Þjóðviljinn - 23.10.1975, Qupperneq 1
UOWIUINN
Fimmtudagur 23. október 1975 — 40. árg. — 241. tbl.
Kvennaverkfallið
Gifurleg þátttaka virðist ætla
að verða i kvennaverkfallinu á
morgun. Undirbúningurinn hef-
ur hvatt konur úr öllum starfs-
stéttum til þess að hafa frum-
kvæði að eigin dagskrá, sér-
fundum, umræðum. Ekki er
nokkur leið að henda iengur
reiður á þvi sem um verður að
vera á morgun, en á 3. siðu
blaðsins i dag eru birt nokkur
dæmi um hvað á döfinni er. Þá
hafa fjölmörg stéttarfélög og
samtök lýst stuðningi við
kvennaverkfallið, sem er ein-
stæður atburður og hefur þegar
vakið heimsathygli.
Bátamir
streymdu
inn í
allan
gærdag
Svo virðist sem þátttaka
sjömanna i að leggja niður
vinnu vegna hins lága fisk-
verðs ætli að verða mjög al-
menn. Strax i gærmorgun
byrjuðu bátarnir að streyma
inn til Reykjavikur. Um kl. 8
komu 15 saman i hóp og siðan
hver af öðrum jafnt og þétt.
Þá var og von á mun fleiri bát-
um með kvöldinu og um nótt-
ina.
Frá isafirði fréttum við að
þau 30 skip, togarar og minni
bátar, sem hefðu verið að
veiðum i Djúpinu væru flest
lögð af stað til lands, örfá
munu þó ætla að skerast Ur
leik, svo sem togararnir
Karlsefni RE, Guðbjörg ÍS og
Páll Pálsson.
Frá Vestmannaeyjum frétt-
um við að skipin væru að
streyma inn, enþar sem veður
var heldur vont voru menn -
ekki vissir um hve mörg skip-
anna komu inn til að taka þátt
I verkfallinu og hve mörg
vegna brælunnar, en búist var
viö góðri þátttöku Eyjabáta.
Mikill einhugur mun vera
meðal sjómanna i Þorlákshöfn
að sögn Þorsteins Sigvalda-
sonar fréttaritara okkar þar.
Sagði hann að Þorlákshafnar-
bátar væru að koma inn hver
af öörum. Nokkrir eiga þó net i
sjó sem þeir munu hafa ætlað
að sækja sl. nótt en leggja svo
bátunum frá og með deginum i
dag, aðrir lögðu þeim strax i
gær.
Frá Grindavik fréttum við
að nokkrir bátar myndu ætla
til Reykjavikur og svo mun
um fleiri báta utan af landi.
Þeir stefna til Reykjavikur til
þátttöku í verkfallinu. — S.dór
Sjómenn komu til Reykjavikur f gær og voru ómyrkir I máli i garð stjórnvaida. Sigurmerkið ber vott um baráttuhug þeirra. Mynd. S.dór.
Svar ráðuneytisins
eins og hnefahögg
Sagði Oskar Vigfússon formaður Sjómannafélags Hafnarfjarðar
— Sú tilkynning sem sjávarút-
vegsráðuneytið gaf út I gær sem
svar við kröfum okkar og iesin
var upp i hádegisfréttunum i gær
var eins og hnefahögg i andlit
okkar og mér er kunnugt um að
það varð til þess að heröa þá upp,
sem voru vakandi um að taka
þátt i mótmælum okkar, sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar, sem
verið hefur einn af aðalmönnum
sjómanna i viðræðum þeirra við
sjávarútvegsráðuneytið um
hækkað fiskverð og breytingu á
sjóðakerfinu.
— Sá leikur ráðuneytisins, sem
felst i þessari tilkynningu hefur
eflaust verið leikinn vegna þess
að það taldi að samstaða sjó-
manna væri að rofna, en þar hafa
þeir leikið af sér eins og alltaf
getur komið fyrir, tilkynningin
varð til þess að þjappa mönnum
saman. Og það er einnig ljóst af
tilkynningunni að afstaða ráðu-
neytisins hefur ekkert breyst,
þannigað deilan er þar með orðin
blýföst.
— En það vil ég taka fram, að
sjómenn gera það ekki af leik sin-
um að sigla flotanum til Iands,
það verða menn að gera sér ljóst.
Þetta er neyðarráðstöfun, þar eð
kjörin eru komin niður á núll.
Þegar ég tók að mér að vinna að
þessu máli fyrir þá, þá bauðst ég
til að segja af mér formennsku i
Framhald á bls. 10
SJÁ OPNU
4 þúsund nemar
mótmœltu á
Austurvelli
— Sjá 5
Siðleysi
stjórnarinnar
gagnrýnt á þingi
2. siða
I fjoi lamnade Sten An-
I derason sjalv över 10 000 kro-
I nor ti'U det islandska broder-
Ipartiet. I ár har svenskarna
I lamnat ett visst tidningsstöd
I till det islándska partiet.
Alþýðuflokkurinn
fær peninga erlendis frá
Framkvœmdastjóri sœnskra krata segist
sjálfur hafa afhent peningana
Sten Anderson, fram- krata skýrir frá þvi i mánaðar, að islenski Al-
kvæmdastjóri flokks viðtali við sænska ,,Af- þýðuflokkurinnsé meðal
sænskra sósialdemó- tonbladet” þann 9. þessa þeirra flokka, sem
Námsmenn settust upp í sendiráðinu
í Osló — Sjá opnu
Sten Anderson
sænskir kratar hafi
greitt fjármuni til stuðn-
ings bæði i ár og i fyrra.
1 viðtalinu við Sten
Anderson, fram-
kvæmdastjóra sænsku
kratanna kemur m.a.
annars fram eftirfar-
andi:
Sjá nánar
á 3. síðu