Þjóðviljinn - 09.10.1975, Page 9
Fimmtudagur 9. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
GUNNAR GUNNARSSON
SKRIFAR
FJÖLMIÐLA
Dagblaöið Visir tók sig til á
haustdögum og fjölgaði sér með
skiptingu, þannig að skyndilega
riða tvö hasarblöð yfir haijsa
reykvikinga hvern virkan dag.
Að sjálfsögðu ber að fagna
góðum viðgangi fjölmiðla, jafn-
vel ættingjum Visis, þvi
sviptingar á þeim hversdags-
•lega ritvelli sem dagblöð
marka bera vitni um að þrátt
fyrir allt sé svolitið blóð i is-
lenskri blaðamennsku og
pólitik.
Kannski kemur i ljos á næstu
mánuðum, hvort þær sálir sem i
Reykjavik kaupa siðdegisblað,
eru tilbúnar til að kaupa tvö slik
af sama ákafa og Visir var
keyptur áður. Reyndar bendir
sitthvað til þess að Visir sé i
dauðateyg jum, ómældar
auglýsingar i sjónvarpi og út-
varpi bera þess vott, að eigend-
ur hans finni að hinn almenni
lesandi hafi gleymt sér.
Ef Dagblaðið svokallaða
sigrar i þessu einvigi sjálf-
stæðismanna um hasar-
markaðinn, fer ekki hjá þvi að
við sem tilheyrum þeim fá-
menna og sundurleita hópi blaö-
skrifara hér i bæ, verðum
svolitið hreyknir af. Ekki vegna
þess að við eigum sökótt við
Visi, i<!>ldur vegna þess að það
merkir að lesendur, kaupendur
blaða elta ritstjórnina og það
sem skrifað er, fremur en ein-
hverja flokkspólitik blaðsins.
í Þeim vonda bændaskelfi Jónasi
Kristjánssyni tókst nefnilega að
bregða sér i gervi pislarvottsins
sem varðað þola ranglæti vegna
skoðana. Siðan reynir hann að
láta kné fylgja kviði, kallar sig
„óháðan og frjálsan”, og mér er
nær að halda að ýmsir gleypi
þann brandara án athuga-
semda. Blaðaútgefendur hljóta
að draga lærdóm þar af.
1 nágrannalöndum okkar
flestum herjar uppdráttarsýki
dagblöðin, sjónvarp er að
Utrýma lestrarfikn og lestrar-
kunnáttu. Hér veitir sjónvarp
blöðum enga keppni, nema sem
auglýsingamiðill og þess vegna
hlýtur það að vera mögulegt að
láta gott dagblað standa undir
sjálfu sér.
Nu er það svo, bæði hér og
annars staðar, að „gangstéttar-
blöðin”, siðdegisblöðin sem
rekin eru með offorsi upp i and-
lit manna og þar sem þeir
rangla i erindisleysi daganna,
seljast meira en betri blöð.
Skýringin á þessu er einföld:
Gangstéttarblöðin feöfða til
meira kitlandi hvata, þau bjóða
morð og myndasögur, iþróttaaf-
rekin verða enn meiri en memn
héldu, siðgæðisglæpirnir enn
svartari en fólk reiknaði með.
Það er tilhneiging siðdegis-
blaðanna að mála veröldina
svart og hvita.
Hinn hviti sannleikur
siðdegisblaðanna i Reykjavik er
vitanlega kominn úr vasa
eigenda þeirra, manna eins og
Alberts Guðmundssonar og
Þóris Jónssonar, þeirra sann-
leikur er sannleikur oddfellowa
og frimúrara, afturhaldsmanna
allra landa sem hvarvetna sam-
einast um sina hagsmuni, sina
lygi og sinn smáborgarasann-
leik.
íslenskir blaðamenn hafa i
miklum mæli stuðlað að
yiðgangi þeirrar klafabundnu
og grunnsigldu blaða- og frétta-
mennsku sem iðkuð er við rikis-
fjölmiðlana hér og þau fjall-
heimsku dagblöð sem ganga
fyrir vélarafli einkaauðsins i
landinu. Það er sannarlega
tilefni nú, þegar ruglukollurinn
sem hin giruga fésýslustét á Is-
landi gefur út er orðinn
tvihöfða, að sómakærir blaða-
menn spyrni við fótum, krefjist
aukinna áhrifa á ristjórnum,
marki ritstjórnarstefnu, en láti
ekki hagsmunaaðila siga sér.
Fréttamenn sjónvarps og út-
varps ættu reyndar að vera
lausir undan einsýnum yfir-
boðara og geta verið sjálfstæðir
i starfi. En sú er ekki raunin,
þeir eru frimúrarar á
sjónvarpsínu eins og gefur að
skilja, annars fá þeir seint
vinnu, eða hyar i veröldini gæti
annað eins verið borið á borð
fyrir sjónvarpsnotendur og
eftirfarandi tekið orðrétt úr
Kastljósi sjónvarpsins á föstu-
daginn var:
Arni GunnarssonEf við
komum þá að kjarna þessa
máls: Gætir þú (Albert) á þess-
um stað og þessari stund lagt
eið að þvi að það væri ekkert
saknæmt samband á milli út-
hlutunar lóðarinnar til Ár-
mannsfells og miljönarinnar sm
fyrirtækið gaf i byggingarsjoð
sjálfstæðishússins?
