Þjóðviljinn - 16.10.1975, Síða 3

Þjóðviljinn - 16.10.1975, Síða 3
Fimmtudagur 16. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3 Togarajaxlar ánœgð- ir með útfœrsluna Þjóðviljinn hafði í gær samband við fjóra togaraskipstjóra, sem allir voru með skip sín að veiðum q' hinum ýmsu miðum við landið. Voru þeir að vonum hæst- ánægðir með útfærslu landhelginnar. Bretinn kemur eftir mánaðamót. Asgeir GuObjartsson, skipstjóri á Guðbjörgu 1S, sagði að allir menn um borð væru ánægðir með útfærsluna og að vel lægi á mönnum. Engir út- lendingar eru á Vestfjarða - miöum þessa stundina. Þar hefur verið stormur síðustu tvo daga. Góður afli var og ágætur áður en brældi upp, en sáralitil veiði eftir bræluna. Fékkst stór þorskur og var hann 50 - 70% aflans. Sagði Ásgeir að samkvæmt samningi kæmu bretarnir á miðin þar vestra eftir mánaða- mótin næstu. Sagðist hann vera hræddur um að v-þjóðverjar kynnu að koma þangað lika, en mjög bagalegt væri að fá þá i þorskstofninn. Til þessa tima hafa v-þjóðverjar nær eingöngu haldið sig við karfaveiðar. Sagði hann, að erfitt yrði að verja landhelgina, en hægt ætti að vera að trufla veiðiþjófana eins og gert hefði verði með góðum árangri af landhelgis- gæslunni, og þótti honum sem gæslan hefði staðið sig vel i þvi. Færeyingar heldur nálægt Hlustunarskilyrði voru vægast sagt bágborin þegar við töluðum við skipstjórann á Ljósafeliinu, ísleif Gislason.Þó heyrðum við það til hans, að hann væri harla ánægður með úrfærsluna. Þótti honum þó sem færeyingar væru að nálgast landið i sifellu og væru orðnir iskyggilega margir. Sagðist hann vilja setja þá i sama flokk og breta. Annað heyrðum við ekki. Flaggað á Barða Við flöggum fyrir útfærslunni, sagði Sveinn Benediktsson á Barða NK. Sagði Sveinn, að engir útlendingar væru þar sem þeir væru að veiðum þessa stundina út af Austurlandi, þeir héldu sig norðar. Engir togarar annarra þjóða voru nálægir Barða, þar sem hann var við veiðar Sveinn sagði, aö afli væri tregur, enda væri þetta lélegasti árstiminn. Sagði hann, að ef örlaði einhversstaðar á fiski þá skelltu bretar sér yfir hann á auga lifandi bragði. Þvi sagðist hann vona að við losnuðum við þá af miðunum sem fyrst. Vilja ekki semja Menn eru almennt voðalega kátir yfir þessu, sagði Ragnar Finnsson, skipstjóri á Dag- stjörnunni, en hún var á miðunum út af Reykjanesi i gær. Sagðist Ragnar enga útlendinga hafa séð að veiðum i dag, en einn útlendan togara á siglingu i gær. Sagðist hann þó hafa orðið var við hálf- útlendinga, þeas. færeyinga. Ragnar sagði að það væri svo að segja einhugur meðal sjó- manna um það að semja ekki um veiðiheimildiir handa út- Dagstjarnan KE lendingum innan land- helginnar. Ragnar sagði, að þeir á Dag- stjörnunni hefðu undirritað skeyti það, sem sjávarútvegs- ráðherra barst i gær vegna verðlagningar á fiski. Sagði hann að sér þætti skitlegast verðið að karfanum, þvi þaö væri sama hvort karfinn væri smár eða stór, hann væri allur á sama verði. Ekkert er hægt um aðgerðir að segja, sagði Ragnar, nema þá það, að verði gripið til einhverra aðgerða, þá hljóta allir, sem undir skeytið skrifuðu að standa saman sem einn maður . —Er þetta ekki nóg? sagði Ragnar, ég þarf að fara að kasta. Og auðvitað var þetta nóg. “úþ Tillaga Öddu Báru í borgarstjórn: Niðurgreiðsla á dagvistunarkostnaði Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarf ulltrúi Alþýðu- bandalagsins, hefur lagt svohljóðandi tillögu fyrir borgarstjórn: „Borgarstjórn ákveður að taka upp niðurgreiöslu á dvalarkostn- aði barna, sem eru i dagvist á einkaheimilum undir eftiriiti Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkur borgar, þegar um er að ræða börn einstæðra foreldra eða börn námsmanna. Heimilt skal einnig vera að láta þessa niðurgreiðslu ná til annarra barna, ef um erfið- ar heimilisástæður er að ræða. Félagsmálaráð skal meta, hvað telja beri eðlilega greiðslu tii þeirra heimiia, sem hafa börn i dagvist, og ákveða siðan niður- greiðsluna sem mismun á þeirri upphæð og því gjaldi, sem greitt er fyrir börn á dagheimilum Sumargjafar. Niðurgreiðslur samkvæmt framansögðu hefjist i janúar 1976.” Tillaga öddu Báru verður