Þjóðviljinn - 09.10.1975, Page 4

Þjóðviljinn - 09.10.1975, Page 4
4 StOA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. október 1975. MÁLGAGN SÖSIALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. SVONA ER AÐ HAFA TUNGUR TVÆR Um þessar mundir eru rétt 30 ár liðin siðan rikisstjórn Bandarikjanna bar fram kröfu sina um herstöðvar á íslandi til 99 ára á Keflavikurflugvelli, i Reykjavik og i Hvalfirði. Það liggur nú fyrir, að áhugi banda- riskra stjórnvalda fyrir varanlegum her- stöðvum á Islandi var þegar á heimsstyrj- aldarárunum svo mikill, að öll framkoma fulltrúa þeirra við stofnun lýðveldis á Is- landi árið 1944 var fyrst og fremst við það miðuð, að tryggja bandaríkjamönnum herstöðvar á landi hér til frambúðar að styrjöldinni lokinni, og það þrátt fyrir ó- tviræð loforð um að hverfa frá íslandi með herinn strax að styrjaldarlokum. Skjöl Bandarikjastjórnar sjálfrar, sem ungur islenskur sagnfræðingur gróf upp þar vestra og birt voru fyrir svo sem tveimur árum i Skirni, timariti Hins is- lenska bókmenntafélags taka af öll tvi- mæli um undirferli og skuggaleg áform Bandarikjastjórnar, þau áform sem bjuggu að baki smjaðurslegri framkomu fulltrúa hennar við stofnun lýðveldis á Is- landi. Þá þegar, á Þingvöllum 17. júni 1944 var markvisst að þvi stefnt að tryggja Banda- rikjastjórn herstöðvar á Islandi ekki bara til striðsloka, heldur einnig á friðartim- um, til 99 ára, eins og krafan hljóðaði, það er um alla framtið. Og stefna Bandarikjastjórnar i þessum efnum hefur i engu breyst frá þvi krafan um herstöðvar til 99 ára var borin fram haustið 1945. Fyrir 30 árum var islenska þjóðin ein- huga um að hafna hinni ósvifnu kröfu stór- veldisins og það var gert. En þegar bandarikjamönnum hafði þannig á sinum tima verið synjað hér um inngöngu fordyramegin tóku ráðamenn þeirra samstundis að rjála við bakdyrnar i þvi skyni að koma fram áformum sinum um varanlegar herstöðvar. Árangurinn i þeim efnum þekkja allir. Fyrir 30 árum töldu flestir islendingar það engan veginn geta samrýmst ný- fengnu sjálfstæði þjóðarinnar að láta land okkar falt undir herstöðvar erlends stór- veldis jafnt i friði sem striði. Sú er enn afstaða flestra smáþjóða i veröldinni, þar á meðal allra Norður- landaþjóðanna annarra en islendinga. En hér hefur margt breyst á 30 árum. Nær allan þann tima hefur herstöðva- málið verið heitasta deilumál islenskra stjórnmála. Þar hefur skipst á sókn og vörn, en þráður baráttunnar fyrir her- lausu landi aldrei slitnað. Á ráðstefnu þeirri, sem nú hefur verið kvödd saman um næstu helgi er ætlunin að fjalla um herstöðvamálið i tengslum við önnur sjálfstæðismál okkar islendinga og með hliðsjón af alþjóðlegum viðhorfum i dag. Þar mun fólk með ólikar stjórnmála- skoðanir i öðrum efnum og úr ýmsum flokkum hittast og leggja á ráðin um nýja sókn i þvi skyni að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar i herlausu landi. Við skulum búa okkur undir langvar- andi baráttu og minnast þess að þrátt fyr- ir allt er það fyrst og fremst undir okkur sjálfum komið og þá allra helst unga fólk- inu, hvorum sagan dæmir sigur, — þeim, sem strengdu þess heit að una aldrei taki erlends valds á landi okkar, eða hinum, sem drógu lokur frá hurðum og eru i dag margir hverjir þjóðvilltir menn. OG LINNUM ALDREI Þessa dagana gengst Bandalag starfs- manna rikis og bæja fyrir fundum um land allt með félagsmönnum i stéttarfélögum opinberra starfsmanna. Gert er ráð fyrir að halda alls yfir 50 fundi, þar sem lagt er á ráðin um komandi kjarabaráttu og