Albert Guðmundson:-... ég er
reiðubúinn til þess að leggja
hönd á helga bók og staðfesta
það að ekkert óhreint er til i
sambandi við byggingu sjálf-
stæðishússins...
Spurningin vaknar sjálfkrafta
— tók maðurinn ekki við
miljón? Sá hann ekki um að
fyrirtæki sem borgarstjóri og
meðeigendur hans i Dagblaðinu
eru náskyldir fengi lóð fremur
en fjölmörg önnur fyrirtæki?
Hvaða tal er*{$etta um helga bók
og að leggja eiðað sakleysi?
Svona liðleskjuháttur gæti
hvergi viðgengist nema þá helst
i Undralandi hjá Lisu.
Norræni
menningarsjóðurinn
Norræni menningarsjóðurinn var stofnað-
ur árið 1966, og veitir sjóðurinn styrki til
norrænna samstarfsverkefna á sviði
menningarmála.
Á árinu 1976 mun sjóðurinn ráða yfir 6.5 millj. dkr. Af
þessu fé er ætlunin að veita styrki til norrænna samstarfs-
verkefna á sviði rannsókna, kennslumála og almennra
menningarmála. Verkefnin skulu vera þess eðlis, að þau
séu framkvæmd i eitt skipti fyrir öll, t.d. ráðstefnur, nám-
skcið, sýningar, hljómleikar, útgáfur o.fl., eða verkefni,
sem taka lengri tima. 1 siðast nefndu tilfelli kemur styrk-
ur þó einungis tii greina á reynslutimabili sem sjóðurinn
ákveður.
Til verkefna, sem þegar er hafin framkvæmd á, fæst undir
venjulegum kringumstæðum enginn styrkur úr sjóðnum,
og einungis þegar sérstaklega stendur á er hugsanlegt að
fá greiddan halla vegna verkefna sem þegar er lokið.
Styrkir til einstaklinga, s.s. námsstyrkir, styrkir til einka-
sýninga, einkahljómleika og þess háttar verða ekki veitt-
ir. I sambandi við rannsóknarverkefni er þess almennt
krafist að framkvæmd þeirra byggist á raunverulegri
samvinnu visindamanna frá Norðurlandarikjunum.
Umsóknir ber að rita á umsóknareyðublöð sjóðsins og er
þeim veitt viðtaka hvenær sem er. Umsóknir munu verða
afgreiddar eins fljótt og unnt er, væntanlega á fyrsta eða
öðrum stjórnarfundi eftir að þær berast.
Auk venjulegrar starfsemi sinnar mun sjóðurinn á árinu
1976 stuðla að svonefndum „menningarvikum” innan nor-
rænna sveitarfélaga. Má veita styrki til staðbundinna
menningarframkvæmda norræns eðlis. Þessi menningar-
starfsemi á að taka til ýmissa verkefna og vara minnst
þrjá daga. Styrk má veita sem nemur helmingi kostnaðar,
þar sem gert er ráð fyrir að sveitarfélag sem i hlut á greiði
hinn helminginn. Sveitar- og sýslufélög séu umsóknar-
aðilar. Umsóknir sendist á umsóknareyðublöðum menn-
ingarsjóðsins. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 1975.
Frekari upplýsingar um starfsemi sjóðs-
ins veitir Norræna menningarmálaskrif-
stofan, Snaregade 10, DK-1205 Kaup-
mannahöfn, simi 01/11 47 11.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað og
einnig i menntamálaráðuneytinu, Hverf-
isgötu 6, Reykjavik, simi 25 0 00.
Sinf óníuhl j ómsveit
r
Islands
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 9. október kl.
20.30
Stjórnandi KARSTEN ANDERSEN
Einleikari ARVE TELLEFSEN, fiðlu-
leikari
Efnisskrá: Jón Nordal — Leiðsla
Carl Nielsen - Fiðlukonsert
Sibelius - Sinfónia nr. 1
Aðgöngumiðar i bókabúð Lárusar Blöndal
og bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
Fulltrúastaða
í utanríkisþjónustunni
(Staða fulltrúa i utanrikisþjónustunni er
laus til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist utanrikisráðu-
neytinu, Hverfisgötu 115, Reykjavik, fyrir
10. nóvember 1975.
Staðan verður veitt frá og með 1. janúar
1976.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 7. október 1975.
Engar undanþágur
Ilrcppsncfnd Hafnarhrepps
ályktaði á fundi sinum 2. okt. að
ekki kæmi til grcina að leyfa
neinar undanþágur til vciða fyrir
útlendinga innan 200 milna lög-
sögunnar, sem hún styður heils-
hugar.
Jafnframt tekur hreppsnefndin
fram að til þess að útfærslan nái
tilgangi sinum verði að setja
strangari reglur um nýtingu
fiskistofnanna innan landhelginn-
ar, svo sem meiri hömlur á hið
óhóflega ungfiskadráp, sem átt
hefur sér stað og að visindalegt
eftirlit með ástandi fiskistofna
verði stóraukið, og þeir sem ger-
ast brotlegir við fiskveiðilöggjöf-
ina verði látnir sæta viðurlögum.
ORÐSENDING
Ráðuneytið minnir á, að samkvæmt reglugerð nr. 62/1975,
um orlof kennara og skólastjóra samkvæmt grunnskóla-
lögum, eiga umsóknir um orlof skólaárið 1976/7 að hafa
borist ráðuneytinu fyrir 1. nóvember.
Menntamálaráðuneytið,
8. okt. 1975.