rædd á borgarstjórnarfundi sem hefst klukkan 17:00 i dag i Skúlatúni 2. Kvennaverkfall á landsbyggðinni Konur koma sam- an til fundahalda Það styttist óðum i kvennaverkfallið sem skellur á eftir rúma viku. Undirbúningur er i fullum gangi á Reykjavikursvæðinu og við höfðum tal af Björk Thimsen, sem hefur með tengslin við lands- byggðina að gera og inntum hana eftir þvi hvernig málin gengju þar. Björk sagði að undirbúnings- nefndin hefði sent öllum kven- félögum landsins dreifibréf og auk þess haft samband við fólk i hverju byggðarlagi og beðið það að skipuleggja eitthvert starf hver á sfnum stað. Þetta starf er einmitt að fara i gang um þessar mundir. 1 fyrrakvöld var t.d. haldinn fundur I Borgarnesi, á Siglufirði og Akureyri er undirbúningur hafinn og i Neskaupstað og viðar er hann að hefjast. Ekki gat Björk sagt okkur hvernig aðgerðum yrði hagað á hverjum stáð, þar sem starfið er rétt að byrja. Þó sagði húri að Kvenfélagasamband Borgar- fjaröar hefði ákveðið að fjöl- menna á útifundinn sem haldinn verður hér i Reykjavik. — ÞH. Rýrnuðu mjölbirgðir? Lögreglurannsókn á Bíldudal Að sögn Jóhannesar Arna- sonar, sýslumanns á Patreks- firöi, barst embætti sýslumanns þar sl. sunnudag beiðni um rannsókn á útskipun á fiskimjöli, sem skipað var út I Disarfell, þar sem það var statt á Bildudal en Goði h.f. á þetta mjöl. Lögreglurannsókn hófst i málinu á sunnudag, og i gær var sýslumaður staddur á Bildudal við rannsókn málsins, en hún mun standa yfir fram eftir vikunni. Sýslumaður kvaðst ekki geta sagt neitt um málið ,á þessu stigi. Hins vegar hefur Þjóðviljinn fregnað, að um sé að ræða 200 poka af mjöli, sem Goði h.f. átti i geymslu, en það mun hafa verið sett sem trygging fyrir fjárskuld- bindingum fyrirtækisins. -uþ. Leifur Þórarinsson. Agnes Löve Nýr einleikari og nýtt verk Leifs A tónleikum Sinfónfuhljóm- sveitar Islands i kvöld kemur fram nýr einleikari með hljóm- sveitinni Agnes Löve. Þá verður á tónleikunum flutt nýtt verk eftir Leif Þórarinsson, tónskáld. Nefnist það JO. Stjórnandi verður Alun Francis frá Beifast. Agnes Löve er borin og barnfædd reykvikingur, dóttir hjónanna Hólmfriðar og Þor- steins Löve. Hún stundaði fyrst tónlistarnám við Tónlistar- skólann i Reykjavik, þar sem Rögnvaldur Sigurjónsson var aðalkennari hennar um sex ára skeið, en siðan hélt hún til Leipzig og stundaði þar nám i sjö ár, eða til ársins 1967. Hún hefur starfað sem pianókennari frá þvi að námi lauk, en auk þess leikið einleik i útvarp, annast undirleik með kór- um og ýmsum innlendum og er- lendum listamönnum. 1 kvöld leikur Agnes einleik i pianókonsert i A-dúr K488 eftir Mozart. Hún sagði fréttamannai Þjóðviljans i gær, að hún hefði verið við æfingar samfellt i 3-4 mánuði, um fjóra tima á dag. Ennfremur hefði hún æft verkið áður löngum i svo sem eitt ár. Verkið tekur 25 minútur i flutningi. Auk verkanna eftir Mozart og Leif Þórarinsson flytur hljóm- sveitin i kvöld Sinfóniu nr. 3 eftir Schumann. Stjórnandinn, Alun Francis, er fæddur 1943 og hefur verið hljóm- sveita rstjóri Ulster-hljóm - sveitarinnar frá 1966. Hann hefur stjórnað hljómsveitum viða, en þetta er i fyrsta sinn, sem hann stýrir hljómsveit hér á landi. Námsmannaaðgerðir í undirbúningi Mikil ólga er nú meðal náms- manna vegna þess dráttar sem ákveðið er að verði á úthlutun haustlána og vegna þcirrar ákvöröunar st jórnarinnar að skera niður f járveitingu til náms- lána á fjárlögum um hclming. Kjarabaráttunefnd sem er samstarfsnefnd allra þeirra námsmannasamtaka, sem rétt eiga á námslánum, hefur mót- mælt „þessari ósvifnu framkomu og krafist þess að stjórnvöld hverfi frá kjaraskerðingaráform- um sinum.” Jafnframt segir i ályktun frá nefndinni aðhún telji „einsýnt að námsmenn muni á næstu dögum grípa til aðgerða til þess að verja kjör sin.” Mikil fundahöld eru nú i öllum skólum um lánamálin og að þvi er Þjóðviljinn hefur fregnað rikir mikill einhugur meðal náms- nanna um að krefjast kjarabótar i stað kjaraskerðingar. Jafnframt er það rætt af kappi til hvers- konar aðgerða eigi að gripa til þess að knýja stjórnvöld að breyta afstöðu sinni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.