kannað, hvort menn séu reiðubúnir að gera kröfuna um verkfallsrétt að einu höf- uðmáli kjarasamninganna sem framund- an eru, en opinberir starfsmenn á nær öll- um hinna Norðurlandanna hafa nú verk- fallsrétt. Það er ástæða til að vekja athygli á þeim vinnubrögðum, sem fram koma hjá stjórn BSRB með þessum miklu fundar- höldum og þvi almenna samráði félags- manna, sem þar fer fram. Slikt er sannar- lega til fyrirmyndar. Rétt er einnig að rifja upp, að þegar gengið var frá kjarasamningum opin- berra starfsmanna fyrir tæpum tveimur árum réðist Morgunblaðið með miklum ofstopa á þá samningsgerð og skammaði forystumenn BSRB fyrir að hafa samið um alltof litla kauphækkun. Þá talaði mál- gagn Sjálfstæðisflokksins um ,,oliusamn- inga” i háðungarskyni og taldi þau kjör ó- sæmilega léleg, sem þeir samningar gerðu ráð fyrir. Nú er hins vegar svo komið eftir 14 mán- aða stjórn Sjálfstæðisflokksins, að til að ná þeim kaupmætti, sem „oliusamning- arnir” gerðu ráð fyrir þurfa laun opin- berra starfsmanna að hækka um hvorki meira né minna en 40—70% samkvæmt ó- umdeilanlegum tölum. Væri nú ekki timabært, að Morgunblað- ið tæki á ný að hvetja opinbera starfsmenn til dáða i kjarabaráttunni?-heimtaði jafn- vel verkfallsrétt? k. KLIPPT... Iskyggilegt ástand gjaldeyrismála Viö klippum og skerum úr Tlmanum i' gær. Fyrst að sjálf- sögðu úr leiðaranum. Þar er fjallað um nauðsyn þess að almenningur temji sér það að kaupa fremur innlendar vörur en erlendar þar sem islenskar iðnaðarvörur séu í flestum til- vikum samkeppnisfærar og sambærilegar. Undir þetta tekur Þjóðviljinn. En það er undarlegt að á sama tima og Þórarinn Þórarinsson vill beita sér fyrir þvi að almenningnr, neytendur, kaupi islenskar vörur, er flokkur hans andvigur þvi að stemma stigu við þvi að innflytjendur iðnaðarvara vaði i gjaldeyri til þess að kaupa vörur sem siðan ógna islenskum iðnaði. Þessi innflutningur er hvorttveggja i senn gjaldeyris- eyðsla, oft alveg óþörf, og um leið getur hún orðið til þess að kippa stoðunum undan mikil- vægum islenskum iðngreinum og þannig getur skapast hætta á atvinnuleysi. „Astand gjaldeyrismála er Iskyggilegt”, segir leiðari Timans og ,,Þvi er ekki um annaö að ræða en að reyna að spara gjaldeyri sem mest.” Og: ,,Á siðustu misserum hefur tals- vert aukist innflutningur á útlendum iðnaðarvörum. Inn- flutningur erlendra iðnaðarvara hefur bvi farið vaxandi og er á sumum sviðum að eyðileggja Jónas er ánægður með rlkis- stjórnina. Þar er svo mikill skortur á sundurlyndi. rekstrargrundvöll iðnfyrirtækj- anna. Hættan á slikum inn- flutningi er jafnan mikil i löndum þar sem markaðurinn er litill eins og hér. Islensk iðn- fyrirtæki þurfa ekki að missa nema litinn hluta af sölu sinni til þess að stoðunum sé kippt undan rekstrinum.” Þessi sjónarmið viðurkennir Þjóðviljinn, en það sama verður ekki sagt um Ólaf Jóhannesson, viðskiptaráðherra. Hann vill ekki gera neinar raunhæfar ráð- stafanir til þess að spara gjald- eyri landsmanna. Hann vill leyfa takmarkalausan inn- flutning á tertubotnum og glingri og þannig i senn setja gjaldeyrisstöðuna i hættu og atvinnulifið um leið. Þannig stangast eitt á annað horn i málflutningi framsóknar- manna um þessar mundir. Þvi það rökretta við gjaldeyris- stefnu Ólafs Jóhannessonar væri auðvitað að Timinn birti leiðara með áskorunum á fólk að kaupa sem allra mest af útlendum vörum. Og kannski veröur þess ekki langt að biða að slikir leiðarar sjáist i Timanum. Krummavíkur — kot? 1 Timanum i gær birtist SUF- siðan, en henni ritstýra þeir