta tekur 45 minútur i
flutningi og verður sýnt i Kjall-
aranum en einnig er það sniðið
eftir þvi að menn geti pantað það
til sýninga i barnaheimilum og
skólum.
Við uppsetningu verksins hér er
fylgt leiðbeiningum Westerbergs
um að nota i þvi táknmál þau sem
heyrnarlausir nota til að tjá sig og
kynna börnunum táknin. Er i þvi
efni byggt á handriti að bók sem
ungur heyrnarlaus piltur, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, hefur
tekið saman. Hefur hann safnað
saman um 1.100 táknum og er
ætlunin að bókin verði gefin út á
næstunni.
Leikstjóri i þessu verki er Briet
Héðinsdóttir og fer hún einnig
með eitt þriggja hlutverka, hin
eru i höndum Sigmundar Arnar
Arngrimssonar og Þórunnar
Magneu Matthiasdóttur. Höfuð-
persóna leiksins er þó ekki af -
holdi og blóði heldur tuskudúkka
sem nefnist Jósetta. Er hún
ásamt öðrum brúðum og bún-
ingum leikara gerð af Guðrúnu
Svövu Svavarsdóttur sem nú
vinnur i fyrsta sinn fyrir
Þjóðleikhúsið. Vilhjáimur Guð-
jónsson hefur útsett og að hluta
samið tónlistina sem leikin er en
Karl Guðmundsson hefur þýtt
leikinn.
Þetta er i fyrsta sinn sem
Þjóðleikhúsið efnir til sýninga á
sunnudagsmorgnum. Að sögn
leikstjóra er þessi timi miðaður
við að mæður geti þá farið i
leikhús með börn sin meðan
feðurnir annast sunnudagssteik-
ina. _Þij
Alþýðubandalagið:
Miðstjórnarfundur
Fundur er boðaður i miðstjórn Alþýöubandalagsins þriðjudaginn 14.
október nk. kl. 20.30 að Grettisgötu 3.
Dagskrá:
1. Boðun flokksráðsfundar. 2. Landhelgismálið. 3. Störf Alþingis. 4.
Önnur inál.
Ragnar Arnalds
r
Asgeir Járnsmiður
Jónsson
Hver einn er gleymdur þá hann
er grafinn, nema nokkuð hafi sér
til ágætis unnið.
Nú varst þú grafinn i gær, en
ekki gleymdur, að minnsta kosti
ekki gömlum félögum i Félagi
járniðnaðarmanna.
Ég veit að þú hefðir kosið, að
ekkert hefði verið um þig ritað.
Óhjákvæmilegt er að minnast þin
á siðum þessa blaðs, þú varst þvi
og skoðunum þess svo trúr.
Með likama er ekki grafin skoð-
un eða hógværð, og það mun
geymast varðandi þig og koma
fram i öðrum.
Ásgeir Járnsmiður Jónsson.
Hvatning þin til okkar járniðnað-
armanna er ekki gleymd, þó þú
sérthorfinn. Við eigum hvatningu
þina i Járnsiðu, bókinni okkar.
Guðjón Jónsson.
Félag
25 ára
járniðnaðarmanna
Nú stöndum vér á merkum timamótum
og minnumst aldarfjórðungs starfs i dag
vors félags, sem að stendur styrkum fótum
og stöðugt hefur getað bætt vorn hag.
En minnumst þess, að margt er enn að starfa.
Vér megum aldrei hika á þeirri leið
sem miðar vorri stétt og þjóð til þarfa
með það i huga verður förin greið.
Ég veit, að Félag járniðnaðarmanna
mun jafnan standa fast um okkar rétt,
þvi unnin störf þess ótvirætt það sanna,
að cining hefur rikt i vorri stétt.
Vér stóðum oft í stórræðum og vanda,
en styrkur vor þá óx við hverja þraut.
Vér sameinaðir skulum stöðugt standa,
til starfs og dáða liggur okkar braut.
Vér skulum lands vors iðnað hefja hærra,
það hlutverk framkvæmt skal af vorri stétt,
og verksmið hennar verður sifellt stærra,
þvi verða ekki lcngur takmörk sett.
Og öll vor skip vér skulum sjálfir byggja,
er skapi okkur siðar lifskjör góð,
og þannig heill og hagsæld lands vors tryggja,
þvi hér skal búa frjáls og starfsglöð þjóð.
Asgeir Jónsson.
Chílenskir flóttamenn
Taka hús í
Argentínu
Buenos Aires 8/10 reuter — 15
chilenskir flóttainenn i Argent-
inu, karlmenn, konur og börn,
réðust i dag inn I skrifstofubygg-
ingu Klóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna i miðborg Bue-
nos Aires.
Sættir í
Rithöfunda-
sambandinu
Yfirlýsing frá Rithöfundasam-
bandi tslands:
Til að stuðla að þeirri einingu
rithöfunda, sem varð með stofnun
Rithöfundasambands tslands á
almennu rithöfundaþingi vorið
1974, hefur stjórn sambandsins
komið sér saman um aðláta niður
falla þær deilur, sem risið hafa
vegna umfjöllunar svokallaðs vl-
máls á fundi Norræna rithöfunda-
ráðsins. Stjórnarmenn munu ekki
ræða þessi deiluefni frekar i blöð-
um.
Reykjavik, 8.okt. 1975.
Sigurður A. Magnússon, form.
Stefán JUliusson, varaform.
Ingimar Erl. Sigurðss. gjaldk.
Kristinn Reyr, ritari
Ól. Ilaukur Simonarson meðstj.
Jenna Jensdóttir, varamaður
Ása Sólveig, varamaður
Tónleikar
Framhald af bls. 3.
