Þjóðviljinn - 16.10.1975, Qupperneq 9
Fimmtudagur 16. október 1975. ÞJÓÐVILJINN' — SÍÐA 9
Aðalfundur
Alþýðu-
bandalagsins
á Seyðisfirði
Nýlega var haldinn aðalfundur
i Alþýðubandalagsfélagi Seyðis-
fjarðar. Margir nýir félagar bætt-
ust i hópinn og fyrirhugað er
öfiugt félagsstarf.
Þeir Sigurður Blöndal, þáv.
form. kjördæmisráðs og Helgi
Seljan alþm. mættu á fundinum
og ræddu um stjórnmálaástandið
og félagsstarfið.
f stjórn voru kjörnir: Jóhann
Jóhannssor; kennari formaður,
Sigurbjörn Sigtryggsson ritari og
Hermann Vestri Guðmundsson
gjaldkeri. Fundurinn kaus 3
fulltrúa á kjördæmisráðsfundinn
á Iðavöllum 20.-21. sept. s.l. en
hann var hinn f jölsóttasti, nálægt
50 fulltrúar af öllu svæðinu.
Ferðamála-
ráðstefna
á Hásavik
Feiðamálaráð hefur ákveðið
að efna til hinnar árlegu ferða-
málaráðstefnu, sem að þessu
sinni verður haldin á Húsavik.
Ferðamálaráðstefnan verður
sett föstudaginn 14. nóvember nk.
og hefst kl. 10 f.h. Ráðstefnunni
verður svo fram haldið laugar-
daginn 15. nóvember og verður
slitið þá um kvöldið.
Dagskrá og fyrirkomulag
verður auglýst siðar.
Biskupinn
af Islandi
gerður
heiðurs-
doktor í
Winnipeg
Sunnudaginn 5. október var
biskupinn af islandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, gerður að
heiðursdoktor við Winnipeg-há-
skóla.
Það var dr. Paul Thorlakson.
sem sæmdi biskupinn heiðurs-
doktorsnafnbót við hátiðlega at-
höfn, en hann er einn af helstu
forvstumönnum vestur-islend-
inga i Manitoba. Átti hann átt-
ræðisafmæli þennan sama daga.
Við þessa athöfn voru einnig af-
hentar minningarplötur handa
Winnipeg-háskóla og Manitoba-
háskóla um vesturferðir is-
ienskra manna. A báðum plötun-
um var efst áletrun á ensku um
fund Ameriku og undir henni var
mvnd af þeirri siðu Flateyjar-
bókar. þar sem sagt var frá þeim
atburði. Sitt hvorum megin við
myndina var ensk og frönsk þýð-
ing textans.
Þjóðviljinn skýrði frá
þvi á dögunum, að
nokkurt magn af
skemmdum fiski hefði
verið sent til Bandarikj-
anna, og við athugun á
fiskinum kom i ljós, að
hann var frá frysti-
húsinu Jökli á Raufar-
höfn.
Tveir islendingar fóru vestur
um haf til að kynna sér ástandið,
og að sögn Ólafs Kjartanssonar,
framkvæmdastjóra Jökuls h/f,
var um að ræða 2.600 kassa
sendingu.
Búið er að kanna helming þess
magns og verða 1000 kassar
athugaðir nánar.
Þá voru 300 kassar af fiski
hússins, sem enn eru geyndir
nyrðra, dæmdir úr leik. Hver
kassi inniheldur 3x18,5 pund. Sá
fiskur, sem hér um ræðir, er ufsi.
Ólafur sagði ástæðuna fyrir
þessum skemmdum vera þá, aö
menn hefðu taliö ufsa sterkari
fisk enn annan, það er þola betur
geymslu fyrir vinnslu, en til
dæmis ýsa og þorskur. Því hefði
það oft á tlðum dregist að ufsinn
yrði unninn meðan annar fiskur,
viðkvæmari, hefði verið i
vinnslu.
Einnig nefndi Ólafur, að
aðstöðu til þess að taka sýnishorn
af fiski á visindalegan hátt væri
hvergi að finna nema i Reykjavik
og yrðu menn þvi að láta
þefskynið og brjóstvitið ráða
þegar úrskurða þyrfti hvort
fiskur væri vinnsluhæfur eða
ekki.
Bjóst framkvæmdastjórinn við,
að fjárhagslegur skaði frysti-
hússins af þessu máli mundi i
mesta lagi nema um tveimur
miljónum króna. —úþ
Karlakór Reykjavikur syngur fyrir vistmenn elliheimilisins Betel i Gimli.
Karlakór Reykjavíkur í söngför
til Kanada og Bandaríkjanna
Á þriðjudaginn kom Karlakór
Reykjavikur heim úr söngför til
Kanada og Bandarikjanna. Þessi
ferð var þáttur i menningarhátið i
Winnipeg i tilefni af hundrað ára
afmæli islensks landnáms i
Manitoba, og hélt kórinn söng-
skemmtanir i Winnipeg, Brandon
og að Lundum. Var mikil aðsókn
og kórnum hvarvetna mjög vel
tekið. Einnig kom kórinn til Gimli
og Selkirk og söng fyrir vistmenn
á elliheimilur.um þar. Eftir söng-
förina um Nýja Island fór kórinn
loks til Minneapolis og hélt þar
siðustu söngskemmtun sina i
ferðinni.
Stjórnandi kórsins var Páll P.
Pálsson og undirleikari Anna Ás-
laug Ragnarsdóttir. Sigurður
Björnsson óperusöngvari, sem
starfar við óperuna i Munchen,
söng einsöng með kórnum i þess-
ari ferð.
Viö höfum opnaó nýja veitingabúð á þriöja hundrað manns í einu notið
í Hótel Esju-Esjuberg. Esjuberg er
opið alla daga frá átta á
morgnana til tíu á kvöldin. Þar geta
okkar fjölbreyttu rétta
- allt frá ódýrum smáréttum upp
í glæsilegar stórsteikur.
Verið velkomin.
QO
Oo
Suöurlandsbraut 2.
Sími 82200
Tveggja miljóna skellur