ungu menn sem eftir urðu i Framsóknarflokknum I fyrra. A SUF-siðunni er rætt um byggða- stefnu og þar segir: „Byggðastefnu er ekki rétt framfylgt með þvi að halda hverju koti og krummavik i byggð, heldur að styrkja og efla þá staði, sem þjóðarhagur krefst.” Þjóðviljinn vill fara fram á það við hina nýju forustu SUF að hún upplýsi landslýö um það hvaða krummavikur og kot það eru sem ekki á að „spandera” I fé með byggðastefnunni svonefndu. Sem skýrust stefna Kjósendur eiga heimtingu á þvi að vita hver er afstaða SUF i þessum efnum, og undir það er lika tekið á SUF- siðunni þó i öðru samhengi sé: „Ég lýsti þvi i upphafi að skoöun min væri sú að marka þyrfti ákveðna stefnu i þjóð- nýtingarmálum. Framsóknar- flokkurinn hefur oft vikið aö þessum málum i flokksþings- ályktunum, en ekki nógu afmarkað og ákveðiö. Kjós- endur eiga lika heimtingu á þvi að vita i sem skýrustum dráttum stefnu flokksins.” Tómir sjóðir Fyrir siðustu alþingis- kosningar birtust margir „uppslættir i Morgunblaðinu og öðrum ihaldsblöðum um hina tómu sjóði vinstristjórnarinnar. Allt var mjög ýkt i þessum skrifum ihaldsblaðanna svo ekki sé fastar að orði kveðið. En nú hefur þjóðin fengið að kynnast tómum sjóðum af eigin raun. Gjaldeyrisvarasjóður er enginn til,deildir verðjöfnunar- sjóðs fiskiðnaðarins eru að tæmast. Og i blöðunum i gær birtast enn fréttir um tóma sjóði. Að þessu sinni eru það byggingarsjóður rikisins og lánasjóður islenskra náms- manna. Samkvæmt frétt Timans i gær vantar 760 milj. kr. i byggingarsjóð rikisins og i lánasjóö islenskra námsmanna vantar 220 miljónir til þess að unnt sé að afgreiða haustlánin. ?? Skortur á nn sundurlyndi Meðan sjóðirnir tæmast situr stjórnin og aðhefst ekkert. Dyggustu fylgismönnum stjórnarflokkanna blöskrar. Þannig segir „Pétur” I Visi á þriðjudag: „Rikisstjórnir hafa hingað til verið dæmdar eftir verkum sin- um, og flestar hlotið þungan dóm að vonum. En eitthvað breytist i veröldinni þótt i litlu sé og hægt gangi. Nú situr hér rikisstjórn sem sennilega verður metin eftir aðgerðar- leysi hennar. Ef til vill hafa for- ráðamenn stjórnarflokkanna orðið fyrir slikum vonbrigðum i fyrri stjórnum, Viðreisn og Olafiu, að þeir hafi bundist fóst- bræðralagi um að láta það aldrei á sig sannast framar að þeir geri handtak. Laó-tse hinn austræni taldi þær stjórnir bestar sem láta fólkið i friði, en efnahagsástandið á Islandi verður ekki kennt við taóisma hvað sem öðru liður. Ef til vill ætti þjóðin reyndar að þakka guði fyrir þessa nýju stefnu stjórnarherranna, miðað við reynsluna af þeim, meðan þeir gerðu eitthvað. Það hefur hingað til þótt frumskilyrði farsælla stjórnar- hátta að rikisstjórn sé sæmilega samhuga og samhent. Aðalgall- inn á núverandi rfeisstjórn er stefnuleysi og athafnaleysi. Það hefur löngum þótt kostur á stjórnmálamönnum að meta málefnin meira en ráðherra- stólana. En nýr spámaður er upp risinn meðal vor, og hann er annarrar skoðunar. Jónas Kristjánsson á Dagblaðinu fagnar þvi að hvorugur stjórnarflokkurinn muni „hlaupast undan” þeim byrð- um sem axla ber. Jónas telur i blaði sinu að þetta viti á gott og bætir við: „Verðum við að vona að þessi samstaða eða skortur á sundurlyndi i rikisstjórninni verði þjóðinni til góðs i yfirvof- andi erfiðleikum”. Mættum við ekki fá að biðja rikisstjórnina um að klára og skýra stefnu og ótviræð úrræði? Almenningur er ekki svo litil- þægur að láta sér nægja „skort á sundurlyndi” þótt þess háttar nokkuð sé nóg fyrir Jónas ritstjóra.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.