Guðmundsson framkvæmdastjóri
hljómsveitarinnar, — þvi vissu-
lega væri skemmtilegra að hafa
sem flesta islendinga.
Karsten Andersen benti á, að ef
allir islenskir hljóðfæraleikarar
væru heima, væri ekki erfitt að
manna hljómsveitina eingöngu
með islendingum. Margir stór-
kostlegir hljómlistarmenn væru
erlendis og þvi miður ekki von á
þeim heim i bráð.
—gsp
Ástæðuna fyrir þessari aðgerð
sögðu flóttamennirnir vera léleg-
an viðurgjörning stofnunarinnar
við þá. Segja þeir að stofnunin
hafi i upphafi komið þeim fyrir i
bráðabirgðahúsnæði en þvi hafi
verið lokað fyrir tveim mánuðum
af heilbrigðisástæðum. Siðan hafi
stofnunin enga fjárhagslega að-
stoð veitt þeim til að leita sér að
nýju húsnæði.
Lögreglumenn umkringdu
bygginguna en réðust ekki til inn-
göngu.
ÞUsundir chilenskra flótta-
manna hafa komið til Argentinu
siðan herforingjarnir rændu völd-
um I september 1973. Hafa þeir
ýmist flúið eða verið reknir úr
landi. Talið er að nú séu um 3 þús-
und chilenar i landinu og biða
flestir eftir þvi að önnur lönd veiti
þeim hæli.
Austur-Timor
Gerðu indó-
nesar
innrás?
Djakarta 8/10 ntb. reuter — Tals-
maður Fretilin, róttækrar frelsis-
hreyfingar á Austur-Tinior, sagði
I dag að indónesiskar hersveitir
hefðu ráðist inn I Austur-Tímor og
tekið borgina Batugade á sitt
vald. Indónesisk stjórnvöld hafa
þvertekið fyrir þetta.
Talsmaður Fretilin, Mari Alka-
tiri, sem nú er á ferð I Astraliu til
að afla stuðnings þarlendra
stjórnvalda við baráttu samtak-
anna, sagði að hersveitir indó-
nesa hefðu farið yfir landamæri
eyjarhlutanna fyrir nokkrum
dögum, ráðist á Batugade en orð-
ið að hörfa aftur undan liðsmönn-
um Fretilin. Væri borgin nú á
þeirra valdi en umkringd
indónesiskum hersveitum.
Alkatiri sagði að hersveitirnar
hefðu beitt þyrlum, flugvélum og
herskipum við innrásina.
Montreal
Framhald af bls. 8.
og undanrásir handknattleiks og
knattspyrnu fara fram i Toronto
og Ottawa, Ontario-fylki og
Québecborg og Sherbrooke,
Québec-fylki. I stuttu máli, keppt
verður i hinum ýmsu greinum
Ólympiuleikanna á 29 mismun-
andi stöðum i Kanada.
Til að auðvelda miðasölu, hefur
áhorfendasvæðunum verið skipt
niður i fasta verðflokka (sæti ó-
númeruð) þ.e. visst verð gildi á
tiltekin áhorfendasvæði.
Þessa 15 keppnisdaga verður að
sjálfsögðu keppt i mörgum grein-
um samtimis á mismunandi stöð-
um, enginn einn miði gildir að öll-
um ólympiuleikunum, heldur eru
miðar gefnir út á hvern einstakan
leik.
Vegna fjarlægða á milli hinna
ýmsu leikstaða verður að gera
ráð fyrir tima til ferðalaga og
verða umboðsaðilar að vera
mótsgestum hjálplegir i þeim
efnum.
Portúgal
Framhald af 5. síðu.
hreyfingin hafi verið sjálfsvörn
portúgala. Hægri öflin hafi not-
fært sér hana og grætt á henni, en
hún hafi samt sem áður verið
vottur um raunverulega afstöðu
fólks, og ekki sprottin af undirrót
hægri aflanna.
Soares visar á bug öllum ásök-
unum um að flokkur hans hafi lát-
ið árásir og ofsóknir á hendur
kommúnistum afskiptalausar.
Þvert á móti heldur hann þvi
fram að þær hefðu orðið ennþá
heiftúðugri, ef sósialistar hefðu
ekki skorist i leikinn og beitt á-
hrifum sinum. Hann segir enn-
fremur að Kommúnistaflokkur-
inn geti sjálfum sér um kennt þvi
ástandið væri allt annað, ef hann
breytti um stjórnmálaaðferðir,
og tæki sér t.d. italska flokkinn til
fyrirmyndar.
t lok viðtalsins leggur Soares á-
herslu á að portúgalir verði að
snúa sér að lausn hinna gifurlegu
efnahagsvandamála i landinu,
sem hann telur að muni taka
mörg ár að ráða framúr.
(þýtt ogendursagt ekh)
[ , . & . ~
.SKIPAUTííCRÐ RIKISINS
M/s Hekla
fer frá Reykjavik þriðjudag-
inn 14. þ.m. vestur um land i
hringferð. Vörumóttaka:
fimmtudag, föstudag og til há-
degis á mánudag til Vest-
fjarðaliafna, Norðurfjarðar,
Sigluf jarðar, Ólafsfjarðar,
Akureyrar, Húsavikur, Rauf-
arhafnar, Þórshafnar, Bakka-
fjarðar, Vopnaf jarðar og
Borgarfjarðar eystra.
SENDLAR
Sendlar óskast fyrir hádegi eða allan dag-
inn. Þurfa að hafa reiðhjól eða vélhjól.
I
vam/m
^ Skólavöröustíg 19
J Slmi 17500